Lífið

Ásgeir hló að sjálfum sér í skaupinu

Sjónvarpsmaðurinn Ásgeir Kolbeinsson er að eigin sögn ánægður með að hafa verið gerður að aðhlátursefni allrar þjóðarinnar í áramótaskaupinu í gær. "Það er auðvitað ekki hægt annað en að vera stoltur af því að vera tekinn fyrir á sama vettvangi og fólk sem hefur almennt skarað framúr og gert eitthvað merkilegt á árinu," segir hann. Aðspurður segir hann grínið engan veginn hafa spillt gleðinni í gærkvöldi. "Ég hef nú aldrei átt í erfiðleikum með að hlæja að sjálfum mér. Og það spillir náttúrlega ekki fyrir hvað þeir völdu dúndur-myndarlegan gæja til að leika þetta."

Lífið

Ástfangin Drive stjarna á hlaupum

Eins og sjá má á myndunum reyndi Ryan Gosling, sem sló heldur betur í gegn í spennumyndinni Drive eftir danska leikstjórann Nicolas Winding Refn, að flýja...

Lífið

Húðflúraður aðdáandi

Ung stúlka í Kaliforníu lét húðflúra nafn tónlistarmannsins Drake þvert yfir ennið á sér skömmu fyrir jól. Sagan barst Drake, sem sagði uppátækið einkennilegt og kvaðst vilja hitta stúlkuna.

Lífið

Sérfræðingar í Seinfeld öttu kappi

Spurningakeppni var haldin á Bakkusi á fimmtudagskvöld þar sem viðfangsefnið var bandarísku gamanþættirnir Seinfeld. Um 150 manns mættu á þessa fyrstu Seinfeld-keppni, sem var mun meira en aðstandendur hennar bjuggust við. Tvö lið deildu með sér sigrinum.

Lífið

Hélt upp á afmæli fyrir systur sína

Breska stjörnufjölskyldan David og Victoria Beckham buðu systur knattspyrnukappans, Johanne Beckham, í dýrindis kvöldverð milli jóla og nýárs í tilefni af 30 ára afmæli hennar. Johanne var hæstánægð með bróður sinn og svilkonu og setti mynd af sér á samskiptavefinn Twitter með eftirfarandi skilaboðum „Átti yndislegt kvöld í gær. Fjölskyldan mín kom mér á óvart með kvöldverði á uppáhaldsveitingastaðnum mínum. Á ekki afmæli fyrr en í febrúar en þar sem bróðir minn verður ekki á landinu þá fögnuðum við núna. Ég er svo glöð.“

Lífið

Umsóknir fyrir Wacken

Umsóknarferlið fyrir Wacken Metal Battle Iceland er hafið og verður þetta í fjórða sinn sem hljómsveitakeppnin er haldin hér á landi. Sigursveitin heldur utan til Þýskalands þar sem lokakeppnin fer fram í ágúst á hátíðinni Wacken Open Air, sem er stærsta þungarokkshátíð veraldar. Uppselt var á hana í nóvember síðastliðnum.

Lífið

Sendi Barbie skilaboð

Kim Kardashian vakti athygli fyrir skrýtin skilaboð á Twitter-samskiptasíðunni yfir hátíðirnar. Hún sendi til dæmis dúkkunni Barbie nokkur skilaboð á jóladag, en Barbie er að sjálfsögðu á Twitter.

Lífið

Vill stofna fjölskyldu

Stacy Keibler og George Clooney njóta nú lífsins saman í Cabo á Kaliforníuskaganum ásamt sameiginlegum vinum. Þó að Keibler sé sátt við lífið eins og það er þessa stundina þráir hún að giftast síðar, ef marka má orð heimildarmanns.

Lífið

Kenndi Óttari að upplifa heimalandið upp á nýtt

„Ísland er paradís ljósmyndarans og hvert sem maður lítur er að finna áhugaverð myndefni,“ segir ljósmyndarinn Elo Vázquez, en hún er unnusta rithöfundarins Óttars M. Norðfjörð og heldur sýningu hér á landi í næstu viku.

Lífið

Ríkidómurinn heftandi

Breski leikarinn Benedict Cumberbatch kveðst ráðinn í nokkuð einsleit hlutverk vegna bakgrunns síns, en hann ólst upp meðal efnamanna í Kensington-hverfinu í London. Cumberbatch sló í gegn sem einkaspæjarinn Sherlock Holmes í samnefndum sjónvarpsþáttum frá BBC og fer með hlutverk í kvikmyndinni Tinker, Tailor, Soldier, Spy.

