Lífið

Tinni á hvíta tjaldið 2011

Fyrsta myndin í Tinnasyrpu Stev­ens Spielberg verður ekki frumsýnd fyrr en í október árið 2011. Hún byggir að mestu á bókinni Leyndardómi einhyrningsins en að auki á atburðum úr Krabbanum með gylltu klærnar. Útlit myndarinnar verður byltingarkennt, einhvers konar sambland af leiknu efni og teiknimyndum. Leikaravalið hefur spurst út. Jamie Bell, strákurinn úr Billy Elliot, leikur Tinna, Andy „Gollum“ Serkis leikur Kolbein og Simon Pegg og Nick Frost úr Shaun of the Dead leika Skaftana. Næsta Tinnamynd á svo að koma 2013 og byggir hún á bókinni Fjársjóði Rögnvaldar rauða. Henni verður leikstýrt af Peter Jackson.

Lífið

Ævisögu Snorra fagnað

Útgáfuhóf vegna ævisögu Snorra Sturlusonar eftir Óskar Guðmundsson var haldið í Þjóðmenningarhúsinu á dögunum. Fjöldi manns fagnaði með höfundinum sem varið hefur löngum tíma í skrif bókarinnar.

Lífið

Kærasti Jordan svaf hjá stelpustrák

Tælenskur stelpustrákur segir við News of the World í dag að hún hafi sofið þrisvar sinnum hjá nýja kærasta Katie Price, betur þekkt sem Jordan, á einni nóttu. Hún segir að Alex Reid hafi beðið sig að vera í stuttu pilsi og háum hælum á meðan þau stunduðu æfingar sínar.

Lífið

Gately syngur á nýjustu plötu Boyzone

Fjórir eftirlifandi meðlimir strákabandsins Boyzone hafa nú upplýst að á nýjustu plötu þeirra muni fyrrum félagi þeirra, Stephen Gately, syngja tvö lög en Gately lést í síðasta mánuði. Hann fannst látinn á hótelherbergi á Mallorca þar sem hann var í fríi með kærasta sínum Andrew Cowles.

Lífið

Árás Marlon King: „Eins og að fá múrstein í andlitið“

Fjölmiðlar í Bretlandi hafa fjallað nokkuð um hrottalega árás knattspyrnumannsins Marlon King sem leikur með Wigan Athletic í úrvalsdeildinni. Hinn 29 ára gamli framherji var dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir árás á tvítuga stúlku, Emily Carr, en hann kýldi hann margoft í andlitið.

Lífið

Hress þrátt fyrir eltihrelli

Ofur kynnirinn Ryan Seacrest virðist vera nokkuð hress þrátt að eltihrellir sem hefur verið að hrella hann upp á síðkastið hafi verið handtekinn í gær. Á twitter síðu sinni í dag er Ryan í góðu skapi, kannski vegna handtökunnar á manninum.

Lífið

Christofer Lee aðlaður í Buckinghamhöll

Breski leikarinn Christofer Lee var aðlaður í Buckinghamhöll í Lundúnum í dag fyrir störf sín á leiklistarsviðinu. Það var Karl Bretaprins sem aðlaði hinn 87 ára gamla leikara sem leikið hefur í um 250 kvikmyndum á sextíu og eins árs löngum ferli sínum.

Lífið

Jordan seldi hundana hans Pete

Líkt og flestir vita fór samband þeirra Peter Andre og módelsins Jordan í hundana fyrir skömmu. Í gær brjálaðist Peter síðan þegar hann komst að því að fyrrum eiginkonan hafði selt hundana hans. Hann óttast nú að fá aldrei aftur að sjá þá Hugo og Pepsi.

Lífið

Söfnunarátak Enza nær hámarki í Smáralind

Söfnunarátak Enza hjálparsamtakanna nær hámarki í Smáralindinni í dag, laugardaginn 31. október, með fjölbreyttri dagskrá listamanna. Fram koma meðal annarra Friðrik Ómar og Jógvan, Sigga Beinteins, Stebbi og Eyfi og leikarar Borgarleikhússins flytja atriði úr Söngvaseið. Kynnir er Unnur Birna Vilhjálmsdóttir. Dagskráin stendur yfir frá klukkan 14-16.

