Erlent

Tveir handteknir í Stokkhólmi

Tveir menn hafa verið handteknir í Stokkhólmi, grunaðir um að hafa rænt starfsmanni gjaldeyrisbanka, fest við hann sprengju og rænt síðan bankann. Það var um áttaleytið í gærkvöldi sem mennirnir voru handteknir í Stokkhólmi. Þeir eru 23 og 37 ára gamlir. Það voru þrír menn sem héldu starfsmanni bankans og sambýliskonu hans fanginni yfir nótt og neyddu hann síðan morguninn eftir til að ganga inn í bankann með sprengju festa við bakið. Á meðan var sambýliskonu hans haldið bundinni og keflaðri á heimili þeirra. Mennirnir höfðu sem svarar 12,3 milljónum íslenskra króna upp úr krafsinu, en peningarnir hafa ekki fundist. Þá hefur lítill svartur bíll sem þeir notuðu ekki fundist enn. Mennirnir töluðu sænsku, en faðir bankastarfsmannsins sagði Aftonbladet að hann teldi þá frá rússnesku mafíunni. Parið treystir sér ekki til að sofa á heimili sínu og dvelur hjá vinum. Lögregla leitar enn þriðja mannsins, og er því sparsöm frekari á upplýsingar um mennina tvo sem handteknir voru í gærkvöldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×