Lífið

Safn opnað á æskuheimili

Hollywood-leikarinn og ríkisstjórinn fyrrverandi Arnold Schwarzenegger hefur opnað nýtt safn tileinkað honum sjálfum á æskuheimili hans í bænum Thal í Austurríki.

Lífið

Heimsendir á morgun

Umfjöllun Íslands í dag um þáttaröðina Heimsenda. Ragnar Bragason leikstjóri segir frá frumsýningarfiðringnum og sýnd eru tvö atriði úr þættinum.

Lífið

Anita sumarleg á rauða dreglinum

Íslenska leikkonan Anita Briem heillaði ljósmyndara þegar hún mætti á frumsýningu myndarinnar Real Steel í Hollywood á dögunum. Sumarlega klædd í grænt pils og ljósan topp geislaði Anita en hárgreiðsla hennar vakti athygli enda ekki á hverjum degi sem leikkonur skarta tveimur fléttum á rauða dreglinum. Aníta bar hárgreiðsluna hins vegar með prýði.

Lífið

Enn eitt stórvirki Bjarkar

Björk gefur ekkert eftir á metnaðarfullri plötu. Biophilia er enn eitt stórvirkið á ferli hennar en kannski ekki hennar besta plata. Magnað verk engu að síður og plata sem sýnir að Björk er ekki hætt leitinni að nýjum og spennandi hlutum.

Gagnrýni

Saknar ekki Leonardo DiCaprio

Leikkonan Blake Lively grætur ekki samband sitt við Leonardo DiCaprio og sást hún í innilegum faðmlögum með Ryan Reynolds á lestarstöð í Boston.

Lífið

Andblær liðinna ára

Laugardaginn 15 október halda Sardas strengjakvartett og söngkonan Agnes Amalía sópran tónleika undir yfirskriftinni Andblær liðinna ára.

Menning

Villt útgáfuhóf

Meðfylgjandi myndir voru teknar í hófi á vegum Sölku og villta kokksins Úlfars Finnbjörnssonar í tilefni af útkomu bókarinnar Stóra bókin um Villibráð...

Lífið

Næturvaktin til Noregs

Þeir Ólafur Ragnar, Georg og Daníel úr Vaktaseríunum svokölluðu eru flestum kunnugir enda slógu þættirnir all rækilega í gegn hér á landi. Nú munu frændur okkar norðmenn fá að kynnast strákunum því norska sjónvarpsstöðin TV2 er að ráðst í framleiðslu á Næturvaktinni. Í Fréttablaðinu í dag segir að sjónvarpsstöðin ætli að tefla fram öllum sínum stærstu og sterkustu vopnum þegar endurgerðin hefst í byrjun næsta árs. Leikstjóri verður Magnus Martens sem þessa dagana er að klára kvikmyndina Arme Riddere eftir bók norska sakamálahöfundarins Jo Nesbø og þrír af vinsælustu gamanleikurum Noregs verða í aðalhlutverkunum að sögn Christophers Haug, eins af aðalframleiðendum leikins efnis hjá TV 2.

Lífið

Kann illa við frægðina

Skoska leikaranum Gerard Butler er illa við frægðina og fylgifiska hennar. Hann segist þó njóta leiklistarinnar en óskar þess stundum að hann gæti horfið í fjöldann.

Lífið

Mega sætar mæðgur

Victoria Beckham, 37 ára, hélt þéttingsfast utan um stúlkuna sína, Harper, á tískuvikunni í New York, eins og sjá má í myndasafni...

Lífið

Stærsta hlutverk Halldórs

Halldór Gylfason leikur aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Heimsendi sem hefja göngu sína á Stöð 2 á sunnudagskvöld. Hann las meðal annars Ljósu og horfði á Richard Gere-myndina Mr. Jones til að búa sig undir hlutverkið.

Lífið

Klovn-tvíeykið hneykslar enn

Casper Christensen og Frank Hvam frumsýndu á fimmtudagskvöld nýja uppistandssýningu sína. Klovn-tvíeykið hefur verið duglegt að lýsa því yfir í viðtölum að engum verði hlíft, allt verði látið flakka.

Lífið

Fjör á forsýningu

Meðfylgjandi myndir voru teknar á sérstakri Einkamal.is forsýningu gamanmyndarinnar What's Your Number? í Smárabíói á fimmtudaginn en Lífið gaf 100 boðsmiða á myndina...

Lífið

Stórskotalið gerir norska Næturvakt

Norska sjónvarpsstöðin TV2 teflir fram öllum sínum stærstu og sterkustu vopnum þegar endurgerð á Næturvaktinni hefst í byrjun næsta árs. Leikstjóri verður Magnus Martens sem þessa dagana er að klára kvikmyndina Arme Riddere eftir bók norska sakamálahöfundarins Jo Nesbø og þrír af vinsælustu gamanleikurum Noregs verða í aðalhlutverkunum að sögn Christophers Haug, eins af aðalframleiðendum leikins efnis hjá TV 2.

