Lífið
Hefur fyrir því að vera góð mamma Leikkonan Katherine Heigl, 31 árs, segir að eiginmaður hennar, Josh Kelley, hafi myndað tengsl við ættleidda dóttur þeirra, sem er 20 mánaða gömul, á undan henni. Katherina segist hafa tekið þá ákvörðun að hætta að leika í sjónvarpsseríunni Grey’s Anatomy því hún vildi eyða meiri tíma með dóttur þeirra, Naleigh. Fyrsta sem Naleigh sagði var Dada. Hún kallaði síðan alla Dada eftir það," sagði Katherine í viðtalii við InStyle tímaritið. Katherine ákvað eftir að hún eignaðist Naleigh að vinna aðeins þrjá mánuði á ári til að geta verið meira heima með barninu. Naleigh lærði fljótlega að orðin mamma og koss væri náskyld. Þegar hún sagði mamma setti hún stút á munninn og gerði kossahljóð," sagði Katherine. Ég fékk gríðarlega mikið samviskubit yfir því að ég fór frá henni og byrjaði að vinna aftur en á sama tíma elska ég það sem ég geri. Ég þarf virkilega að hafa fyrir því að verða góð mamma. Ég viðurkenni það alveg." Lífið 21.9.2010 15:15
Áherslubreyting eftir að hún varð mamma Söngkonan Gwen Stefani segir að það sé þess virði að bíða eftir nýrri plötu hljómsveitarinnar No Doubt. Hljómsveitin gaf síðast út plötu árið 2001 en síðan þá hefur Gwen unnið að sólóferli og hannað fatnað sem ber yfirskriftina L.A.M.B.. Lífið 21.9.2010 14:15
Hætt að fela nýja kærastann Breska leikkonan Kate Winslet, 34 ára, hefur nú loksins látið sjá sig á opinberum vettvangi með nýja kærastanum Louis Dowler. Katie skildi við leikstjórann Sam Mendes, 45 ára, fyrr á þessu ári og núna er hún ástfangin upp fyrir haus, að sögn vina hennar, af fyrirsætunni Louis, sem er einnig 34 ára. Louis og Kate hafa lagt sig fram við að halda sambandinu fjarri fjölmiðlum en í gærkvöldi á kvikmyndahátíði sem fram fór á Spáni leiddist parið og lét vel að hvort öðru. Kate geislaði af ánægju að sögn viðstaddra klædd í glæsilegan síðkjól sem var eins og sérsniðinn á hana. Kate var gift Sam í sjö ár og saman eiga þau 6 ára gamlan son, Joe. Katie eignaðist Miu, 9 ára, með fyrsta eiginmanni sínum, Jim Threapleton. Lífið 21.9.2010 13:00
Ein af útvöldum á A-lista Calvin Klein Leikkonan Katie Holmes, sem varð heimsþekkt fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Dawson Creek, er í dag ein áhrifamesta kona heims þegar kemur að tísku. Hún er segist vera yfir sig hrifin af einfaldleikanum sem einkennir fatnað frá Calvin Klein. Katie og yfirhönnuður kvennalínu Calvin Klien, Francisco Costa, eru mikilir vinir en þau kynntust áður en hún féll fyrir eiginmanni sínum, leikaranum Tom Cruise. Ég elska Calvin Klein og mig langar í allt sem þeir eru með fyrir næsta ár. Ég er sérstakleag hrifin af einfaldleikanum. Litirnir eru mér líka að skapi," sagði leikkonan. Katie er á svokölluðum A-lista af stjörnum sem býðst að sitja á fremsta bekk á Calcin Klein sýningunum. Þá má einnig nefna Julianne Moore, Kerry Washington og Isabel Lucas. Lífið 21.9.2010 11:30
Sonur Beckham hjóna hannar gleraugnalínu David og Victoria Beckham styðja son sinn, Romeo sem er 8 ára, og ákvörðun hans, sem er að hanna eigin sólgleraugnalínu fyrir krakka á hans aldri. Lífið 21.9.2010 10:30
Útgáfutónleikar Rökkurró í kvöld Til að fagna útgáfu plötunnar Í annan heim heldur hljómsveitin Rökkurró tónleika í Iðnó í kvöld, og verður platan þar leikin i heild sinni. Lífið 21.9.2010 10:18
