Lífið
Óklárað lag á Netið Rapparinn Kanye West hefur gefið aðdáendum sínum eitt lag á hverjum föstudegi að undanförnu. Hann hætti við það síðasta föstudag eftir að lag af væntanlegri plötu hans lak á Netið án hans samþykkis. Lífið 2.10.2010 07:00
Sjóðheitir Bretar Hljómsveitin Bombay Bicycle Club spilar á Iceland Airwaves 16. október. Bassaleikarinn Ed Nash ræddi við Fréttablaðið um heimsóknina til Íslands og nekt á hótelherbergjum. Lífið 2.10.2010 06:00
Tekið á anorexíu og kynþáttafordómum - myndband Tveir af leikurum kvikmyndarinnar Óróa sem frumsýnd verður 14. október næstkomandi, Vilhelm Þór Neto og Ingibjörg Reynisdóttir, sem er líka höfundur myndarinnar, ræða um myndina í meðfylgjandi myndskeiði. Bíómyndin Órói byggir á bókum Ingibjargar og er leikstýrð af Baldvini Z. Órói á Facebook og Youtube. Lífið 1.10.2010 16:15
Í skýjunum yfir kynþokkanum Mad Men stjarnan Christina Hendricks, 35 ára, er vægast sagt mjög stolt af því að vera talin kyntákn og fyrirmynd kvenna en hún er lofuð fyrir mjúkar línur og kynþokka í fjölmiðlum vestan hafs. Ég er í skýjunum yfir því að vera talin kynþokkafull en höfum eitt á hreinu að ögrandi eða fleginn toppur eða fatnaður er ekki nauðsynlegur til að ná fram kynþokka. Kynþokki kemur innan frá," lét Christina hafa eftir sér. Hún segist þó eiga fátt sameiginlegt með karakternum sem hún leikur í Mad Men sjónvarpsþáttunum, Joan Holloway. Lífið 1.10.2010 15:15
Gerðu vefsíðu fyrir Winslet Vefsíðufyrirtækið Davíð & Golíat skaut mörgum bandarískum vefsíðugerðarfyrirtækjum ref fyrir rass þegar þurfti að smíða vefsíðu fyrir góðgerðarsamtökin The Golden Hat Foundation. Lífið 1.10.2010 15:00
Feit og gömul í LA Leikkonan Rosario Dawson, 31 árs, segist vera feit og gömul þegar hún er stödd í Los Angeles en ung og grönn þegar hún er í New York. Þegar ég er í New York er ég rosalega grönn og mjög ung en þegar ég fer til Kaliforníu finnst mér ég vera feit og gömul. Ég er þrjátíu og eins árs og ég eldist hratt. Svo er ég endalaust spurð í LA hvort ég ætli ekki að létta mig og laga útlitið. Nei ég er ekki að grínast með þetta," sagði Rosario. Sin City stjarnan hefur oftar en ekki verið tilnefnd sem ein af kynþokkafyllstu konum heimsins. Þegar Rosario var spurð út í kynþokkann svaraði hún: Ástæðan eru brjóstin. Umboðsmaðurinn minn segir að ef ég klæðist peysu í áheyrnarprófum þá verð ég að vera viss um að hún er þröng því leikstjórarnir vilja mjóar konur með stór brjóst." Lífið 1.10.2010 13:45
Millilendir á Íslandi til að skemmta og detta í það Bandaríski grínistinn Pablo Francisco kemur fram á Broadway á sunnudaginn. Francisco hefur tvisvar sinnum skemmt á Íslandi og hlakkar mikið til þess að skemmta í þriðja skipti. Lífið 1.10.2010 13:00
Kylie kaupir sér hús Ástralska söngkonan Kylie Minogue hefur keypt sér í hús London þar sem hún ætlar að búa með kærasta sínum, spænsku fyrirsætunni Andres Velencoso Segura. Þau hafa verið saman í tvö ár. Fyrr á árinu var talið að þau væru að hætta saman en Minogue neitaði því alfarið. Lífið 1.10.2010 12:30
Gísli Örn bjargar frumsýningu Brims Gísli Örn Garðarsson og Víkingur Kristjánsson ætla að fljúga frá London til Reykjavíkur og bjarga þannig frumsýningu íslensku kvikmyndarinnar Brims eftir Árna Ólaf Ásgeirsson en hún verður lokamynd alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík á laugardagskvöld. Lífið 1.10.2010 12:30
Frímann og félagar í útrás „Það eru allir þvílíkt heitir fyrir þessu, menn hafa háleitar hugmyndir og langar ofboðslega mikið til að gera eitthvað meira,“ segir Gunnar Hansson leikari. Unnið er að því að Kvöldskemmtun Frímanns Gunnarssonar fari í einhvers konar ferðalag um Norðurlöndin. Lífið 1.10.2010 12:00
Ber bleiku slaufuna með stolti Bleika slaufan, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, hefst formlega í dag. Félagið sett sér það markmið að selja 50 þúsund slaufur fram til 15. október þegar slaufusölunni lýkur. Lífið 1.10.2010 11:00
