Lífið

Fáklæddar fegurðardrottningar

Mefðylgjandi myndir tók Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari af keppendum í fegurðarsamkeppni Ungfrú Ísland 2011. Stúlkurnar æfðu sig að koma fram á bað- og undirfötum fyrir stóru stundina sem verður í kvöld á Broadway. Keppnin verður sýnd í beinni útsendingu á Skjá einum.

Lífið

Prófa kennslu á netinu með Skype

„Þetta er bara tilraun til að sjá hvaða viðbrögð við fáum,“ segir Jóhann Ásmundsson, bassaleikari Mezzoforte. Hljómsveitin býður nú aðdáendum sínum upp á tónlistarkennslu í gegnum samskiptaforritið Skype á netinu.

Lífið

Halda dómsdagsdansleik í kvöld

Hljómsveitirnar FM Belfast og Prinspóló segjast vilja tryggja það að sem flestir séu í góðra vina hópi ef dómsdagsspár ganga yfir í nótt og halda því dómsdagsdansleik í kvöld.

Lífið

Ósk Norðfjörð með keppni í útgeislun

Erum í leit af goði og gyðju Íslands þar sem hæð, þyngd og skóstærð skipta engu máli. Erum aðeins í leit af glæsilegu fólki með frábæra útgeislun," stóð í auglýsingu fyrirsætunnar Ósk Norðfjörð þegar hún hóf leit sína að keppendum fyrir viðburð sem nefnist Goð og Gyðjur. Um er að ræða keppni í útgeislun þar sem innri manneskjan skiptir máli sem verður haldin á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi í kvöld. Í meðfylgjandi myndskeiði segir Ósk frá keppninni og kynnir til leiks nokkra af keppendunum. Goð og gyðjur á Facebook.

Lífið

Klovn gaurar með Íslendingunum í Cannes

Nú fer að styttast í annan endann á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Íslenska kvikmyndin Eldfjall í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar hefur hlotið góðar viðtökur og hafa dómar helstu kvikmyndatímarita heims um myndina verið afar jákvæðir.

Lífið

Trier málar sig út í horn í Cannes

Danski leikstjórinn Lars von Trier hefur komið sér í rækileg vandræði með yfirlýsingum sínum um gyðinga, helförina og Adolf Hitler á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hann var rekinn af hátíðinni í hádeginu í gær.

Lífið

Íslenski dansflokkurinn fær lof í Austurríki

Íslenski dansflokkurinn hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda fyrir frammistöðu sína á danshátíð í Linz í Austurríki í síðastliðnum mánuði. ÍD sýndi tvö ólík verk á hátíðinni; Grossstadtsafari eftir Norðmanninn Jo Strömgren og Endastöð eftir Svíann Alexander Ekman.

Lífið

Forréttindi fyrir listamann

Út er komin bókin Undir rós, yfirlitsrit yfir feril Kristínar Gunnlaugsdóttur myndlistarkonu. Kristín segir það hafa verið endurnýjandi að vinna bókina og segist sjá höfundarverk sitt í öðru ljósi.

Lífið

Á ferð um Köben

Sigrún Gísladóttir, sem búsett var í Kaupmannahöfn um árabil, hefur gefið út bók um borgina, Kaupmannahöfn – Í máli og myndum. "Þegar ég bjó í Kaupmannahöfn byrjaði ég af tilviljun að taka hópa í göngu um borgina,“ segir Sigrún, sem í framhaldinu fékk meiri áhuga á Kaupmannahöfn. Hún segir að bókin sé að hluta til byggð á gögnunum.

Menning

Fincher orðaður við Angelinu og Kleópötru

Bandaríski leikstjórinn David Fincher er sagður vera í viðræðum við framleiðandann Scott Rudin um að leikstýra stórmyndinni Kleópötru. Rudin og Fincher unnu saman að gerð The Social Network og Rudin hefur þegar tryggt sér þjónustu Angelinu Jolie í titilhlutverkið. Leikkonan ku vera mjög áhugasöm um að fá Fincher, sem hefur auðvitað haldið sambýlismanni hennar, Brad Pitt, á floti með kvikmyndum á borð við Seven, Fight Club og The Curious Case of Benjamin Button.

Lífið

Mel Gibson að ranka við sér á ný

Ástralski leikarinn Mel Gibson virðist smám saman vera að ranka við sér á ný. Kvikmynd hans The Beaver eftir Jodie Foster hefur fengið ágætis dóma á kvikmyndahátíðinni í Cannes og Gibson hefur að mestu leyti náð að halda sig frá vandræðum við Miðjarðarhafsströndina. Myndin hefur reyndar fengið afleita aðsókn í Bandaríkjunum en það er alltaf von, því nú er loks farið að orða leikarann við ný hlutverk og nýjar myndir. Slíkt hefur ekki gerst í nokkurn tíma og var hann meira að segja rekinn úr feluhlutverkinu í The Hangover II.

Lífið

Grásleppuhrogn boða sumarið

Grásleppuhrogn eru besta merkið um að vorið sé komið að sögn Ólafs Ágústssonar, yfirkokks í Sjávarkjallaranum, sem reiðir fram gómsætan fiskrétt þar sem skötuselur og grásleppuhrogn eru uppistaðan.

Matur

Heimsyfirráð Lady Gaga

Platan Born This Way með Lady Gaga kemur út eftir helgi. Þéttur danstakturinn er áfram í fyrirrúmi og ljóst er að hún ætlar ekkert að slaka á heimsyfirráðum sínum í poppheiminum.

Lífið

Hnakkurinn haggaðist ekki

Benedikt Brynleifsson úr Vinum Sjonna sat á hnakki þegar hann flutti lagið Coming Home í úrslitum Eurovision í Þýskalandi. "Þetta átti að vera tengingin við hestamennskuna sem var áhugamál Sjonna og tenging í myndbandið sem var gert í hlöðu,“ segir Benedikt.

