Lífið

Hitti Mads Mikkelsen í Cannes

„Hann var rosalega kammó og fannst gaman að spjalla,“ segir leikarinn Theódór Júlíusson sem hitti kollega sinn, hinn danska Mads Mikkelsen, á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Lífið

Norska ríkissjónvarpið vill endurgera Næturvaktina

„Norðmennirnir eru mjög áhugasamir og endurgerðin lítur mjög vel út þar. Það er meðal annars ástæðan fyrir því að þeir hafa ekki keypt sýningarréttinn, þeir vilja gera sína eigin útgáfu,“ segir Kjartan Þórðarson, framkvæmdastjóri Saga Film.

Lífið

Orðnir vinir á Twitter

Söngkonan Rihanna er aftur komin í samband við fyrrverandi kærasta sinn, Chris Brown, en núna í gegnum Twitter-síðuna. Hún hefur bætt honum á lista yfir Twitter-vini sína og kom það mörgum aðdáendum hennar á óvart. Ástæðan er sú að Brown var dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi og sex mánaða samfélagsþjónustu fyrir að ráðast á Rihönnu fyrir tveimur árum. „Þetta er bara Twitter, ekki altarið!“ sagði hin 23 ára Rihanna við einn aðdáandann sem lýsti yfir undrun sinni.

Lífið

Rómantískt goth frá Karli Lagerfeld

Línur tískuhússins Chanel fyrir þetta ár eru unglegri og frjálslegri en oft áður og vaknar því upp sú spurning hvort Lagerfeld sé að reyna að ná til yngri markhóps. Vor- og sumarlína Chanel var nokkuð einstök. Línan er eins og draumkennd blanda af Chanel-klassík og fáguðu „gothi" og ef vel er rýnt má sjá svolítið af tíunda áratugnum þarna líka (í formi þykksóla sandala).

Tíska og hönnun

Pínu flegið finnst þér ekki?

Söngkonan Gwen Stefani var vægast sagt stórglæsileg í Cannes eins og myndirnar sem teknar voru af henni í gærkvöldi sýna. Kjóll söngkonunnar var í flegnari kantinum eins og sjá má. Þá má einnig sjá Gwen sóla sig í fyrradag í myndasafni.

Lífið

Lady Gaga á lausu

Söngkonuna Lady Gaga, 25 ára, má skoða í meðfylgjandi myndaalbúmi þar sem hún gefur aðdáendum sínum smákökur. Stelpan er hætt með kærasta sínum, Luc Carl, til margra ára. Ég er ekki að hitta neinn og nei það er enginn kærasti á þessum tímapunkti í lífi mínu. Mér leiðast karlmenn mjög fljótt eftir að ég kynnist þeim. Svo er líka brjálað að gera hjá mér, sagði Lady Gaga.

Lífið

Beggi Smári segir frá væntanlegri plötu

Fyrsta plata tónlistarmannsins Begga Smára nefnist Mood og kemur út á næstu dögum. Þar blandar hann saman blús, sálartónlist og poppi. Í meðfylgjandi myndskeiði segir Beggi stuttlega frá plötunni. Beggi heldur tónleika á Café Rosenberg í kvöld, þriðjudag, þar sem hann leikur lög af plötunni. Sjá nánar hér. Hér má hlusta á lagið Warm & strong af plötunni. Facebook síða Begga Smára.

Lífið

Arnold barnaði þjónustustúlkuna

Kvikmyndastjarnan og fyrrverandi ríkisstjóri Kalíforníu, Arnold Schwarzenegger, sem skildi nýverið við eiginkonu sína Mariu Shriver, eftir 25 ára hjónaband, hefur viðurkennt að hafa barnað þjónustustúlkuna þeirra fyrir áratug áður en hann bauð sig fram til ríkisstjóra. Arnold segist hafa sagt Mariu frá barninu eftir að hann hætti í embætti í janúar og hann segist hafa brugðist fjölskyldu og vinum allsvakalega. Að ekki sé minnst á Maríu sem hann hefur nú þegar beðið afsökunar.

