Innlent
Engin framhaldsaðstoð í boði fyrir Sigmar eftir dvölina á Vogi Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, leitaði sér hjálpar á Vogi í sumar. Hann hefur miklar áhyggjur af dauðsföllum hér á landi af völdum fíknisjúkdóms. Tólf manns hafi látist í fyrra á meðan bið stóð eftir plássi í framhaldsmeðferð. Staðreyndin sé sú að það kosti engar óskaplega fjárhæðir að kippa þessu í liðinn. Mun minna en mislæg gatnamót svo dæmi sé tekið. Innlent 21.9.2023 11:12
Segir Sjálfstæðisflokk vilja blása báknið út Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sendir Sjálfstæðisflokknum skeyti sem undan hlýtur að svíða. Hann segir flokkinn bara flokk hins opinbera sem líði vel að þenja kerfið út, leggja auknar álögur á fólk í stað þess að fara vel með og sækja fjármuni á þá staði þar sem þeir raunverulega eru. Innlent 21.9.2023 11:10
Vinna að því að uppfylla kröfur MAST Hvalur hf. vinnur að því að uppfylla skilyrði Matvælastofnunar til að Hvalur 8 fái aftur að halda á miðin. Hvalur 9 lagði frá bryggju síðdegis í gær eftir brælu dagana á undan. Innlent 21.9.2023 10:38
Ákærður fyrir ólöglegan vopnaflutning á Akureyri Lögregla á Norðurlandi eystra hefur ákært 35 ára karlmann fyrir vopnalagabrot með því að hafa flutt skotvopn með ólöglegum hætti og undir áhrifum áfengis. Innlent 21.9.2023 10:34
Hreinn hættur og Björg Ásta ráðin aðstoðarmaður Björg Ásta Þórðardóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Guðrúnar Hafsteinsdóttur, dómsmálaráðherra. Hún tekur við af Hreini Loftssyni, sem hefur látið af störfum. Innlent 21.9.2023 10:07
Bein útsending: Áskoranir og tækifæri sveitarfélaga á Fjármálaráðstefnu Fjármálaráðstefna sveitarfélaga fer fram á Hilton Reykjavík Nordica í dag og á morgun. Þar kemur sveitarstjórnarfólk saman til skrafs og ráðagerða varðandi fjármál og verkefni sveitarfélaga, ásamt því að ræða þau mál sem efst ber á baugi í sveitarstjórnarmálum. Innlent 21.9.2023 09:31
Bein útsending: Málþing um vistkerfisnálgun í umgengni við og nýtingu náttúru Íslands Matvælaráðuneytið og BIODICE standa fyrir málþingi um vistkerfisnálgun við nýtingu auðlinda á Hilton Nordica milli klukkan 9 og 12:30 í dag. Innlent 21.9.2023 08:31
Býður sig fram til forseta Ungs jafnaðarfólks Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir hefur gefið kost á sér í embætti forseta Ungs jafnaðarfólks. Lilja Hrönn er 22 ára laganemi við Háskóla Íslands og nemi í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri, auk þess að vera varaforseti Ungs jafnaðarfólks. Innlent 21.9.2023 08:19
Hulunni svipt af banamanni Guðmundar Kambans Nafn danska andspyrnumannsins, sem banaði rithöfundinum Guðmundi Kamban í Kaupmannahöfn árið 1945, hefur verið sveipað leyndarhjúp í rúm 78 ár. Sá hét Egon Alfred Højland. Innlent 21.9.2023 07:46
„Þetta var eins og sprenging“ Sendibílstjóri sem fékk fólksbíl aftan á sig á miklum hraða við Stekkjarbakka í Breiðholti um helgina segir það hafa verið líkt og sprengingu að fá bílinn aftan á sig. Hann segist þakka guði fyrir að bíllinn hafi lent á sínum sendibíl frekar en öðru ökutæki, vegna þess hve illa það hefði getað farið. Innlent 21.9.2023 06:01
Fólk ryðjist inn í grunnskóla með ásakanir gegn kennurum Kynfræðslukennarar hafa setið undir ásökunum um barnaníð í kjölfar óvæginnar umræðu um nýþýdda kynfræðslubók fyrir grunnskólabörn sem nefnist Kyn, Kynlíf og allt hitt. Skipst var á skoðunum um kynfræðslu barna í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 20.9.2023 22:38
Eigum ekkert frábært handrit til að láta ofbeldismenn axla ábyrgð Talskona Stígamóta, Drífa Snædal, segir samfélagið ekki eiga nægilega gott handrit til að takast á við ofbeldismenn. Þessu vilja samtökin breyta og munu hefja það samtal á sérstakri ráðstefnu um ofbeldismenn sem fer fram í næsta mánuði. Innlent 20.9.2023 21:00
Covid að koma inn sem auka sumarveirupest Smitsjúkdómalæknir segir mikla aukningu Covid-smita hafa orðið í byrjun mánaðar. Hugsanlegt sé að Covid komi nú, auk Rhinoveirunnar, til með að ganga allan ársins hring. Innlent 20.9.2023 18:44
