Lífið

Liam lofaður

Leikarinn Liam Neeson hefur trúlofast kærustu sinni, Freyu St. Johnston, ef marka má fréttir tímaritsins The National Enquirer. Eitt og hálft ár er síðan eiginkona Neesons, leikkonan Natasha Richardson lést.

Lífið

Frekar gaman hjá þessu liði

Eins og meðfylgjandi myndir sýna leiddist liðinu ekki á skemmtistöðunum Bankinn, Hvíta Perlan, Oliver og Hessó um helgina. Sumir girtu niður um sig á meðan aðrir brostu blítt. Sveinbi ljósmyndari hjá Superman.is tók myndirnar.

Lífið

Langar að lemja ljósmyndara

Robert Pattinsson úr Twillight-myndunum virðist vera kominn með uppí kok af ljósmyndurum og ágengni þeirra. Í samtali við vef Elle-tímaritsins viðurkenndi leikarinn að hann dreymdi oft um að lemja ljósmyndara. „ Þegar ég verð fallinn af stallli sem stjarna, kannski eftir fimmtán ár, og engin nennir að sjá myndirnar mínar og einhver ljósmyndari birtist eins og skrattinn úr sauðaleggnum þá ætla ég að lemja hann,“ segir Pattinsson við vefinn. „Þá skiptir það heldur engu máli, ég verð búinn að eyða öllum peningunum mínum og það græðir engin neitt á því að sækja mig til saka.“

Lífið

Baksviðs hjá Léttsveitinni

Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag á fyrri vortónleikum Léttsveitarinnar í Íslensku óperunni undir stjórn Jóhönnu V. Þórhallsdóttur. Tónleikarnir báru yfirskriftina taktur, töfrar, tilfinning. Eins og sjá má á myndunum ríkti mikil gleði baksviðs hjá Léttsveitinni áður en hún steig á svið ásamt einsöngvaranum Bergþóri Pálssyni og hljómsveit sem Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Gunnar Hrafnsson, Kjartan Guðnason og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir skipa. Síðari tónleikar Léttsveitarinnar hefjast klukkan 20:00 í kvöld, sunnudag. Miða má nálgast við innganginn hjá Íslensku óperunni.

Lífið

Tvö ár á milli frumsýninga

Framhaldsmyndin The Expendables 2 verður frumsýnd í Bandaríkjunum 17. ágúst á næsta ári. Fyrri myndin leit dagsins ljós 19. ágúst í fyrra og verða því nánast tvö ár upp á dag á milli frumsýninganna.

Lífið

Karlar hræðast Kim Cattrall

Kim Cattrall, sem er þekktust fyrir að leika Samönthu Jones í Sex and the City, viðurkennir að hlutverkið hafi virkað fráhrindandi á karlpeninginn í raunveruleikanum. Samantha kallaði ekki allt ömmu sína í þáttunum þegar kom að samskiptum kynjanna og daðraði jafnt við sér eldri og yngri menn. En í hversdagsleikanum er staðan allt önnur, karlmenn eru logandi hræddir við leikkonuna.

Lífið

Lykill að sjálfstrausti kvenna

"Ég veit hvað það er erfitt fyrir konur að vera fullkomlega sáttar við sig. Við þurfum að senda út þau skilaboð að hver einasta kona á að meta sig að eigin verðleikum nákvæmlega eins og hún er og minna sig á sína ytri og innri fegurð. Burt með neikvæðni og óöryggi. Ég held að með því að breyta hugarfarinu og sættast við alla gallana og upphefja þá geta konur stjórnað hvernig þeim líður. Þegar þú hugsar: Ég er æðisleg, framúrskarandi og engin kona í heiminum er eins og ég finnur þú lykillinn að sjálfstraustinu sem þú leitaðir alltaf að," sagði Jennifer.

Lífið

Reykti gras

Óskarsverðlaunahafinn Natalie Portman fer með hlutverk í gamanmyndinni Your Highness sem leikstýrt er af David Gordon Green, þeim sama og leikstýrði Pineapple Express. Í nýlegu viðtali viðurkennir Portman að hún hafi sérstakt dálæti á „stoner“ kvikmyndum, sem hægt væri að þýða sem hasshausa-myndir.

Lífið

Þurfti að fresta för

Leikkonan Reese Witherspoon hefur frestað brúðkaupsferðinni sökum kynningarvinnu í kringum nýjustu mynd sína Water for Elephants. Leikkonan gekk nýverið í það heilaga með umboðsmanninum Jim Toth, en þetta er í annað sinn sem hún festir ráð sitt.

