Lífið

Hera Björk: Allir eiga eftir að hafa skoðun á kjólnum

„Það er ekki á hverjum degi sem maður stendur á svona sviði þannig að þetta verður eitthvað svakalegt dress sem allir eiga eftir að hafa skoðun á og mun verða skráð á spjöld sögunnar ásamt svanakjólnum hennar Bjarkar," svarar Hera hlæjandi.

Lífið

Fyrir alla muni ákveddu þig - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá síbreytilegan háralit leikkonunnar Lindsay Lohan, 23 ára, sem virðist eiga í vandræðum með að ákveða hvernig hún kýs að líta út. Þá má einnig sjá Lindsay yfirgefa veitingahúsið Madeo í Hollywood með áberandi mikið brúnkukrem í andliti og svart litað hárið.

Lífið

Hvaða flipp var í gangi um helgina? - myndir

Meðfylgjandi myndir sem teknar voru á föstudaginn á Hverfisbarnum, Hressó og Jacobsen má meðal annars sjá Aron Pálma Ágústsson skemmta sér. Þá má einnig sjá unga fólkið skemmta sér. Myndirnar tók Sveinbi ljósmyndari. Superman.is

Lífið

Aniston sprangar um á bikiní - myndir

Leikkonan Jennifer Aniston, 40 ára, er stödd í Cabo San Lucas í Mexíkó. Þar ætlar hún að halda upp á 41 árs afmælið sitt með vinum sínum, Courteney Cox, David Arquette og Sheryl Crow, 11. febrúar næstkomandi. Í myndasafni má sjá Jennifer spranga um á bikiní.

Lífið

Strákarnir spá í Eurovision

Vísir fékk tvo tónlistarmenn, Eyjólf Kristjánsson og Herbert Guðmundsson, og einn handboltakappa, Loga Geirsson, til að spá fyrir um úrslit kvöldsins í úrslitaþætti Söngvakeppni sjónvarpsins þar sem sex lög keppa til úrslita. Spurningin var einföld: Hver vinnur í kvöld? Logi: „Jógvan vinnur og Íris verður í öðru sæti. Ég reikna með að þetta verði niðurstaðan. Ég verð samt að segja að ég hef sökum EM í handbolta ekki náð að fylgja þessu nógu vel eftir." Herbert: „Hera því hún er svo stórkostleg og gott lag. Góð söngkona." Eyjólfur: „Sjonni Brink vinnur af því hann er flottastur."-elly@365.is

Lífið

Verður mjótt á mununum

Í kvöld ræðst hvaða lag verður 23. Eurovision-framlag Íslands. Sex lög berjast um hylli landsmanna og spennan er gífurleg.

Lífið

Íbúar aldrei haft áhrif á nafnbreytingar

„Það eru ekki fordæmi fyrir því að haft sé samráð við íbúa vegna nafnbreytinga, en að sjálfsögðu er tekið tillit til ólíkra sjónarmiða þar sem það á við,“ segir Sóley Tómasdóttir, fulltrúi vinstri grænna í skipulagsráði Reykjavíkur.

Lífið

Þeir ríkustu í Hollywood

Kvikmyndaframleiðandinn og -leikstjórinn Michael Bay græddi mest allra í Hollywood á síðasta ári samkvæmt rannsókn tímaritsins Vanity Fair, eða um sextán milljarða króna.

Lífið

Gáfu hálfa milljón til styrktar Haítí

Tónlistarmennirnir Arnar Már Friðriksson og Birgir Sævarsson, sem vöktu fyrst athygli í þættinum Bandið hans Bubba, söfnuðu rúmri hálfri milljón króna á styrktartónleikum sem þeir héldu á Nasa 20. janúar. Þar komu fram Páll Óskar Hjálmtýsson, Stefán Hilmarsson og fleiri kunnir tónlistarmenn og voru áheyrendur fjögur hundruð. Allur ágóðinn rennur til fórnarlamba jarðskjálftans á Haítí í gegnum Rauða krossinn og afhentu þeir félagar samtökunum ávísun með þeirri upphæð í gær.

Lífið

Douglas þeytir skífum

Bandaríski plötusnúðurinn Lee Douglas þeytir skífum á Kaffibarnum í kvöld. Douglas hefur verið duglegur við að færa gömul, sjaldheyrð diskólög í nýjan búning. Hann er í tveimur öðrum hljómsveitum sem heita TBD og Stallions. Með honum í fyrrnefndu sveitinni er Justin Vandervolgen úr hljómsveitinni !!! sem hefur spilað á Airwaves-hátíðinni.

