Lífið

Die Hard í fimmta sinn

Framleiðsla á fimmtu Die Hard-myndinni er fyrirhuguð á næsta ári er haft eftir aðalleikaranum Bruce Willis. Hann telur mögulegt að sögusviðið verði ekki í Bandaríkjunum.

Lífið

Cheryl sparkar Ashley Cole

Söngkonan Cheryl Cole gaf frá sér fréttatilkynningu stuttu eftir að hún lenti í London eftir að hafa flúið heimili sitt í kjölfar frétta af framhjáhaldi eiginmanns síns, fótboltakappans Ashley Cole.

Lífið

Friðrik Ómar með átta Elv­is-tónleika

Söngvarinn Friðrik Ómar ætlar að halda átta Elvis-tónleika í viðbót vegna mikillar eftirpurnar. Friðrik hélt þrenna tónleika í Salnum í Kópavogi í síðustu viku og seldist upp á þá alla.

Lífið

Aftur saman í Hænuungunum

Nýtt leikverk eftir Braga Ólafsson, Hænuungarnir, verður frumsýnt í Kassa Þjóðleikhússins á laugar­daginn. Eins og í hinu vinsæla leikriti Belgíska Kongó, sem Borgarleikhúsið frumsýndi árið 2004, leikstýrir Stefán Jónsson Hænuungunum og Eggert Þorleifsson leikur aðalhlutverkið.

Lífið

Segir skilið við Epic

Leik- og söngkonan Jennifer Lopez hefur sagt skilið við útgáfufyrirtæki sitt, Epic Records, sem er í eigu Sony. Ekki er víst hvort hún var látin fjúka eða hvort samningurinn var einfaldlega útrunninn.

Lífið

Ufsagrýlur: þrjár stjörnur

Mikið er lagt í þessa margbreytilegu sýningu sem er byggð upp af atriðum sem í byrjun virðast algerlega laustengd en límast saman þegar á líður.

Gagnrýni

Þú ert stokkbólgin í framan - myndir

Leikkonan Nicole Kidman, 42 ára, og eiginmaður hennar, Keith Urban, mættu á skautadanssýningu í Kanada í gær. „Til hvers að gera eitthvað gott ef enginn er að horfa," sagði Nicole.

Lífið

Er þetta viðeigandi? - myndir

Söngkonan Jessica Simpson yfirgaf steikhús í Hollywood í fyrradag. „Það er munur á því að vera heimsk og spurul. Það er ekki heimska að þora að spyrja," sagði Jessica. Eins og myndirnar sýna greip besti vinur hennar, hárgreiðslumaðurinn, Ken Pavas, sem var samferða Jessicu í nálæga bifreið, um vinstra brjóst hennar.

Lífið

Flugur gegn krabbameini

Krabbameinsfélag Íslands efnir nú í annað sinn til Krabbaflugunnar, hnýtingakeppni í samvinnu við Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Veiðihornið og Veiðikortið, þar sem færustu hnýtarar landsins eru hvattir til að hanna silungaflugu til styrktar félaginu. Keppnin var fyrst haldin árið 2007 þegar keppt var um bestu laxafluguna. „Sigurflugan úr þeirri keppni er mjög vel heppnuð og meira að segja ég hef veitt á hana lax," segir Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins og brosir við. „Hugmyndin spratt upphaflega frá því að ég las bandaríska grein um hvernig flugukast, að kasta flugu með stöng, er notað í endurhæfingu krabbameinssjúklinga og þá sérstaklega vegna brjóstakrabbameins. Út frá því þróaðist að halda fluguhnýtinganámskeið fyrir okkar skjólstæðinga hér í Krabbameinsfélaginu og lagði SVFR okkur lið með að útvega Sigurð Pálsson málarameistara og fluguhnýtara með meiru sem kennara. Það var einnig ástæða þess að ég fór sjálfur að hnýta flugur, og svo veiða með þeim. Keppnin fylgdi svo í kjölfarið og var ákveðið að bjóða öllum að taka þátt, enda er Krabbameinsfélagið félag allra," bætir Gústaf við. Vinningsflugan verður framleidd af félögum okkar í Veiðihorninu og seld í verslunum þeirra til styrktar starfi Krabbameinsfélagsins. „Við erum ekki ennþá búin að koma okkur upp kastkennslu en ég ráðlegg öllum að skoða fluguveiði, hún er bæði skemmtileg og heilsusamleg.ttúran er yndisleg og maður getur ekki eitt of miklum tíma við að njóta hennar, og svo er silungur alveg rosalega hollur og góður matur," segir Gústaf og bendir áhugasömum á að lesa nánar um keppnina á heimasíðu Krabbameinsfélagsins, www.krabb.is.