Lífið

Doherty á leið í steininn

Breski ólátabelgurinn Pete Doherty á yfir höfði sér fangelsisvist eftir réttarhöld yfir honum í gær. Doherty viðurkenndi fyrir dómara að hafa verið með kókaín í sínum fórum á sama tíma og kvikmyndagerðarkonan Robin Whitehead lést en grunur leikur á að hún hafi dáið úr ofneyslu. Pete hefur verið grunaður síðan í janúar á síðasta ári um að hafa verið viðriðinn andlátið en hefur alltaf neitað sök. Hann breytti hins vegar framburði sínum í gær og saksóknari í málinu spurði lögfræðing rokkarans hvort skjólstæðingur hans vissi að með þessu gæti hann lent í fangelsi.

Lífið

Tómas leikur pólskan vísindamann

Leikarinn Tómas Lemarquis fer með stórt hlutverk í kvikmyndinni The Errors of the Human Body sem framleidd er í Þýskalandi. Tómas leikur þar pólskan vísindamann en tökur fóru að mestu fram í Max Planck stofnuninni, sem er ein stærsta vísindastofnun Evrópu. Kvikmyndin er í leikstjórn Ástralans Erons Sheean og með aðalhlutverk fara Rik Mayall, sem lék í The Young Ones og The Black Adder, og hin þýska Karoline Herfurth, sem fór með hlutverk í myndunum Ilmurinn og Lesarinn.

Lífið

Helgi Björns bókar Hörpuna

Söngvarinn Helgi Björnsson blæs til stórtónleika Í Hörpunni á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Þar munu hann og fjölmargir þekktir tónlistarmenn flytja íslenskar dægurlagaperlur. „Þetta verður æðislega grand,“ segir Helgi Björnsson á línunni frá Berlín. Helgi er búinn að bóka stóra salinn í Hörpunni á þjóðhátíðardaginn og þar ætlar hann að blása til glæsilegra tónleika.

Lífið

Britney Spears orðin ráðsett

Bandaríska söngkonan Britney Spears gaf nýverið út nýja geislaplötu sem nefnist Femme Fatale. Hún vinnur nú hörðum höndum við að kynna plötuna og veitti þar á meðal tímaritinu US Weekly viðtal þar sem hún segir meðal annars frá sambandi sínu og Jasons Trawick og móðurhlutverkinu.

Lífið

Ánægður aðdáandi Ghostface

Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær leituðu aðstandendur RFF-hátíðarinnar að eiganda geislaplötu sem árituð hafði verið af rapparanum Ghostface Killah. Pilturinn hefur nú gefið sig fram og er diskurinn því kominn í réttar hendur.

Lífið

Vinir Sjonna með dansleik í kvöld

Sexmenningarnir í Vinum Sjonna ætla að blása til dansleiks á Spot í Kópavogi í kvöld. Þetta verða fyrstu og einu tónleikar Eurovision-faranna fyrir Þýskalandsferðina.

Lífið

Á krossgötum

Sjónvarpsmaðurinn Ryan Seacrest og kærasta hans, Julianne Hough, hafa ákveðið að heimsækja sálfræðing saman áður en þau ganga í heilagt hjónaband. Að sögn vina stenda þau nú á krossgötum og vita ekki í hvorn fótinn þau eiga að stíga.

Lífið

Gyðjur komu saman í Hafnarfirði

Fjórar galvaskar athafnakonur þær Ása Karín ráðgjafi hjá Capacent, Linda framkvæmdastjóri Hress, Málmfríður eigandi Carita-Snyrting og Sigga gullsmiður hjá Siggu & Timo ákváðu að gera sér glaðan dag og halda gleði fyrir galvaskar gyðjur.

Lífið

Cintamani opnar í Bankastræti

Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar útivistarverslunin Cintamani opnaði glæsilega verslun í húsnæði sem áður hýsti verslun Sævars Karls í Bankastræti í Reykjavík. Eins og myndirnar sýna var stemningin gríðarlega góð en umgjörðin í kringum útivistarfatnaðinn er ævintýri líkust fyrir börn og fullorðna. Meðal annars er boðið upp á rennibraut fyrir börnin þar sem þau geta rennt sér á milli hæða verslunarinnar.