Lífið

Fjallabræður syngja í Manchester

„Við erum mígandi spennntir að kynna land og þjóð á erlendri grundu,“ segir Halldór Gunnar Pálsson, kórstjóri Fjallabræðra, sem syngja á evrópskri menningarhátíð í Manchester 30. maí.

Lífið

Sex á Havaríi

Enn heldur fjörleg myndlistarstarfssemin áfram í Havaríi í Austurstrætinu. Í dag opnar sýning sex ungra kyndilbera íslensku myndlistarsenunnar.

Lífið

Lil Wayne hlakkar til að fara í fangelsi

„Ég hlakka til að fara í fangelsi,“ sagði rapparinn Lil Wayne í nýlegu viðtali. Lil Wayne var á dögunum dæmdur í árs fangelsi fyrir ólöglegan vopnaburð. Hann hefur afplánun í New York seinna í mánuðinum.

Lífið

Áreynslulaus danstónlist

Plötusnúðarnir Óli Ofur, Fúsi Axfjörð og Bjarki Balrock hefja á sunnudagskvöld nýja tegund skemmtikvölda sem nefnast SunDaze. Fyrsta kvöldið verður á Jacobsen og verður það í höndum Bjarka Balrock. „Músíkin á að vera áreynslulaus og í hæsta gæðaflokki. Hún þarf líka að búa yfir þeim eiginleikum að afrétta, gleðja og upplífga,“ segir Óli Ofur. „Með þessum kvöldum gefst tækifæri til að spila tónlist sem á það til að búa yfir töluvert meiri sál og hjarta en sú músík sem drífur helgargólfin áfram.“

Lífið

Afmælisblástur

Hinn 31. janúar sl. voru liðin 60 ár frá stofnun Lúðrasveitar Hafnarfjarðar. Af því tilefni verða haldnir afmælistónleikar í dag í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Haft var samband við flesta sem starfað hafa með lúðrasveitinni á liðnum árum og þeim boðið að taka þátt í þessum tónleikum. Viðbrögð voru góð og hafa milli 50 og 60 manns æft stíft að undanförnu. Afrakstursins fá tónleikagestir að njóta á þessum tónleikum.

Lífið

Leiðinlegt í ræktinni

Leikkonan Charlize Theron stundar meiri líkamsrækt en áður vegna þess að hún óttast að hún sé að fitna með aldrinum. Theron, sem er 37 ára, leiðist samt fátt meira en líkamsrækt. Þrátt fyrir það æfir hún sig nokkrum sinnum í viku til að halda línunum í lagi. „Ég hef alltaf nóg fyrir stafni. Ég á hunda og mér finnst gaman að vera úti í náttúrunni,“ sagði Theron. „Ég er ekki nógu dugleg í ræktinni en ég verð að fara þangað.

Lífið

Frances á nýrri plötu

Frances Bean Cobain, dóttir Kurts Cobain úr Nirvana og Courtney Love, kemur fram á sinni fyrstu plötu 30. mars. Platan nefnist Evelyn Evelyn frá samnefndri hljómsveit. Frances, sem er átján ára, syngur bakraddir í laginu My Space ásamt hópi þekktra einstaklinga á borð við Weird Al Yankovich, Andrew W.K., Gerard Way úr hljómsveitinni My Chemical Romance og rithöfundinum Neil Gaiman. Á meðal annarra laga á plötunni er ukulele-útgáfa af lagi Joy Division, Love Will Tear Us Apart.

Lífið

Ekki allir fullir sem hringja inn

„Það eru alls ekki allir blindfullir sem hringja inn en ég hef fundið fyrir því að ég virðist hafa þau áhrif á þjóðina að nú þykir sjálfsagt að fá sér brjóstbirtu upp úr klukkan fjögur þegar þátturinn minn hefst," segir Siggi Hlö útvarpsmaður spurður út í ástand hlustenda þáttarins Veistu hver ég var? sem hann er með á Bylgjunni á laugardögum klukkan 16:00 - 18:30.

