Erlent

Tugþúsundir mörgæsa í hættu

Tugþúsundir mörgæsarunga eiga á hættu að svelta til bana á næstu vikum þar sem risastór ísjaki hamlar för þeirra til stranda Suðurskautslandsins þar sem mörgæsir eru vanar að matast og hefur að auki lokað á möguleika þeirra til að afla sér fæðu úr sjó. Nokkur þúsund mörgæsapör þurfa að fara 180 kílómetra leið til að sækja fæðu fyrir unga sína. "Þegar mörgæsirnar koma aftur úr fæðuöflun sinni verða þær búnar með alla fæðuna," sagði nýsjálenski vísindamaðurinn Lou Sanson sem telur að fæstir mörgæsarunganna komist á legg. Þrjú þúsund ferkílómetra stór ísjakinn B15A er svo stór að ef vatnið úr honum væri brætt tæki það áttatíu ár fyrir vatnið að fara í gegnum Nílarfljót. Sanson segir B15A vera stærsta fljótandi hlut sem til er á jörðu í dag. Hann segir enn fremur að ísjakinn kunni að loka siglingaleiðum flutningaskipa sem sjá um birgðaflutninga til þriggja vísindastöðva á Suðurskautslandinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×