Lífið
Ungfrú Vesturland valin Sigrún Eva Ármannsdóttir, 18 ára nemi á náttúrufræðibraut í Fjölbrautaskóla Vesturlands, sigraði Ungfrú Vesturland sem fram fór á Akranesi um helgina. Í öðru sæti varð Helga Björg Þrastarsdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir landaði þriðja sætinu en hún er yngsta barn Hermanns Gunnarssonar fjölmiðlamanns. Lífið 28.3.2011 16:35
Mamma Sheens finnur blóraböggul Charlie Sheen á víða hauka í horni ef marka má tölvupóst sem mamma leikarans sendi frá sér. Þar segir hún fyrrverandi eiginkonu Sheen, Brooke Mueller, eiga sök á því hvernig komið er fyrir syni sínum. Lífið 28.3.2011 14:00
Mikið rétt stuðboltunum leiddist ekki Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari Superman.is um helgina á veitingahúsunum Hvíta Perlan, Bankinn og Hressó. Þá kom hann einnig við á Fanfest CCP. Eins og myndirnar sýna leiddist stuðboltunum alls ekki. Lífið 28.3.2011 13:30
Kominn í norskan leikhóp „Ég bjóst aldrei við að vera að frumsýna leikrit eftir hálf árs búsetu í landinu,“ segir Ívar Örn Sverrisson, leikari sem nýverið frumsýndi leikritið What a glorious day með norska leikhópnum Grusomhetens teater. Ívar Örn fluttist til Noregs síðasta sumar ásamt fjölskyldu sinni en ástæðan fyrir dvöl þeirra í landinu er skólaganga eiginkonunnar. Lífið 28.3.2011 12:00
Þá vitum við hvar sætu stelpurnar voru um helgina Meðfylgjandi myndir voru teknar í Laugardalshöllinni um helgina sem var breytt í tónlistarhús og næturklúbb í hæsta gæðaflokki. Um var að ræða tónleika sem voru hluti af EVE Fanfest hátíð CCP og PartyZone. Lífið 28.3.2011 10:04
Fyrirsæta með læknisfræðina í forgangi Umboðsskrifstofan Next hefur bætt tvemur íslenskum fyrirsætum á skrá hjá sér. Umboðsskrifstofan er ein sú stærsta í heiminum og er með skrifstofur í London, New York, Mílanó og París auk annara borga og hafa fyrirsætur á borð við Milla Jovovich, Abbey Lee, Miröndu Kerr og Önju Rubik verið á mála hjá skrifstofunni. Lífið 28.3.2011 10:00
Hættir við skólabyggingu Bandaríska tónlistarkonan Madonna hefur hætt við að byggja skóla í hinu fátæka ríki Malaví. Samkvæmt New York Times er ástæðan sú að brotalamir hafa verið á rekstri góðgerðarfélagsins sem Madonna hefur stutt dyggilega. Lífið 28.3.2011 08:00
Natalie Portman sögð hafa dansað lítið í Black Swan Ballerínan Sarah Lane, sem var dansstaðgengill Natalie Portman í Black Swan, segir Portman lítið hafa dansað í myndinni. Hún steig fram eftir að unnusti Portman eignaði henni stærstan hluta dansatriðanna. Lífið 28.3.2011 06:00
Stærðfræði-doktor með tónleika á Nasa Kanadíski tónlistarmaðurinn og stærðfræðingurinn Caribou stígur á svið á Nasa sunnudaginn 22. maí ásamt hljómsveit sinni. Sin Fang, sem gaf út sína aðra sólóplötu á dögunum, hitar upp. Lífið 27.3.2011 18:00
Ghostface Killah leitar að lærlingum Rapparinn Ghostface Killah, sem gerði garðinn frægan með röppurunum í Wu-Tang Clan á árum áður, leitar nú að lærlingum til að hjálpa sér í daglegu amstri. Rapparann vantar sérstaklega hjálp við að koma sér á framfæri með hjálp veraldarvefsins og leitar því að penna, markaðsmanni, ljósmyndara, hönnuði og sérfræðingi í samfélagsmiðlum. Lífið 27.3.2011 16:30
