Lífið

Ævintýri að spila með Allen

Samúel Jón Samúelsson er mjög spenntur fyrir tónleikum Stórsveitar sinnar og nígeríska trommuleikarans Tony Allen. Þeir hittust fyrst á klúbbi í London og hafa verið í sambandi síðan.

Lífið

Brestir í sambandinu

Leikararnir Sean Penn og Scarlett Johansson hafa verið að stinga saman nefjum um nokkurt skeið. Tímaritið The Enquirer heldur því fram að Penn sé þó orðinn svo stjórnsamur að Johansson þoli ekki lengur við.

Lífið

Travolta sem Gotti

John Travolta hefur samþykkt að leika hinn alræmda glæpaforingja John Gotti í nýrri kvikmynd um ævi hans. Travolta hefur verið orðaður við hlutverkið í dálítinn tíma og stutt er síðan fregnir bárust af fundi hans og Johns Gotti yngri. Hann hefur lagt blessun sína yfir aðild Travolta að myndinni, rétt eins og systir hans Victoria. Myndin heitir Gotti: Three Generations og leikstjóri verður Nick Cassavetes. Travolta lék síðast í hasarmyndinni From Paris With Love þar sem Jonathan Rhys Meyer lék á móti honum.

Lífið

Hrósar mömmu

Leikkonan Kate Hudson segist varla eiga orð yfir ágæti móður sinnar, Goldie Hawn, í viðtali við Daily Express. „Móðir mín lítur frábærlega út og er í rosalega formi miðað við aldur. Hún er að verða 65 ára og samt í betra formi en ég,“ segir Hudson en hún á von á sínu öðru barni með söngvara Muse, Matt Bellamy. „Ég er viss um að mamma á eftir að lifa lengur en við öll með þessu áframhaldi enda lítur hún betur út með hverju árinu.“

Lífið

Murray sem Roosevelt

Leikarinn Bill Murray ætlar að túlka 32. forseta Bandaríkjanna, Franklin Delano Roosevelt, í nýrri kvikmynd sem er í bígerð.

Lífið

Hringlaus Bretaprins

Nú styttist óðum í hið konunglega brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton. Tímaritið People hefur þó heimildir fyrir því að hinn tilvonandi brúðgumi neiti að bera hring á fingri.

Lífið

Tvær myndir um Þyrnirós í bígerð

Hailee Steinfeld, sem sló eftirminnilega í gegn í Coen-vestranum True Grit, hefur verið ráðin til að leika Þyrnirós í nýrri Hollywood-kvikmynd. Ekki er búið að ráða leikstjóra myndarinnar en búast má við því að myndin verði fokdýr og stefnt verði að því að setja aðsóknarmet. Samkvæmt fyrstu fréttum segir myndin frá því þegar Þyrnirós er flutt yfir í furðulegan heim drauma sem vonda stjúpan stendur fyrir.

Lífið

Góðir gestir á frumsýningu

Gamanmyndin Kurteist fólk í leikstjórn Ólafs Jóhannessonar var frumsýnd í Laugarásbíói á miðvikudagskvöld. Góðir gestir mættu á sýninguna, sem heppnaðist einkar vel.

Lífið

Sænskir blaðamenn bítast um hlutverk

Fréttamenn sænska ríkissjónvarpsins bítast nú innbyrðis um lítið aukahlutverk í amerísku útgáfunni af Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson. Um 100 blaðamenn SVT sóttu um að komast á hvíta tjaldið og láta ljós sitt skína en aðstandendur myndarinnar bjuggust ekki við svo góðum viðtökum.

Lífið

Sólóferill Friðriks fær fljúgandi start

"Þetta gekk alveg eins og í lygasögu,“ segir tónlistarmaðurinn Friðrik Ómar. Hann hélt á miðvikudagskvöld sína fyrstu tónleika í Svíþjóð, þar sem hann hefur búið undanfarin misseri.

Lífið

Bæ bæ vöðvabólga og stífar axlir

Jóhanna Karlsdóttir og Þórunn Unnarsdóttir hot jóga kennarar í Sporthúsinu segja í meðfylgjandi myndskeiði frá íþróttinni. Þá sýna þær einnig nokkrar auðveldar teygjuæfingar sem hjálpa til við að losa um stífar axlir og streituna sem á það til að myndast í hálsi, öxlum og niður hrygginn við langa setu fyrir framan tölvuskjá.

Lífið

Sumar geirvörtur eru óþekkari en aðrar

Úkraínska fyrirsætan og leikkonan Milla Jovovich, 36 ára, vakti óskipta athygli nærstaddra þegar hún mættí í 80 ára afmælisveislu Mikhail Gorbachev sem haldin var í Royal Albert Hall í London í fyrradag þegar hægri geirvartan hennar stal óvænt senunni eins og meðfylgjandi myndir sýna greinilega. Leikararnir Kevin Spacey og Sharon Stone stjórnuðu afmælisveislunni en á meðal gesta voru Arnold Schwarzenegger og Lech Walesa. Burtséð frá geirvörtunni var Milla stórglæsileg.

Lífið

Var nær dauða en lífi eftir fósturmissinn

Breska söngkonan Lily Allen hefur nú tjáð sig um veikindi sín, en hún missti fóstur í nóvember í fyrra sökum blóðeitrunar. Í heimildarmynd sem gerð var um söngkonuna segist hún hafa legið á milli heims og helju vegna veikindanna.

