Lífið

660.500 krónur til Mottumars

Aðstandendur ELO-heiðurstónleikanna í Eldborgarsalnum á dögunum hafa afhent 660.500 krónur til Krabbameinsfélagsins. Ákveðið var fyrir tónleikana að 500 krónur af hverjum seldum miða myndu renna til styrktar Mottumars og gekk miðasalan mjög vel.

Lífið

27 kíló farin

Chaz Bono, sonur tónlistarfólksins Sonny Bono og Cher, er búinn að breyta rækilega um lífsstíl og búinn að léttast um 27 kíló síðustu mánuði.

Lífið

Tónleikar í sænskri setustofu

Hljómsveitin Árstíðir voru að ljúka þriggja vikna tónleikaferðalagi um Evrópu ásamt sænsku progg-þungarokkhljómsveitinni Pain of Salvation, sem Ragnar Sólberg leikur með, og hollensku söngkonunni Anneke Van Giersbergen.

Lífið

Þeytibrandur sigurvegari

Rapparinn Þeytibrandur bar sigur úr býtum í Rappþulunni sem var haldin í fyrsta sinn um helgina. Um er að ræða keppni fyrir sextán ára og eldri og fór hún fram í ungmennahúsinu Molanum í Kópavogi.

Lífið

Of gömul til að leika Stevie Nicks

Stevie Nicks, söngkona Fleetwood Mac, hefur slökkt í vonum Reese Witherspoon um að hún leiki hana í væntanlegri kvikmynd. Nicks segir hina 37 ára Witherspoon einfaldlega of gamla fyrir hlutverkið.

Lífið

Sjáðu vonlausan hrekk Jennifer Aniston

Í tilefni af stöðugum hrekkjum unnusta síns ákvað Jennifer Aniston að reyna að bregða Ellen á sama hátt. Í ljós kom að hún er gjörsamlega vonlaus hrekkjalómur og brá Ellen ekki neitt.

Lífið

Ég vildi bara óska að ég hefði vaknað og séð þessa aumingja

"Þeir eða þau voru búin að taka allt upp úr hanskahólfinu og taka alla smápeninga sem voru í bílnum. Allir pappírar sem ég var að halda upp á út af ýmsum ástæðum voru allir gegnumsósa af hóstasafti. Ég held að þeir hafi nú orðið fúlir yfir að það voru ekki miklir peningar eða tölva í bílnum svo þeir hafa hellt þessu hóstasafti yfir öll sætin en þeir fundu það í hanskahólfinu hjá mér." "Það sem mig finnst rosalega furðulegt hversu frakkir þeir voru því bíllinn stóð innst inn í innkeyrslu hjá mér og innkeyrslan er mjög löng og hún rúmar alveg 10 bíla og ef ég horfi út um gluggann minn sé ég allan bílinn. Ég vildi bara óska að ég hefði vaknað og séð þessa aumingja." "Ég fékk svo mikið sjokk í morgun að ég fór strax að reyna að þrífa bílinn eins mikið og ég gat. Ég byrjaði að þrífa bílinn því það fyrsta sem ég hugsaði var að dóttir mín gæti ekki komið á seint í skólann út af þessum vitleysingum. Ég hringdi í lögguna og tilkynnti þetta um leið og ég var komin í vinnu og bíllinn minn þakinn handklæðum svo hægt væri að setjast inn í hann," útskýrir Aníta ósátt. "Það er bara hrikalegt að hugsa til þess að þessir vitleysingar voru bara nokkrum skrefum frá mér og dóttur minni og mjög súrt að hafa ekki vaknað." "Þetta er nátturulega hryllilegur ruddaraskapur að ryðjast inn í einkalíf manns og bara að vita af því að einhverjir ókunnugir eru búnir að skoða og leita í öllu mínu..." segir hún ósátt.

Lífið

Dúndur flott 65 ára gömul

Linda Rodin hefur átt góðan feril í tískuheiminum. Hún hefur lengi vel starfað sem stílisti, fyrirsæta og með sinn afgerandi fatastíl þá er Linda án efa ein svalasta kona New York borgar.

Lífið

Leikur með ljós og myrkur á Penumbra

Íris Hrund Þórarinsdóttir safnar fyrir nýrri plötu á vefsíðunni Karolinafund.com. Erlendur leikstjóri heillaðist af lagi og bauðst til að taka upp tónlistarmyndband.

Lífið

Þú þolir þetta ákveðið lengi

,,En með þetta eins og allt hefur sinn líftíma. Þú þolir þetta ákveðið lengi held ég. Þessi vinnutími krefst aga og í raun stimplar þú þig aldrei úr vinnunni. Þú ert alltaf með augu og eyru opin fyrir efnistökum og því sem er að gerast."

Lífið

Bieber hunsar ömmu sína og afa

George Bieber, afi tónlistarmannsins Justins Biebers, er ekki parsáttur við afabarnið sitt. George er afar veikur og fær enga hjálp frá poppprinsinum.

Lífið

Reese Witherspoon handtekin

Reese Witherspoone og eiginmaður hennar, James Toth, voru handtekin og fangelsuð í stutta stund á föstudaginn í Atlanta í Bandaríkjunum. Toth ók undir áhrifum áfengis og var stöðvaður af lögreglunni.

Lífið

Þarna var greinilega stuð

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Bunk barnum á laugardaginn þegar Jónas Sigurðsson, Ari Eldjárn og Sigríður Thorlacius voru á meðal þeirra sem mættu á stefnumót við Bjarta framtíð. Fullt var út úr dyrum og afmælisbarnið Heiða Kristín Helgadóttir fékk afmælissöng frá gestum. Þá flutti Guðmundur Steingrímsson ræðu og greip svo í nikkuna eins og sjá má á myndunum.

Lífið

Mætti á listasýningu mömmu sinnar

Guðmundur Steingrímsson gaf sér tíma frá kosningabaráttunni og heiðraði Eddu móður sína þegar hún opnaði sýningu ásamt fleirum í Eiðisskeri, sýningarsal Seltirninga á föstudaginn var.

Lífið

Hamingja í Hafnarfirði

Eins og sjá má á myndunum var mikið um dýrðir í Hafnarfirði þegar 450 konur komu saman á árlegri Gyðjugleði. Bak við gleðina stóðu Ása Karín ráðgjafi hjá Capacent, Linda framkvæmdastjóri Hress, Málmfríður eigandi Carita-Snyrting og Sigga gullsmiður hjá Siggu&Timo.

Lífið

Grillið opnar með stæl

Meðfylgjandi myndir voru teknar á föstudaginn var þegar Grillið, veitingahúsið sem er á efstu hæð Hótel Sögu, var formlega opnað eftir gagngerar endurbætur á húsnæðinu. Eins og sjá má var fjölmennt og ekki síður góðmennt á opnunni.

Lífið

Stílpíur slást

Tískugúrúinn Alexa Chung og leikkonan Chloe Moretz fengu sér báðar þennan krúttlega kjól frá Simone Rocha.

Lífið