Lífið

Hoppípolla ofnotað á BBC

Jón Þór Birgisson segir að laginu Hoppípolla með Sigur Rós hafi verið „nauðgað“ í bresku sjónvarpi. Í viðtali við síðuna Gigwise segist Jónsi vera ósáttur við hversu litla stjórn hljómsveitin hefur á því hvernig tónlist hennar er notuð í Bretlandi.

Lífið

Bannað að heita Santa María

„Átján mánuðum eftir að við opnuðum fengum við harðort bréf frá íslenskum hæstaréttarlögmanni, sem segir okkur að til að forðast aðgerðir frá umbjóðanda þeirra sem er risafyrirtæki sem selur krukkusósur og tex-mex-dótarí í stórmörkuðum, verðum við að hætta allri notkun á nafninu Santa María,“ segir María Hjálmtýsdóttir, annar eigenda matsölustaðarins Santa María á Laugavegi.

Lífið

Í kókosbolluverksmiðju

„Það var kalt og samloka á hótelinu kostaði 2.600 krónur. Mér fannst það mikið sjokk,“ segir Sindri Már Sigfússon í hljómsveitinni Seabear.

Lífið

Fór beint á toppinn

Shutter Island, nýjasta kvikmynd Martins Scorsese, fór beint á toppinn yfir aðsóknarmestu myndirnar vestanhafs um síðustu helgi. Myndin náði inn fjörutíu milljónum dollara, eða um fimm milljörðum króna, sem er betri árangur en búist var við. Þetta er jafnframt besta byrjun nokkurrar myndar Scorsesew, sem á að baki hinar vinsælu Taxi Driver, Raging Bull og The Departed. Leonardo DiCaprio leikur í Shutter Island lögreglumann sem rannsakar mannshvarf á sjúkrahúsi fyrir geðsjúka glæpamenn.

Lífið

Cowell aldrei hamingjusamari

Móðir tónlistarmógúlsins Simons Cowell segir að hann hafi aldrei verið eins hamingjusamur og nú, eftir að hann byrjaði á föstu með Mezhgan Hussainy. Julie Cowell segir að hamingjan hreinlega geisli af syni sínum.

Lífið

SkyReports sigurvegari

Rokksveitin SkyReports sigraði á tónlistarhátíðinni Rokkstokk 2010 sem haldin var í Frumleikhúsinu í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Keanu lenti í öðru sæti og Reason to Believe var valin besta hljómsveitin af áhorfendum.

Lífið

The Hurt Locker sigursæl

Kvikmyndin The Hurt Locker kom, sá og sigraði á bresku Bafta-verðlaunahátíðinni sem var haldin í London um helgina. Myndin hlaut sex verðlaun og skaut í leiðinni stórvirkinu Avatar ref fyrir rass.

Lífið

Kominn með nýja

Gítarleikarinn Ronnie Wood úr The Rolling Stones er kominn með nýja kærustu upp á arminn. Sú heitir Ana Araujo og er brasilísk fegurðardís sem stundar nám í arkitektúr. Ronnie fór með dömuna í fjögurra tíma verslunarleiðangur um helgina og segja breskir fjölmiðlar að þau hafi geislað af hamingju.

