Innlent

Stjórn­endur ekki á­kveðið hvort Bláa lónið þiggi ríkis­styrk

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri sölu-markaðs-og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins.
Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri sölu-markaðs-og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins. Vísir

Gestafjöldi í Bláa lóninu í gær og dag er um helmingur þess sem hann er í eðlilegu árferði segir framkvæmdastjóri þar eftir að það opnaði í gær.  Hún segir starfsmenn hafa æft  rýmingu meðan lónið var lokað.  Stjórnendur hafi ekki ákveðið hvort þeir ætli að þiggja ríkisstyrk vegna lokunarinnar. 

Bláa lónið var opnað í gær í fyrsta skipti í ríflega fimm vikur eftir jarðskjálftahrinuna í nóvember. Helga Árnadóttir framkvæmdastjóri sölu-markaðs-og vöruþróunarsviðs lónsins segir vel hafa gengið. 

„Það hefur gengið vonum framar. Gestir glaðir og starfsmenn ánægðir með að vera komnir til vinnu. Baðgestir voru helmingi færri en venjulega,“ segir Helga. 

Helga segir að farið hafi verið yfir viðbragðs-og rýmingaráætlanir meðan lónið var lokað.

„Ef svo ólíklega vill til að það gerist eitthvað og við þurfum að rýma lónið í flýti þá erum við með rýmingaráætlanir eins og alltaf. Við nýttum lokunina til að æfa rýmingu,“ segir Helga. 

Fljótlega eftir rýmingu Grindavíkur ákváðu stjórnvöld að greiða hluta launakostnaður hjá fyrirtækjum sem þurftu að loka. Þá kom fram að fyrirtæki sem þiggja stuðning geti ekki greitt út arð í 12 mánuði eftir að gildistíma laganna lýkur nema greiða stuðninginn fyrst til baka.

Helga segir að ekkert hafi verið ákveðið í málinu. 

„Við erum með 800 hundruð starfsmenn í vinnu og gáfum það út strax til að koma í veg fyrir óvissu hjá okkar starfsmönnum að við myndum greiða út full laun í nóvember og desember. Hvað varðar stuðning frá stjórnvöldum þá hefur það ekki verið ákveðið við ætluðum að sjá hvernig þetta þróast allt saman,“ segir Helga að lokum. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×