Lífið
Kominn í hóp með Kobe Bryant og Jack Bauer Myndir af hasardúkkum McFarlane-fyrirtækisins úr kvikmyndinni Prince of Persia: Sand of Time eru komnar á Netið. Og þar á íslenski leikarinn Gísli Örn Garðarsson sína eigin dúkku en eins og Fréttablaðið hefur greint frá leikur Gísli skúrkinn The Vizier á móti stórleikaranum Jake Gyllenhaal og Bond-píunni Gemmu Arteton auk Bens Kingsley og Alfreds Molina. Gísli hafði sjálfur ekki séð dúkkurnar þegar Fréttablaðið hafði uppi á honum. Lífið 20.2.2010 06:00
Hönnuðir og verslun Rauða krossins snúa bökum saman Fimm hönnuðir sem sýna á tískuhátíðinni Reykjavík Fashion Festival sem fer fram dagana 19. og 20. mars munu taka að sér að sjá um gluggaútstillingu í verslun Rauða krossins við Laugaveg. Lífið 20.2.2010 05:30
Mamma vill barnabörn Mamma popparans Justins Timberlake, Lynn Harless, vill ólm eignast barnabörn. Justin og leikkonan Jessica Biel hafa verið saman í fjögur ár en áður var popparinn með Cameron Diaz og Britney Spears. Lynn hefur hvatt Justin til að eignast börn með Jessicu, enda er leikkonan þegar orðin ein af fjölskyldunni. Lífið 20.2.2010 05:00
Kraftakonur Kristínar Myndlistarmaðurinn Kristín Gunnlaugsdóttir sýnir um þessar mundir í sal Íslenskrar grafíkur hafnarmegin í Hafnarhúsinu. Lífið 20.2.2010 05:00
Gæti dæmt í American Idol Noel Gallagher, fyrrum forsprakki rokksveitarinnar Oasis, gæti orðið dómari í American Idol. Þessu heldur dómarinn Simon Cowell fram. Bent hefur verið á hóp fólks sem gæti fyllt skarð Cowells þegar hann hættir en meðal þeirra eru útvarpsmaðurinn Howard Stern og leikarinn Jamie Foxx. „Ég þekki Noel vel og mér líkar vel við hann. Hann er mjög fyndinn og er frábær lagahöfundur,“ sagði Cowell. Lífið 20.2.2010 04:30
Of grófur fyrir Óskarinn Sacha Baron Cohen, maðurinn á bak við karaktera á borð við Bruno og Borat, var fyrsta val þegar leit hófst að kynni. Eins og fram hefur komið þá hafa silfurrefirnir Alec Baldwin og Steve Martin verið fengnir til verksins, en Cohen þótt einfaldlega of grófur og óútreiknanlegur. Lífið 20.2.2010 04:00
Fræbblar leika Stefán Karlsson, upprunalegi trommari Fræbbblanna, hætti á dögunum en bandið heldur áfram. Heitir hún Fræbblarnir, með tveimur béum, hér eftir. Í kvöld koma Fræbblarnir fram á Dillon með nýjum trommara, sem er Guðmundur Þór Gunnarsson, sem var áður meðal annars í Tappa tíkarrassi og Das Kapital. Dagskráin hefst kl. 23.30 og verður eingöngu flutt frumsamið efni, nýtt og óútgefið í bland við gamalt og sígilt íslenskt eðalpönk. Lífið 20.2.2010 03:15
Samfögnuðu með Sigurjóni Hollywood-myndin Brothers sem Sigurjón Sighvatsson framleiddi var frumsýnd í Kringlubíói á fimmtudag. Fjöldi fólks mætti til að samfagna með Sigurjóni. Tobey Maguire og Jake Gyllenhaal leika í myndinni bræður sem glíma við eftirköst stríðsins í Afganistan. Á móti þeim leikur ísraelska leikkonan Natalie Portman. Leikstjóri er Írinn Jim Sheridan sem hefur sent frá sér myndir á borð við My Left Foot og In the Name of the Father. Lífið 20.2.2010 03:00
Greiddu milljónir fyrir plötu Pönkrokkararnir í Gavin Portland þurftu að greiða milljónir til að leysa út plötu sína IV: Hand in Hand With Traitor – Back to Back With Whores frá útlöndum. „Við tókum hana upp síðla sumars 2008. Síðan þarf ekki að rekja hvað gerðist það ágæta haust,“ segir bassaleikarinn Arnar Már Ólafsson. Lífið 20.2.2010 02:45
