Lífið

Steindi Jr. gefur út sumarplötu

„Við ætlum að gefa út plötu og okkur langar að gefa hana út sem fyrst, helst eftir mánuð,“ segir grínistinn Steindi Jr. Hann og félagi hans Ágúst Bent hafa ákveðið að gefa út öll lögin sem hafa hljómað í tveimur þáttaröðum Steindans okkar á Stöð 2. Sjö lög voru í fyrstu þáttaröðinni í fyrra og átta til viðbótar hljóma í þeirri nýjustu sem hefur verið sýnd að undanförnu. Flest lögin hafa notið mikilla vinsælda hjá aðdáendum þáttarins en þau voru unnin í samstarfi við upptökuteymin Stop Wait Go og Redd Lights, auk tónlistarmannsins Berndsen.

Lífið

Oliver Stone þekkir ekki Charlie Sheen

Bandaríski leikstjórinn Oliver Stone hefur hrósað Charlie Sheen í fyrir leik sinn stríðsmynd hans Platoon. 25 ár eru liðin síðan þessi áhrifamikla Víetnam-mynd kom út. Þrátt fyrir það segist leikstjórinn ekki þekkja Sheen lengur enda hefur hann hegðun hans verið stórundarleg síðustu mánuði.

Lífið

Skiptir um föt inni á baði

Það getur tekið á að vera eina stelpan í hópi sex stráka en Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir, meðlimur hljómsveitarinnar Retro Stefson, ber sig vel eftir tæplega tveggja mánaða búsetu í Berlín.

Lífið

Hjálmar án rafmagns

Órafmögnuð tónleikaröð hefst í Hvítu perlunni í kvöld þar sem vefsíðan Gogoyoko fær uppáhaldshljómsveitirnar sínar til að setja bestu lög sín í nýjan búning. Tónleikarnir verða festir á filmu og gefnir út á mynddiski fyrir næstu jól. Hljómsveitin Hjálmar, sem gefur út nýja plötu í haust, ríður á vaðið og spilar lögin sín órafmögnuð. Aðeins eitt hundrað miðar verða í boði á tónleikana og fer miðasala fram í versluninni 12 Tónum.

Lífið

Þú ert ómótstæðileg svona ólétt

Victoria Beckham, 37 ára, var vægast sagt ómótstæðileg klædd í svartan kjól eftir sjálfa sig, eins og sjá má í myndasfani, síðasta mánudag þegar hún ásamt elsta syni sínum, Brooklyn, fylgdist með þegar Simon Fuller, gaurinn á bak við Idolið, fékk eigin stjörnu á Hollywood Boulevard. Simon hefur verið vinur Beckham hjónanna undanfarin 15 ár en hann er umboðsmaður Victoriu.

Lífið

Paris á endalaust margar töskur

Paris Hilton setti tilkynningu á Twitter síðuna sína þess efnist að nú má nálgast töskurnar hennar á netinu. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá örlítið brotabrot af persónulegum töskum Parisar. Þá twittaði Paris eftirfarandi: Ég er í skýjunum yfir öllum ástarkveðjunum sem aðdáendur mínir senda mér. Þið skiptið mig svo gríðarlega miklu máli. Ég elska ykkur. Takk. Ástarkveðja Paris.

