Lífið

Orlando trúlofaður

Leikarinn Orlando Bloom og ofurfyrirsætan Miranda Kerr hafa opinberað trúlofun sína. Þetta staðfestir talsmaður parsins en sögusagnir um trúlofun hafa sveimað í kringum þau í dágóðan tíma. Bloom og Kerr eru búin að vera saman í þrjú ár en hafa aldrei viljað tala um samband sitt opinberlega.

Lífið

Rassaæfing sem virkar - myndband

„Þetta er svona hörkupúl fimm sinnum í viku og fólk sér eflaust árangur eftir tvær vikur, “ sagði Íris Ann þolfimiþjálfari í Baðhúsinu þegar við spurðum hana út í Body Exrpess námskeiðin í Baðhúsinu í morgun. „Þá þarf maður að kýla kannski á það og reyna aðeins meira á sig,“ sagði hún þegar talið barst að þessum 3-5 aukakílóum sem neita að fara. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá rassaæfingu sem Íris Ann segir að virki.

Lífið

Hvaða yngingarmeðal er í djúsnum Jóhanna Vilhjálms? - myndband

„Ég er í háskólanum í stjórnmálafræði..." sagði Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona þegar hún var 24 ára í upphafi gamals viðtals í þættinum Ísland í dag. „Það er ástin og umhyggjan sem skiptir mestu máli..." segir Jóhanna þegar talið berst að uppeldi. Þá rifjar Jóhanna upp fortíðina og lítur fram á við.

Lífið

Gifta sig í Gaga-latexi

Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Russel Brand og Katy Perry fara ekki hefðbundnar leiðir við val á fötum fyrir hjónavígsluna. Parið er nú í óða önn að skipuleggja brúðkaupið sitt og með aðstoð frá búningahönnuði Lady Gaga hafa þau hannað giftingarfötin sín. Parið ætlar að vera í níðþröngum latex-búningum í stíl þegar gengið verður inn kirkjugólfið.

Lífið

Sýndarveruleiki næturlífsins í nýju lagi

Rapparinn Poetrix hefur gefið út nýtt lag sem ber nafnið Gredda. Lagið mun fara í spilun á útvarpsstöðvum landsins á næstu dögum. Rúm tvö ár eru síðan rapparinn gaf út lagið Vegurinn til glötunar í samvinnu við Bubba Morthens.

Lífið

Töpuðu en lúkkuðu þetta líka vel - myndir

Meðfylgjandi myndir tók Þorgeir ljósmyndari á Ballantine´s Midnight Open sem var haldið um helgina. Yfirfullt var í mótið og komust færri að en vildu enda er vinsælt að taka þátt í miðnæturgolfmóti sem kennt er við hið margrómaða Ballantine´s viskí. Spilað var svokallað Texas Scramble sem að hefur gefið góða raun. Vinningar voru veglegir og sigurvegarar mótsins, þeir Rafn Stefán Rafnsson og Hlynur Þór Stefánsson hlutu m.a. golfferð að eigin vali.

Lífið

Leikur FBI-stjóra

Leikarinn Leonardo DiCaprio hefur tekið að sér að leika stofnanda bandarísku leyniþjónustunnar FBI, J. Edgar Hoover, í mynd sem byggð verður á ævi hans. Leikstjóri myndarinnar er Clint Eastwood en þetta er í fyrsta sinn sem þeir tveir vinna saman. Handritshöfundur myndarinnar er sá hinn sami og skrifaði handritið að kvikmyndinni Milk, Dustin Lance Black, og hlaut Óskarsverðlaun fyrir.

Lífið

Vill Siennu burtu

Samkvæmt ýmsum tímaritum í Bretlandi á Sadie Frost, fyrrverandi eiginkona leikarans Jude Law, að hafa bannað Siennu Miller að vera of mikið í kringum börn sín eftir að sú síðarnefnda létt klippa dóttur Frosts án leyfis frá foreldrum barnsins.

Lífið

Bíða í tjaldi eftir frumsýningu Twilight

Hátt í þúsund manns hafa nú komið sér fyrir í tjaldborg fyrir utan Nokia-kvikmyndahúsið í Los Angeles þar sem þriðja myndin í Twilight-flokknum vinsæla verður frumsýnd á fimmtudaginn.

Lífið

Ekki þetta endalausa kreppukjaftæði - myndband

„Ég er búin að vera að vinna svolítið mikið í því að reyna að vera alltaf að muna hvað sem maður hefur en ekki vera að fókusera á það sem maður hefur ekki..." sagði Ragnheiður Gröndal söngkona þegar við spjölluðum hana í dag. Hér má hlusta á nýja lagið sem Ragnheiður minnist á í viðtalinu sem sjá má þegar smellt er á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt. Óvænt slys fyrir viðtalið (óbirt efni/Facebook).

