Lífið
Stebbi og Eyfi á túr Meðfylgjandi myndir tók Óskar Pétur Friðriksson í Hallarlundi á laugardaginn þegar félagarnir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson héldu tónleika. Þeir munu halda tvenna tónleika á Hótel KEA Akureyri, á morgun, fimmtudag og á laugarda. Þar verður með þeim tónlistarmaðurinn Jón Ólafsson. Félagarnir ætla að túra um Ísland eins og hér segir: 5. apríl: Hótel KEA, Akureyri (kl. 21.30) 7. apríl: Hótel KEA, Akureyri (kl. 21.30) 23. apríl: Hvammstangakirkja (kl. 20.30) 24. apríl: Eyvindarstofa, Blönduósi (kl. 20.30) 25. apríl: Sauðárkrókskirkja (kl. 20.30) 26. apríl: Hofsósskirkja (kl. 20.30) 27. apríl: Saltfisksetrið, Grindavík (kl. 21.30) 7. maí: Ólafsfjarðarkirkja (kl. 20.30) 8. maí: Menningarhúsið Berg, Dalvík (kl. 20.30) 9. maí: Kaffi Brekka, Hrísey (kl. 20.30) 10. maí: Kaffi Rauðka, Siglufirði (kl. 21.00) 11. maí: Veitingastaðurinn Salka, Húsavík (kl. 22.00) Lífið 4.4.2012 16:45
James Bond hefur leika James Bond mun setja Ólympíuleikana sem fara fram í London í sumar. Það er leikarinn Daniel Craig sem hefur farið með hlutverk Bonds í síðustu kvikmyndunum um njósnara hennar hátignar. Lífið 4.4.2012 16:00
Glæpasagnadrottning gefur ráð í þáttum Gulla Helga "Ég er svo glöð að einhver á Íslandi sé að búa til sjónvarpsefni um framkvæmdir að það var auðsótt mál að fá mig til að taka þátt,“ segir Yrsa Sigurðardóttir, rithöfundur og verkfræðingur, sem verður ráðgjafi í nýrri þáttaröð af byggingarþáttum fjölmiðlamannsins og smiðsins Gunnlaugs Helgasonar, Gulli byggir. Lífið 4.4.2012 15:30
Hollywood sýnir Frost áhuga Hollywood-fyrirtækið XYZ Films hefur sýnt áhuga á að endurgera íslenska spennutryllinn Frost fyrir bandarískan markað. Glæný þrjátíu sekúnda stiklu úr myndinni virðist hafa heillað fyrirtækið upp úr skónum. Lífið 4.4.2012 15:00
Gagnrýna Madonnu Madonna segir börnin sín fjögur vera óvægin í gagnrýni sinni á tónlist hennar. Söngkonan segir gagnrýnina stundum særa hana að innstu hjartarótum. Lífið 4.4.2012 14:30
Fetar í fótspor stórstjarna Söngvarinn Daníel Óliver vinnur nú að því að koma sér á framfæri í mekka popptónlistarinnar, Svíþjóð. Lífið 4.4.2012 14:00
Laumuleg óhollusta Ekki er allur "hollur“ matur jafn hollur og ætla mætti ef marka má nýja rannsókn á vegum U.S. Department of Agriculture's Economic Research Service. Þar kemur fram að mikið af matvælum sem fyrirtæki markaðsetja sem holl eru það alls ekki. Lífið 4.4.2012 13:00
Fær tískuráð frá tengdó Katrín hertogaynja af Cambridge er mikil tískufyrirmynd og allt sem hún klæðist rýkur úr hillum búðanna. Tengdafaðir hennar Karl Bretaprins hefur tekið eftir þessari þróun og vill nú að hún klæðist fatnaði frá breska fatahönnuðinum Harry Tweed en merkið er í miklu uppáhaldi hjá prinsinum. Fyrirtækið þarf að bæta sölu á alþjóðlegum markaði og bíður nú í ofvæni eftir að hertogaynjan klæðist fatnaði frá þeim. Tíska og hönnun 4.4.2012 12:30
Leyndardómar kjólsins Enn dúkka upp sögur um leynimakkið er umkringdi brúðarkjól Kate Middleton. Nýjasta sagan frá því hvernig Sarah Burton, yfirhönnuður hjá Alexander McQueen, fór að því að panta efnið í kjólinn án þess að upp um hana kæmist. Lífið 4.4.2012 12:15
Skilja sem vinir Söngvarinn Adam Levine, sem syngur með hljómsveitinni Maroon 5, og kærasta hans til tveggja ára, Anna V, hafa bundið enda á samband sitt. Lífið 4.4.2012 11:30
