Eitrunin rannsökuð 12. desember 2004 00:01
Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að hefja lögreglurannsókn á því hvort eitrað hafi verið fyrir Viktor Júsjenkó, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Úkraínu. Austurrískir læknar tilkynntu í gær að orsökin fyrir veikindum hans, sem meðal annars lýsa sér með útbrotum í andliti og margskonar einkennum frá líffærum, væri díoxín eitrun. Júsénkó veiktist í september og hafa veikindin ágerst mjög hratt. Síðustu dagana fyrir forsetakosningarnar umdeildu í lok nóvember var hann sárþjáður og fékk verkjalyf í æð á síðustu metrum kosningabaráttunnar. Saksóknarar í Úkraínu hafa nú fyrirskipað að málið verði rannsakað, en áður hafði lögregla komist að þeirri niðurstöðu að ekkert benti til þess að eitrað hefði verði fyrir Júsjenkó. Austurrísku læknarnir segja að ef Júsjenkó hefði ekki komist undir læknishendur hefði hann látist af einkennum sínum. Svo virðist sem líffæri Júsénkós séu ekki varanlega skemmd, en sérfræðingar segja að minnksta kosti tvö ár muni líða áður en andlit hans verður eðlilegt á ný, ef það verður það nokkurn tímann. Júsjenkó hefur ítrekað sakað stjórnvöld um að hafa eitrað fyrir sér. Þessar ásakanir verða væntanlega ofarlega á baugi í kosningabaráttunni, en forsetakosningarnar verða endurteknar sem kunnugt er, þann 26. desember, vegna deilna og ásakana um kosningasvindl af hálfu forsætisráðherrans Janúkóvits. Nýjustu kannanir sýna að fylgi við Júsjenkó sé tíu prósentustigum meira en keppinautar hans, forsætisráðherrans Janúkóvits.
Erlent Fréttir Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Sjá meira