Lífið

Veðurguð sem Buddy Holly

Verið er að undirbúa uppsetningu á söngleik um hinn vinsæla söngvara Buddy Holly í nýuppgerðum Austurbæ. Jón Ólafsson er tónlistastjóri og Gunnar Helgason mun leikstýra verkinu. Búið er að ráða í aðalhlutverkið en Ingólfur Þórarinsson poppstjarna og fótboltkappi mun bregða sér í hlutverk Buddy Holly. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann leggur leiklistina fyrir sig en Ingólfur fór með hlutverk í íslensku sjónvarpsþáttaröðinni Réttur í fyrra.

Lífið

Húðflúraði eyrað á sér

Söngkonan Miley Cyrus, 17 ára, fékk sér nýtt húðflúr, orðið „Love", sem hún lét setja á eyrað á sér á dögunum. „Það er svo mikil neikvæðni í heiminum. Það eina sem ég vil heyra er kærleikur," sagði Miley. „Fólk segir stöðugt við mig að það heyrði einhvern segja eitthvað neikvætt um mig en ég kæri mig ekki um að heyra það því það skiptir mig alls engu máli." „Kærleikurinn er það sem fær heiminn til að snúast og á hann eigum við að einblína."

Lífið

Golfmótaröð fyrir norðan: Heilt naut í verðlaun

„Nautið kemur úr Garði. Það verður afhent lifandi en Norðlenska ætlar að slátra því," sagði Jón Bergur Arason mótshaldari spurður út í nautið sem er í fyrstu verðlaun á golfmótaröðinni á Þverárvöllum sem hefst næsta laugardag.

Lífið

Þessir vinningar eru ekkert slor

Ljósmyndasamkeppni Panasonic og Vísis hófst í morgun. Nú þegar hafa borist 175 myndir í keppnina. Deildu bestu myndum þínum með okkur og þú átt möguleika á glæsilegum verðlaunum. Vertu með og sendu inn ljósmyndir fyrir 21. ágúst 2010. Sjá nánar hér.

Lífið

Sumir kunna að skemmta sér - myndir

Meðfylgjandi myndir voru teknar á árshátíð félagsskap íslenskra leikkvenna sem lærðu erlendis sem ber heitið Brynjurnar. Um var að ræða grillpartý með lopapeysuþema þar sem fólk mætti með börnin sín og hafði það huggulegt. Eins og myndirnar sýna var glatt á hjalla.

Lífið

Eminem: Nýr og betri maður

Rapparinn Eminem sagði í nýlegu viðtali við New York Times að hann væri fylgjandi því að samkynhneigt fólk fái að ganga í hjónaband. Rapparinn, sem þekktur er fyrir klúra texta og niðrandi orð í garð kvenna og samkynhneigðra segist hafa vaxið upp úr barnaskapnum.

Lífið

Fetaði í fótspor stóru systur

Sumarstúlka Vestmannaeyja var valin í Höllinni í Eyjum síðasta laugardagskvöld og var sigurvegari keppninnar hin átján ára gamla Elín Sólborg Eyjólfsdóttir. Þetta er í tuttugasta og fjórða skipti sem keppnin er haldin, en hún fer fram hvert sumar.

Lífið

Ný plata frá Radiohead í ár

Hljómsveitin Radiohead er á lokasprettinum við vinnu á nýrri plötu. Hljómsveitin vonast til að geta gefið hana út í enda árs, samkvæmt viðtali við gítarleikarann Ed O‘Brien.

Lífið

Gott fyrir kynlífið - myndband

„Já ég myndi halda það..." svaraði Hrefna Rósa Sætran spurð hvort japanska sojabaunamaukið sem hún notar mikið í réttina á veitingastaðnum hennar Fiskmarkadurinn.is. sé gott fyrir kynlífið til dæmis.

Lífið

Þessi getur sko sungið - myndband

„Við tökum fullt af Zeppelin lögum sem við höfum aldrei spilað áður," sagði Pétur Örn Guðmundsson söngvari í hljómsveitinni Dúndurfréttir sem heldur tónleika til heiðurs Led Zeppelin í Borgarleikhúsinu 22. júní næstkomandi. Sjá nánar midi.is. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtal við Pétur og Einar.

Lífið

Íslendingar hjálpuðu keppendum í Amazing Race

„Þetta var magnað, við vorum bara að skoða knattspyrnuleikvanginn frá HM 2002 þegar við tökum allt í einu eftir þessu liði,“ segir Arnar Freyr Magnússon sem fór til Suður-Kóreu ásamt frænda sínum Heimi Hannessyni í nokkra daga fyrir stuttu.

Lífið

Vill fá laun fyrir hárið

Leikarinn Matthew Morrison segir hárið sitt vera eins og persónu út af fyrir sig í grínþáttunum Glee. Honum finnst þess vegna að tvöfalda ætti laun hans.

Lífið

Jack Sparrow óður í HM

Leikarinn Johnny Depp er nú staddur á Hawaii þar sem hann hleypur á milli taka til þess að fylgjast með HM í Suður-Afríku.

Lífið