Erlent

Stenst hnífstungur

Japanskt öryggisfyrirtæki hefur sett á markað fatnað fyrir skólabörn sem stenst hnífstungur. Fatnaðurinn er gerður úr sömu trefjum og skotheld vesti bandarískra hermanna í Írak. Fatnaðurinn selst vel í Japan en mörgum foreldrum virðist umhugað að tryggja öryggi barna sinna frekar eftir að maður stakk átta börn til bana í barnaskóla í Osaka árið 2001. Á nokkrum mánuðum hefur fyrirtækið selt rúmlega 130 peysur og jakka úr efninu, en flíkin kostar um 25 þúsund krónur. Framleiðandi fatnaðsins hefur fengið fyrirspurnir frá fyrirtækjum í Suður-Kóreu og Bandaríkjunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×