Lífið

Heillaði allar stelpurnar - myndir

„Helgi Björns kom auðvitað sterkur inn enda algjör sjarmör, hann heillar alltaf. Tískusýning var frá versluninni Þrír smárar og sýndu fallegar stúlkur allt það nýjasta í tískunni fyrir dömurnar þessi jólin," sagði Svansí eða Svanhildur Þórsteinsdóttir, sem var kynnir á árlegu konukvöldi í Blómaval, aðspurð hvernig til tókst. „Stemningin var mjög góð og afslöppuð og svo var humarsúpan auðvitað meiriháttar en hún var í boði í byrjun kvöldsins. Það var metaðsókn var á þetta konukvöld enda góðir afslættir af frábærum vörum í boði. Jólin eru svo sannarlega komin í Blómaval! Meðfylgjandi má skoða myndir frá konukvöldinu.

Lífið

Þóra tekur fram skóna á ný

Sífellt færist í vöxt að konur taki sig saman og spili fótbolta. Hingað til hefur slíkt aðallega loðað við karlkynið en sjónvarpskonan Þóra Arnórsdóttir telur kvenkynið alveg eins eiga rétt á þessum „heilaga“ tíma.

Lífið

Jónsi lærir íslensku

„Mér fannst bara kominn sá tími í lífi mínu að ég þyrfti að fara að gera eitthvað krefjandi. Þess vegna fór ég í íslensku í Háskólanum,“ segir Jónsi í Í svörtum fötum. „Ég veit svo sem ekki hvort ég klára þetta, en þetta er mjög gaman. Ég var síðast í skóla einhvern tímann á síðustu öld og finnst ég hafa yngst rosalega upp við þetta. Mér líður eiginlega eins og fermingarbarni.“

Lífið

Á toppnum í Færeyjum og á Íslandi

„Mér finnst markmiðinu vera náð með þessu. Að kynna íslensk lög fyrir Færeyingum. Síðan er það næsta verkefni að koma færeyskum lögum á toppinn hér,“ segir Friðrik Ómar.

Lífið

Er ekki að fara á bak orða minna

„Nei, ég tel ekki að ég sé að ganga á bak orða minna,“ segir Bubbi Morthens en eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær tekur Bubbi þátt í forkeppni Söngvakeppni Sjóvnvarpsins, Eurovision, ásamt nágranna sínum og vini, Óskari Páli Sveinssyni. Fræg ummæli Bubba frá árinu 2007 voru rifjuð upp í kjölfarið en þá sagðist hann aldrei ætla að taka þátt í Eurovision. Bubbi dregur aðeins í land með þessi orð.

Lífið

Ný mynd um Lennon

Sagan um Bítlana og leið sveitarinnar til heimsfrægðar hefur nú þegar verið umfjöllunarefni nokkurra kvikmynda. Ein bætist við bráðlega. Hún heitir Nowhere Boy og er byggð á bók Júlíu Baird, hálfsystur Lennons, Imagine this: growing up with my brother John Lennon.

Lífið

Ljóðað í ljósvakanum

Mönnum dettur sjaldnast í hug ljóð þegar kvikmyndir eru annars vegar. Samlíking listgreina er enda vafasöm. Listgreinar standa á sínu. Hitt er hverju orði sannara að tilraunamyndin er oft lík ljóði, stutt, grípur afmarkað svið umhverfis og tilfinningar með fáum gerendum. Það er því vel við hæfi að stuttmyndahátíð ungra höfunda kenni sig við ljósvakaljóð en hún verður haldin öðru sinni í næstu viku. Skilafrestur rennur út á mánudag en hátíðin er haldin í Norræna húsinu hinn 5. nóvember. Þeir sem vilja leggja nótt við dag og klára hálfkaraðar myndir eða handrit hafa því helgina.

Lífið

Lífið leikur við Britney

Lífið virðist leika við Britney Spears þessa dagana. Söngkonan lauk nýverið vel lukkuðu tónleikaferðalagi og hefur fundið ástina á ný með umboðsmanni sínum, Jason Trawick. Móðir Spears er himinlifandi með piltinn, sem hefur víst verið stoð og stytta Spears síðustu ár. „Hann er yndislegur. Hann er traustur. Hann er maðurinn sem hver móðir mundi óska sér sem tengdason,“ sagði Lynne Spears, móðir Britney.

Lífið

Ljósvakaljóð haldin í fjórða sinn

Ljósvakaljóð, stuttmyndahátíð ungs fólks, verður haldin í fjórða skiptið fimmtudaginn 5. nóvember í Norræna húsinu. Keppt verður um bestu stuttmyndina, besta frumsamda handritið og í annað skiptið verður keppt um bestu „pitch“-hugmyndina en sú keppni sló í gegn í fyrra.

