Lífið
Gerði grín að veikindunum Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Jay Leno hefur snúið aftur í þátt sinn, Tonight Show, eftir nokkurra daga kvef. Að sjálfsögðu gerði hann grín að veikindunum eins og hans er von og vísa. Lífið 29.4.2009 06:00
Vinnur fyrstu plötu sína í kapphlaupi við dauðann „Ég hélt ég hefði allan tíma í heimi. Allt lífið. Og hef það náttúrulega,“ segir Hallvarður Þórsson tónlistarmaður með meiru og bregður fyrir sig gráglettni. Lífið 29.4.2009 05:30
Syngur Jackson-lag Alan Jones, sem keppti í X-Factor hér um árið, er að undirbúa sína fyrstu plötu sem er væntanleg fyrir jól. Hann hefur að undanförnu tekið upp lög með bræðrunum Berki og Daða sem áður voru í Jagúar og samstarf með lagahöfundinum Örlygi Smára er einnig að hefjast. Saman ætla þeir að taka upp eigin útgáfu af Michael Jackson-lagi sem kemur út í júní. Lífið 29.4.2009 05:15
Svínaflensa tefur frumsýningu X-Men Frumsýningu hasarmyndarinnar X-Men Origins: Wolverine hefur verið frestað í Mexíkó vegna svínaflensunnar. Flest kvikmyndahús í landinu eru lokuð vegna flensunnar og óvíst er hvenær þau verða opnuð á nýjan leik. Lífið 29.4.2009 05:00
Spila á heimagerð hljóðfæri „Þetta er án efa eitt athyglisverðasta band á Norðurlöndunum í dag,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir hjá Norræna húsinu um færeysku hljómsveitina Orku sem er nýkomin til landsins. Lífið 29.4.2009 04:45
Nýtt lag og tónleikar Rokksveitin Dead Sea Apple hefur sent frá sér lagið I Want You Back. Ekki er um að ræða endurgerð á hinu fornfræga lagi Jackson Five heldur glænýtt lag sem var hljóðritað í tilefni þess að fimmtán ár eru liðin síðan sveitin gaf út sitt fyrsta lag á safnplötunni Ýkt böst. Lífið 29.4.2009 04:30
Hundraðasti Lost-þátturinn Hundraðasti sjónvarpsþátturinn í hinni dularfullu Lost-seríu verður sýndur í Bandaríkjunum í kvöld. Framleiðandinn Damon Lindelof, einn af höfundum Lost, segist ennþá vera undrandi yfir langlífi þáttanna. Hann átti sannarlega ekki von á þessum vinsældum þegar hann kynnti hugmyndina fyrir stjórnendum ABC-sjónvarpsstöðvarinnar fyrir fjórum árum. Lífið 29.4.2009 04:15
Upplífgandi í kreppunni Sextett Ólafs Gauks með Svanhildi Jakobsdóttur og Kristjáni Kristjánssyni, KK, heldur tónleika í Fríkirkjunni á fimmtudagskvöld klukkan 21. Síðustu tónleikar þeirra voru einmitt í Fríkirkjunni á Vetrarhátíð í Reykjavík í febrúar þar sem 700 manns skemmtu sér konunglega. Lífið 29.4.2009 04:00
Idolstjarna í detox hjá Jónínu Ben Idolstjarna Norðmanna, Åste Hunnes Sem, er væntanleg ásamt 15 manna liði í detoxmeðferð í nýrri detoxmistöð Jónínu Benediktsdóttur á Reykjanesi 13. júlí næstkomandi. Hópurinn fer í fulla detoxmeðferð og Norska sjónvarpið tekur upp þátt sem sýndur verður í norska sjónvarpinu í haust um detox meðferð Jónínu. Fjallað verður um árangur Idolstjörnunnar og af hverju Ísland er heppilegur staður fyrir slíka meðferð. „Þetta kom til að það voru norskir blaðamenn að taka viðtal við mig út af bannkahruninu. Blaðamaðurinn er vinur þekkts sjónvarpsmanns í Noregi sem er með vinsælan skemmtiþátt þar í landi og hnn var svo hrifinn af hugmyndinni og bauðst til að hjálpa mér að koma þessu á framfæri í