Lífið

Bítlarnir á frumsýningu

Eftirlifandi meðlimir Bítlanna voru á meðal gesta á frumsýningu nýrrar heimildarmyndar Martins Scorsese um George Harrison. Gítarleikarinn lést árið 2001 eftir baráttu við lungnakrabbamein. „Hann var frábær maður, virkilega góður náungi,“ sagði Sir Paul McCartney, sem mætti á sýninguna ásamt Ringo Starr. Leikstjórinn Scorsese, sem var í fimm ár að gera myndina, segist lengi hafa heillast af Harrison. „Mér fannst tónlistin hans fjalla um hluti sem ég gat tengt mig við. Ég leitaði huggunar og vonar í þeim og það var sérstök lífsreynsla að hlusta á tónlistina hans.“

Lífið

Opnar nýjan stað á afmælisdaginn

„Þetta verður stærsti staðurinn, í fermetrum talið,“ segir Friðrik Weisshappel, athafnamaður í Kaupmannahöfn. Hann opnar þriðja Laundromat-staðinn sinn í höfuðborg Danmerkur þann 6. desember en þá á hann einmitt afmæli, verður 44 ára.

Lífið

Ham á hátíðarfundi

Fjöldi vinsælla flytjenda á borð við rokksveitina Ham, Mugison, Lay Low, Diddú, Bjartmar Guðlaugsson og Fóstbræður, auk grínistans Ara Eldjárns, kemur fram á hátíðar- og baráttufundi SÁÁ í Háskólabíói í kvöld klukkan 20. Á undan fundinum verður í anddyrinu frá kl. 17.30 kynning á ýmsum 12 spora samtökum og félögum sem vinna með fíknisjúkdóminn.

Lífið

Talar við sjálfa sig

Ég tala endalaust við sjálfa mig. Bæði ég og barnfóstran mín tölum við okkur sjálfar og við erum stöðugt að afsaka það...

Lífið

Trommarar hittast í FÍH

Sýningin Trommarinn 2011 verður haldin í þriðja sinn í sal FÍH, Rauðagerði 27, á laugardaginn. Þar verða Tónastöðin og Hljóðfærahúsið/Tónabúðin með allt það nýjasta til sýnis í trommum og slagverki. Íslenskir trommarar sýna handverk sitt og nokkur vel valin trommusett verða til sýnis. Þá verður Guðmundi R. Einarssyni veitt heiðursviðurkenning fyrir ævistarf sitt. Landsþekktir trommarar stíga á svið, eða þeir Kristján B. Heiðarsson, Benedikt Brynleifsson, Kristinn Snær Agnarsson, Magnús Trygvason Elíassen og Ásgeir Óskarsson.

Lífið

Með soninn í fanginu

Breski leikstjórinn Guy Ritchie, 43 ára, og unnusta hans, Jacqui Ainsley, sem fæddi son þeirra í september, voru mynduð á LAX flugvellinum í Los Angeles. Eins og sjá má hélt leikstjórinn á syni sínu. Guy hefur verið uptekinn við að klára framhaldið af Sherlock Holmes ævintýrinu með Jude Law og Robert Downey í aðalhlutverkum. Guy var giftur Madonnu í tæp 8 ár.

Lífið

Hlátrasköllin ómuðu

Það voru reyndir menn sem stigu á stóra svið Þjóðleikhússins á fimmtudagskvöldið og frumsýndu leikritið Listaverkið fyrir fullum sal. Salurinn veltist um af hlátri á meðan Baltasar Kormákur, Hilmir Snær Guðnason og Ingvar E. Sigurðsson veltum vöngum yfir skjannahvítu listaverki.

Lífið

Engin stjörnumeðferð á Kaffibarnum

Danski leikarinn Ulrich Thomsen fagnaði að loknum dómnefndarstörfum sínum á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík með því að skella sér út á lífíð um helgina.

Lífið

Setti heimsmet í annað sinn

„Þetta er sætur sigur og líka mikill léttir,“ segir Hlynur Gunnarsson, sem gerði sér lítið fyrir og setti heimsmet í „skateboard stationary manual“ í versluninni Brimi í Kringlunni um helgina. Metið fólst í því að standa sem lengst á framdekkjum á hjólabretti án þess að afturdekkin snertu jörðina. Hlynur hélt jafnvægi í 7,59 mínútur.