Segir Leo vera feitan Leikkonan Kate Winslet hefur verið dugleg að kynna Titanic 3D í fjölmiðlum og hefur látið ýmislegt misjafnt flakka í tilefni þess. Leikkonan hefur meðal annars kallað mótleikara sinn feitan. Lífið 4.4.2012 10:45
Vill leika Houston Rihanna hefur lýst yfir áhuga á að leika söngkonuna Whitney Houston verði kvikmynd um ævi hennar einhvern tímann gerð. Lífið 4.4.2012 10:15
Íslandsmeistarar í kaffigerð á leiðinni á heimsmeistaramót Finnbogi Fannar Kjeld, 20 ára, kaffibarþjónn hjá Kaffitári, Íslandsmeistari kaffibarþjóna, Jónína S. Tryggvadóttir, 30 ára, meðeigandi Kaffibílsins ehf. Íslandsmeistari í fagsmökkun og Jan-Fredrik Winter, 27, yfirmaður Íslensku Kaffistofunnar og Íslandsmeistari í kaffigerð keppa fyrir Íslands hönd í heimsmeistaramóti Kaffibarþjóna sem fram fer í Vínarborg í Austurríki 12. - 15. júní.,, Lífið 4.4.2012 10:15
Fer í vont skap í svörtu Þorsteinn Blær, stílisti, hefur vakið eftirtekt fyrir litríkan klæðaburð sinn og nú síðast fangaði hann athygli ljósmyndara vefsíðunnar Fashionista.com sem birti mynd og viðtal við stílistann á síðu sinni. Fashionista.com er ein af vinsælli tískuvefsíðum heims og því ætti litríkur klæðnaður Þorsteins að ná augum fjölda fólks. Lífið 4.4.2012 10:00
Anna Mjöll trúir ennþá á ástina "Ég sakna orkunnar og minninganna á Íslandi. Annars gef ég mér nú ekki mikinn tíma til að sakna neins. Það breytir engu. Pabbi sagði við mig rétt áður en þetta skall á allt saman: "Maður heldur alltaf ... Lífið 4.4.2012 09:45
Valdamest í tískunni Tímaritið Time birti lista yfir hundarð áhifamestu einstaklingana innan tískubransans frá árinu 1923, en það ár var Time fyrst gefið út. Listinn samanstendur meðal annars af fatahönnuðum, fyrirsætum, ljósmyndurum og ritstjórum. Tíska og hönnun 4.4.2012 09:30
Eiginmaður Natalie Portman færði fórnir fyrir fjölskylduna Leikkonan Natalie Portman, 30 ára var mynduð klædd í kamellitaðan rykfrakka með uppsett hárið fyrir utan hótel Plaza Athenee í París í Frakklandi í vikunni... Lífið 4.4.2012 09:15
Dagblöð ekki í fararbroddi Robert Redford segir að heimildarmyndir hafi tekið við af dagblöðum sem helsta vígi rannsóknarblaðamennsku. Redford, sem lék blaðamanninn Bob Woodward í All the President"s Men, segir að blöðin séu á niðurleið hvað þetta varðar. „Þess vegna eru heimildarmyndir svona mikilvægar. Þær koma sannleikanum líklega betur á framfæri,“ sagði hann við BBC. Fjöldi heimildarmynda frá Sundance-hátíðinni sem Redford stjórnar verður sýndur á kvikmyndahátíðinni Sundance London í apríl. Lífið 4.4.2012 09:00
Transkona má vera með í Miss Universe Transkonunni Jenna Talackova hefur verið heimilað að taka þátt í úrslitakeppni Miss Universe í Kanada. Aðstandendur keppninnar höfðu dregið Talackova úr keppni fyrir viku síðan eftir að upp komst að hún fæddist strákur. Í yfirlýsingu frá keppninni segir að Talackova fái að taka þátt, ef hún fylgir reglum keppninnar. Lífið 4.4.2012 09:00
Tekur lífernið í gegn Söngkonan Adele og kærasti hennar, Simon Konecki, hafa tekið mataræði sitt í gegn og gerðust nýverið grænmetisætur. Lífið 4.4.2012 08:00