Rannsókn á hvarfi Magnúsar heldur áfram Rannsókn lögreglu á máli Magnúsar Kristins Magnússonar, sem leitað er í Dóminíska lýðveldinu, heldur áfram. Innlent 20.9.2023 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Greiðslubyrði fasteignalána mun hækka gífurlega næstu mánuði. Seðlabankastjóri telur tíma óverðtryggðra lána liðinn lækki vextir ekki. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við bankastjóra Landsbankans hvetur fólk til að endursemja um lánakjör áður en í óefni fer. Innlent 20.9.2023 17:59
Óvissustigi aflýst á Austfjörðum Óvissustigi almannavarna hefur verið aflýst á Austurlandi. Ríkislögreglustjóri ákvað þetta í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi. Innlent 20.9.2023 17:12
Boða skyttur Hvals á skotæfingu á sjó Matvælastofnun hefur tjáð Hval hf. að hvalveiðiskipið Hvalur 8 megi fara aftur á veiðar að uppfylltum skilyrðum. Meðal þeirra eru þau að skotæfing fari fram á sjó til að sýna fram á hæfni skyttu. Innlent 20.9.2023 16:27
Hafa lokað á rakningu í rakningarforritinu C-19 Embætti landlæknis hefur lokað á rakningu í smáforritinu Rakning C-19 sem þróað var og notað í smitrakningu í kórónuveirufaraldrinum. Þeir sem eru með forritið í símum sínum hafa margir fengið meldingu þessa efnis í dag. Innlent 20.9.2023 16:20
Átta ára börn velti fyrir sér hugtökum úr ofbeldisfullu klámi Kynfræðslukennarar í grunnskóla segja að strax í þriðja bekk séu börn búin að sjá hluti á samfélagsmiðlum og á netinu sem þarfnist útskýringa. Það sé gert með fræðslu. Umdeild kynfræðslubók fyrir 7-10 ára börn var til umræðu í Pallborðinu á Vísi. Innlent 20.9.2023 15:55
Loka hluta íþróttahúss á Akranesi vegna lélegra loftgæða Íþróttahúsinu á Vesturgötu á Akranesi, við Brekkubæjarskóla, hefur verið lokað að hluta. Ástæðan er ófullnægjandi loftgæði, sem kom í ljós við úttekt Verkís á húsnæðinu sem var framkvæmd í þessum mánuði. Innlent 20.9.2023 15:42
Enginn sportveiðimaður og fullviss um stuðning Íslendinga Kristján Loftsson, forstjóri og stærsti eigandinn í Hval hf., er sannfærður um að íslenskt samfélag standi með honum í baráttunni fyrir áframhaldandi hvalveiðum. Ekki megi taka hvalveiðar út fyrir sviga heldur þurfi að skoða hlutina í samhengi. Jafnvel kíkja í sláturhúsin til samanburðar. Hann kann vel að meta gott hvalkjöt en er enginn sportveiðimaður enda fari hann aldrei til veiða. Innlent 20.9.2023 15:02
Loka Laugardalslaug í tvær vikur vegna viðhalds Laugardalslaug í Reykjavík verður lokað fyrir almenning í tvær vikur frá og með 26. september næstkomandi vegna framkvæmda. Kominn er tími á viðhald. Innlent 20.9.2023 13:39
Kynfræðsla barna var rædd í Pallborðinu Undanfarnar vikur hefur mikil umræða átt sér stað um kynfræðslu barna. Kveikjan að umræðunni er kynfræðslubókin Kyn, kynlíf og allt hitt (2015) eftir þau Cory Silverberg og Fionu Smyth sem kom út í íslenskri þýðingu fyrir nokkrum vikum. Innlent 20.9.2023 12:25
Banaslys á Suðurlandsvegi 2021: Nýkominn með bílpróf þegar hann tók fram úr Banaslys sem varð á Suðurlandsvegi rétt austan við Þingborg í Árnessýslu, þegar tveir bílar rákust saman í desember 2021, er rakið til þess að ökumaður annars bílsins hafi ekki sýnt næga aðgæslu í framúrakstri. Áreksturinn var harður og lést 89 ára karlmaður, sem var í bíl sem kom úr gagnstæðri átt, tveimur vikum eftir slysið. Innlent 20.9.2023 11:40
Jeremy Corbyn kemur Jeremy Corbyn, fyrrum leiðtogi breska Verkamannaflokksins, verður með erindi í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík næstkomandi laugardag. Innlent 20.9.2023 11:14
Öllum rýmingum aflétt Lögreglan á Austurlandi í samráði við Veðurstofu Íslands og Ríkislögreglustjóra hefur ákveðið afléttingu allra rýminga á Seyðisfirði frá því á mánudag. Innlent 20.9.2023 10:25
Emma Ósk vill leiða Uppreisn Emma Ósk Ragnarsdóttir hefur gefið kost á sér til að taka við embætti formanns í Uppreisn, ungliðahreyfingu Viðreisnar. Landsfundur Uppreisnar fer fram laugardaginn 7. október næstkomandi. Innlent 20.9.2023 10:23
Fá ekki heimild til að hækka skrásetningargjöldin Opinberu háskólarnir fá ekki heimild til að hækka skrásetningargjöld sín úr 75 þúsund krónum í 95 þúsund krónur líkt og beðið hafði verið um. Innlent 20.9.2023 10:15
Keyrt á hjólreiðamann á Hringbraut Sendibíl var ekið á hjólreiðamann á Hringbraut í Reykjavík við gatnamót við Njarðargötu nú á tíunda tímanum í morgun. Innlent 20.9.2023 09:51
Íhuga að aflétta rýmingum Verið er að íhuga að aflétta rýmingum á Seyðisfirði, þar sem nóttin þótti tíðindalaus. Mikið rigndi þó í nótt og er vatn víða. Innlent 20.9.2023 09:16