Lífið

Brad vildi stóra fjölskyldu

Þegar leikarinn Brad Pitt var lítill drengur vildi hann eignast stóra fjölskyldu þegar hann yrði eldri. "Vinur minn átti stóra fjölskyldu þegar ég var lítill. Ég hafði gaman af látunum í kringum morgunverðarborðið, öllum slagsmálunum og þegar mamman eða pabbinn bökuðu pönnukökur handa öllum,“ sagði Pitt.

Lífið

Steven Tyler svaf hjá karlmanni

Steven Tyler, söngvari Aerosmith og dómari í American Idol, segist einu sinni hafa átt kynmök við annan karlmann en hann hafi ekki viljað prófa það aftur. "Ég fíla ekki kynlíf með karlmönnum. Ég prófaði það einu sinni þegar ég var yngri en fékk ekki mikið út úr því,“ skrifaði hann í nýrri ævisögu sinni Does the Noise In My Head Bother You? sem er nýkomin út. Þar lætur hann ýmislegt flakka um litríkan feril sinn sem rokksöngvara í fremstu röð.

Lífið

Skotheld blúsplata frá Andreu

Það þarf ekki að fjölyrða um þennan disk. Hann er algerlega pottþéttur fyrir það sem hann er. Allir spilararnir standa fyrir sínu, Gummi sýnir oft mikil tilþrif á gítarinn og Andrea fer hreinlega á kostum. Tilfinningin og innlifunin hjá henni er einstök. Blúsaðdáendur ættu ekki að láta Rain on me rain framhjá sér fara.

Gagnrýni

Stórborgin stundum ógnandi

Íslenskar fyrirsætur eru á faraldsfæti um þessar mundir og hefur einni þeirra, Kolfinnu Kristófersdóttur, tekist að fá verkefni strax viku eftir að hún flutti til London. "Ég kom hingað á mánudaginn og líst vel á London enn sem komið er,“ segir Kolfinna Kristófersdóttir fyrirsæta. Þegar Fréttablaðið náði af henni tali sat hún í fyrstu myndatöku sinni í London, myndaþætti fyrir breska tískutímaritið As you are, sem þykir góður árangur enda voru þá ekki nema fimm dagar liðnir frá því að Kolfinna kvaddi fjölskyldu sína á Íslandi og elti fyrirsætudrauminn til Bretlands.

Lífið

Rosalegt bardagaatriði í Tortímanda

Hasarleikritið Tortímandi fjallar um sjálfsmynd karla. Verkið er lokaverkefni Dóra DNA úr LHÍ og hann lofar miklum hasar. „Tíðarandinn er að breytast og sýningin er uppgjör okkar við karlmennskuna og feðraveldið sem ól okkur upp," segir Halldór Halldórsson, Dóri DNA, útskriftarnemi úr fræðum og framkvæmd í Listaháskóla Íslands.

Menning

Fegurðardrottning í poppið

Fegurðardrottningin Magdalena Dubik og Védís Vantída Guðmundsdóttir kórstjóri í Vestmannaeyjum skipa nýja poppgrúbbu sem ber heitið Galaxies en þær frumflytja glænýtt popplag á fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland 20. maí næstkomandi. Við litum við á æfingu hjá þessum hæfileikaríku söngkonum í vikunni.

Lífið

Mörg andlit Johnny Depp

Johnny Depp er einn vinsælasti leikari samtímans. Hann er yfirleitt nálægt toppsætunum yfir þá sem hala inn flestar krónur í miðasölu og nafni hans bregður yfirleitt fyrir á listum yfir kynþokkafyllstu karlmenn heims. Hann virðist hins vegar meðvitað leika gegn þeirri rullu.

Lífið

Bjarni á von á fjórða barninu

Formaður Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson og eiginkona hans Þóra Margrét Baldvinsdóttir eiga von á sínu fjórða barni. Við höfðum samband við Bjarna, óskuðum honum til hamingju og forvitnuðumst hvernig Þóra, konan hans hefur það. "Henni líður vel og þetta gengur allt eins og í sögu. Við erum í skýjunum með þetta og það er mikil ánægja og eftirvænting í fjölskyldunni," svaraði Bjarni. Hvenær á hún von á sér? "Hún á að eiga fyrri hluta september."

Lífið

Léttist um 20 kg

Ég er búin að vera í megrun meira og minna í tuttugu ár, sagði Júlía Albertsdóttir sem léttist um 20 kg eftir að hún byrjaði að nota náttúrulegt efni sem nefnist CC Flax sem er sérhannað fyrir konur. Í meðfylgjandi myndskeiði segir hún hvernig hún fór að því að léttast og líða betur í kjölfarið. Ekki nóg með að náttúruefnið, sem Júlía hefur tekið inn síðan árið 2010, vinni gegn fyrirtíðarspennu og einkennum breytingarskeiðsins hjá konum þá sýnir kanadísk rannsókn sem gerð var á 115 konum að þær sem juku neyslu á efninu höfðu lægri fitumassa. CC Flax inniheldur mulin hörfræ (Lignans), trönuberjafræ og kalk úr sjávarþörungum.

Lífið

Já en þú ert nýbúin að eignast barn

Spænska leikkonan Penelope Cruz, 37 ára, sem eignaðist í janúar sitt fyrsta barn, drenginn Leo, með eiginmanni sínum leikaranum Javier Bardem ferðast nú um heiminn og kynnir nýju kvikmyndina Pirates Of The Caribbean: On Stranger Tides. Eins og myndirnar sýna er nýbökuð mamman vægast sagt stórglæsileg.

Lífið