Lífið

Blautt dansgólf í Höllinni

Laugardalshöllin stútfylltist af vongóðum dönsurum á laugardaginn þegar prufur fóru fram fyrir þáttinn Dans Dans Dans. Einn af þeim sem freistuðu gæfunnar var tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson.

Lífið

Leonardo DiCaprio á lausu

Blake Lively, 24 ára, og Leonardo DiCaprio, 36 ára, eru hætt saman samkvæmt tilkynningu sem fjölmiðlafulltrúi Blake sendi frá sér...

Lífið

Geggjaðir vinningar í Bylgjubingó

Við ætlum að spila bingó í útvarpinu og á netinu, segir Ívar Guðmundsson geðþekki útvarpsmaðurinn á Bylgjunni í meðfylgjandi myndskeiði spurður út í Bylgjubingó sem hófst á Bylgjunni í gær og stendur yfir í tvær vikur. Aðalvinningur leiksins er matur fyrir fjölskylduna í heilt ár, bílaleigubíll og eldsneyti í heilt ár. Sjá allt um bingóleikinn hér (Bylgjan.is).

Lífið

Seldu upp fimm Hörputónleika á einum degi

Það er óhætt að segja að miðasalan á Frostrósatónleikana hafi farið af stað með látum í gær. Á aðeins fjórum tímum seldust um 12 þúsund miðar er nú til að mynda uppselt á fimm tónleika í Eldborgarsal Hörpu. Þeirra á meðal eru tónleikar með norsku söngkonunni Sissel Kirkjebo og fleirum en miðarnir á þá kláruðust á aðeins um tíu mínútum.

Lífið

Kim keyrir um á kagga

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian, 30 ára, sótti nýja bílinn sinn í gær, hvítan Ferrari 458 Italia. Hún var umkringd upptökuvélum þegar hún brunaði heim...

Lífið

Eurowoman og Fricke á Airwaves

Blaðamenn frá þekktum erlendum fjölmiðlum verða gestir á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem hefst um miðjan október. David Fricke frá bandaríska tónlistartímaritinu Rolling Stone kemur til landsins, en nokkur ár eru liðin síðan hann mætti síðast á Airwaves. Hann hefur iðulega farið lofsamlegum orðum um íslenska tónlist.

Lífið

Enginn smá munur

Leikkonan Jessica Biel, 29 ára, var mynduð á flugvelli ein síns liðs á leiðinni í karabíska hafið. Hún gluggaði í bók á flugvellinum og sendi nokkur sms á meðan hún beið eftir útkalli í vél...

Lífið

Gera fleiri myndir um Þór

Fyrirtækið Caoz vill gera nokkrar teiknaðar framhaldsmyndir um Þór þrumuguð og persónur norrænu goðafræðinnar. Fyrsta myndin verður frumsýnd 14. október.

Lífið

Á háum hælum við Kleifarvatn

"Þetta gekk ágætlega, svona miðað við veður,“ segir Sara Nassim, framleiðandi hjá Pegasus. Fyrirtækið var bresku stúlknasveitinni The Saturdays innan handar um helgina þegar þær tóku upp myndband við nýjasta smell sinn, My Heart Takes Over, hér á landi.

Lífið

Sex hetjur fá bleiku slaufuna

Bleika slaufan, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, hófst á laugardaginn og hefur félagið einsett sér að selja 50 þúsund slaufur fram til 15. október...

Lífið

Pippa stelur senunni

Yngri systir hertogaynjunnar af Cambridge, Pippa Middleton, 28 ára, mætti í rauðum síðkjól á galadansleik í London í gær sunnudag...

Lífið

Fitnessfoli í fantaformi

Jú jú þessu fylgir náttúrulega áreiti, svarar Helgi Bjarnason spurður út í athyglina sem fitness-folar eins og hann verða fyrir þegar við hittum hann á æfingu í Sporthúsinu í morgun til að forvitnast hvernig hann undirbýr sig fyrir Fitness módel keppnina í Evrópumóti WBFF sem fram fer í Laugardalshöll 5. nóvember næstkomandi. Þá má einnig sjá Svavar Jóhannson einn af mótshöldurunum í meðfylgjandi myndskeiði. Heimasíða WBFF.

Lífið