Stjörnustríð sýnt í þrívídd Allar sex Star Wars myndirnar verða sýndar í þrívídd í kvikmyndahúsum næstu sex árin í réttri röð. Þetta eru góð tíðindi fyrir hina fjölmörgu aðdáendur Stjörnustríðsins. Byrjað verður á Star Wars I: The Phantom Menace og verður hún frumsýnd á Íslandi 10. febrúar 2012. Tæplega 65 þúsund manns sáu hana eftir að hún var frumsýnd á Íslandi 1999 og er hún á meðal vinsælustu mynda sem hafa verið sýndar hérlendis. Hún náði inn tæpum fjörutíu milljónum króna í aðgangstekjur. Star Wars II: Attack of the Clones verður næst sýnd árið 2013. Lífið 27.3.2011 15:00
Piven orðaður við hlutverk Sheens Leikarinn Jeremy Piven hefur bæst í hóp þeirra sem eru orðaðir við hlutverk Charlie Sheen í þáttunum Two and a Half Men. Piven er þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Entourage þar sem hann leikur umboðsmanninn ósvífna Ara Gold. Lífið 27.3.2011 13:00
Hræddur við að verða faðir Breski söngvarinn Robbie Williams lét hafa það eftir sér í viðtali við þýskan sjónvarpsþátt að hann væri skíthræddur við ábyrgðina sem fylgdi því að vera faðir. Eiginkona hans, Ayda Fields, er víst byrjuð að huga að barneignum en Williams heldur því fram að ábyrðin sem fylgir föðurhlutverkinu eigi eftir að gera honum gott þótt honum finnist tilhugsunin ógnvekjandi. „Ég verð góður faðir þegar þar að kemur vegna þess að ég verð,“ viðurkenndi Williams og bætti við að hann hefði gott af því að hugsa um einhvern annan en sjálfan sig. Lífið 27.3.2011 11:30
Á uppboði fyrir Japan Söngkonan Gwen Stefani úr No Doubt ætlar að bjóða sjálfa sig upp í von um að safna peningum handa fórnarlömbum hamfaranna í Japan. Hæstbjóðandinn fær að hitta Stefani í eigin persónu og vera með henni á fjáröflunarsamkomu í Los Angeles. Lífið 27.3.2011 10:00
Tolli opnar listasýningu Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Tolli opnaði listasýningu í Gallerí listamanna við Skúlagötu í dag. Tolli gekk á meðal gesta, afhenti öllum diska með möntru með Dalai Lama sem eflir með fólki hugrekki, eldmóð og staðfestu í gegnum kraft fyrirgefningar meðal annars. Lífið 26.3.2011 20:03
Þetta er brjóstið sem allir eru að tala um Ítalski pistlahöfundurinn Marika Fruscio reynir í meðfylgjandi myndskeiði að fela hægra brjóstið á sér í miðjum sjónvarpsþætti. Vandræðagangur Mariku fer eins og eldur í sinu um internetið. Lífið 26.3.2011 14:38
Frítt blað frá Radiohead Enska hljómsveitin Radiohead ætlar að gefa út ókeypis blað, The Universal Sigh, um allan heim síðar í þessum mánuði. Tilefnið er útgáfa plötunnar The King of Limbs á geisladiski og á vínyl 28. mars. Á vefsíðunni Theuniversalsigh.com er listi yfir löndin þar sem blaðið kemur út og er Ísland þar á meðal. 9. maí kemur síðan út sérstök útgáfa af nýju plötunni í blaðaformi. Blaðið sem kemur út 28. mars fylgir ekki með þeirri útgáfu. The King of Limbs, sem er áttunda hljóðversplata Radiohead, kom út stafrænt í febrúar. Lífið 26.3.2011 14:00
Vorgleði í klæðaburði Eurovisionfaranna „Við erum byrjuð að leggja drög að klæðaburði sönghópsins i Düsseldorf og það verður ekkert svart að þessu sinni. Bara litir og gleði,“ segir prjóna- og fatahönnuðurinn Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir en hún hefur yfirumsjón með klæðaburði Eurovision-faranna í Vinum Sjonna. Undirbúningur fyrir för hópsins til Þýskalands er á fullu þessa dagana. Lífið 26.3.2011 14:00