Noregi," svarar Jónína aðspurð hvernig það kom til að norska Idolstjarnan er vætnaleg. „Við ætlum að fara með sjónvarpsfólkinu upp á Mývatn og sýna þeim hvað við höfum upp á að bjóða yfir vetrartímann," segir Jónina. „Það er búið að vera fullt í allar detox meðferðirnar í vetur. Um 50 manns í hverri meðferð. Við erum farin að fá útlendinga," svarar Jónina aðspurð hvernig detoxstarfsemin gengur. „Við opnum á Reykjanesi 23. mmaí heilsárshótel með 50 deluxe- herbergjum." Lífið 28.4.2009 15:45
Túrtappi Britney - myndband Á meðfylgjandi myndbandi má sjá Britney Spears dansa á Circus-tónleikum í Anaheim fyrir viku. Dansarann Chase Benz, 21 árs, situr á mótórhjólinu í myndbandinu en slúðurpressan heldur því fram að samband hans við Britney er mjög náið. Það sem vekur sérstaka athygli er túrtappi sem sést greinilega milli læra Britney þegar hún dansar. Sjá túrtappa Britney hér. Lífið 28.4.2009 10:04
Kærastinn með til Moskvu „Þetta stóð tæpt. Spurning hvort maður kæmist út af prófunum. En ég næ því alveg,“ segir Ólafur Ólafsson – kærasti Eurovision-stjörnunnar Jóhönnu Guðrúnar sem nú undirbýr sig sem sem mest hún má undir Eurovision-keppnina sem fram fer í Moskvu 12. maí. Lífið 28.4.2009 09:00
Anna frumsýnd í Cannes Stuttmyndin Anna eftir Rúnar Rúnarsson hefur verið valin á Cannes-hátíðina í maí. Þetta er í annað sinn sem Rúnar hlýtur þennan heiður. „Þetta er algjör snilld. Maður safnar í sarpinn og þetta auðveldar manni að fá peninga til að gera það sem maður vill gera,“ segir Rúnar. Lífið 28.4.2009 08:00
Heiðurslaun Þráins vefjast fyrir Borgurum „Ágæti Mummi (sem ég reyndar var svo óheppinn að sjá aldrei í kosningabaráttunni), Heiða og þið öll. Við skulum sameiginlega hafa eitt á hreinu. Hvort sem ég kemst á þing (vegna útstrikana) eða ekki mun ég ALDREI AFSALA mér heiðurslaunum Alþingis, alveg sama hversu mikil fáfræði ríkir um tilkomu þeirra og eðli (þau eiga ekkert skylt við kúlulán eða prófkjörsstyrki og eru ekki óheiðar-lega fengin),“ skrifar Þráinn Bertelsson á póstlista Borgarahreyfingarinnar (xO). Lífið 28.4.2009 06:00
Beyonce í efsta sætinu Spennumyndin Obsessed með söngkonunni Beyonce Knowles hlaut mestu aðsóknina vestanhafs um síðustu helgi. Í henni leika þau Knowles og Idris Elba hjón sem lenda í miklum vandræðum þegar geðsjúk kona ofsækir eiginmanninn. Söguþræðinum svipar nokkuð til Fatal Attraction frá níunda áratugnum þegar Glenn Close ofsótti Michael Douglas á eftirminnilegan hátt. Lífið 28.4.2009 05:00
Kvikmyndaþorp úti á Granda Sannkölluð kvikmyndamiðstöð hefur orðið til í Héðinshúsinu úti á Granda. Fyrir er kvikmyndafyrirtækið Republika og nú stefnir allt í að þrír aðilar í sama geira flytjist þarna inn. Fyrst ber að nefna framleiðslu- og þjónustufyrirtækið True North, eftirvinnslufyrirtækið Postmenn og svo framleiðslufyrirtæki Baltasars Kormáks og Lilju Pálmadóttur, Blue Eyes. Lífið 28.4.2009 05:00
Kristinn með japanska ríkissjónvarpinu „Þetta gekk alveg ljómandi vel og var bara býsna ánægjulegt,“ segir fréttahaukurinn Kristinn Hrafnsson. Hann var japanska ríkissjónvarpinu innan handar á nýliðinni kosninganótt en fjöldi erlendra blaða- og fréttamanna voru staddir hér á landi til að fylgjast með þessum sögulegu kosningum. Kristinn taldi að rúmlega tíu Íslendingar hefðu verið í svipuðu hlutverki og hann: að aðstoða erlenda blaðamenn og tökulið. Lífið 28.4.2009 04:30