Lífið

Déjà Vu frumsýnt á fimmtudag

Í ár hefur Leikfélagið Verðandi ákveðið að setja á laggirnar frumsamið leikrit Bjarna Snæbjörnssonar en hann er jafnframt leikstjóri sýningarinnar. Þegar haft var samband við Bjarna sagði hann að leiksýningin í ár væri stórkostlegt sjónarspil sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Lífið

Er mín fótósjoppuð til fjandans? - mynd

„Neee engin lýtaaðgerð nema á la Haffi haff og Garðar einkaþjálfari," svarar Tobba Marinósdóttir sjónvarpsstjarna. Segðu nú satt Tobba. Ertu fótósjoppuð til fjandans á forsíðu Vikunnar? „Nei. Ég er búin að æfa stíft síðan í janúar byrjun. Haffi festi hárið á mér upp að aftan þannig að það virkaði eins og það væri styttra en það er og svo er þetta bara gott meik up. Annars hef ég ekki farið í neina lýtaaðgerð. Hef alltaf verið með stórar varir eins og mamma og systir mín," svarar Tobba einlæg. „Ég bað Kalla ljósmyndara um að fótósjoppa ekki myndirnar mikið sérstaklega ekki þessar inn í blaðinu þar sem ég er á nærfötunum því ég vil vera með minn rass og læri. Fátt meira sexí er kurví konur að mínu mati. Ekkert sexí við að vera vaxin eins og 12 ára strákur," segir hún. „Annars lít ég bara svona út og fólki er velkomið að kíkja niður á Séð og Heyrt og sjá kellinguna læf," segir hún hlæjandi.-elly@365.is

Lífið

Ásdís Rán: Hvað er að þessum Tiger druslum?

„hvað er að þessum Tiger druslum!! krefast afsökunar afsökunarbeiðni? kommon, vitandi að þær eru að tæla og halda fram hjá giftum manni sem á börn. Þetta er þeim sjálfum að kenna - ég tel þær ekki hafa rétt á neinu og þær ættu að hringja í konuna hans og biðja hana frekar afsökunnar! urrr...." skrifar Ásdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta orðrétt á Facebook síðuna sína í dag. Ásdís veit hvað um ræðir því hún hefur fengið að finna fyrir Gróu á Leiti eins og hún sagði í Fréttablaðinu 13. febrúar síðastliðinn: „Þeir eru alltaf að búa til einhverjar sögur um mig vegna þess að ég er vinsæl hérna. Þeir spyrja mig ekki einu sinni."

Lífið

Er allt gert fyrir frægðina? - myndir/myndbönd

Rúmlega 700 manns mættu í síðustu viku í prufur á veitingahúsið Austur þar sem leitað var eftir fólki í hlutverk fyrir iTwist KFC auglýsingu. Valnefndina skipuðu Haffi Haff, Stella Rósenkrans og Rut Helgadóttir. Meðfylgjandi má sjá myndir af umsækjendum og á meðfylgjandi linkum sýna þeir listir sínar í von um frægð og frama. Sjá hér, hér, hér, hér og hér.

Lífið

Plötuð í Kolaportið í dúndur formi

„Þessi Kolaportsferð mín sem rataði á baksíðu Fréttablaðsins? Mér fannst það frekar fyndið," svarar Ágústa Johnson Ágústa Johnson framkvæmdastjóri Hreyfingar spurð hvað hún var að vesenast í Kolaportinu um helgina. „Hún Anna Ýr dóttir mín plataði mig fyrir nokkru til að leigja með sér bás í Kolaportinu og selja með sér lítið notuð föt. Til dæmis þessi dæmigerðu innkaupamistök, föt sem maður keypti og fílaði síðan ekki þegar heim var komið," útskýrir hún.

Lífið

Klædd í latex með svipu á djamminu - myndir

Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari á Hressó, Hverfisbarnum, Apótekinu og Jacobsen aðfaranótt sunnudags. Eins og sjá má leiddist unga fólkinu ekki. Þá voru margir klæddir í grímubúninga. Superman.is

Lífið

Fíla bara sætar stelpur Diktu? - myndir

Á laugardaginn héldu Bacardi Razz og útvarpsstöðin X-ið tónleika með hljómsveitunum Diktu, Ourlives og Cliff claven á skemmtistaðnum Nasa. Eins og myndirnar, sem Thorgeir.com tók, sýna voru áberandi margar sætar stelpur á tónleikunum. Burtséð frá því var uppselt í forsölu á tónleikana.

Lífið