Heidi Klum er besti vinur minn Tónlistarmaðurinn Seal, 47 ára, segir að hjónaband hans og þýsku ofurfyrirsætunnar Heidi Klum sé frábært af því að þau eru bestu vinir. Seal giftist henni í Mexíkó árið 2005 og í dag ala þau upp fjögur börn saman. Hann segist aldrei hafa verið eins ástfanginn af eiginkonu sinni og núna. Heidi og Seal hafa þann háttinn á að þau endurnýja hjúskaparheitin á hverju ári með fjölskyldu og vinum. Seal segir áríðandi að deila með Heidi hvernig honum líður og hvaða tilfinningar hann ber til hennar. „Ég er gftur og ástfanginn af besta vini mínuml. Við tökumst á við allt í lífinu saman. Við göngum í gegnum sömu vandamál og önnur pör gera en við erum bæði meðvituð um hvað við erum heppin að eiga hvort annað," sagði Seal. Lífið 21.9.2010 08:30
Calvin Klein vill íslenskan strák í auglýsingaherferð „Við erum að leita að flottum strákum fyrir næstu tískusýningu hönnuðarins Calvins Klein í New York. Sá sem verður valinn kemst á samning hjá okkur og á svo einnig möguleika á því að komast á samning hjá hönnuðinum sjálfum og verða andlit næstu auglýsingaherferðar fyrirtækisins. Þannig að við erum að leita að næstu karlfyrirsætu Calvins Klein,“ segir Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Elite-umboðsskrifstofunnar á Íslandi. Lífið 21.9.2010 06:00
Púsluðu saman nýrri plötu Hljómsveitin Amiina gefur út sína aðra plötu, Puzzle, á miðvikudag. Tveir karlkyns meðlimir hafa gengið til liðs við þessa fyrrum stúlknasveit. Lífið 21.9.2010 06:00
Taka við berstrípuðu leikhúsi Nýverið var greint frá því að Hafnarfjarðarbær hefði samið við Gaflaraleikhúsið um rekstur leikhúss að Strandgötu 50 í Hafnarfirði sem áður hýsti Hafnarfjarðarleikhúsið. Björk Jakobsdóttir, Gunnar Helgason, Lárus Vilhjálmsson, Gunnar Björn Guðmundsson og Ágústa Skúladóttir koma að Gaflaraleikhúsinu en reiknað er með því að nýja leikhúsið verði opnað um mánaðamótin október-nóvember. Lífið 21.9.2010 06:00
Fengu loks sigurlaunin í Popppunkti „Það er svona þegar verðlaunin eru ekki prentuð á pappír og afhent strax. Þá vill þetta oft fara á flakk milli skrifborða en við erum búnir að leysa þetta núna,“ segir Felix Bergsson, spyrill í Popppunkti. Síðasti þáttur sumarsins í spurningakeppni tónlistarmanna var á laugardaginn þegar Skriðjöklar og Lights on the Highway öttu kappi í úrslitum. Lights on the Highway fór með sigur af hólmi. Athygli vakti þegar Guðmundur Svafarsson, liðsmaður Ljótu hálfvitanna, mætti til að krýna arftaka sína að þá lét hann þau orð falla að sigurvegararnir ættu ekki að vera of glaðir; það hefði reynst þrautin þyngri að innheimta vinningana frá því á síðasta ári. Lífið 21.9.2010 06:00
Áhugi frá bandarískri útgáfu Hiphop-hljómsveitin Original Melody er í viðræðum við lítið bandarískt útgáfufyrirtæki, Hartke Records, um að það kynni og dreifi nýjustu plötu hennar, Back & Forth, sem kemur út 1. október. Lífið 21.9.2010 06:00
Lokatónleikar Jónsa í Höllinni Tónlistarmaðurinn Jón Þór Birgisson, eða Jónsi úr Sigur Rós, lýkur heimstónleikaferðalagi sínu á Íslandi í Laugardalshöllinni 29. desember. Í byrjun apríl gaf Jónsi út sína fyrstu sólóplötu, Go, sem hefur hlotið lof gagnrýnenda um allan heim. Í kjölfar útgáfu plötunnar lagði Jónsi af stað í metnaðarfulla tónleikaferð um heiminn sem stendur enn yfir. Áður en Jónsi stígur á svið í Laugardalshöllinni mun hann ásamt hljómsveit hafa spilað á einum 99 tónleikum í Norður-Ameríku, Evrópu, Ástralíu og Asíu, þar á meðal tónlistarhátíðunum Coachella, Summer Sonic, Öya, Pukkelpop, Electric Picnic og Bestival. Lífið 21.9.2010 06:00