Lífið

Fitnessdrottning opnar matardagbók

Freyja Sigurðardóttir Fitnessdrottning með meiru leyfði okkur að skyggnast örlítið inn í líf sitt með því að skrá niður matardagbókina sína. Hún segir vatnsdrykkju vera gríðarlega mikilvæga sem og góður svefn. Vaknaði 04:45. Græjaði mig í vinnuna, fékk mér heimatilbúið múslí. Það samanstendur af tröllahöfrum, rúsínum, þurrkuðum ávöxtum, hnetum og Hleðslu próteindrykk út á. Tók inn tvær CLA fitusýrur, vítamín og eitt risastórt vatnsglas. Þá brunaði ég Reykjanesbrautina og mætti í Hreyfingu klukkan 6:00 til að þjálfa en ég starfa þar sem einkaþjálfari. Klukkan 7:00 tók ég sjálf æfingu. Fyrir æfinguna fékk ég mér HydroxyCut Hardcore brennslu efni blandað í vatn og tók síðan hrikalega á því. Eftir æfingu fékk ég mér súkkulaði próteindrykk Whay Isolate frá Fitnesssport. Ég elska þennan próteindrykk en bragðið er alveg æðislegt. Klukkan 8:15 hélt ég áfram að þjálfa kroppalingana mína í Hreyfingu. Klukkan 10:00 fékk ég mér eitt epli og vatn. Klukkan 12:00 fékk ég mér NINGS en ég alveg elska heilsuréttina þaðan. Á Nings á ég fjóra uppáhalds rétti en ég mæli hiklaust með þeim fyrir þá sem vilja huga vel að því sem þeir setja ofan í sig. Nr.88 Tröllatrefjar með kjúklingi og grænmeti. Nr.60 Tofukjöt og blandað grænmeti með Satay sósu Nr.65 Steiktar eggjanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti Nr.68 Ristaðar hrísgrjónanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti. Fyrir valinu í dag var réttur númer 88. Réttirnir frá Nings eru alveg ekta, allt þeirra hráefni er lífrænt. Ég drakk vatn með. Þjálfaði þennan dag til klukkan 15:00. Á heimleiðinni drakk ég eina ískalda karmellu Hleðslu og borðaði einn banana. Hlustaði á Hljóma og Valdimar í botn á leiðinni. Var síðan mætt til Keflavík City klukkan 16:00 en þá voru vaktaskipti á börnunum mínum þremur. Halli, maðurinn minn, fór á æfingu og ég tók við duglegum strákum. Við fórum saman í Nettó að versla í matinn. Jökull Máni elsti strákurinn minn fékk að velja kvöldmat og fyrir valinu varð Fahitas og Taco með fullt af grænmeti. Kvöldmatur klukkan 19:00. Fahitas, grænmeti, Taco sósa, sýrður rjómi 5% og fituminna hakk. Þessi réttur slær alltaf í gegn. Síðan fórum við í smá hjólatúr en fjölskyldan er nýbúin að fjárfesta í hjólum. Drakk alveg fullt af vatni yfir daginn en það er gríðarlega mikilvægt. Svo var ég alveg búin á því klukkan22:00. Svefn er líka mikilvægur og þess vegna reyni ég að hvílast vel því næsta dag vakna ég klukkan 05:20.

Lífið

Gusgus spilar á Bestu hátíðinni

Hljómsveitin Gusgus og fjöldi annarra þekktra flytjenda hafa staðfest komu sína á Bestu útihátíðina sem verður haldin á Gaddstaðaflötum við Hellu helgina 8. til 10. júlí. Gusgus gaf nýverið út sjöttu plötu sína, Arabian Horse, og sveitin er þekkt fyrir að spara hvergi til þegar kemur að sviðsframkomu. Sveitin spilar á laugardagskvöldinu, sama kvöld og hljómsveitin Quarashi rís upp frá dauðum.

Lífið

Heimilislegt yfirbragð

Bandaríska hljómsveitin Death Cab for Cutie er mætt með sína sjöundu hljóðversplötu. Heimilið er þar í aðalhlutverki. Sjöunda hljóðversplata bandarísku indíhljómsveitarinnar Death Cab for Cutie kemur út í næstu viku. Þrjú ár eru liðin frá útgáfu síðustu plötu, Narrow Stairs, sem fékk fínar viðtökur víðast hvar.

Lífið

Fékk danskt barnabarn

Leikarinn Jack Nicholson brosir breitt þessar dagana en dóttir hans, hin danska Honey Hollman, eignaðist son á dögunum og gerði því hinn 74 ára gamla leikara að afa. Nicholson er þekktur fyrir kvensemi sína en hann á fjögur börn með þremur konum og er Holly afrakstur sambands Nicholson við dönsku fyrirsætuna Winnie Hollman árið 1981. Feðginin eru náin og hefur Honey verið með annan fótinn hjá pabba sínum í Hollywood síðan hún var lítil.

