Lífið
Bert á milli og bling Ungstirnið Miley Cyrus sýndi tónaðan magann í athyglisverðu dressi á iHeartRadio-tónlistarhátíðinni í Las Vegas um helgina.. Lífið 23.9.2012 13:45
Verst nærbuxnatökum Rokkaradóttirin Kelly Osbourne hefur ýmis brögð uppi í erminni til að koma í veg fyrir að papparassa-ljósmyndarar nái myndum af hennar allra heilagasta. Í sjónvarpsviðtali nýverið lýsti Osbourne reynslu sinni af ljósmyndurum sem hreinlega leggjast á hnén gagngert til að ná myndum af nærbuxum til að selja slúðurblöðum. „Þeir eru stundum svo svæsnir að þeir leggjast á hnén til að ná góðu skoti upp pilsfaldinn hjá manni. Besta vörnin er að sparka í átt til þeirra. Þá láta þeir þetta svæði vera,“ segir Osbourne, sem hefur þó skilning á starfi ljósmyndaranna. „Þetta er fylgifiskur frægðarinnar og það hjálpar að vera almennilegur við þá. Þetta er nú einu sinni vinnan þeirra, þótt við hötum þetta.“ Lífið 22.9.2012 21:00
Búin að missa öll óléttukílóin Hills-skvísan Kristin Cavallari var ekki lengi að skafa af sér meðgöngukílóin ef marka má vinkonu hennar. Lífið 22.9.2012 20:38
Giftir sig í Valentino Leikkonan Anne Hathaway trúlofaðist leikaranum Adam Shulman í nóvember í fyrra eftir þriggja ára tilhugalíf. Brúðkaupið er á næsta leyti og staðfestir hönnuðurinn Valentino Garavani að Anne muni ganga upp að altarinu í Valentino-kjól. Lífið 22.9.2012 19:47
Veitir fólki innblástur með risaverki "Það þarf að lífga upp á þetta hverfi því þarna er lítið útsýni. Vonandi veitir þessi mynd fólki innblástur,“ segir listakonan Rafaella Brizuela Sigurðardóttir. Lífið 22.9.2012 19:00
Rihanna á strippklúbb Barbados-bjútíið Rihanna ákvað að skella sér á strippklúbb í vikunni og deildi auðvitað reynslu sinni á Twitter. Lífið 22.9.2012 18:04
Miley Cyrus spreðar í sportbíl Turtildúfurnar Miley Cyrus og Liam Hemsworth eiga greinilega nægan pening því þær keyptu sér nýverið McLaren-sportbíl á eitthvað yfir tvö hundruð þúsund dollara, tæpar 25 milljónir króna. Lífið 22.9.2012 17:07
Epísk tískuslys á rauða dreglinum Emmy-verðlaunahátíðin verður haldin hátíðleg á sunnudaginn. Þar keppast stjörnurnar í Hollywood ekki aðeins um verðlaunastyttu heldur líka hver getur borið af á rauða dreglinum. Lífið 22.9.2012 16:00
Master of Puppets best Master of Puppets með Metallica hefur verið kjörin besta þungarokksplata allra tíma af lesendum bandaríska tímaritsins Rolling Stone. Í öðru sæti lenti Paranoid með Black Sabbath, og Sabbath átti einnig plötuna í þriðja sæti sem er samnefnd sveitinni. Lífið 22.9.2012 14:00
Júlíus Kemp kveikir líf í Korteri „Ég taldi einfaldlega að sagan væri gott efni í kvikmynd,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Júlíus Kemp. Framleiðslufyrirtæki hans og Ingvars Þórðarsonar, Kvikmyndafélag Íslands, hefur fest kaup á kvikmyndaréttinum að skáldsögunni Korter eftir Sólveigu Jónsdóttur. Lífið 22.9.2012 12:00
Sigurjón digri vígður formlega Það vantar ekki frumlegheitin og fjörið þegar þeir Simmi og Jói eiga í hlut en þeir vígðu nýjan hamborgara á Hamborgarafabrikkunni, í gær sem ber nafnið Sigurjón digri, og sömuleiðis eina frægustu tertu Íslandssögunnar, Astraltertu, sem aldrei hefur verið bökuð áður. Sigurjón digri og Astraltertan komu fyrir í Stuðmannamyndinni Með allt á hreinu eins og alþjóð veit en myndin er þrjátíu ára um þessar mundir. Eins og sjá má á myndunum mætti hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn, og tóku lagið Sigrujón digra við mikinn fögnuð matargesta Hamborgarafabrikkunnar. Sindri Sindrason mætti á staðinn en vigslan sýnd í Íslandi í dag á Stöð 2 á mánudaginn kemur strax að loknum kvöldfréttum. Lífið 22.9.2012 10:00