Lífið

Spilar á fiðlu með austurrískri poppstjörnu

Fiðluleikaranum Geirþrúði Ásu Guðjónsdóttur bauðst nýverið að spila með austurrísku söngkonunni Önnu F sem slegið hefur í gegn í heimalandi sínu og hitaði meðal annars upp fyrir Lenny Kravitz á tónleikaferðalagi hans í sumar. Geirþrúður hefur verið búsett í Austurríki í tæpt ár þar sem hún stundar einkanám í fiðluleik.

Lífið

Mentell deyr í bílslysi

Leikarinn William Shatner er afar sorgmæddir yfir dauða leikarans Justins Mentells sem lést í bílslysi á mánudag, aðeins 27 ára að aldri. Shatner lék á móti Mentell í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Boston Legal. „Það var mjög sorglegt að heyra um Justin Mentell. Hann hefði getað náð mjög langt. Ég vil senda samúðarkveðjur til fjölskyldu hans,“ skrifaði Shatner á Twitter-síðu sína. Mentell lék lögfræðinginn Garret Wells í Boston Legal frá 2005 til 2006. Hann lék einnig í nokkrum kvikmyndum, þar á meðal G-Force. Lögreglan í Iowa segir Mentell ekki hafa verið í bílbelti þegar bifreið hans skall á tré.

Lífið

Eiður Smári í klóm breskra fjölmiðla

Eiður Smári Guðjohnsen, fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins og leikmaður Tottenham, er í kastljósi bresku pressunnar um þessar mundir eftir að breska blaðið The Sun hélt því fram að hann hefði átt í ástarsambandi við undirfatafyrirsætuna Vanessu Perroncel.

Lífið

The Strokes í hljóðver á ný

New York-sveitin The Strokes er byrjuð að taka upp sína fjórðu breiðskífu. Strákarnir hafa fengið í lið með sér upptökustjórann Joe Chiccarelli og upptökur fara að sjálfsögðu fram í stóra eplinu.

Lífið

Kolsvartur gleðileikur

Ufsagrýlur, nýtt leikrit eftir Sjón, verður frumsýnt í Hafnarfjarðarleikhúsi í kvöld. „Þetta er svartur gleðileikur, eins og sá sem við Íslendingar erum staddir í núna,“ segir Sjón. „Fjallar um trúnaðarbrestinn á milli þegnanna í litlu landi og hvernig hann fer með fólkið. Kannski ekki síst með þá sem brugðust. Það er verið að velta því fyrir sér hvort lækning sé möguleg.“

Lífið

Handtöskur fyrir Haítí

Leikkonan Scarlett Johansson hefur hannað nýja tegund af handtöskum til styrktar fórnarlömbum jarðskjálftans á Haítí. Töskurnar eru unnar í samstarfi við fyrirtækið Mango og koma í verslanir í mars. Allur ágóðinn af töskusölunni rennur til samtakanna Oxfam. „Ég er mjög ánægð með að starfa með Mango við að hanna neysluvöru sem vekur fólk til umhugsunar og um leið styrkja sjóð Oxfams vegna jarðskjálftanna á Haítí og með því að kaupa þessa tösku veitirðu fólki lífsnauðsynlega aðstoð,“ sagði Johansson.

Lífið

Benedikt ofkældist ekki

„Við erum að reyna að gera sjósundið sem öruggast og leiðbeina þeim sem koma nýir inn í þetta,“ segir Benedikt Hjartarson, formaður Sjósunds- og sjóbaðsfélags Reykjavíkur.

Lífið

Barði tilnefndur í Gautaborg

Kvikmyndahátíðin í Gautaborg stendur nú yfir. Þetta er stærsta kvikmyndahátíðin á Norðurlöndum og ein af stærstu kvikmyndahátíðum í heimi. Verðlaun verða veitt annað kvöld í hinum ýmsu flokkum, meðal annars fyrir bestu tónlist í norrænni bíómynd. Þar er Barði Jóhannsson meðal fimm tilnefndra, en Barði er tilnefndur fyrir músíkina í kvikmynd Óskars Jónassonar, Reykjavík-Rotterdam. Það er til mikils að vinna, aðalverðlaunin eru eitt hundrað þúsund sænskar krónur, rúmlega 1.7 milljónir íslenskar.

Lífið

Ringo fann loksins Guð

Bítillinn Ringo Starr segist loksins hafa fundið Guð eftir fjörutíu ára leit. Hann segir að sín andlega hlið fái að njóta sín á nýjustu plötu sinni Y Not.

Lífið