Lífið

Kona Stebba Hilmars breytir heimilinu í jólaþorp

Stefán Hilmarsson hefur sent frá sér sína fimmtu sólóplötu sem ber heitið Húm. Margir af fremstu lagasmiðum landsins lögðu Stefáni til lög og óhætt er að segja að platan sé uppfull af gæðatónlist. Vísir hafði samband við Stefán til að forvitnast hvað kemur honum í jólagírinn.

Lífið

Hafdís Huld flytur til Íslands

„Ég var orðin leið á að vera með heimþrá,“ segir söngkonan Hafdís Huld sem flytur til landsins eftir tvær vikur. Hafdís hefur verið búsett í Bretlandi undanfarin sjö ár, en hún og Alisdair Wright, sambýlismaður hennar, hafa fundið sér hús í Mosfellsdalnum og eru nú í óðaönn að pakka.

Lífið

Jennifer bíður eftir Brad

Samkvæmt tímaritinu In Touch mun Jennifer Aniston bíða þolinmóð eftir því að fyrrverandi eiginmaður hennar, Brad Pitt, skilji við Angelinu Jolie og taki aftur saman við sig. Á meðan Aniston dvaldi í Mexíkó átti hún í einhverjum símasamskiptum við Pitt og samkvæmt heimildarmanni voru þau nokkuð innileg.

Lífið

Færeyingar vilja Sirkús

Hinn goðsagnakenndi skemmtistaður Sirkús mun opna þann 11. desember í Þórshöfn í Færeyjum. Það eru þau Jóel Briem, sonur Sigríðar Guðlaugsdóttur, fyrrum eiganda Sirkús, og Sunneva Eysturstein sem eiga staðinn ásamt Sigríði.

Lífið

Sigur Rósar-kvöld í París

Sérstakt Sigur Rósar-kvöld verður haldið í kvikmyndahúsinu Elysées Biarritz í París næsta laugardag. Þar verða sýndar heimildarmyndirnar Heima og Hlemmur, sem hafa báðar að geyma tónlist Sigur Rósar, ásamt stuttmynd Rúnars Rúnarssonar, Síðasti bærinn, með tónlist hljómborðsleikarans Kjartans Sveinssonar.

Lífið

Unga fólkið í aðalhlutverki

Grunnskólanemendur sýndu færni sína með myndavélarnar í keppni sem 66° Norður stóð fyrir. Menntamálaráðherra taldi sig sjá framtíðarkvikmyndagerðarfólk í keppninni.

Lífið

Stjörnurnar sáu Bræður Sigurjóns í New York

„Undirtektirnar voru sannast sagt ótrúlegar og í rauninni bjóst ég ekki við þeim svona sterkum,“ segir Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi. Forsýning var á kvikmynd hans, Brothers, á sunnudagskvöldið í SVA Theater í New York að viðstöddum aðalleikurum myndarinnar, þeim Natalie Portman og Tobey Maguire, og leikstjóranum Jim Sheridan. Fjöldi nafntogaðra gesta lagði leið sína í kvikmyndahúsið og nægir þar að nefna The Edge, gítarleikara U2, en sveitin á einmitt titilag myndarinnar. Þá var Ang Lee einnig meðal gesta sem og gamli Karate Kid-leikarinn, Ralph Macchio.

Lífið

Ekki vinsæl

Samkvæmt nýjustu heimildum semur Khloe Kardashian ekki sérstaklega vel við aðrar eiginkonur leikmanna LA Lakers, en Khloe giftist nýlega körfuboltamanninum Lamar Odum sem spilar með liðinu.

Lífið

Svona færðu rennisléttan maga

„Lykillinn að sléttum og tónuðum magavöðvum felst í réttu mataræði og svokölluðum brennsluæfingum, þar sem að púlsinn fer upp í brennslupúls," svarar Arnar Grant líkamsræktarfrömuður þegar Vísir spyr hann hvernig hægt er að fá rennisléttan maga.