Brown missir talsmann sinn Chris Brown er í vondum málum eftir að hafa misst stjórn á sér eftir viðtal við morgunsjónvarpið Good Morning America. Fjölmiðlafulltrúi hans hefur ákveðið að segja skilið við hann eftir nokkurra ára samstarf, samkvæmt slúðurdálki New York Daily Post. Brown hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir framkomu sína í viðtalinu en þáttastjórnendur spurðu hann út í árás hans á þáverandi unnustu sína, Rihönnu, árið 2009. Lífið 26.3.2011 12:00
Beach House á Airwaves Bandarísku draumpoppararnir í Beach House spila á Airwaves-hátíðinni í haust. Platan þeirra Teen Dream var af mörgum talin ein besta plata síðasta árs. Enska stuðsveitin Totally Enormous Extinct Dinosaurs mætir einnig á hátíðina ásamt norsku pönkrokkurunum í Honningbarna og Matthew Hemerlein frá Washington DC. Popparinn Friðrik Dór, Kira Kira, Retro Stefson og Valdimar hafa einnig bæst í hópinn. Forvitnilegt verður að sjá Friðrik Dór, sem hefur náð miklum vinsældum fyrir íslenska R&B-tónlist sína, spreyta sig á Airwaves-hátíðinni. Lífið 26.3.2011 10:00
Arnold fer í sjónvarpið Fyrsta hlutverk Arnolds Schwarzenegger eftir að hann hætti sem ríkisstjóri Kaliforníu verður í nýjum sjónvarpsþáttum. Mikil leynd hvílir yfir þáttunum og hefur þeim eingöngu verið lýst sem alþjóðlegum. Þeir verða kynntir til sögunnar á blaðamannafundi í Cannes 4. apríl. Lífið 26.3.2011 08:00
Drekktu betur í 400. sinn Spurningakeppnin Drekktu betur verður haldin í 400. sinn á Gallery Bar 46 á Hverfisgötu í kvöld. Mjög vegleg verðlaun verða fyrir fyrstu þrjú sætin. Sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson verður spyrill kvöldsins og stendur keppnin yfir milli klukkan 18 og 21. Drekktu betur var áður haldin á skemmtistaðnum Grand Rokki en flutti sig yfir á Bar 46 á síðasta ári þegar Grand Rokk lagði upp laupana. Á meðal þekktra spyrla í keppninni undanfarin misseri eru fréttamaðurinn Sveinn Guðmarsson og miðborgarstjórinn Jakob Frímann Magnússon. Lífið 25.3.2011 17:00
Bæ bæ bumba - halló sléttur magi Við höldum áfram að fylgjast með Sif Sturludóttur, 30 ára, sem eignaðist sitt þriðja barn fyrir 5 mánuðum, losa sig við aukakílóin með hjálp Shape.is sem Gunnar Már Sigfússon einkaþjálfari og Rúnar Gíslason kokkur reka í þeim tilgangi að hjálpa Íslendingum að léttast og líða betur. Sif byrjaði síðasta miðvikudag að borða næringarríkan mat sem er sérútbúinn af Shape-snillingunum í fjórar vikur og leyfa Vísi að fylgjast grannt með sér létta sig um fimm kíló með vellíðan að leiðarljósi sem er að borða rétt og hreyfa sig í a.m.k. 30 mínútur á dag. Sif segir í meðfylgjandi myndskeiði hvernig henni gengur í átakinu, þá sjáum við fæðuna sem hún borðar og að lokum sýnir einkaþjálfarinn Gunnar Már magaæfingar sem svínvirka. Lífið 25.3.2011 15:01
Friðrik á forsíðu Berlingske "Þetta er auðvitað mjög skemmtilegt enda Berlingske stórt blað,“ segir athafnamaðurinn Friðrik Weisshappel, sem búsettur er í Kaupmannahöfn. Hann er á forsíðu danska stórblaðsins Berlingske Tidende og prýðir risastóru opnu í aukablaði þess, AOK, en það er einnig stærsta netsvæði Danmerkur. Fyrirsögnin gæti ekki verið jákvæðari í garð Friðriks; "íslenskt kaffihús slær í gegn, Kaupmannahafnabúar elska Laundromat Café þar sem brosmildi og börn eru velkomin.“ Inní blaðinu er síðan flennistór grein þar sem haft er eftir Friðrik að maður megi aldrei slátra sjarmanum. Lífið 25.3.2011 14:00