Ágætis byrjun Sóleyjar Sóley Stefánsdóttir úr hljómsveitinni Seabear gefur á næstunni út sólóplötuna Theater Island hjá undirfyrirtæki Morr Music. Hún hefur aldrei spilað lögin sín opinberlega. Lífið 20.2.2010 02:45
Elskar Veðurguðina „Fyrsta lagið sem ég heyrði var Bahama og ég kunni strax vel að meta það,“ segir Frakkinn Mathieu Balaguer. Lífið 20.2.2010 02:30
Sigurjón fellur fyrir sænskunni „Ég hef hægt og rólega byggt upp ást á Svíþjóð," segir háðfuglinn og handritshöfundurinn Sigurjón Kjartansson. Lífið 20.2.2010 02:00
Tónleikar Tríó Nordica Trío Nordica heldur tónleika hjá Kammermúsíkklúbbnum á sunnudaginn kl. 20. Tónleikarnir fara fram í Bústaðakirkju. Á efnisskrá eru píanótríó eftir Haydn, Beethoven og hið stórbrotna píanótríó eftir Tchaikovsky op. 50. Lífið 20.2.2010 02:00
Gradualekórinn djassar Gradualekór Langholtskirkju heldur tónleika á vegum Listafélags Langholtskirkju á sunnudaginn kl. 20. Meginverk tónleikanna er A Little Jazz Mass eftir Bob Chilcott. Messan var samin árið 2004 og frumflutt í New Orleans sama ár. Hún er samin við hinn klassíska, latneska messutexta; Kyrie, Gloria, Sanctus, Benedictur og Agnus Dei. Hver kafli sýnir mismunandi stíltegundir djassins svo sem groove-funk, rokk, ballöðu og blues. Lífið 20.2.2010 01:30
Öfgarokk í Reykjavík Tvær þekktar hljómsveitir úr heimi öfgaþungarokksins eru væntanlegar um helgina 9.-10. apríl til að spila í tíu ára afmælisveislu Andkristnihátíðar. Þetta eru hljómsveitirnar Rotting Christ og Hate. Lífið 20.2.2010 01:00
Linda P edrú í 8 ár - myndband Átta ár eru liðin síðan Linda Pétursdóttir varð edrú. Í kvöld í sjónvarpsþættinum Ísland í dag, klukkan 18:55 strax að loknum fréttum Stöðvar 2, ræðir Linda um edrúmennskuna, móðurhlutverkið og hvað hún gerir til að halda sér í formi. Lífið 19.2.2010 15:30
Herranótt: Vika í frumsýningu LoveStar Nú er vika í frumsýningu Herranætur, en verk þessa árs ber heitið LoveStar. Sagan er eftir Andra Snæ Magnason og leikstjóri, og jafnframt höfundur leikgerðar er Bergur Þór Ingólfsson. Lífið 19.2.2010 14:59
Sjónvarpsstjörnur selja föt í Kolaportinu „Við erum að fara að selja flottu fötin sem við pössum ekki lengur í," segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona þegar við heyrum í henni hljóðið en hún ætlar að selja fötin sem hún passar ekki lengur í í Kolaportinu á morgun, laugardag. Verður þú ein að selja? „Nei, ég og Sigrún Ósk og síðan ætlar Birgitta Haukdal að koma með okkur. Hún er búin að eiga og ætlar að losa sig við eitthvað úr skápunum." „Þetta eru eiginlega bara föt af öllum skalanum. Til dæmis 66 gráður norður flíspeysur, flottir kjólar, leðurjakkar og kápur," segir hún spurð hvernig föt þær ætla að selja. Dýrar flíkur? „Nei veistu þegar maður fer í Kolaportið vill maður ekki kaupa flík á tíuþúsund. Við ætlum að selja fötin á sanngjörnu verði. Sumt af því sem ég er með er meira að segja ónotað," svarar hún. Ætlar þú að selja kjóllinn eftir Birtu sem þú varst í á úrslitakvöldinu? „Reyndar tími ég ekki að selja hann. Hann á sér of góða sögu," svarar Ragnhildur Steinunn.-elly365.is Kolaportið opnar klukkan 10:00 í fyrramálið. Lífið 19.2.2010 14:45
Sólinn frá Sandgerði á svið Hátíðin Aldrei fór ég suður fer að vanda fram á Ísafirði um páskana. Tilkynnt hefur verið um fyrsta holl skemmtikrafta sem fram kemur. Þar á meðal er hljómsveitin Sólinn frá Sandgerði, sem varð fræg í Vaktarþáttunum. Ólafur Ragnar var umboðsmaður sveitarinnar á tímabili og hafði stórar væntingar. Nú kemur Sólinn fram í fyrsta skipti opinberlega. Lífið 19.2.2010 06:00