Kreppan stöðvaði Bít-hátíð „Í þessu myrkurástandi sem hefur verið þá hefur ekki verið stuð í að plana svona mál,“ segir rithöfundurinn Ólafur Gunnarsson um Bíthátíð sem átti að halda á Eiðum í júní. „Kreppan rúllaði henni. Þetta var komið á góðan rekspöl en svo var bara ákveðið að fresta henni um ár.“ Lífið 28.4.2009 04:15
Opnar skóbúð í kreppunni „Ég var með verslunina Mangó í Keflavík í átta ár sem ég seldi í fyrra og hef verið með þessa bólu í höfðinu að opna skóverslun á netinu með skó á góðu verði," segir Rakel Ársælsdóttir sem opnaði nýverið skóverslunina Desire Boutique á netinu. „Ég fór af stað með þetta í byrjun apríl og það er búið að ganga rosalega vel síðan ég opnaði. Það er greinilega þörf á þessu," segir Rakel. Leyfa íslenskar konur sér að kaup nýja skó í þessu árferði? „Já það má nú alveg segja það. Við viljum ekki hætta að vera sætar og fínar. Mér fannst skór á Íslandi alveg ofboðslega dýrir. Þú fékkst ekki fallega skó undir 20 þúsund." „Það var tækifæri að koma með þetta í kreppunni. Fólk reynir að spara og versla ódýrara," segir Rakel. Skoða skóverslun Rakelar hér: http://www.desire.is Lífið 27.4.2009 15:55
Gillz lét ekki sjá sig Íslenska mótaröðin í póker hófst um helgina þar sem fjórir einstaklingar unnu pakka á mótaröðina sem haldin verður í haust að verðmæti 30 þúsund krónur. Vísir hafði samband við Hauk Má Böðvarsson sem sigraði keppnina og spurði hvort um harða keppni hafi verið að ræða: „Nei þetta var frekar létt. Ég rúllaði yfir þetta," svarar Haukur. Tók Gillz áskorun ykkar um að mæta? „Nei nei hann mætti ekki. Hann var nýbúinn að drulla eitthvað yfir þetta en hann kom ekki." Æfir þú þig mikið í póker? „Já ég spila mikið. Nei ég er ekki mikið á netinu. Ég spila mest læf." Er hægt að græða á því að spila póker á netinu? „Já já já félagi minn var að taka 60 þúsund dollara í gær. Það eru ágætis peningar í þessu á netinu," segir Haukur áður en kvatt er. Haukur, Arnar Ægisson, Birgir Magnússon og Sigurður Elvar Sigurðsson skiptu verðlaunafénu, 400 þúsund krónum, á milli sín. Ekki náðist í Egil/Gillz við vinnslu fréttarinnar. Lífið 27.4.2009 13:18
Kínverjar mála Íslendinga Íslensk vefsíða, www.portret.is býður Íslendingum upp á að senda ljósmyndir til Kína og fá til baka máluð olíumálverk eftir kínverska myndlistarmenn. Lífið 27.4.2009 05:00
Hver mínúta skipulögð hjá Eurovision-hópnum „Ég vinn bara svona, ætli það sé ekki ástæðan fyrir því að ég er enn í þessu djobbi," segir Jónatan Garðarsson, liðstjóri íslenska Eurovision-hópsins. Hópurinn fékk á föstudag yfirlit frá Jónatani hvernig dagskrá hópsins er háttað í Mosvku. Óhætt er hægt að fullyrða að hver einasta mínúta, hvert skref, sé skipulagt. Eiginlega er hvergi autt gat í tímaætluninni sem nær frá klukkan fjögur að morgni sunnudagsins 3.maí til klukkan fjögur síðdegis sunnudagsins 17.maí. Meðal þess sem Jónatan var búinn að setja niður á blað voru matmálstímar og háttatíminn. „Þegar svona mikið gengur á þarf oft að minna fólk á þessa annars sjálfsögðu hluti." Lífið 27.4.2009 05:00
