Lífið

Silkimjúkt og sefandi

Asonat er samstarfsverkefni tveggja vel þekktra íslenskra raftónlistarmanna, Jónasar Þórs Guðmundssonar og Fannars Ásgrímssonar. Jónas hefur mest notast við aukasjálfið Ruxpin, en Fannar er annar helmingur dúósins Plastic Joy. Ruxpin hefur gefið út nokkrar fínar plötur bæði hjá hérlendum og erlendum plötufyrirtækjum, síðast kom Where Do We Float From Here? sem bandaríska útgáfan n5MD gaf út árið 2009. n5MD gefur líka út tónlist Asonat.

Gagnrýni

Stigu óvænt á svið með Bombay Bicycle Club

Brynja Bjarnadóttir og Þorbjörg Ósk Eggertsdóttir, tvítugir trúbadorar, eru nýkomnar heim til Íslands eftir sex vikna tónleikaferðalag um Evrópu. Stúlkurnar ferðuðust á eigin vegum til tíu landa og komu meðal annars óvænt fram með hljómsveitinni Bombay Bicycle Club í Amsterdam.

Lífið

Keppti í sænskum þætti

Dansarinn Linda Ósk Valdimarsdóttir var stödd í Svíþjóð fyrir helgi þar sem hún var við upptökur á sænska sjónvarpsþættinum Rampljuset. Þættirnir njóta mikilla vinsælda meðal sænskra ungmenna og hafa töluvert áhorf.

Lífið

Manúela mætir í Kolaportið

Tískuáhugamanneskjan, bloggarinn og annar eigandi fatamerkisins Malla Johansen, Manúela Ósk Harðardóttir stefnir að því að eyða næstkomandi sunnudegi í Kolaportinu. Þar ætlar hún að selja skó, töskur, fatnað og barnaföt.

Lífið

Vildi ekki flytja til Los Angeles

Sænska leikkonan Noomi Rapace veitti New York Times Magazine viðtal fyrir stuttu og ræðir meðal annars samband sitt og fyrrum eiginmanns síns, æskuárin á Íslandi og flutningana til Los Angeles.

Lífið

Frumsýnir frumburðinn

Söngkonan Jessica Simpson, 31 árs frumsýnir Maxwell dóttur sína og unnustans Eric Johnson, á forsíðu People tímaritsins...

Lífið

Victoria: Ég er ekki óhamingjusöm

Victoria Beckham, 38 ára, heldur því fram í forsíðuviðtali í þýska tímaritinu Interview að hún er alls ekki óhamingjusöm þrátt fyrir að líta út fyrir að vera frekar döpur þegar hún er mynduð hér og þar um heiminn...

Lífið

Of þreytt fyrir Tókýó

Lana Del Rey hætti við að halda tónleika í Tókýó í Japan vegna ofþreytu. Bandaríska söngkonan ætlaði að stíga á svið í Tókýó fyrr á árinu en frestaði tónleikunum þar til í maí. Núna þurfti hún aftur að biðja aðdáendur sína í Japan afsökunar.

Lífið

Cannes á enda

Það var öllu tjaldað til á lokakvöldi Kvikmyndahátíðarinnar í Cannes á mánudagskvöldið. Eftirsóttustu verðlaun hátíðarinnar, Gullpálminn, runnu til myndarinnar Amour eftir ástralska leikstjórann Michael Haneke en athygli vakti að Bandaríkin áttu engan fulltrúa meðal verðlaunahafa.

Lífið

Geislandi í gulu

Söngkonan Jennifer Hudson, 30 ára, brosti blítt þegar hún stillti sér upp á rauða dreglinum klædd í gulan topp og svartar buxur...ir.

Lífið

Vill vera sterkari fyrir barneignir

Leikkonan Cameron Diaz fer með eitt af aðalhlutverkunum í gamanmyndinni What to Expect When You Are Expecting þar sem hún leikur ólétta konu. Diaz telur að það þurfi sterkan kropp til að geta staðið undir álaginu sem fylgir meðgöngu.

Lífið

Flottasti kjóllinn á Cannes

Það voru margir fagrir kjólar sem voru frumsýndir á kvikmyndahátíðinni í Cannes þetta árið. Þessi Dior-kjóll sem leikkonan Diane Kruger klæddist á lokakvöldi hátíðarinnar sló aftur á móti alla hina út. Kjóllinn er dragsíður með stífu undirpilsi og því spurning hvernig Kruger hafi gengið að setjast niður í kjólnum þegar líða tók á kvöldið.