Lífið

Útvarpsstarfið leyndur draumur

"Þetta er alveg hrikalega spennandi tækifæri og ég er með fiðrildi í maganum,“ segir Margrét Björnsdóttir, glænýr liðsmaður útvarpsstöðvarinnar FM957, en hún stjórnar þættinum Fjögur til sex á hverjum virkum degi ásamt Brynjari Má Valdimarssyni útvarpsmanni.

Lífið

Önnur plata Mógil

Hljómsveitin Mógil hefur sent frá sér plötuna Í stillunni hljómar. Platan var gefin út í Belgíu og Hollandi í mars og hefur fengið góða dóma þar. Einnig var nýlega fjallað um plötuna í tímaritinu The New York City Jazz Record. Mógil hefur áður gefið út plötuna Ró sem var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2008.

Lífið

Völdu besta Dylan-lagið

Like A Rolling Stone hefur verið kjörið besta lagið á ferli tónlistarmannsins Bobs Dylan. Það voru tónlistarmenn, rithöfundar og fræðimenn sem völdu lagið í könnun tímaritsins Rolling Stone í tilnefni af sjötugsafmælis Dylans 24. maí. Like A Rolling Stone er sex mínútur að lengd og samanstendur af þremur hljómum. Lagið kom út árið 1965 á plötunni Highway 61 Revisited. Í öðru sæti lenti lagið A Hard Rain"s Gonna Fall og í því þriðja varð Tangled Up in Blue. Í næstu sætum á eftir komu Just Like a Woman og All Along the Watchtower.

Lífið

Loksins fyrirsæta sem er ekki að farast úr hungri

Ég var í stærð 18/20 í framhaldsskóla og það var ekki það auðveldasta sem ég upplifði á þeim tíma, viðurkenndi Tara sem hefur setið fyrir í tímaritum eins og Elle, Glamour og V. Tara, sem er glæsileg og þokkafull eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, er sátt við líkama sinn í dag.

Lífið

Langt ferðalag Eurovision-fara framundan til Bakú

Íslenska lagið Coming Home með Vinum Sjonna eftir Þórunni Ernu Clausen og Sigurjón Brink hafnaði í 20.sæti. Lagið fékk engu að síður 61 stig og sexmenningarnir fluttu lagið óaðfinnalega á sviðinu í Dusseldorf. Stigin dreifðust óvenju mikið í keppninni og Eurovision-sérfræðingar eru sammála um að keppnin hafi ekki verið svona jöfn í langan tíma.

Lífið

Glæsilegt í Hörpunni

Tónlistar-og ráðstefnuhúsið Harpa var formlega vígt á föstudagskvöldið þegar haldnir voru opnunartónleikar í hinum glæsilega Eldborgarsal. Að þessu sinni var allt sýnt í beinni útsendingu.

Lífið

Flottir dómar fyrir Eldfjall

Kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Eldfjall, fær flotta dóma í þremur virtustu kvikmyndatímaritunum, Variety, Hollywood Reporter og Screen Daily. Myndin var frumsýnd á Cannes-kvikmyndahátíðinni í síðustu viku að viðstöddum leikstjóranum sjálfum og aðalleikurunum, þeim Theódór Júlíussyni og Margréti Helgu Jóhannesdóttur. Auk þeirra voru þau Þorsteinn Bachman og Elma Lísa Gunnarsdóttir einnig viðstödd frumsýninguna ásamt Kjartani Sveinssyni, oftast kenndum við Sigur Rós, en hann semur tónlistina í myndinni.

Lífið

Elín Ey böskar í Bankastrætinu

Tónlistarkonan Elín Ey ætlar að vera dugleg við að böska í miðbæ Reykjavíkur í sumar. Þar spilar hún á kassagítarinn sinn fyrir pening og eru bæði útlendingar og Íslendingar duglegir við að kafa ofan í vasa sína eftir aurum.

Lífið

Myndir þú láta sjá þig með þetta á hausnum?

