Lífið

Jónsi á rauða dreglinum

Kvikmyndin We Bought a Zoo í leikstjórn Camerons Crowe var frumsýnd í New York á mánudag. Myndin fjallar um einstæðan föður sem kaupir gamlan dýragarð úti í sveit og skartar þeim Matt Damon og Scarlett Johansson í aðalhlutverkum. Tónlistarmaðurinn Jónsi var að sjálfsögðu mættur á rauða dregilinn en hann sér um tónlistina í myndinni.

Lífið

Endurminningin merlar æ

Hannes Pétursson skáld er áttræður í dag. Hann sendi jafnframt frá sér á dögunum bókina Jarðlag í tímanum, þar sem hann dregur upp minningarmyndir úr barnæsku sinni norður í Skagafirði. Bergsteinn Sigurðsson hitti skáldið að máli. Þetta eru svo sem engin sérstök tímamót í mínum huga,“ segir Hannes Pétursson skáld, sem er áttræður í dag. "Mér finnst ég betri til heilsunnar en ég var fyrir tíu til fimmtán árum, hausinn er í þokkalegu lagi þótt mér misheyrist stundum og missjáist eins og gengur og gerist með gamla karla. Að öðru leyti plagar mig ekkert og þetta er eins og hver annar dagur.“

Menning

Palli með sinaskeiðabólgu eftir áritanir

„Ég hef aldrei fengið svona á ævinni en er núna að éta bólgueyðandi töflur og liðaktín ásamt því að fara í sjúkranudd þrisvar í viku. Ætli ég mæti ekki í næstu áritun með svona lyftingahanska,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson. Jólatörnin er farin að setja mark sitt á poppstjörnuna því hún greindist nýlega með sinaskeiðabólgu.

Lífið

Turin Brakes til Íslands

Breska hljómsveitin Turin Brakes naut talsverðra vinsælda upp úr aldamótum, og hefur stöðugt sent frá sér tónlist síðan þá. Hljómsveitin er á leiðinni til Íslands í janúar og kemur fram í Fríkirkjunni.

Lífið

Vinskapurinn hófst á Airwaves

Írska söngkonan Sinéad O"Connor syngur eigin útgáfu af lagi Johns Grant á væntanlegri plötu sinni sem kemur út í febrúar á næsta ári. Platan kallast How About I Be Me (And You Be You)? og kemur út 20. febrúar.

Tónlist

Mammút á Hressó

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Hressó á tónleikum Mammút. Sveitin vakti fyrst athygli þegar hún vann Músíktilraunir árið 2004, þá aðeins þriggja mánaða gömul...

Lífið

Gæsalifur og Galette de roi

Björg Björnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Barnaheill – Save the Children á Íslandi, bjó í Frakklandi um margra ára skeið. Hún segir þar mikið lagt upp úr góðum mat, ekki síst kringum jól og áramót, en þó jafnist fátt á við "foie gras“ eða gæsalifur.

Matur

Eins og að halda tónleika heima í stofu

"Þetta verða fyrstu alvöru tónleikarnir þar sem við spilum saman svo við hlökkum mikið til," segir Jón Jónsson, tónlistarmaður, sem heldur tónleika ásamt bróður sínum Friðriki Dór á föstudaginn kemur.

Tónlist

Slúðurheimur sjúkur í gellu George

Á meðan leikarinn George Clooney, 50 ára, vinkaði til ljósmyndara í Sydney í Ástralíu rétt áður en hann hélt fyrirlestur á ráðstefnu var kærastan hans, Stacy Keibler, 32 ára, mynduð bak og fyrir...

Lífið

Dagur Kári skiptir um lið

Baltasar Kormákur og fyrirtækið hans, Blueeyes, mun framleiða næstu kvikmynd Dags Kára Péturssonar. "Myndin er á íslensku og Dagur Kári er að skrifa handritið núna,“ segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið, en hann er staddur í Frakklandi að kynna væntanlega kvikmynd sína, Djúpið.

Lífið

Salander í gær - Hollywoodstjarna í dag

Leikararnir Daniel Craig og Rooney Mara stilltu sér saman upp í London í gærkvöldi á frumsýningu kvikmyndarinnar The Girl with the Dragon Tattoo, sem er bandaríska útgáfan um tölvuhakkarann Lisbeth Salander í þríleik Stiegs Larsson, Karlar sem hata konur...