Lífið

Kastaði stólum

Leikkonan Jennifer Aniston er ekki öll þar sem hún er séð því þegar hún reiðist á hún það til að kasta stólum í fólk. Þessu uppljóstraði Aniston í viðtali við tímaritið Elle.

Lífið

Þurfa ekki að hlusta

Chris Martin, söngvari Coldplay, segist ekki neyða börnin sín til að hlusta á tónlistina hans. „Ég neyði tónlistina ekki ofan í þau. Enginn í fjölskyldunni þarf að hlusta á hana,“ sagði Martin, spurður hvort börnin hans hlustuðu á Coldplay. Hann á tvö börn, hina sjö ára Apple og hinn fimm ára Moses. Söngvarinn viðurkennir að barneignir hans hafi breytt sköpunarferli Coldplay.

Lífið

Samhugur í söfnunarátaki SEM

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, sem teknar voru í Hafnarhúsinu í kvöld, þar sem söfnunarátak SEM, Samtök Endurhæfðra Mænuskaddaðra, fór fram, var mikill samhugur og góð stemning á meðal fólksins... aráta

Lífið

Vinnur á spéhræðslu

Leikkonan Evan Rachel Wood ljóstraði því upp í nýlegu viðtali hvernig hún undirbýr sig fyrir nektaratriði.

Lífið

Taktu kvöldið frá - landssöfnun í beinni

Maríanna Friðjónsdóttir segir í meðfylgjandi myndskeiði stuttlega frá söfnunarútsendingu fyrir SEM-samtökin sem er í opinni dagskrá á Stöð 2 í kvöld og á Visir.is klukkan 19:50 - 23:00...

Lífið

Damon Albarn og David Byrne á plötu Ghostigital

Tónlistarmennirnir heimsþekktu David Byrne og Damon Albarn eru á meðal góðra gesta á væntanlegri plötu hljómsveitarinnar Ghostigital, Division of Culture and Turism. „Byrne kom hingað til lands einhvern tímann og þá spurði ég hvort hann væri ekki til í að vera með okkur á plötu og hann sagði: „Já, endilega“,“ segir Einar Örn. „Við létum hann fá lagið [Dreamland] og hann fór með það heim, kláraði og sendi.“ Sykurmolinn fyrrverandi er að sjálfsögðu ánægður með samstarfið við Byrne, sem er þekktur sem fyrrverandi forsprakki hljómsveitarinnar Talking Heads. „Þetta er þrusuflott sem hann gerir. Hann er algjört æði.“

Lífið

Vildi ekki festa ráð sitt

Leikararnir Blake Lively og Leonardo DiCaprio hafa slitið sambandi sínu. Þetta staðfestu talsmenn þeirra beggja. Samkvæmt heimildarmanni mun Lively ekki hafa verið tilbúin til að festa ráð sitt með hjartaknúsaranum. „Þetta var of mikið, of hratt. Leonardo vill stofna til fjölskyldu bráðlega en Blake var ekki tilbúin til að festa ráð sitt strax, enda er hún enn þá ung,“ sagði heimildarmaðurinn. Parið sást fyrst saman á Cannes-kvikmyndahátíðinni í vor og entist samband þeirra í fimm mánuði.

Lífið

Lag gegn krabbameini

Jónas Björgvinson hefur gefið út lagið Laufin lifa. Það verður á nýrri plötu hans sem kemur út á næsta ári. Jónas ákvað að gefa út Laufin lifa í tilefni fertugsafmælis síns á föstudaginn og vegna sérstakra aðstæðna. Lagið er tileinkað minningu Laufeyjar Ingibjargardóttur frá Akranesi og er til styrktar baráttunni gegn krabbameini. Allur ágóði af netsölu á Tonlist.is og Gogoyoko rennur til Krabbameinsfélags Íslands og í styrktarsjóð sona Laufeyjar. Styrktartónleikar fyrir drengina verða haldnir 19. október í Gamla bíói.

Lífið

Forstjóri CCP biður notendur Eve afsökunar

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, hefur beðið notendur tölvuleiksins EVE Online opinberlega afsökunar á vefsvæði sínu. Bréfið er óvenju einlægt miðað við bréf frá forstjóra í tölvugeira og hefur vakið mikla athygli hjá vefsíðum sem fjalla um tölvuleiki.

Lífið

Lady Gaga í Queen?

Gítarleikarinn Brian May í Queen segist hafa áhuga á því að fá Lady Gaga í hljómsveitina. Hann vann með söngkonunni að nýjasta lagi hennar, You & I, og hreifst augljóslega af hæfileikum hennar.

Lífið