Ríka og fræga fólkið getur leyft sér að ganga með höfuðföt sem venjulegt fólk myndi aldrei láta sjá sig með nema kannski á hrekkjavöku. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá ævintýralega hatta á Lady Gaga, Will.I.Am, Madonnu, Pamelu Anderson, Katy Perry, Olsen tvíburunum og fleirum.

Lífið

Það er farið að grafa í þessu hjá þér

Meðfylgjandi má heyra tvær vinkonur spjalla saman á persónulegu nótunum þar sem önnur þeirra segir frá þrálátri sveppasýkingu sem er að angra hana. Um er að ræða stutt útvarpsleikrit, sem er fastur liður í útvarpsþætti Siggu Lund og Ellý Ármanns sem er á dagskrá Bylgjunnar á sunnudagskvöldum.

Lífið

Bieber gerir góðverk

Justin Bieber, táningsgoðið frá Kanada, hyggst hitta 14 ára gamlan aðdáenda sinn fyrir tilstilli Barack Obama, Bandaríkjaforseta.

Lífið

Brad passar upp á gyðjuna sína

Stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt héldust hönd í hönd þegar þau yfirgáfu veitingahús í Frakklandi í gær eins og sjá má á myndunum en þau eru stödd á kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem Angelina kynnir teiknimyndina Kung Fu Panda 2 sem hún talsetur.

Lífið

Aniston of gróf

Atriði með Jennifer Aniston í gamanmyndinni Horrible Bosses þóttu of gróf til að geta ratað í stiklu myndarinnar. Myndin verður frumsýnd 8.júlí næstkomandi og hefur stikla hennar þegar vakið mikla athygli. Þar sést hinn rúmlega fertuga Aniston spóka sig um á nærfötunum og áreita samstarfsfélaga sinn kynferðislega. Leikstjóri myndarinnar, Seth Gordon, segir atriðin þó vera hreinan barnaleik miðað sumt af því sem Aniston gerir í myndinni. „Það er bara of gróft til að geta sýnt það í svona stiklu.“

Lífið

Mjúkur ævintýraheimur

Stórir ruggusvanir, klæddir mjúkri gæru og prjóni, með goggum úr roði eru hluti af nýrri vörulínu Bryndísar Bolladóttur textílhönnuðar sem kallast Lokkandi. Línan er sérstaklega ætluð börnum.

Tíska og hönnun

Vandræðaleg Lopez

Fallegasta kona heims, American Idol dómarinn Jennifer Lopez, átti ekki í vandræðum með að bjarga sér úr vandræðum í Los Angeles í gærkvöldi á Wango Tango tónlistarhátíðinni. Klædd í kynþokkafulan kóngulóargalla tók Jennifer nokkrar vel útfærðar mjaðmahnykkingar þegar slokknaði á hljóðnemanum hennar í miðju lagi. Þá má skoða ævintýralega gallan hennar í myndasafni.

Lífið

Síðu lokkarnir horfnir

Leikkonan Katherine Heigl, 32 ára, og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Josh Kelley, voru mynduð á LAX flugvellinum í Los Angeles í fyrradag...

Lífið

Mikið rétt fallegu fljóðin eru í ferðabransanum

Meðfylgjandi má sjá myndir úr árlegu boði sem Flugfélag Íslands hélt síðasta föstudag fyrir ferðaskrifstofur, upplýsingamiðstöðvar og gestamótttökufólk á höfuðborgarsvæðinu. Eins og myndirnar sýna leiddist engum í skýli 4 á Reykjarvíkurflugvelli þar sem fagnaðurinn fór fram.

Lífið

Hvaða yngingarmeðal tekur þú inn?

Eins og myndirnar sýna var Madonna, 52 ára, klædd í ljósbláan Stellu McCartney síðkjól og Sergio Rossi skó í New York á dögunum, stórglæsileg að vanda. Þá má sjá söngkonuna hjóla um götur New York borgar og með börnum sínum, Rocco John, 11 ára, David Banda Ritchie, 6 ára og Mercy, 5 ára, á Heathrow flugvellinum.

Lífið