Lífið

Umdeild fegurðardrottning eyðir jólunum á Íslandi

„Ég vil synda í Bláa lóninu um jólin. Ég verð vonandi búin að bóka farið í næstu viku,“ sagði Rachel Kum, ungfrú Singapore, á vefsíðu sinni í vikunni. Rechel kemur til landsins í desember og verður samkvæmt heimildum Fréttablaðsins í fylgd með vini sínum.

Lífið

Mezzoforte til Suður-Afríku

Hljómsveitinni Mezzoforte hefur verið boðið að spila á djasshátíð í Höfðaborg í Suður-Afríku næsta vor. Þetta verður í fyrsta sinn sem sveitin spilar í heimsálfunni.

Lífið

Mamma Gógó færir til frumsýningu

Aðstandendur kvikmyndar Friðriks Þór Friðrikssonar, Mamma Gógó, hafa ákveðið að færa til frumsýningardag myndarinnar og verður hún frumsýnd þann 1.janúar 2010. Upphaflega stóð til að myndin yrði frumsýnd þann 26.desember.

Lífið

Góð ráð Trumps

Fyrrverandi fegurðardrottningin Carrie Prejean missti titil sinn eftir að hafa látið umdeild orð falla um hjónaband samkynhneigðra.

Lífið

Útgefandi Íslands yfirgefur skerið

„Af hverju er ég að stinga af svona rétt fyrir jól? Nú, ég er bara að láta mig hverfa með alla peningana!“ segir Baldvin Esra Einarsson, hugsanlega í gríni. Hann hefur verið afkastamesti tónlistarútgefandi landsins síðustu misserin og séð um útgáfufyrirtækin Kimi og Borgin með fleirum. Nú dælast út plötur frá þessum fyrirtækjum en Baldvin flytur til Gent í Belgíu með allt sitt hafurtask um helgina.

Lífið

Verzló sigrar ME í Morfís

Verzlunarskóli Íslands tók á móti Menntaskólanum á Egilsstöðum Föstudaginn 20. nóvember í sextán liða úrslitum Morfís. Keppnin fór fram í Bláa sal Verzlunarskólans og var vel mætt frá báðum skólum, þó sérstaklega ME og ljóst er að áhuginn á Morfís fyrir austan er að aukast.

Lífið

Ungfrú Ísland í úrslit - myndir

Vísir hafði samband við Heiðar Jónsson snyrti sem fylgist gaumgæfilega með Guðrúnu Dögg Rúnarsdóttur ungfrú Ísland sem keppir í Miss World fyrir Íslands hönd en aðalkeppnin fer fram í Suður-Afríku í desember. „Í gær var Guðrún Dögg valin í úrslitakeppnina fyrir „beach beauty" keppnina, sem útleggst eitthvað eins og „flottust í baðfötum" en það á eftir að velja í keppnina „besta sýningarstúlkan" og ég er að vona að Guðrún veljist þar inn líka," segir Heiðar. „Það komast fimm stúlkur inn í fimmtán stúlkna lokaúrslit keppninnar með því að vinna fimm útsláttarkeppnir. Svo koma fimm álfudrottningar. Heimsálfunum er breytt til að jafna fjölda stúlkna í hvorum hóp. Endanlega velur dómnefnd fimm fegurstu stúlkurnar þar fyrir utan," segir Heiðar.

Lífið

Rammíslensk húðsnyrtivörulína - mynband

„Ég er að fagna og bjóða vinum og vandamönnum og þeim sem hafa lagt hönd á plóginn," sagði Sóley Elíasdóttir leikkona sem kynnti nýja húðsnyrtivörulínu á fimmtudaginn sem ber hennar eigið nafn. „Það tók mig tvö ár að finna út úr því hvernig ég gæti gert þetta og haft það alveg náttúrulegt," sagði Sóley meðal annars. Á meðfylgjandi link má sjá umrætt viðtal sem Ísland í dag tók við Sóley. Þá má einnig skoða myndir sem teknar voru af gestunum í myndasafninu.

Lífið

Galdrakarlar spila breytt lög

„Með þessa galdrakarla, Davíð, Adda, Guðna og Pétur, þarf maður að vera ansi lélegur að klúðra þessu,“ segir tónlistarmaðurinn Mugison um sína nýjustu plötu. Þar er að finna níu gömul lög eftir hann í nýjum útgáfum, þar á meðal Murr Murr, I Want You og Go Blind. Lögin spiluðu þeir félagar í breytum útgáfum á tónleikaferð sinni um heiminn til að fylgja eftir plötunni Mugiboogie.