Lífið

Klæðist því sem hún vill

Leikkonan Cate Blanchett klæddist kjól frá tískuhúsinu Givenchy við Óskarsverðlaunaafhendinguna. Kjóllinn vakti aðdáun margra en hlaut einnig nokkra gagnrýni. Í viðtali við InStyle segist Blanchett aðeins klæðast því sem henni líði vel í.

Lífið

Leita aðdáanda Ghostface Killah

Ingibjörg Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri RFF, leitar nú logandi ljósi að ungum manni sem sótti tónleika rapparans Ghostface Killah síðasta laugardag. Pilturinn sóttist eftir eiginhandaráritun rapparans á geisladisk og tóku aðstandendur RFF-hátíðarinnar það að sér að útvega honum hana. Geisladiskurinn hefur þó ekki enn komist í hendur eiganda síns.

Lífið

Steindinn á djamminu

Önnur þáttaröð af Steindanum okkar hóf göngu sína á Stöð 2 í gærkvöldi með miklum látum. Tónlistaratriðin eru til staðar eins og í fyrstu seríunni og hér má sjá fyrsta atriði vetrarins þar sem harður djammari sekkur dýpra og dýpra. Smellið á tengilinn hér að ofan til að horfa á „Djamm í kvöld“.

Lífið

María Birta og Gillz í djarfri kynlífssenu

"Við erum ekki alveg búnir að negla hvernig við ætlum að gera atriðið, en þetta er kynlífsatriði sem gerist í partíi með mörgum þátttakendum,“ segir Óskar Þór Axelsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Svartur á leik. Tökur á myndinni hefjast í lok þessa mánaðar og eru þeir Jóhannes Haukur Jóhannesson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson í aðalhlutverkum ásamt Maríu Birtu Bjarnadóttur og Agli Einarssyni, betur þekktum sem Gillz.

Lífið

Tina Fey ólétt

Grínistinn Tina Fey, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt í 30 Rock, á von á öðru barni sínu. Hún er gengin fimm mánuði með barn sitt og eiginmannsins, tónskáldsins Jeffs Richmond. Tina greindi frá barnaláni sínu í viðtali í sjónvarpsþætti Opruh Winfrey. Þar var hún að kynna nýja bók sína og ræða tilvonandi endurfundi í Saturday Night Live.

Lífið

Troðfullt áTrúbadorkeppni FM957

Meðfylgjandi myndir voru teknar á síðara undanúrslitakvöldinu í Trúbadorkeppni FM957 og Corona á Players í Kópavogi í gærkvöldi. Átta atriði voru skráð til leiks og var ljóst að samkeppnin yrði virkilega hörð enda mikið í húfi. Kvöldið opnaði þó á því að útvarpsfólkið í Tívolí þættinum á FM957 fóru á svið til að reyna heilla dómnefndina en það gekk ekki sem skyldi og má með sanni segja að reynsluleysi hafi orðið þeim að falli. Hin sjö atriðin stigu hinsvegar á svið hvert af öðru og voru allir keppendur einbeittu sér að því að heilla dómnefnd kvöldsins sem var skipuð þeim Hanna Bach trommuleikara Skímó, Haffa Haff tískumógul, Ísgerði Gunnarsdóttur leikkonu og Kristjáni Inga morgunhana í Svala & Félögum. Allir keppendur voru svo dyggilega studdir af stuðningsliðum sínum sem létu vel í sér heyra eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Á Icerave segja allir VÁ

Kanilkvöld er yfirskrift nýrra mánaðarlegra danstónlistarkvölda. Annað Kanilkvöldið verður haldið á morgun á Faktorý. Sigurður Arent skipuleggjandi hefur ekki áhyggjur af brjáluðu Icesave-fólki.

Lífið

Smekkfullt hjá Steinda Jr.

Steindi Jr. og Ágúst Bent héldu partý í Gyllta salnum á Hótel Borg í gærkvöldi í tilefni af frumsýningu þáttaseríunnar Steindinn okkar II sem sýnd er á fimmtudagskvöldum á Stöð 2. Smekkfullt var á Borginni og allir í góðum gír eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Who Knew á Hróarskeldu

Sumarið er tími tónlistarhátíðanna og það vita strákarnir í hljómsveitinni Who Knew. Þeir koma fram víða í Evrópu í sumar þar á meðal á Hróarskelduhátíðinni víðfrægu.

Lífið

Foo Fighters endurfædd

Dave Grohl og félagar í Foo Fighters senda frá sér plötuna Wasting Light í næstu viku. Platan er mikið rokk og mikið ról, enda tekin upp af manninum sem tók upp Nevermind með Nirvana.

Lífið