Auðmjúkur gagnvart verkinu Þormóður Dagsson og hljómsveit hans Tilbury hafa tekið upp ábreiðu af lagi Nýdanskrar, Á sama tíma að ári. Útgáfa Tilbury hljómar í samnefndri leiksýningu sem verður frumsýnd á næstunni í Borgarleikhúsinu. Lífið 22.9.2012 10:00
Uma snýr aftur Leikkonan Uma Thurman var svo sannarlega glæsileg í galaveislu í New York á miðvikudagskvöldið en þetta var fyrsta partíið sem hún mætir í síðan hún eignaðist sitt þriðja barn um miðjan júlí. Lífið 21.9.2012 23:00
Dóttir Jessicu stal senunni Jessica tók hrikalega sætar myndir af litlu dúllunni og setti þær á Twitter-síðu sína. Lífið 21.9.2012 21:00
Stjörnubörn með litað hár Stjörnubörnin í Hollywood fá frjálsar hendur þegar kemur að hárinu og eru þau ansi ung þegar þau lita það í fyrsta sinn. Lífið 21.9.2012 20:00
Húllumhæ hjá ´78 á morgun Samtökin ´78 ætla að byrja vetrarstarf sitt með sannkölluðu Hausthúllumhæi á morgun! Flóamarkaður og gleði að Laugavegi 3, fjórðu hæð. Þá verður Fjölskylduhjálp Íslands með glæsilegan vintage kjólamarkað, allt söluandvirði rennur óskipt til Fjölskylduhjálparinnar. Lífið 21.9.2012 18:31
Lady Gaga er ólétt Mikið hefur verið slúðrað um Lady Gaga og skyndilega þyngdaraukningu hennar en lafðin er með aðeins meira kjöt á beinunum þessa dagana. Lífið 21.9.2012 18:00
Rautt frumsýnt í Borgarleikhúsinu í kvöld Rautt, margverðlaunað meistaraverk John Logan, verður frumsýnt á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu í kvöld, 21. september. Rautt er leikrit um einn áhrifamesta listamann tuttugustu aldarinnar, Mark Rothko, baráttu hans við sjálfan sig - eða öllu heldur við goðsögnina um sjálfan sig - og hinn eilífa ótta listamannsins við að verða úreltur. Verkið var sýnt á West end og Broadway við fádæma undirtektir þar sem leikararnir Alfred Molina og nýstirnið Eddie Redmayne fóru með hlutverk Rothko og aðstoðarmanns hans, Ken. John Logan er margreyndur leikrita og handritshöfundur, skrifaði meðal annars handrit að kvikmyndunum Gladiator, The Aviator og Hugo og er einn þriggja höfunda að handriti næstu James Bond myndar, Skyfall. Guðrún Vimundardóttir þýddi Rautt, Kristín Jóhannesdóttir leikstýrir, Jóhann Sigurðarson og Hilmar Guðjónssons fara með hlutverk Rothko og Ken. Leikmynd og búninga hannar Helga I. Stefánsdóttir og lýsingu annast Björn Bergsteinn Guðmundsson. Sagan „Það er harmleikur fólginn í hverri pensilstroku“ sagði Mark Rothko um eigin verk. Hann var einn mikilvægasti málari 20. aldarinnar og tók að sér eitt stærsta verkefni listarsögunnar fyrir áður óþekkta upphæð. Þrátt fyrir þennan heiður sækja að honum efasemdir og innri átök brjótast fram í samskiptum hans við unga aðstoðarmanninn, Ken. Átökin eru ekki aðeins milli meistara og lærlings heldur fulltrúa nýrra tíma og hins helga konungs myndlistarinnar. Ólík viðhorf til lífsins takast á og um leið afhjúpast ævi aðstoðarmannsins; sorglegir atburðir fortíðar knýja dyra og átökin hafa óvæntar afleiðingar. Þótt báðir komi sárir úr því einvígi hafa þeir engu að síður unnið sigur, hvor á sinn hátt. Verkið Rautt hefur sópað til sín verðlaunum víða um heim á síðustu árum. Meðal annars hlaut það hin virtu Tony verðlaun árið 2010. Lífið 21.9.2012 16:30
Fleiri útlendingar í ár Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves fer fram dagana 31. október til 4. nóvember. Lífið 21.9.2012 16:19