Lífið

Berjast við vampírur

Spennumyndin Dylan Dog: Dead of Night með Anitu Briem í einu af aðalhlutverkunum var frumsýnd í Laugarásbíói í gær.

Lífið

Sumarbrúðkaup í vændum

Leikstjórinn Sofia Coppola ætlar að ganga að eiga kærasta sinn og barnsföður, rokkarann Thomas Mars, á Suður-Ítalíu í sumar. Ætlunin er að halda rómantíska athöfn við sumarhús Coppola-fjölskyldunnar að viðstöddum nánustu fjölskyldumeðlimum.

Lífið

Þýsk hljómsveit með tónleika

Þýska hljómsveitin Die Ukrainiens heldur tvenna tónleika um helgina. Þeir fyrri verða á Faktorý á föstudagskvöld og þeir seinni verða á Vertinum á Hvammstanga á laugardagskvöld. Die Ukrainiens er frá Dresden í Þýskalandi og hefur tónlist hennar verið lýst sem blöndu af Rússadiskói og Balkantónlist. Lög sveitarinnar eru ýmist þekkt þjóð- og popplög frá Rússlandi, Úkraínu og öðrum Austur-Evrópulöndum eða frumsamin lög. Tónleikar Die Ukrainiens þykja kraftmiklir og dansvænir og minna um margt á austur-evrópsk brúðkaup og/eða jarðarfarir.

Lífið

Reynir við Ermarsundið

Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri og sjósundkappi, ætlar að verða annar Íslendingurinn sem synt hefur yfir Ermarsund. „Benedikt Hjartarson kláraði þetta sund árið 2008 og ég hef ekki verið látinn vera síðan," segir Árni Þór glettinn.

Lífið

Tískuföt á meðgöngu

Hera Guðmundsdóttir, nemandi á öðru ári í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, sigraði í samkeppni um meðgöngu- og brjóstagjafafatnað fyrir verslunina Tvö líf. Lína Heru þótti bæði praktísk og flott.

Lífið

Vill hanga í himninum

Áslaug Rán Einarsdóttir og Aníta H. Björnsdóttir fljúga á svifvængjum um allan heim í nafni kvenfrelsis. "Við erum báðar með ódrepandi ferðabakteríu og sáum þarna tækifæri til að sameina tvö áhugamál."

Lífið

Í spor einhverfra

„Ég gerði bók um einhverfu,“ segir Jóhann Leó Linduson, nemi í grafískri hönnun, um útskriftarverkefni sitt. Jóhann Leó stefnir á að útskrifast úr grafískri hönnun nú í vor. Bókin ber heitið Í annarra manna spor og Jóhann segir að tilgangurinn með henni sé að útskýra á einfaldan hátt vandamál tengd einhverfu.

Lífið

Maria Shriver ræður spæjara

Maria Shriver hefur ráðið einkaspæjara til að rannsaka þær fullyrðingar að fyrrverandi eiginmaður hennar, Arnold Schwarzenegger, eigi fleiri en eitt barn utan hjónabands þeirra. Þetta kom fram á fréttasíðunni RadarOnline.com.

Lífið

Hvernig dettur þér í hug að vera svona til fara?

Söngkonan Lady Gaga kynnti nýju plötuna sína, Born This Way, í New York með látum í fyrradag. Þá var hún meðal annars mynduð fyrir utan upptökuver sjónvarpsþáttarins The Late Show með David Letterman þar sem hún var gestur. Eins og sjá má í myndasafni var söngkonan léttklædd vægast sagt.

Lífið

Þessi toppar þá alla (svei mér þá)

Jennifer Lopez, 41 ára, var klædd í bláan Zac Posen kjól í gær þegar Simon Fuller, gaurinn á bak við Idolið, fékk eigin Hall of Fame stjörnu sem þykir mikill heiður í skemmtanabransanum. Þá má sjá eiginmann Jennifer, Marc Anthony, og Randy Jackson einn af dómurum American Idol keppninnar í myndasafni.