Skiptar skoðanir um Vini Sjonna Frakkar eru líklegastir til að vinna Eurovision-keppnina í Þýskalandi samkvæmt breska veðbankanum William Hill. Lífið 25.3.2011 13:00
Frumflytja tónverk Hljómsveitirnar Reykjavík! og Lazyblood frumflytja tónverkið The Tickling Death Machine á tónlistarhátíðinni Reykjavík Music Mess sem verður haldin á Nasa og í Norræna húsinu um miðjan apríl. Tónverkið, sem að hluta til er dansverk og inniheldur mikið af leikrænum tilþrifum, var samið af meðlimum hljómsveitanna sérstaklega fyrir listahátíðina Kunsten festival des arts í Brussel sem verður haldin í maí. Lífið 25.3.2011 11:00
Taktu sunnudaginn frá og sjáðu Gillz, Steinda Jr og Siggu Kling "Nokkrar konur í Mosfellbæ tóku sig til og ákváðu að standa fyrir kvennatöltmóti sem þær kalla LÍFStöltið en allt fé sem safnast með skráningargjöldum, aðgangseyri, veitingasölu og sölu á happdrættismiðum rennur til LÍFS sem er styrktarfélag kvennadeildar LSH," segir Helen Kristinsdóttir ein af skipuleggjendum mótsins sem haldið verður á sunnudaginn 27.mars. "Um 100 konur hafa nú þegar skráð sig og hafa fyrirtæki og einstaklingar keypt vinningssætin svo að þær sem vinna fimm efstu sætin í hverjum flokki fá ekki verðlaun heldur rennur peningurinn beint til LÍFS." "Kvenskörungurinn Sigga Kling opnar mótið klukkan 10:00 með uppbyggilegum orðum og hreinsar af okkur vetrardrungann og leiðir síðan Skrautreið til heiðurs konum. Klukkan 13:00 mæta þeir Gillz, Sveppi, Villi og Steindi Jr en þeir ætla að keppa í svokallaðri brjóstamjólkurreið sem fer þannig fram að þeir þurfa að hanga á baki á hestunum þrjá hringi og halda stórri bjórkönnu fullri af mjólk alla leið, sá sem er með mestu mjólkina vinnur," segir Helena og hvetur alla til að mæta og styrkja gott málefni. Lífstölt á Facebook. Lífið 25.3.2011 10:02
Björgvin Franz leystur út með spegli „Þetta var mjög súrsæt tilfinning og það er alveg rosalega erfitt að hætta enda er þetta skemmtilegasta djobb í heimi, það er ekkert sem toppar þetta,“ segir Björgvin Franz Gíslason. Lífið 25.3.2011 10:00
Balti kominn heim frá Contraband "Það er annað hvort Hofsós eða Hollywood, það er ekkert þar á milli,“ segir kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur. Hann er kominn heim í norðlensku sveitasæluna frá stórborginni New Orleans því tökum á Hollywood-kvikmyndinni Contraband er formlega lokið en nú hefst klipping kvikmyndarinnar og svo eftirvinnsla í London í vor. Baltasar tryggði sér nýlega þjónustu tónskáldsins Clintons Shorter sem mun semja tónlistina við myndina en hann átti heiðurinn að tónlistinni í sci-fi myndinni District 9. Lífið 25.3.2011 08:00
Sængað hjá vinum og ofurpilla Fjórar myndir verða frumsýndar í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina. Sérstaklega verður að minnast á bresku gamanmyndina Four Lions sem fengið hefur afbragðsgóða dóma en hún er frumsýnd í Bíó Paradís. Myndin segir frá hópi lánlausra hryðjuverkamanna sem undirbúa árás í ensku borginni Sheffield. Leikstjórinn Chris Morris vann til Bafta-verðlauna fyrir þessa frumraun sína og myndin var ein af tíu bestu myndum ársins að mati Time Magazine. Lífið 24.3.2011 21:00