Tíska og hönnun

Kanye tekur fatastíl Kim í gegn

Fjölmiðlar og tískuspekúlantar hafa haft orð á því að fatastíll raunveruleikaþáttastjörnunnar Kim Kardashian hafi breyst til muna eftir að hún tók saman við rapparann Kanye West. "Kanye hefur rætt við Kim um fatastíl hennar og vill að hún verði líkari honum í klæðavali. Hann vill að hún þróist í tískufyrirmynd og hefur hvatt hana til að vera óhræddari þegar kemur að tísku,“ sagði heimildarmaður í viðtali við The Sun.

Lífið

Aftur til 1997

Svartklæddu mennirnir hafa engu gleymt. Þristurinn er skemmtileg viðbót við seríuna og er betri framhaldsmynd en önnur myndin. Will Smith er fæddur í sitt hlutverk og töffaraskapur Tommy Lee Jones hefur ekkert minnkað þó leikarinn sé nú á sjötugsaldri.

Gagnrýni

450 hommar og lesbíur keppa í sundi í Reykjavík

„Við erum að tala um alveg 800 aukaeistu í bænum yfir þessa daga,“ segir Jón Þór Þorleifsson einn skipuleggjandi mótsins, en um 450 manns alls staðar að úr heiminum eru komnir hingað til lands til að taka þátt, 90% hommar og 10% lesbíur.

Lífið

Inga kvaddi Nasa með tárum

„Þetta var fullkomið lokakvöld. Sérstaklega var ég ánægð með að Palli skyldi hafa átt síðasta sönginn í húsinu en það var mín ósk,“ segir Inga, framkvæmdastjóri og eigandi skemmtistaðarins Nasa, um Eurovisionpartý Páls Óskars þar síðastliðið laugardagskvöld.

Lífið

Heitustu pörin í Cannes

Það er búið að vera mikið um dýrðir á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi og að vanda hefur pressan valið heitustu pör hátíðarinnar.

Lífið

Nýtt lag handa djömmurum

Rapparinn Bent syngur nýjan sumarsmell XXX Rottweiler, Klárum allt í kvöld, sem er nýkominn í loftið. „Klárum allt í kvöld er um að klára allt í kvöld. Sem sagt að gera sér glaðan dag, hver og einn á sinn hátt auðvitað. Lagið er öfgafullt, rétt eins og allt sem ég geri,“ segir Bent um nýja lagið.

Lífið

Britney vill snakk, Snickers og kók

Söngkonan Britney Spears hefur verið ráðin sem dómari í sjónvarpsþættinum X-Factor ásamt Disney-stjörnunni Demi Lovato. Look Magazine birti nýverið óskalista Spears sem er heldur hógvær í óskum miðað við stórstjörnu.

Lífið

Segir Tyru Banks vera með hjarta úr steini

Fyrirsætan Janice Dickinson er ekki hrifin af fyrrum vinnuveitanda sínum, Tyru Banks, og nýtir hvert tækifæri til að úthúða henni opinberlega. Banks rak nýverið dómarana J. Alexander, Jay og Nigel Barker, sem hafa verið viðloðandi America?s Next Top Model allt frá upphafi, og vandaði Dickinson henni ekki kveðjurnar vegna þessa.

Lífið

Segir hundana aðstoða við barnauppeldið

Leikkonan Charlize Theron ættleiddi nýverið drenginn Jackson og í spjallþætti Ellen DiGeneres segist hún fá ómetanlega hjálp við uppeldið frá hundunum sínum tveimur. „Hundarnir féllu fyrir Jackson um leið og hann kom inn í líf okkar, það var dásamlegt. Fólk spyr mig hvernig það sé að vera einstæð móðir og ég er það í raun ekki, ég er með tvo aðstoðarmenn,“ sagði Theron um hundana.

Lífið

Ferry sleikti sólina á Kaffi París

Breski tónlistarmaðurinn Bryan Ferry fékk góðar móttökur er hann lagði undir sig sviðið í Eldborgarsal Hörpu á sunnudagskvöldið. Fyrir tónleikana sleikti Ferry sólina í Reykjavíkurborg þar sem hann settist meðal annars út á Kaffi París og lét sig ekki muna um að skrifa nokkrar eiginhandaráritanir til aðdáenda.

Lífið

Justin Bieber sakaður um árás á ljósmyndara

Saksóknari mun rannsaka hvort Justin Bieber, söngvarinn knái, hafi ráðist á æsifréttaljósmyndara á sunnudaginn síðasta eins og honum er gefið að sök. Það er slúðurfréttavefurinn TMZ sem greinir frá þessu. Vefurinn segir aftur á móti að hvorki saksóknari né lögregla geti rætt við Bieber á næstunni því að hann er farinn til Noregs

Lífið

Firnagóður Ferry

Bryan Ferry heillaði troðfullan Eldborgarsal á sunnudagskvöldið. Ferry lék á alls oddi og sýndi að hann á nóg eftir. Á heildina litið firnagóðir tónleikar sem stóðust allar væntingar – og þær voru miklar!

Gagnrýni