Lífið

Transkona má vera með í Miss Universe

Jenny Talackova gekkst undir kynskiptiaðgerð 19 ára gömul og tekur þátt í Miss Universe keppninni Kanada. Talackova er til hægri á myndinni.
Jenny Talackova gekkst undir kynskiptiaðgerð 19 ára gömul og tekur þátt í Miss Universe keppninni Kanada. Talackova er til hægri á myndinni. Nordicphotos/afp
Transkonunni Jenna Talackova hefur verið heimilað að taka þátt í úrslitakeppni Miss Universe í Kanada. Aðstandendur keppninnar höfðu dregið Talackova úr keppni fyrir viku síðan eftir að upp komst að hún fæddist strákur. Í yfirlýsingu frá keppninni segir að Talackova fái að taka þátt, ef hún fylgir reglum keppninnar.

Talackova hefur upplifað sig sem stúlku síðan hún var fjögurra ára gömul og þegar hún var 14 ára byrjaði hún í hormónameðferð. Þegar hún var 19 ára gömul gekkst hún svo undir kynleiðréttingaraðgerð en Talackova er 23 ára í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×