Lífið

Þessu liði leiddist greinilega ekki

Fyrra undanúrslitakvöldið í keppninni um Trúbador FM957 2011 í samvinnu við Corona fór fram á skemmtistaðnum Players í gærkvöldi. Eins og meðfylgjandi myndir sýna þá var stemningin gríðarlega góð og var fólk greinilega komið til að hlusta á góða tónlist og skemmta sér vel.

Lífið

Steindi frumsýnir fyrirsætuna Særúnu Ósk

Næstkomandi fimmtudag hefur göngu sína á Stöð 2 sú þáttaröð sem margir Íslendingar eru bíða spenntastir eftir að sjá þetta árið, Steindinn okkar 2. Steindi sló rækilega í gegn í síðustu þáttaröð og hefur það litla sem sést hefur af nýju þáttunum lofað góðu.

Lífið

Fór í alþjóðlegar vinnubúðir til Búdapest

„Ég fékk mjög mikið út úr þessari ferð og tek mikinn lærdóm með mér aftur heim,“ segir Frosti Jón „Gringo“ Runólfsson kvikmyndagerðamaður en hann er nýkominn til landsins eftir átta daga dvöl í alþjóðlegum vinnubúðum kvikmyndagerðarmanna í Búdapest, sem nefnast Moving Districts.

Lífið

Ásgeir stofnar Kolb Entertainment

„Þetta er bara fyrirtæki sem á að vera notað í kringum þann rekstur sem ég er í. Nafnið er síðan náttúrlega snilld,“ segir Ásgeir Kolbeinsson um nýstofnað fyrirtæki sitt, Kolb Entertainment.

Lífið

Alvarlegt samband

Leikkonan Scarlett Johansson mætti með Sean Penn upp á arminn í brúðkaup Reese Witherspoon og Jim Toth í síðustu viku og þykir það sanna að parið sé sannarlega miklu meira en aðeins vinir.

Lífið

Lék aðalhlutverkið í háleynilegri bílaauglýsingu

„Það borgar sig stundum að vera pattaralegur,“ segir Víkingur Kristjánsson, sem leikur stórt hlutverk í nýrri auglýsingu fyrir hina smávöxnu bílategund BMW-bílarisans, Mini Cooper. Auglýsingin var tekin upp hér á landi fyrir skemmstu.

Lífið

Fáðu nýtt lag Ragnheiðar frítt - Tónleikar fyrir útvalda í kvöld

Söngkonan Ragnheiður Gröndal undirbýr um þessar mundir útgáfu næstu breiðskífu sinnar og heldur af því tilefni tónleika í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í kvöld. Aðdáendur söngkonunnar geta náð sér í fyrstu smáskífuna af plötunni á Tónlist.is en hún er frí í takmarkaðan tíma.

Lífið

Nýtt Líf birtir myndir úr brúðkaupi Anítu Briem

"Það er okkur á Nýju Lífi mikill heiður að fá að deila ástarsögu Anítu Briem og Dean, eiginmanns hennar með lesendum okkar og stóra deginum þeirra í máli og myndum," segir Kolbrún Pálína Helgadóttir ritstjóri tímaritsins spurð út í áberandi fallega myndasyrpu sem birtist samhliða einlægu viðtali við Anítu Briem leikkonu um brúðkaupsdaginn hennar sem ljósmyndarinn Daníel Harðarson myndaði. Brúðkaupsmyndirnar eru ótrúlega fallegar eins og leikkonan sjálf. Hafa þær birst í erlendum tímaritum? "Já myndirnar úr brúðkaupinu, sem fram fór á grísku eyjunni Santorini seint á síðasta ári birtust á síðum OK Magazine, ásamt teikningum af brúðarkjól Anítu undir fyrirsögninni Anita Briem's Island Dream," svarar Kolbrún og heldur áfram: "Áhugi erlendra fjölmiðla á brúðkaupi Anítu og Dean er skiljanlegur þar sem þau hjónin eru bæði rísandi stjörnur í kvikmyndaheiminum. Hún sem leikkona og hann sem leikstjóri en framundan er einmitt fyrsta verkefnið þeirra saman þar sem hann mun leikstýra henni," segir Kolbrún. "Tilgangur brúðarblaðs Nýs Lífs er að segja fallegar sögur af ástinni, gefa innblástur að gæsun, steggjun og að sjálfsögðu öllu sem við kemur sjálfum brúðkaupsdeginum," segir Kolbrún áður en kvatt er. Nýtt Líf á Facebook.

Lífið

Dana í kjól frá Gaultier

Ísraelska söngkonan Dana International mun klæðast kjól eftir tískuhönnuðinn heimsfræga Jean-Paul Gaultier í Eurovision-keppninni í maí.

Lífið

Fegðin aftur með tónleika

Feðginin Lára Rúnars og Rúnar Þórisson halda tónleika á Faktorý í kvöld. Í nóvember spiluðu þau saman á Fuglabúrstónleikum en í þetta sinn stíga þau á svið í sitt hvoru lagi.

Lífið

Jodie Foster stendur með Gibson

Jodie Foster stendur þétt við bakið á hinum ástralska vandræðagemsa, Mel Gibson. Gibson leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni, The Beaver, sem Foster bæði leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í en hún var frumsýnd fyrir fullum sal á SXSW-hátíðinni á þriðjudagskvöld.

Lífið