Lífið

Kveðjupartí Game of Thrones á Fjörukránni

Fimm mánaða löngu tökutímabili hjá tökuliði Game of Thrones lauk á laugardaginn og af því tilefni var skellt upp mikilli veislu á sunnudeginum. Staðsetningin var varla tilviljun, víkingastaðurinn Fjörukráin í Hafnarfirði.

Lífið

Fagnað með Geysi

Tímaritið Geysir kom inn um lúgur landsmanna á laugardaginn, en þau Ari Magg, Auður Karitas og Einar Geir Ingvarsson skipa ritstjórn blaðsins. Í tilefni af útgáfunni var blásið til hófs í Geysisbúðinni á Skólavörðustíg á föstudag. Margir lögðu leið sína í Geysi og skáluðu í lok vinnuvikunnar.

Lífið

Megan meikar það á Facebook

Leikkonan Megan Fox, 25 ára, var á ferðinni ásamt vinkonu í Los Angeles klædd í úlpu. Eins og sjá má í myndasafni reyndi leikkonan að hylja andlitið með innkaupapoka fyrir ljósmyndurum sem reyndu að mynda hvert skref sem hún steig...

Lífið

Ætlaði að hætta að dansa vegna langvinnra veikinda

Berglind Ýr Karlsdóttir hlaut flest atkvæði þjóðarinnar og stóð uppi sem sigurvegari í sjónvarpsþættinum Dans dans dans um helgina. Hjartagalli Berglindar gerði það að verkum að hún ætlaði að leggja dansskóna á hilluna síðastliðið vor.

Lífið

Spennandi kapphlaup um vinsælustu jólasmáskífuna

Í Bretlandi hafa menn keppst um það í áratugi að eiga vinsælasta lagið yfir jólatímann. Eins og undanfarin ár er sigurvegari X-Factor talinn líklegastur. Kapphlaupið um vinsælasta jólasmáskífulagið í Bretlandi hefur verið í fullum gangi að undanförnu. Mörg lög hafa verið kölluð til en aðeins eitt mun standa uppi sem sigurvegari síðustu vikuna fyrir jóladag.

Tónlist

Logi snýr aftur til Lemgo

Stuðningsmenn Lemgo geta tekið gleði sína á ný því Logi Geirsson snýr þangað aftur á næstunni. Lag hans, Komdu með, mun nú hljóma á heimaleikjum liðsins samkvæmt upplýsingum frá Einari Bárðarsyni, en Logi hefur lengi daðrað við tónlistargyðjuna. Kveðjustund Loga Geirssonar og forráðamanna þýska liðsins var alls ekki á góðum nótum en aðdáendur þess héldu hins vegar mikið upp á íslenska landsliðsmanninn. Telja má víst að þeir muni taka vel undir þegar lagið tekur að hljóma í þýsku úrvalsdeildinni.

Lífið

Helgi tekur stóra stökkið

Gríðarlega heillandi plata frá Helga Hrafni, sem verður bara betri og betri. Mikil synd ef hún nær ekki eyrum eins margra og hún á skilið.

Gagnrýni

Stolinn bíll fannst eftir umfjöllun á Vísi

Heldurðu ekki að ég hafi verið að fá símtal frá lögreglunni. Ég fór og sótti bílinn áðan. Ég hringdi svo í manninn sem benti lögreglunni á bílinn og hann sagðist einmitt hafa séð fréttina á Visi og kveik á perunni út frá henni, Rakel Elíasdóttir eigandi þriggja dyra Toyotu, árgerð 1995, sem var stolið fyrir utan heimili hennar í nóvember...

Lífið

Hvernig væri að grennast og gera góðverk?

Vinkonurnar Andrea Margeirsdóttir félagsráðgjafi og Rannveig Sigfúsdóttir viðskiptafræðingur stofnuðu góðgerðarstarfsemina Barnabros fyrir rúmu ári síðan því þær vildu létta af litlum herðum á erfiðum tímum...

Lífið

Tók upp plötu heima í stofu

Low Roar er listamannsnafn bandaríska tónlistarmannsins Ryans Karazija. Ryan flutti til Íslands fyrir ári og tók upp plötu heima í stofu hjá sér í vaktafríum frá erfiðisvinnu. Platan hefur fengið frábærar viðtökur.

Tónlist