Ungur leikstjóri til Cannes „Já, ég er bæði spenntur og kvíðinn," segir leikstjórinn Arnar Már Brynjarsson en hann er á leiðinni til Cannes þann 14.maí ásamt félögum sínum, þeim Hlyni Björnssyni og Gunnari Anton Guðmundssyni. Þeir ásamt fjórða manninum, Hirti A. Guðmundssyni, gerðu stuttmyndina HUX sem vann Stuttmyndadaga Reykjavíkur í fyrra. HUX tekur þátt í svokölluðu Short Film Corner sem haldin er í tengslum við hina eiginlegu kvikmyndahátíð en myndin segir frá tvítugum dreng sem reynir að bjarga móðir sinni undan klóm krabbameins. Lífið 27.4.2009 04:00
Erla og Tryggvi: Opnuðu listagallerí í Los Angeles Opna Íslendingum leið inn á bandarískan listmarkað „Taugarnar liggja til Íslands, það fer ekki á milli mála,“ segir Erla Dögg Ingjaldsdóttir arkitekt, en hún og eiginmaður hennar Tryggvi Þorsteinsson arkitekt hafa opnað listagallerí í Santa Monica í Kaliforníu. Galleríið er í sama húsi og arkitektastofan Minarc sem þau hjón hafa rekið síðustu níu ár, en Gallery Skart sýnir fyrst og fremst íslenska list og er markmiðið að opna íslenskum listamönnum leið inn á bandarískan markað. Lífið 27.4.2009 03:00
Japönsk poppstjarna handtekin á adamsklæðunum Japönsk poppstjarna sem var handtekin í almenningsgarði í Tókýó eftir að hann fannst drukkinn og nakinn hefur beðist velvirðingar á hneykslanlegri framkomu sinni. Lífið 26.4.2009 21:00
Leno kominn af spítala Spjallþáttakóngurinn Jay Leno útskrifaðist af spítala í gær en hann var lagður inn á föstudag þegar hann fór að finna fyrir slappleika. Leno mætti sjálfur á sjúkrahús en í kjölfarið var tveimur þáttum með honum frestað. Lífið 26.4.2009 20:00
Cheryl Cole tekur upp eigið efni Söngkonan Cheryl Cole úr stúlknabandinu Girls Aloud er sögð vera á leið í stúdíó til þess að taka upp eigið efni. Cheryl sem hefur farið á kostum sem dómari í X-factor þáttunum í Bretlandi er einnig eiginkona knattspyrnumannsins Ashley Cole og nýtur gríðarlegra vinsælda þar í landi. Lífið 26.4.2009 19:00
Rihanna vill að lögreglan skili skartgripum Söngkonan Rihanna hefur beðið lögregluna í Los Angeles að skila skartgripum sem hún tók sem sönnunargögn eftir að kærasti hennar Chris Brown réðist á hana á dögunum. Lífið 26.4.2009 17:44
Brotnaði niður hjá Opruh Kate McCann grét á föstudagskvöldið þegar hún kom fram í sjónvarpsþætti Opruh Winfrey og sagðist ekki þekkja dóttur sína á myndum sem sýna hvernig hún gæti litið út í dag. Hún sagðist hinsvegar þekkja Maddie ef hún sæi hana úti á götu en Madeliene litla verður sex ára í næsta mánuði. Lífið 26.4.2009 16:15
Vísurnar streyma inn á Vísi Vísir leitar að vísum í tengslum við kosningarnar frá hagyrtum einstaklingum. Séu þær húshæfar þá verða þær að sjálfsögðu birtar hér á vefnum. Þónokkrar vísur hafa þegar borist okkur og má sjá þær hér að neðan. Endilega sendið okkur fleiri vísur á netfangið frettir@stod2.is Lífið 26.4.2009 06:09
Himnasending frá Íslandi til hjálparstarfs í Afríku Flugáhöfn Icelandair safnaði á dögunum hálfu tonni af rúmfatnaði og handklæðum og gaf Enza hjálparstarfinu í Suður-Afríku sem stjórnað er af íslenskum konum. Áhöfnin var á leið í sérverkefni með erlenda farþega til Afríku. Lífið 25.4.2009 17:41