Lífið

Bieber setur konuilmvatn á markað

Söngvarinn Justin Bieber setur á markað konuilmvatn, sem ber heitið Someday, eftir 25 daga. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá auglýsingu ilmvatnsins. Í tilkynningu frá söngvaranum er skýrt tekið fram að Justin lét gera ómótstæðilegan ilm fyrir aðdáendur sína sem eru ófáir um víða veröld. Hann fær ekki nóg af því að lykta af Someday ilminum.

Lífið

Tenórinn í Hörpu með grúppíuhóp

Hátt í fjögur hundruð erlendir aðdáendur þýska tenórsins Jonasar Kaufmann voru í Eldborgarsal Hörpunnar þegar hann þandi raddböndin með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð Reykjavíkur. Margra mánaða og jafnvel ára bið er eftir miðum á tónleika Kaufmanns í Evrópu.

Lífið

Úr tónlist í tískuna

Plötuútgefandinn Haraldur Leví Gunnarsson opnaði tískuverslunina Lólu við Laugaveg 55 ásamt kærustu sinni, Eddu Ýr Aspelund, í gær. Verslunin selur notaðan fatnað og er hver flík sérvalin af Haraldi og Eddu. "Við ætluðum okkur að opna verslun síðasta sumar en það varð ekkert úr því þá. Við ákváðum því að kýla á þetta í sumar og höfum nú unnið hörðum höndum að því að koma öllu í stand. Við höfum staðið hér undanfarna daga með pensil í hönd og unnið að því að koma húsnæðinu í almennilegt stand," segir Haraldur Leví sem einnig er eigandi hljómplötuútgáfunnar Record Records og fyrrum trymbill hljómsveitanna Lödu Sport og Lifun.

Lífið

Mikið rétt fallega fólkið sigraði

Hugmynd okkar sem komum að keppninni Goð og Gyðjur var að finna einstaklinga sem hafa sterka sjálfsvirðingu og hafa ákveðið að fara vel með anda sinn, sál og líkama, sagði Ósk Norðfjörð spurð út í keppnina sem hún hélt síðustu helgi. Sigurvegararnir Björn M. Sveinbjörnsson, 33 ára, lögreglumaður og Íris María Bjarkardóttir, 23 ára, nemi voru leyst út með gjöfum. Ljósmyndarinn Sveinbi hjá Superman.is tók flestar myndirnar í meðfylgjandi myndasafni.

Lífið

Sigraði fatahönnunarkeppni fyrir barnshafandi konur

Meðfylgjandi myndir voru teknar í versluninni Tvö Líf þegar úrslitin í samvinnuverkefni milli fatahönnunarnema Listaháskóla Íslands og verslunarinnar Tvö líf, sem selur fatnað fyrir konur á meðgöngu, voru kynnt. Hera Guðmundsdóttir nemandi á öðru ári í fatahönnun sigraði en hún ásamt fleiri nemenda tóku þátt í námskeiði undir leiðsögn Lindu Bjargar, fagstjóra fatahönnunarbrautar, þar sem markmiðið var að hanna fatalínu fyrir Tvö líf. Hver nemandi hannaði tíu alklæðnaði fyrir barnshafandi konur. Tvö Líf á Facebook.

Lífið

Íslensk list í skýjunum

Meðfylgjandi myndskeið var tekið þegar Iceland Express í samvinnu við listahópinn VIÐVERA setti formlega í gang sameiginlegt verkefni sem snýr að kynningu á íslenskum listamönnum og verkum þeirra um borð í vélum Iceland Express. Verkefnið kallast Listagallerí háloftanna og er listasýningin sem sýnd er um borð er í formi póstkortabókar sem seld er í vélum Iceland Express og í verslunum Eymundsson á jörðu niðri. Þá má einnig sjá myndir af starfsfólki Iceland Express fagna verkefninu.

Lífið

Ertu ekkert leið á sjúskaða lúkkinu stelpa?

Á milli þess sem Lindsay Lohan, 24 ára, vinnur í þágu samfélagsins í Los Angeles eftir að hún var dæmd fyrir að rjúfa skilorð þegar skartgripasali sakaði hana um að stela hálsmeni frá sér, situr hún fyrir. Eins og sjá má í myndasafni pósaði Lindsay í húðlituðum sundbol fyrir Plum Miamai tímaritið í gær.

Lífið