Lík stúlknanna fundust 4. júlí 2004 00:01
Lík stúlknanna tveggja sem franski fjöldamorðinginn Michel Fourniret játaði að hafa grafið árið 1989 fundust í dag. Fourniret benti lögreglu sjálfur á staðinn þar sem líkin fundust. Hinn 62 ára gamli skógræktarmaður hefur eins og fram hefur komið viðurkennt að hafa myrt níu stúlkur og konur árunum 1987-2001. Að sögn lögreglu leikur ennfremur grunur á að hinn franski Dutroux, eins og er kallaður, hafi framið fleiri morð sem enn hafa ekki verið sönnuð á hann. Í gær fór hann með lögreglu að gömlu sveitasetri sem eitt sinn var í hans eigu til að hjálpa til við að finna lík tveggja fórnarlamba sinna. Í dag fundust síðan líkin, þó ekki hafi enn verið endanlega staðfest að þau séu af þeim Elisabethu Brichet og Jeanne-Marie Desramault, sem voru 12 og 22 ára þegar Fourniret gróf þær árið 1989. Um eitthundrað réttarmeinafræðingar og lögreglumenn hafa leitað að líkum stúlknanna síðan í gær. Mál Fournirets teygir anga sína víða því í dag settu lögregluyfirvöld í Danmörku sig í samband við lögreglu í Belgíu þar sem grunur leikur á að Fourniret sé viðriðinn kynferðisafbrotamál í Danmörku sem verið hefur í rannsókn síðan 1999. Á meðfylgjandi mynd má sjá sveitasetrið þar sem Fourniret bjó.
Erlent Fréttir Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Fleiri fréttir Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Sjá meira