Lífið

Sá ekki haka­-krossinn

Ljósmynd af hinni ungu söngkonu Taylor Swift hefur valdið miklu fjaðrafoki í Bandaríkjunum. Myndin var tekin í afmælisveislu söngkonunnar Kate Perry og á henni má sjá Swift og ungan pilt brosa fallega framan í ljósmyndarann. Það sem vekur athygli er að pilturinn klæðist skyrtu og er búið að mála stærðarinnar hakakross á hana að framanverðu.

Lífið

Jackson grætur í einrúmi

Joe Jackson, faðir poppgoðsins Michaels Jackson, sagði í viðtali við tímaritið Extra að sonur hans væri meira virði nú heldur en þegar hann var í lifanda lífi. „Hann er meira virði núna en þegar hann var á lífi. Ég mundi frekar vilja hafa hann hjá mér. Þegar hann var á lífi vildu fjölmiðlar ekki sýna hans innri mann,“ sagði höfuð Jackson-fjölskyldunnar. Ha

Lífið

Kann vel við sig í New York

Andrea Helgadóttir förðunarfræðingur hefur verið búsett í New York síðastliðin tíu ár og starfað með ýmsum þekktum tónlistarmönnum, hönnuðum og listamönnum. Andrea nam förðun í París og útskrifaðist sem förðunarfræðingur árið 2001. Hún er persónulegur förðunarfræðingur Bjarkar á tónleikaferðalögum og hefur einnig starfað með hönnuðum á borð við Threeasfour og Jeremy Scott.

Lífið

Heilbrigð stemning í tónleikahaldi á Íslandi

Ein af afleiðingum bankahrunsins fyrir ári er að Íslendingar eru orðnir miklu þakklátari fyrir það sem hér er boðið upp á. Það er blússandi mæting á tónleika og listviðburði, enda fáir svo sem á leiðinni til erlendra heimsborga að berja heimsfræg atriði augum á meðan gengið er eins og það er. En eru tónleika- og listviðburðahaldarar að standa sig? Hefur miðaverð hækkað úr hófi? Er íslenskt verð samkeppnishæft við erlent?

Lífið

Tíbeskur búddamunkur fær ágóða nýrrar plötu

Tónlistarkonan Anna Halldórsdóttir kom fyrir skömmu í tveggja vikna heimsókn til Íslands frá New York og tók upp sína þriðju sólóplötu. Allur ágóði rennur til samtakanna CED Orphanage sem tíbeskur búddamunkur rekur.

Lífið

Var gráti næst

Söngkonan og X-factor-dómarinn Dannii Minogue spjallaði við Piers Morgan um lífið og tilveruna í nýlegu sjónvarpsviðtali. Þar segist söngkonan ávallt hafa trúað því að systir hennar, Kylie, mundi ná sér eftir krabbameinið. „Ég hugsaði aldrei út í það að hún gæti dáið. Maður gerir það einfaldlega ekki. Í hjarta mínu vissi ég að hún myndi sigra og að hún myndi ekki greinast aftur með þennan sjúkdóm,“ sagði söngkonan gráti næst.

Lífið

Hopper með krabbamein

Leikarinn Dennis Hopper hefur greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli. Hann hefur aflýst þátttöku sinni í listasýningu í Ástralíu vegna veikindanna. Hopper mun gangast undir meðferð í Kaliforníu og vonast umboðsmaður hans til að allt gangi að óskum.

Lífið

Ólafur setur mark sitt á söguna

Veðurverkefni Ólafs Elíassonar er meðal þeirra hundrað fyrirbæra sem sett hafa mark sitt á menningarsögu fyrsta áratugar 21. aldarinnar að mati menningarskríbenta breska blaðsins The Telegraph. Listi yfir þessi fyrirbæri var birtur á vefsíðu blaðsins í gær og Ólafur settur í hóp með nokkuð sögulegum atburðum. Í formála greinarinnar kemur fram að þessi fyrsti áratugur einkennist fyrst og fremst af því að allir gátu sett fram skoðun sína

Lífið

M-ið verður urðað

„Ég hafði ekki leyfi til að láta neinn fá merkingarnar. Ég urða þær seinna,“ segir Jón Garðar Ögmundsson, eigandi Lystar ehf. sem rekur McDonald‘s á Íslandi.

Lífið

For­seti klám­kyn­slóðarinnar

Hann er einn af fáum Íslendingum sem hefur lent í opinberu kynlífshneyksli og var í kjölfarið kallaður forseti klámkynslóðarinnar. Emmsjé Gauti, gjörið svo vel.

Lífið