Axl Rose hatar mig Slash, fyrrum gítarleikari Guns N"Roses, telur að söngvarinn Axl Rose hati sig. Í viðtali við Rolling Stone sagðist Slash endilega vilja spila með Guns N"Roses þegar hljómsveitin verður vígð inn í Frægðarhöll rokksins í Ohio 14. apríl. Hann gerir sér samt grein fyrir því að það mun ekki verða af því enda talar hann aldrei við Rose. „Hann hatar mig. Það eru margar ástæður fyrir því og ég veit ekki hverjar þær allar eru,“ sagði Slash, sem gefur út sína aðra sólóplötu, Apocalyptic Love, 21. maí. Lífið 4.4.2012 08:00
Madonna slær út Elvis Madonna hefur slegið met Elvis Presley yfir þá sólólistamenn sem hafa átt flestar plötur í efsta sæti breska vinsældarlistans. Plata hennar, MDNA, fór beint á toppinn um helgina og varð þar með hennar tólfta til að ná efsta sætinu þar í landi. Á plötunni nýtur hin 53 ára Madonna aðstoðar upptökustjórans Williams Orbit og fleiri aðila. Lífið 3.4.2012 17:00
Nýtt lag á þessu ári Adele ætlar að gefa út nýtt lag á þessu ári og kemur það líklega út í lok ársins. Hún segir að það fari allt eftir því hversu fljót hún er að semja önnur lög. Tónlist 3.4.2012 16:00
Litrík smekkleysa á hátíð barnanna Verðlaunahátíðin Kids Choice Awards fór fram í Hollywood um helgina. Hátíðin er á vegum Nickelodeon-stöðvarinnar en það var kántrísöngkonan Taylor Swift sem vann aðalverðlaun kvöldsins en forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, afhenti þau. Kynnir kvöldsins var Will Smith og Katy Perry var meðal þeirra sem komu fram. Klæðnaður stjarnanna var óvenju ósmekklegur í ár þar sem margir ákváðu að láta reyna á skrítnar fatasamsetningar með misgóðum árangri. Lífið 3.4.2012 16:00
Sigga Heimis í hópi þeirra bestu Vefsíðan Stylepark.com fjallar um vöruhönnuðinn Sigríði Heimisdóttur í grein sinni um norræna, kvenkyns vöruhönnuði. Greinarhöfundurinn Anneke Bokern segir áberandi hversu margar norrænar konur hafa náð langt í greininni. Tíska og hönnun 3.4.2012 15:00
Grétu á forsýningunni Veturhús, ný heimildarmynd eftir Þorstein J. Vilhjálmsson, var forsýnd á Eskifirði og Tjarnarbíói á dögunum. Myndin verður svo frumsýnd á Stöð 2 á Páskadag. Lífið 3.4.2012 14:58
Verður pabbi Breski söngvarinn Robbie Williams og eiginkona hans, bandaríska leikkonan Ayda Field, eiga von á sínu fyrsta barni. Williams tilkynnti fréttirnar á bloggsíðu sinni fyrir helgi. Lífið 3.4.2012 14:00
Kanye í samræðum við Dior Enn hefur ekki verið ráðið í stöðu yfirhönnuðar tískuhússins Dior eftir að John Galliano var rekinn vegna ummæla sinna í garð gyðinga. Fjölmargir hönnuðir hafa verið orðaðir við stöðuna undanfarið ár og nú síðast var rapparinn Kanye West orðaður við tískuhúsið. Tíska og hönnun 3.4.2012 13:00
Willis faðir í fjórða sinn Bruce Willis er orðinn pabbi í fjórða sinn. Hinn 57 ára leikari og eiginkona hans, Emma Heming Willis, eru alsæl með dótturina Mabel Ray Willis sem kom í heiminn 1. apríl. Willis á fyrir dæturnar Rumer, Scout og Tallulah, sem eru 18 til 23 ára, með fyrrverandi eiginkonu sinni Demi Moore. Lífið 3.4.2012 11:30
Ætlar að toppa síðustu tónleika "Þetta verður alveg geggjað. Ég held að við toppum þetta frá því í fyrra," segir Helgi Björnsson. Hann ætlar að endurtaka leikinn á þjóðhátíðardaginn og halda tónleika í Eldborg 17. júní undir nafninu Íslenskar dægurperlur. Þar mun stórskotalið íslenskra söngvara stíga á svið og flytja þekkt íslensk popplög undir stjórn Samúels J. Samúelssonar. Hann hefur sér til fulltyngis vaska sveit tónlistarmanna, þar á meðal lúðra- og fiðlusveit. Tónlist 3.4.2012 11:00