Pitsa ryðst inn í lokaða veröld Pizzasendillinn er smart sýning og vel leikin en heldur endurtekningarsöm. Gagnrýni 21.9.2010 06:00
Flestir tölvuleikir fjölskylduvænir Ian Livingstone, forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins Eidos, heldur fyrirlestur á ráðstefnunni You Are in Control. Fréttablaðið ræddi við hann um Eve Online, ofbeldi í tölvuleikjum og framtíð iðnaðarins. Leikjavísir 21.9.2010 06:00
Miðar fyrir milljón Ingólfur Þórarinsson, best þekktur sem Ingó Veðurguð, er einn vinsælasti dægurlagasöngvari landsins um þessar mundir. Hljómsveitin hans, Ingó og Veðurguðirnir, troðfylla hvern tónleikastaðinn á fætur öðrum úti á landi og Ingó sjálfur leikur á kassagítar fyrir fullum Óliver á hverjum fimmtudegi. Ekki má heldur gleyma því að Ingólfur leikur með meistaraflokki Selfoss í Pepsí-deildinni og hefur staðið sig með ágætum þótt liðið hafi fallið úr deildinni á sunnudag. Nýjasta rósin í hnappagatið er hins vegar metsala á söngleikinn Buddy Holly þar sem Ingólfur leikur aðalhlutverkið en þrjú þúsund miðar hafa selst síðan forsalan hófst en það ætti að skila nokkrum milljónum í kassann. - fgg Lífið 21.9.2010 06:00
Vinsælli en Aniston Leikkonan Blake Lively, 23 ára, vildi ólm líkjast leikkonunni Jennifer Aniston. Hún vildi alveg eins hár og Jennifer. Blake, sem fer með hlutverk Serenu í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl, er fyrirmynd óteljandi stúlkna um heim allan og nú biðja þær um Blake-klippingu á hárgreiðslustofunum í stað þess að vilja vera eins og Jennifer Aniston. Ég man þegar ég var krakki vilid ég vera með eins hár og Jennifer," sagði Blake. Þetta er náttúrulega alveg ótrúlegt! Ég las einhversstaðar að nú væri hárið á mér vinsælla á stofunum en hárið á Jennifer. Það er vissulega ánægjulegt en skrýtið," sagði Blake. Lífið 20.9.2010 17:15
Súpermódelin standa saman Þýska ofurfyrirsætan Claudia Schiffer hefur upplifað vægast sagt skrýtna hluti í gegnum tíðina. Eitt sinn var undirfötunum hennar stolið af aðdáanda. Claudia sem var á hátindi ferils síns fyrir tuttugu árum ásamt vinkonum sínumí módelbransanum, Helenu Christensen, Cindy Crawford og Naomi Campbell. Lífið 20.9.2010 16:15
Búin að fá nóg af tali um vaxtarlag Ástralska ofurfyrirsætan Elle Macpherson, 47 ára, er búin að fá sig fullsadda á umræðunni um vaxtarlag kvennanna sem eru í módelbransanum. Elle, sem er dómari í sjónvarpsseríunni Britain’s Next Top Model, hefur verið upptekin við að velja konur sem vilja mæta í þáttinn og keppa um að verða fyrirsætur. Spurð út í vaxtarlag kvennanna sem virðast allar vera nákvæmlega eins og þá í grennra lagi svaraði Elle: Ó guð ég er svo þreytt á að tala um þetta endalaust! Veistu hvað ég hef séð allar útgáfur af konum í þessum bransa. Allt frá Raquel Welch til Kate Moss og hver ein og einast er fallegar það skiptir engu hvernig þær eru í vextinum." Lífið 20.9.2010 15:15
Múm og 101-elítan í Kraká Hljómsveitin múm spilaði á einni stærstu tónlistarhátíð Póllands, Sacrum Profanum, í Kraká um síðustu helgi ásamt hópi íslenskra tónlistarmanna. Þrjú þúsund manns voru í salnum og voru tónleikarnir teknir upp. Þeir þóttu heppnast mjög vel enda verða þeir gefnir út á mynddiski á næsta ári. Lífið 20.9.2010 15:00
Leynifélagið á skjáinn „Við erum ekki að sjónvarpsvæða útvarpsþáttinn Leynifélagið en við verðum sömu karakterar og í útvarpinu,“ segir Kristín Eva Þórhallsdóttir. Hún og Brynhildur Björnsdóttir hafa um árabil stjórnað barna-og unglingaþættinum Leynifélagið á Rás 1 við miklar vinsældir. Og nú munu þær stjórna morgunsjónvarpi barnanna á laugardagsmorgnum milli átta og tíu. „Þa Lífið 20.9.2010 14:30