Þrífst á spennu og óvissu Leikkonan Keira Knightley, 25 ára finnst spennandi að vita ekki hvernig ferilinn æxlast. Hún er ánægð að hafa uppfyllt æskudrauminn um að verða kvikmyndastjarna en hvað framhaldið varðar þá hlakkar hana til að sjá hvað gerist. Hún þrífst á spennunni. Allt mitt líf hef ég tekist á við nákvæmlega það sem mig langaði. Ég elska kvikmyndir og ég elska sögurnar sem eru sagðar og ég elska að leika. Það er ekki sjálfgefið að vera vinsæll í Hollwyood. Einn daginn ertu sjóðheit og næsta ísköld. Mér finnst óvissan í kringum starfið vera spennand," sagði Keira. Ef mér yrði boðið að kíkja í framtíðina myndi ég neita. Hvað ef allt yrði hræðilegt? Ég vil láta ráðast hvað verður og ég ætla aldeilis ekki að eyða tíma mínum í áhyggjur um framhaldið svo mikið er víst. En ég elska óvissuna og spennuna," sagði leikkonan. Lífið 1.10.2010 10:15
Góð rokktónlist og ódýr bjór Rokktóberfest X-ins 977 hófst á skemmtistaðnum Sódómu í gær og stendur yfir til laugardags. Tilefnið er hin tvö hundruð ára gamla hefð frá Bavaríu í Þýskalandi þar sem ár hvert eru drukknir milljónir lítra af öli. Lífið 1.10.2010 09:30
Paris Hilton aftur í sjónvarp Paris Hilton, 29 ára, hefur landað samningi við sjónvarpsstöðina Oxygen network um að kvikmyndatökuvélar fylgi henni hvert fótspor þar sem tekið verður upp allt sem hún tekur sér fyrir hendur. Paris segir að nýr kafli er eum það bil að hefjast hjá henni og hann byrji þegar kveikt verður á myndavélunum en hún er staðráðin í að bæta ímynd sína eftir að hún játaði að hafa haft í fórum sínum nokkur grömm af kókaíni. Paris fékk skilorðsbundinn dóm í ár og var gert að sinna samfélagsskyldu. Um er að ræða raunveruleikaþátt þar sem fylgst verður með Paris og fleiri þekktum konum í Hollywood. Þar má nefna vinkonur Parisar eins g Brooke Mueller, eiginkona Charlie Sheen, Allison Melnick og Jennifer Rovero, ásamt mömmu Parisar, Kathy Hilton. Lífið 1.10.2010 09:15
Fyrstu einleikstónleikarnir í fjögur ár „Það er búið að standa lengi til að spila á tónleikum á Íslandi. Það er kominn tími til og ég er mjög spenntur,“ segir tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson. Lífið 1.10.2010 08:15
Spilar fyrir 700 þúsund manns Baldvin Oddsson, einn efnilegasti trompetleikari landsins, kemur fram í bandaríska útvarpsþættinum From The Top 15. nóvember. Þátturinn er sendur út á um 250 útvarpsstöðvum og talinn eiga sér um sjö hundruð þúsund dygga aðdáendur. Lífið 1.10.2010 08:00
Glaðir gestir Frímanns Kvöldstund með Frímanni Gunnarssyni og gestum fór fram í Háskólabíói á miðvikudagskvöld. Gestir voru ánægðir með fjölþjóðlegt grín sem þar var á boðstólum. Lífið 1.10.2010 07:45
Hallveig í Kirkjuhvoli Menningar- og safnanefnd Garðabæjar stendur fyrir klassískri tónleikaröð í vetur í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garðabæ. Lífið 1.10.2010 07:15
Tökur á Spaugstofunni hafnar Fyrsti tökudagur Spaugstofunnar fyrir nýjan vinnuveitanda, Stöð 2, var í gamla sjónvarpshúsinu við Laugaveg í gær en fyrsti þátturinn fer í loftið laugardaginn 9. október. Lífið 1.10.2010 07:00
Úr sakleysi yfir í einbeittan brotavilja Niðurstaða: Athyglisverð og vel leikin sýning. Lífið 1.10.2010 07:00
Helgi vinsæll sem fyrr Uppselt er á tónleika Helga Björnssonar í Salnum 7. október þar sem hann syngur lög Hauks Morthens. Af því tilefni verða haldnir aukatónleikar miðvikudaginn 6. október. Lífið 1.10.2010 06:45
Úrelt kerfi en mun ekki breytast í bráð Hrunið var meðal annars afleiðing löngu úrelts stjórnmálakerfis sem er orðið svo rótgróið að það breytist líklega ekki í bráð. Þetta er meðal niðurstaðna Sigurðar Gylfa Magnússonar sagnfræðings í nýlegu yfirlitsriti um sögu Íslands, sem kom út í Englandi á dögunum. Lífið 1.10.2010 06:30
Öðrum kennt í Gerðubergi Pétur Gunnarsson hefur umsjón með tveggja kvölda námskeiði um Þórberg Þórðarson í Gerðubergi mánudaginn 11. og miðvikudaginn 13. október. Lífið 1.10.2010 06:00