Lífið

Á gangi án hrings

Söngkonan Katy Perry og Russell Brand eyddu jólunum hvort í sinni heimsálfunni sem ýtir enn frekar undir sögusagnir um yfirvofandi skilnað hjónanna. Perry og Brand giftu sig í október árið 2010.

Lífið

Þráir svefn

Leikkonan Charlize Theron hefur verið mjög upptekin á þessu ári og segist þrá svefn eftir mikla vinnutörn. Theron leikur í þremur myndum sem verða frumsýndar á næsta ári en það eru Prometheus, sem var einmitt tekin upp hér á landi, Young Adult og Snow White and the Huntsman.

Lífið

Syrgja hundinn

Það voru ekkert sérstaklega gleðileg jól hjá Osbourne-fjölskyldunni í ár því hún missti chihuahua-hundinn sinn Martin á jóladag. Hundurinn var 14 ára gamall og kær fjölskyldumeðlimur, en Kelly Osbourne sendi eftirfarandi skilaboð á Twitter-samskiptavefnum á jóladag.

Lífið

Amman og afinn slösuð

Amma og afi ungstirnisins Justins Bieber slösuðust í bílslysi milli jóla og nýárs. Móðir Biebers, Patti Mallette, sendi út eftirfarandi skilaboð á Twitter og biðlaði til að allra að biðja fyrir bata foreldra sinna:

Lífið

Gaf kærastanum dýra gítara

Kristen Stewart gerði vel við kærasta sinn, Robert Pattinson, um jólin og gaf honum tvo gamla og verðmæta gítara í jólagjöf, Fender Jazzmaster frá 1959 og K&F Lap Steel frá 1947. Fyrir sögufræga gripina borgaði hún tæpa eina og hálfa milljón og þóttist nokkuð viss um að kærastinn yrði kampakátur með gjöfina. Ástæðan er sú að Pattinson hefur í hyggju að nýta sér ofurfrægð sína í kjölfar velgengni Twilight-myndanna og stefnir í stúdíó til að taka upp sína fyrstu breiðskífu.

Lífið

Seldu drykki

Systurnar Violet og Seraphina Affleck komu upp límónaði-sölubás fyrir framan hús sitt á þriðjudaginn var og seldu vegfarendum glas af ísköldu límonaði. Nokkrir papparassar keyptu einnig drykk af systrunum.

Lífið

Apple og Sony á lista yfir verstu tæknimistök 2011

Það má segja að tækniiðnaðurinn hafi blómstrað á árinu 2011. En þrátt fyrir miklar framfarir í snjallsímatækni er ljóst að mörg feilspor voru tekin. Vefsíðan Engadget hefur tekið saman það helsta sem fór úrskeiðis hjá tæknifyrirtækjum á árinu.

Leikjavísir

Afslappað og áhugavert

Bandaríski tónlistarmaðurinn Kurt Vile hefur vakið mikla athygli fyrir sína fjórðu plötu. Afslöppuð kassagítarstemning svífur þar yfir vötnum.

Tónlist

Cruise á toppnum

Eftir fremur magra tíð með kvikmyndum á borð við Lions for Lambs, Knight and Day og Valkyrie er Tom Cruise kominn aftur á toppinn.

Lífið

Drive stendur upp úr

Kvikmyndaspekúlantar eru farnir að gera upp árið 2011 og velja bestu myndir ársins. Drive eftir danska leikstjórann Nicholas Winding Refn virðist vera fremst meðal jafningja.

Lífið

Dyggir aðdáendur gætu fengið sjokk

Hjaltalín mun flytja mikið af nýju efni á tónleikum á Faktorý í kvöld. Upptökur fyrir þriðju breiðskífu sveitarinnar hefjast í janúar. Nýja efnið er töluvert ólíkt því sem sveitin hefur gert áður, og lýsa hljómsveitarmeðlimir því sem dekkri útgáfu af Hjaltalín.

Lífið

Valdimar fjölgar sér

Hljómsveitin Valdimar, sem er leidd af hinum magnaða söngvara Valdimari Guðmundssyni, notaði jólahátíðina til að vinna óeigingjarnt starf í þágu fjölgunar mannkyns. Guðlaugur Guðmundsson bassaleikari eignaðist dreng hinn 21. desember og trompetleikarinn Margeir Hafsteinsson eignaðist dreng á jóladag. Mikil hamingja er í herbúðum hljómsveitarinnar og er von á að hún skili sér á næstu plötu hennar, sem gæti komið út á næsta ári.

Lífið