Lífið

Útkall við Látrabjarg

„Ég á afskaplega tryggan og góðan lesendahóp," segir Óttar Sveinsson sem hefur gefið út sína sextándu Útkalls-bók.

Lífið

Biblían logaði í messu

Pétur Þorsteinsson er einn stofnenda Hins íslenska töframannagildis auk þess sem hann er prestur Óháða safnaðarins. Pétur hefur haldið svokallaðar galdramessur tvisvar á ári hverju þar sem hann tvinnar kristilegum boðskap saman við töfra.

Lífið

Sjálfsefi og ást á sólóplötu

Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu. Hann er þekkastur sem meðlimur Sprengjuhallarinnar en stígur núna einn fram á sjónarsviðið.

Lífið

Megas og pítsa er góð blanda

„Þetta byrjaði þannig að við spiluðum alltaf tónlist eftir Megas á Bryggjunni á þessum dögum," segir Sigurður Karl Jóhannsson, eigandi pítsustaðarins Bryggjunnar á Akureyri, en þar stendur nú yfir Megasvika. Staðurinn hefur verið opinn í fimmtán mánuði og hefur notið vinsælda, enda eini pítsustaðurinn með eldbakaðar pítsur á Akureyri. Nú stendur yfir sjötta Megasvikan.

Lífið

Íslandsmeistaramót í sviðakjammaáti

Það var ríkti keppnisandi á Íslenska barnum á fimmtudagskvöldið þar sem Íslandsmeistaramót í sviðakjammaáti fór fram. Hreiðar Jósteinsson bar sigur úr býtum og borðaði rúmlega sex sviðakjamma.

Lífið

Skoppa fagnar barna-Eddu

„Ég er rosalega glöð með að sjá að þessi flokkur sé kominn. Ég held að allir megi hoppa hæð sína af gleði,“ segir leikkonan Linda Ásgeirsdóttir, Skoppa úr Skoppu og Skrítlu.

Lífið

Kjánalegar pælingar

Gerard Butler er nú á ferð og flugi við að kynna nýjustu kvikmynd sína, Law Abiding Citizen. Í sjónvarpsviðtali í Englandi var hann spurður út í ástarlíf sitt og hvort hann hafi í raun átt í sambandi við leikkonurnar Jennifer Aniston og Lindsay Lohan. Butler þvertók fyrir það og sagði þessar vangaveltur vera orðnar kjánalegar.

Lífið

Opnunarteiti í Sautján

Það var margt um manninn á opnun nýrrar Gallerí Sautján verslunar í Smáralind á fimmtudag. Gestir og gangandi virtust kunna vel að meta þessa viðbót við NTC keðjuna, en í versluninni fæst bæði fatnaður fyrir dömur og herra. - ag

Lífið

Úr banka í keramik

Bjarni Sigurðsson fluttist til Íslands árið 2007 eftir að hann lauk keramiknámi í Danmörku. Hann starfar nú sem gjaldkeri í Íslandsbanka, en sinnir listinni öllum stundum utan vinnu og heldur jólamarkað á vinnustofu sinni 28. og 29. nóvember.

Lífið

Mikil dansgleði í Iðnó

„Það verður mikill jólaandi yfir þessu,“ segir Nanna Ósk Jónsdóttir, framkvæmdastjóri DanceCenter Reykjavík, sem heldur jólasýningu í Iðnó í dag klukkan 15. Nemendur skólans eru á aldrinum fimm ára upp í 38 ára og lofar Nanna kraftmikilli og fjölbreyttri sýningu.

Lífið

Viðskiptavinirnir hjálpuðu

Sigríður Halldóra Matthíasdóttir líkamsræktarþjálfari, eða Sigga Dóra, er hvergi smeyk við kreppuna heldur opnar í dag 400 fermetra líkamsræktar- og lúxus heilsumiðstöð.

Lífið