Gillz hannar símaskrána Já og Egill „Gillz“ Einarsson skrifuðu í dag undir samkomulag um að Egill verði meðhöfundur Símaskrárinnar 2011, sem mun koma út í maí á næsta ári. Í samningnum felst að Egill muni hafa umsjón með bæði forsíðu og baksíðu Símaskrárinnar auk þess að taka þátt í öðrum efnistökum bókarinnar. Bókasamningarnir gerast varla stærri en þessi, því með honum tryggir Egill sér dreifingu í 150.000 eintökum. Símaskráin er stærsta einstaka bókaútgáfa hvers árs og sýna kannanir að hún berst inn á meirihluta heimila á landinu og er notuð af langstærstum hluta landsmanna. Umsókn Egils um aðgang að Rithöfundasambandinu hefur verið nokkuð í fjölmiðlum síðustu daga og má búast við að þessi nýjasti samningur styrki umsóknina umtalsvert, enda ekki algengt að rithöfundar fái svo umfangsmikla dreifingu. „Ég fékk hroll í síðustu viku þegar það kom í fréttunum að Íslendingar væru með feitustu þjóðum í heimi. Þetta gengur ekki lengur og ég lít á það sem persónulegt verkefni mitt að gera eitthvað í þessu. Ég þarf að ná til allra og hvar er það hægt annars staðar en í Símaskránni – þar sem allir Íslendingar eru? Þetta er feitasti bókasamningurinn á markaðnum, en það er líka eina fitan sem ég vil sjá. Ég ætla að nota þetta tækifæri til að koma íslensku þjóðinni á lappirnar og kominn tími til,“ segir Egill Einarsson. Lífið 30.9.2010 17:15
Með húðvandamál eins og aðrir Breska söngkonan Pixie Lott, 19 ára, segir það ekki sjálfgefið að vera með fína mjúka húð þrátt fyrir að andlitskremin séu óteljandi þarna úti. Þrátt fyrir að vera stórglæsileg í öllum tónlistarmyndböndunum sínum segir Pixie að hún þurfi að leggja sig virkilega fram við að líta vel út. Hún segist fá unglinabólur eins og aðrir unglingar en hún notar rakakrem á andlitið sem hjálpar henni að viðhalda sléttri og unglegri húð. Það er erfitt að vera alltaf sléttur og bólulaus þegar þú ert unglingur. Þær einfaldlega koma og ekkert við því að gera," sagði söngkonan. Ég veit að það er fullt af góðum kremum til en ég nota rakakrem sem kallast NuBo. Þegar ég set það á mig verður húðin silkimjúk," sagði Pixie. Það sem skiptir öllu máli er að vera sáttur við sjálfan sig sama hvernig maður lítur út. Það er svo mikilvægt að vera sáttur," sagði hún. Lífið 30.9.2010 17:00
Kynþokkafyllri eftir að hún varð mamma Ofurfyrirsætan Adriana Lima, 29 ára, segir að eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn finnst henni hún sjálf vera kynþokkafyllri og öruggari með sig. Adriana, sem hefur verið andlit unfirfataframleiðandans Victoria's Secret undanfarið tíu ár og að sama skapi fyrir snyritvöruframleiðandann Maybelline frá árunum 2003 til 2009, fæddi Valentinu Lima Jarić í nóvember í fyrra en faðir stúlkunnar er eiginmaður Adriönu, serbneski körfuboltaspilarinn Marko Jarić. Að verða mamma er það besta sem hefur komði fyrir mig og það sama má segja við um ferilinn minn. Mér líður meira sexí og er miklu öruggari með sjálfa mig heldur en áður," sagði Adriana. Lífið 30.9.2010 16:00
Förðunarráð frá fjölskyldumeðlimum Förðunarframleiðandinn og meistarinn Bobbi Brown, 53 ára, vill meina að konur eigi að biðja nánustu fjölskyldumeðlimi um förðunarráð. Lífið 30.9.2010 15:00
Skilin við Victoria´s Secret Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum, 37 ára, hefur ákveðið að hætta að starfa fyrir undirfataframleiðandann Victoria’s Secret. Heidi, sem hefur sýnt undirföt síðustu 13 ár fyrir framleiðandann er búin að skila vængjunum. Allt tekur einhverntíman enda en eitt er víst og það er að ég mun alltaf elska Victoria's Secret,” sagði Heidi. Ástæðan er sögð vera að Heidi ætlar að framleiða eigin fatalínu í nafni sjónvarpsþáttarins Project Runway. Lífið 30.9.2010 14:15
Ekki að herma eftir neinum Friðrik Ómar heldur þrenna tónleika á Akureyri þar sem hann syngur lög Vilhjálms Vilhjálmssonar. Plata og mynddiskur með Elvis-tónleikum hans í Salnum eru einnig að koma út. Lífið 30.9.2010 14:00
Þriggja daga veisla þar sem bjórinn flæðir Útvarpsstöðin X-ið 977 blæs í kvöld til þriggja daga tónlistarveislu á Sódóma Reykjavík við Tryggjagötu sem stendur í þrjá daga. Lífið 30.9.2010 13:30