Bæ bæ skinka - halló náttúrulegt útlit Mónika Kavalaite og Arnar Tómasson hárgreiðslumeistarar á hárgreiðslustofunni Salon Reykjavík eru nýkomin heim frá París þar sem þau sóttu sýningu á vegum heimssamtakanna Haute Coiffure Francaise. Lífið spurði meistarana um nýjustu straumana þegar kemur að hári. "Sýningar á vegum samtakanna eru haldnar tvisvar á ári en við förum alltaf á þær til að taka sumar- og vetrarlínuna inn. Haustlínan í ár ber heitið V.O. en það stendur fyrir Original Version. Það nýjasta í hári er þegar litir eru annars vegar. Þá er það dökkur grunnur sem er lýstur upp með karmellulitum strípum inn á milli. Þannig kemur falleg hreyfing í hárið." segir Arnar. Skoða myndir sem teknar voru á umræddri sýningu hér. "Náttúrulegt útlit og mikil mýkt í litunum eru áherslurnar í ár en ljósu litirnir eins og svokallaður skinku-litur alveg búinn. Nú er fallegur beislitaður tónn ríkjandi undir og fallegar aflitunarstrípur settar í hárið inn á milli. Hárrótin verður þar af leiðandi ekki eins ljós. Lína einkennist líka mikið af bylgjum og hreyfing í dag. Við eigum allt önnur tæki í dag og aðferðirnar eru nútímalegri og efnin að sama skapi. Glamúrinn, elegans og stærra og mýkra hár er inni," segir Arnar. Hjá herrum er gamla útlitið komið til baka ef við tökum sem dæmi hárgreiðslu James Dean og Elvis Presley. Facebooksíða Salon Reykjavik. Lífið 21.9.2012 15:30
Með kennslu hjá Fallon Tískubloggarinn Tavi Gevinson var gestur í spjallþætti Jimmy Fallon og spjallaði þar um tískuvikuna í New York. Gevinson kenndi Fallon einnig að setja upp vanþóknunarsvip. Lífið 21.9.2012 15:00
Robbie Williams frumsýnir dóttur sína Breski söngvarinn og Íslandsvinurinn Robbie Williams, 37 ára, og eiginkona hans, Ayda Field, eignuðust stúlku á þriðjudaginn var... Lífið 21.9.2012 14:45
Ég er hamingjusamlega kvæntur Spænski sjarmörinn Javier Bardem prýðir aðra af tveimur forsíðum októberheftis tímaritsins GQ. Lífið 21.9.2012 14:15
Latibær á 100 milljón heimilum „Þetta er algjörlega frábært,“ segir Guðmundur Magnason hjá Latabæ. Lífið 21.9.2012 13:00
Þakklæti galdurinn á bak við gott hjónaband Hver man ekki eftir brúðkaupsþættinum Já í umsjón Elínar Maríu Björnsdóttur athafnakonu með meiru? Lífið tók þessa ævintýragjörnu og atorkusömu konu tali sem býr nú í Svíþjóð með fjölskyldu sinni og sinnir frumkvöðlastarfi sem Practice Leader Education.... Lífið 21.9.2012 13:00
Sjónvarpsstjarna frumsýnir frumburðinn Sjónvarpsstjarna E! stöðvarinnar, Giuliana Rancic, frumsýndi frumburðinn sinn á Twitter í gær. Drengurinn, sem mætti galvaskur með mömmu sinni í vinnuna aðeins þriggja vikna gamall, fæddist með hjálp staðgöngumóður... Lífið 21.9.2012 13:00
Ekki ólétt Korter eftir leynilegt brúðkaup Blake Lively og Ryan Reynolds og slúðurheimurinn logar yfir því að væntanlegur Lively-Reynolds erfingi sé á leiðinni í heiminn. Hollywoodparið sem gifti sig fyrir tveimur vikum hefur hinsvegar sent frá sér tilkynningu um að þau eigi ekki ennþá von á barni... Lífið 21.9.2012 11:00
Óvænt hlé á tónleikum Söngdívan Andrea Gylfadóttir fagnaði fimmtíu ára afmæli sínu með stórtónleikum í Eldborgarsal Hörpu um síðustu helgi. Lífið 21.9.2012 09:53
Tryggvi og sósíalistarnir Á Facebook-síðu sinni greinir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, frá því að hann hafi í vikunni hitt fyrrum forsætisráðherra Grikklands og formann Sósíalistaflokksins, George Papandreou, í Harvard Law School og átt við hann "athyglisvert samtal". Með færslunni birtir hann mynd af sér og Papandreou að takast í hendur. Lífið 21.9.2012 09:48
Notar sömu aðferð og Ítalirnir ,,Þetta er sama aðferð og Ítalirnir notuðu þegar þeir fundu upp hinn himneska espresso drykk,“ segir Halldór Guðmundsson... Lífið 21.9.2012 09:30