Lífið

Flott kynningarkvöld RFF

Tinna frá Elite var mætt ásamt fyrirsætunum Andreu Röfn og Önnu Jia.Fréttablaðið/Daníel
Tinna frá Elite var mætt ásamt fyrirsætunum Andreu Röfn og Önnu Jia.Fréttablaðið/Daníel

Aðstandendur Reykjavík Fashion Festival héldu glæsilegt kynningarpartí á skemmtistaðnum Austur á föstudagskvöldið, en búið er að staðfesta að hátíðin fari fram 31. mars til 3. apríl á komandi ári.

Umgjörð og fyrirkomulag hátíðarinnar var kynnt gestum, en mörg af flottustu hönnuðum og fyrirsætum landsins létu sjá sig.

Systurnar Harpa María og Elísabet Guðmundsdætur kíktu í partíið.

Gunnar, Óli Hjörtur og Rósa þáðu léttar veitingar.

Anna og Jóhanna frá Nude Magazine kynntu sér dagskrá RFF.

Eskimo-fyrirsæturnar Katrín, Brynja og Tatíana voru glæsilegar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×