Brottflutningurinn tryggður? 10. desember 2004 00:01
Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefur boðið stærsta stjórnarandstöðuflokknum í Ísrael, Verkamannaflokknum, að mynda með sér þjóðstjórn. Takist það eru áætlanir Sharons um að brotthvarf Ísraelsmanna frá Gazasvæðinu taldar tryggðar. Eitt stærsta málið í deilum Palestínumanna og Ísraela eru landnemabyggðir gyðinga inni á svæðum palestínumanna. Á Gazasvæðinu búa um átta þúsund gyðingar innan um eina og hálfa milljón Palestínumanna, undir öflugri hervernd ísraelskra hersveita. Sharon hefur ekki haft stuðning meirihluta þingmanna við fyrirætlanir sýnar um að rýma landnemabyggðir gyðinga á Gazasvæðinu, og fjórum stöðum á Vesturbakkanum, og fara þaðan með hersveitirnar. Hann hefur rekið nokkra meðlimi ríkisstjórnar sinnar vegna málsins. Verkamannaflokkurinn, sem er í stjórnarandstöðu, styður hinsvegar brottflutning Ísraelsmanna frá Gaza, og hafði Sharon hótað að boða til til kosninga ef hann fengi ekki heimild hjá sínum eigin flokki, Likud-flokknum, til að mynda þjóðstjórn með Verkamannaflokknum. Í gærkvöldi samþykkti flokkurinn þetta, og strax í morgun bauð Sharon Simoni Peres, leiðtoga Verkamannaflokksins, til viðræðna um myndun nýrrar stjórnar. Ef af verður, má telja að fyrirætlanir um brotthvarf gyðinga frá Gasasvæðinu séu tryggðar. Viðræður um myndun nýrrar stjórnar munu væntanlega hefjast um helgina, en áætlanirnar fela í sér að í staðinn fyrir brottflutning gyðinga frá Gazasvæðinu verði innlimað í Ísraelsríki landtökusvæði á vesturbakka Jórdanár. Palestínumenn hafa lýst ánægju sinni með þessa þróun mála í morgun, og segjast vonast til þess að þetta muni ýta undir árangur friðarumleitanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Sjá meira