Leitar örvæntingarfull að ástinni Kelly Osbourne, sem hætti með unnustanum, fyrirsætunni Luke Worrall, í júlí síðastliðnum, finnst eins og hún sé að breytast í Bridget Jones, sem Renée Zellweger lék eftirminnilega í samnefndum kvikmyndum, því hún er ófullnægð og leitar örvæntingafull að hinni einu sönnu ást. Kelly heldur því fram að Luke hélt framhjá henni og nú sé hún opin fyrir því að kynnast karlmönnum. „Þegar ég horfi á Bridget Jones þá átta ég mig á því að ég er í raun og veru hún!" skrifaði Kelly á Twitter síðuna sína. Lífið 20.9.2010 13:45
Haustlína Lacoste Tvennir tímar mættust í haustlínu Lacoste, sem sýnd var á tískuvikunni í New York. Tíska og hönnun 20.9.2010 13:01
Móðgaði ritstjórann Ný bók Tims Gunn, sem gerði garðinn frægan í sjónvarpsþáttunum Project Runway, hefur reitt Önnu Wintour, ritstjóra bandaríska Vogue, til reiði. Í bókinni segir Gunn frá því þegar hann sá lífverði Wintour bera hana niður tröppur eftir eina tískusýninguna. Samkvæmt Gunn varð Wintour ævareið vegna ummæla hans en hann segist þó ekki kvíða því að hitta hana aftur á næstunni. Lífið 20.9.2010 13:00
Vöktu hrifningu í París Hönnuðir á bakvið íslenska vörumerkið Bility tóku þátt í stórri húsbúnaðarsýningu í París fyrir skemmstu. Íslenskt veggskraut og bókamerki í líki skordýra vöktu almenna hrifningu meðal sýningargesta. Tíska og hönnun 20.9.2010 12:40
Æðislegar áheyrnarprufur Áheyrnarprufur fyrir nýjasta myndband Haffa Haff voru haldnar á Austur á dögunum. Óskað var eftir myndarlegum körlum í prufurnar og þeir létu sig ekki vanta. Lífið 20.9.2010 12:30
Stór plötusnúðakeppni haldin Plötusnúðakeppni verður haldin á Nasa laugardaginn 25. september. Þar verður keppt í tveimur aldurshópum, fyrir 12 til 20 ára og 20 til 40 ára. „Okkur finnst senan hérna á Íslandi vera svo lokuð. Við viljum fá að sjá hvað krakkarnir eru að gera í kjallaranum heima hjá sér,“ segir Andrés Bertelsen, sem skipuleggur keppnina ásamt Pétri Kristófer Oddssyni. Lífið 20.9.2010 12:00
Ráðleggur fólki að hætta að kaupa föt Breski fatahönnuðurinn Vivienne Westwood ráðleggur aðdáendum sínum að hætta að versla föt næstu sex mánuði. „Ekki kaupa föt í hálft ár. Endurnýtið fötin ykkar", sagði Vivienne í viðtali á Sky sjónvarpsstöðinni. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Vivienne ráðleggur fólki að endurnýta fötin sín. Hún leggur ríka áherslu á að umhverfið sé mikilvægara en að eltast við nýjustu tísku. „Veljið vandlega hvað þið eyðið peningunum ykkar í og kaupið minna af fötum," sagði hún jafnframt. Lífið 20.9.2010 11:00
Leikur Freddie Mercury Leikarinn Sascha Baron Cohen hefur tekið að sér að leika söngvarann Freddie Mercury í nýrri mynd sem fer í tökur eftir áramót. Freddie Mercury. sem var söngvari hljómsveitarinnar Queen lifði dramatísku lífi en hann dó úr Aids árið 1991. Cohen er hvað þekktastur fyrir að leika í karakterana Borat og Bruno og eru framleiðendur myndarinnar fullvissir um að hann fara að kostum sem söngvarinn heimsfrægi. Lífið 20.9.2010 10:00
María Sigrún Hilmarsdóttir: Þetta er einstakur maður Fréttakonan María Sigrún Hilmarsdóttir er um þessar mundir að vinna að heimildarmynd um hinn landskunna göngugarp Reyni Pétur Ingvarsson, en aldarfjórðungur er liðinn frá því að hann gekk svo eftirminnilega hringinn í kring um landið. Lífið 20.9.2010 09:00