Fálkar á flugi á Skúlagötu Alexander Zaklynsky opnar fyrstu einkasýninguna sína í Reykjavík á morgun. Hann sýnir málverk af fálkum á flugi. Það er eins og þeir séu í eltingarleik um veggi gallerísins. Lífið 19.2.2010 05:45
Birta hannar kjól Heru „Við erum byrjaðar að pæla aðeins og hugsa en það er ekkert niðurneglt. Við erum með ákveðnar hugmyndir í kollinum," segir Hera Björk Þórhallsdóttir en Birta Björnsdóttir hjá Júniform mun hanna kjólinn sem söngkonan klæðist þegar hún syngur framlag Íslands í Eurovision-söngvakeppninni í Ósló. Lífið 19.2.2010 05:45
Rúnagaldur ryður brautina „Það er afskaplega gaman að Þjóðverjar skuli hafa áhuga á þessari bók,“ segir rithöfundurinn Elías Snæland Jónsson. Lífið 19.2.2010 05:00
Bretar standa við bakið á Cheryl Söngkonan Cheryl Cole flúði Bretland í vikunni eftir að fjölmiðlar greindu frá framhjáhaldi eiginmanns hennar, Ashley Cole. Breska þjóðin stendur þétt við bakið á sinni konu og hvetur hana til að skilja. Lífið 19.2.2010 04:15
Norræni sjóðurinn hafnaði Frímanni Norræni sjónvarps-og kvikmyndasjóðurinn hafnaði því að styrkja sjónvarpsþáttaröð sem Gunnar Hansson og bróðir hans, Ragnar Hansson, hafa verið að gera með mörgum af fremstu grínistum Norðurlandanna. Lífið 19.2.2010 04:00
Kenna ungu fólki að elda fisk Sveinn Kjartansson, eigandi Fylgifiska, og Áslaug Snorradóttir ætla að kenna Íslendingum að elda fjölbreytta fiskrétti í nýjum sjónvarpsþáttum sem sýndir verða á RÚV. Lífið 19.2.2010 03:00
Býður Evu Maríu á stefnumót Ingi Þór Óskarsson úr Gettu betur-liði Menntaskólans við Hamrahlíð hefur ákveðið að standast áskorun og bjóða spyrlinum Evu Maríu Jónsdóttur á stefnumót. Ingi Þór og félagar etja kappi við Verslunarskólann í 8 liða úrslitum Gettu betur á laugardaginn og þar ætlar hann að bera spurninguna fram. „Það fer bráðum að koma að þessu,“ segir Ingi Þór, hvergi banginn. Lífið 19.2.2010 03:00
75 myndir í Grundarfirði Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave verður haldin í þriðja sinn í Grundarfirði helgina 3. til 7. mars. Sýndar verða 75 stuttmyndir og tónlistarmyndbönd frá tuttugu löndum, þar á meðal norska myndin Little Penis. Grundfirðingar munu taka þátt í hátíðinni, meðal annars með því að halda fiskisúpukeppni þar sem sóknarprestur bæjarins, Aðalsteinn Þorvaldsson, verður á meðal keppenda. Lífið 19.2.2010 02:15
Innri sýn Bjargar Í listasal Garðabæjar á Garðatorgi 7 stendur nú yfir sýning Bjargar Atla, sem hún nefnir Tilbrigði við stef. Listasalur Garðabæjar er lítill sýningarsalur staðsettur á hæðinni fyrir ofan Bókasafn Garðabæjar og hýsti áður sýningasal Hönnunarsafns Íslands. Lífið 19.2.2010 02:00
Tíu lög á aðeins 18 mínútum „Við erum aðallega að syngja um lífið og tilveruna. Við erum ekkert rosalega pólitískir og ekkert rosalega harðir neitt," segir Almar Daði Kristjánsson, bassaleikari pönksveitarinnar Buxnaskjónar frá Akureyri. Lífið 19.2.2010 02:00
Hengdi sig í fataskáp Tískuhönnuðurinn Alexander McQueen skrifaði sjálfsmorðsbréf og hengdi sig síðan í fataskáp. Þetta kemur fram í skýrslu sem dánarstjóri í London hefur sent frá sér. McQueen fannst látinn á heimili sínu í London fyrir viku, á sama tíma og undirbúningur var í fullum gangi fyrir vorlínu hans sem átti að kynna í París. Sama dag og hönnuðurinn lést fór jarðarför móður hans fram, sem lést viku áður. McQueen starfaði lengi með Björk Guðmundsdóttur og minnist hún vinar síns á hjartnæman hátt á heimasíðu sinni, Bjork.com. Lífið 19.2.2010 01:00