Yfir 100 þúsund látnir? 29. desember 2004 00:01
Talið er að yfir eitt hundrað þúsund manns hafi farist í hamförunum í kjölfar jarðskjálftans á Indlandshafi, þar af um þriðjungur börn. Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður Stöðvar 2, er staddur á Phuket-eyju í Taílandi, sem varð sérstaklega illa úti. Hann segir ástandið óljóst, en vitað sé að um 1600 hafi farist á Taílandi. Hann segir að unnið sé að því að koma ferðamönum á brott, en augljóst sé að mikið starf sé enn fyrir höndum. Meðal annars hafi mörg hús hreinlega þurrkast út í hamförunum. Ingólfur segir aðstæðurnar á Kaol Lak á Taílandi hafa verið hræðilegar í dag og þar hafi líkin enn verið á ströndinni í dag. Flóðbylgjan náði þar kílómeter inn á landið og flatti allt út sem fyrir henni varð. Mannfall vegna hamfaranna er mest á Indónesíu og hefur Aceh hérað, hér í norðurhlutanum, sem er næst miðju skjálftans orðið sérstaklega illa úti. Þar er nú staðfest að um 45 þúsund manns eru látnir en sú tala gæti auðveldlega hækkað til mikilla muna. Afleiðingarnar af þessum ógnarstóra jarðskjálfta eru einnig skelfilegar á Sri Lanka þar sem nánast allt stjórn- og efnahagskerfi landsins eru í algjörri rúst. Þar er staðfest að tæplega 23 þúsund eru látnir. Á Indlandi er búið að telja tæplega sjöþúsund lík og á Tælandi er opinber tala látinna um 1600. Rotnandi lík liggja alls staðar og fjölda líka skolar á land á hverjum degi. Svo skæð er lyktin að björgunarmenn og íbúar verða að hylja vit sín. María Skarphéðinsdóttir, læknir er nýkomin heim frá Indlandi þar sem hún starfaði fyrir Rauða Krossinn. Hún segir miklar líkur á því að farsóttir kvikni við svona aðstæður. Til dæmis skapist hætta vegna þess að skólp flæði um allt og vatnsból séu menguð. Þá geri fólk ekki nægar varúðarráðstafanir, Þar sem aðstaða til þess sé ekki lengur til staðar. Hún segir að tíðini þeirra sjúkdóma sem fyrir hafi verið á svæðinu aukist mjög, en ekki þurfi endilega að vera að nýjir sjúkdómar blossi upp.
Erlent Fréttir Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira