Erlent
Trump-lestin rúllar áfram en þingmenn vilja frekari rannsóknir Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem var sýknaður af ákæru um embættisbrot um helgina, er enn með sterkt tak á Repúblikanaflokknum þó hann komi ekki óskaddaður frá málinu. Erlent 15.2.2021 11:05
Hvetja til skimana vegna lungnakrabba: Sneiðmyndtaka greinir 70 prósent meina á frumstigum Viðamikil rannsókn á vegum bresku heilbrigðisþjónustunnar hefur leitt í ljós að með því að skima fyrir lungnakrabbameinum með tölvusneiðmyndatöku má finna 70 prósent meina áður en þau verða ólæknandi. Erlent 15.2.2021 10:49
Beita skriðdrekum og byssukúlum í von um að bæla niður mótmælin Skriðdrekar hafa sést á götum nokkurra borga í Mjanmar í dag þar sem her landsins freistar þess að bæla niður mótmælaöldu sem brotist hefur út í landinu eftir að herinn hrifsaði til sín völdin í byrjun þessa mánaðar. Lokað hefur verið fyrir internetið nær alfarið í allt kvöld en það er ekki í fyrsta sinn sem það hefur verið gert eftir að mótmælin brutust út. Erlent 14.2.2021 23:58
Vinir Freyju í Danmörku safna fyrir börnin hennar Danskir vinir Freyju Egilsdóttur, sem var myrt í Malling á Jótlandi í lok janúar, hafa hafið söfnun til stuðnings börnum hennar. Í dag höfðu þegar safnast um 76 þúsund danskar krónur eða sem nemur um 1,6 milljónum íslenskra króna. Líkt og Vísir greindi frá fyrir helgi er einnig hafin söfnun hér á Íslandi fyrir börn og fjölskyldu Freyju. Erlent 14.2.2021 19:17
Gríðarleg eyðilegging og yfir hundrað slasast vegna skjálftans Á annað hundrað eru slösuð eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,3 reið yfir Japan. Skjálftinn átti upptök sín skammt undan austurströnd landsins og reið yfir klukkan 23 að staðartíma í gær eða um klukkan 14 síðdegis í gær. Erlent 14.2.2021 14:07
Sýkna Trumps áminning um að lýðræðið er brothætt Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að sýkna Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, í ákæru um embættisbrot sé áminning um að lýðræði sé brothætt. Hann segir að þrátt fyrir sýknuna sé alvarleiki málsins ekki deiluefni. Erlent 14.2.2021 13:29
Fyrstu dauðsföllin vegna ebólu í Gíneu frá 2016 Minnst þrír hafa látist vegna ebólusýkingar í Gíneu og fimm aðrir hafa greinst smitaðir af veirunni. Fólkið fór að sýna einkenni, uppköst, niðurgang og blæðingar, eftir að hafa verið viðstatt jarðarför. Erlent 14.2.2021 12:25
Einn stærsti dagur mótmælanna í Mjanmar þrátt fyrir hótanir um handtökur Tugir þúsunda tóku þátt í fjöldamótmælum í Mjanmar, níunda daginn í röð, í nótt og í morgun. Í gær skrifaði herforinginn Min Aung Hlaing undir tilskipun sem takmarkar frelsi og réttarstöðu almennra borgara, auk þess sem löggæsluyfirvöldum var skipað að handtaka þekkta stjórnarandstæðinga tafarlaust. Erlent 14.2.2021 10:32
Hættir eftir hótanir í garð blaðakonu TJ Ducklo, einn aðstoðarfjölmiðlafulltrúa Joes Biden Bandaríkjaforseta, hefur sagt upp störfum. Erlent 14.2.2021 08:58
Þrjú smituð og öllu skellt í lás Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur fyrirskipað þriggja daga útgöngubann og harðar sóttvarnaaðgerðir í Auckland, stærstu borg landsins, eftir að þrír einstaklingar greindust þar með kórónuveiruna. Erlent 14.2.2021 08:35
Neita að afhenda frumgögn um fyrstu kórónuveirutilfellin Kínversk yfirvöld hafa neitað að afhenda Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO, mikilvæg gögn um kórónuveirufaraldurinn. Erlent 13.2.2021 23:29
Segir möguleika að Trump verði stefnt fyrir dóm þrátt fyrir sýknuna Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, sagði í kvöld að Donald Trump fyrrverandi forseti sé ábyrgur fyrir árásinni sem gerð var á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar. Erlent 13.2.2021 22:39
Þekktir stjórnarandstæðingar verða handteknir Herforingjastjórn Mjamar felldi í dag lög úr gildi sem banna löggæsluyfirvöldum að handtaka grunaða og framkvæma leit á einkaeign án þess að fá til þess heimild frá dómstólum. Þá fyrirskipaði stjórnin að þekktir stjórnarandstæðingar verði handteknir. Erlent 13.2.2021 21:57
Trump sýknaður Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur verið sýknaður af ásökunum um embættisbrot. Erlent 13.2.2021 21:10
Hætta við að kalla til vitni Öldungadeild Bandaríkjaþings hefur ákveðið að hætta við að kalla til vitni í réttarhöldum deildarinnar yfir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Þannig hefur verið komið í veg fyrir að réttarhöldin dragist á langinn og er nú búist við að niðurstaða fáist í málið á næstu dögum. Erlent 13.2.2021 18:33
Öldungadeildin kallar til vitni í réttarhöldunum Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti fyrir skömmu að kalla til vitni í réttarhöldum deildarinnar yfir Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Trump er ákærður fyrir embættisbrot. Erlent 13.2.2021 16:51
Leiðtogi Repúblikana sagður ætla að greiða atkvæði gegn sakfellingu Trumps Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ætlar að greiða atkvæði gegn sakfellingu Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í réttarhöldum deildarinnar yfir Trump sem standa nú yfir. Erlent 13.2.2021 15:46
Stór skjálfti undan strönd Japans Skjálfti sem mældist 7,1 að stærð reið yfir austur af Japan um klukkan 14 í dag, eða klukkan rúmlega 23 að staðartíma. Erlent 13.2.2021 15:28
Vilja veita yfirmanni útlendingamála heimild til að banna fólki að fara Samtök málflutningsmanna í Hong Kong hafa gagnrýnt tillögu stjórnvalda um að veita yfirmanni útlendingamála vald til að koma í veg fyrir að einstaklingar yfirgefi borgina. Ákvörðunarvald hans myndi bæði eiga við um íbúa og ferðalanga. Erlent 13.2.2021 14:31
Þorpsbúar telja líklegt að Sadpara hafi freistað þess að bjarga félögum sínum Íbúar í þorpinu hans Ali Sadpara, sem nú er leitað á K2 ásamt John Snorra Sigurjónssyni og Juan Pablo Mohr, telja líklegast að annar félaga hans hafi slasast og Sadpara freistað þess að bjarga hópnum í stað þess að halda áfram niður fjallið. Erlent 13.2.2021 13:23
109 starfsmenn greinst í hópsmiti á skíðasvæði Hópsmit er komið upp á skíðasvæði í Colorado í Bandaríkjunum en að minnsta kosti 109 starfsmenn hafa greinst með Covid-19. Heilbrigðisyfirvöld segja ekki um að ræða smit vegna samskipta við kúnna, heldur samgang utan vinnu og hópbúsetu. Erlent 13.2.2021 12:17
Segja það markmið forsetans að loka Guantanamo Joe Biden Bandaríkforseti hefur falið ráðgjöfum sínum að ráðast í formlega endurskoðun á starfsháttum Guantanamo-herfangelsisins sem rekið er af Bandaríkjaher á Kúbu, með það að markmiði að fangelsinu verði lokað áður en Biden lætur af embætti. Erlent 13.2.2021 12:03
Banna transstúlkum og -konum að taka þátt í keppnisíþróttum Öldungadeild Mississippi samþykkti á fimmtudag að banna transstúlkum og -konum að taka þátt í keppnisíþróttum í framhalds- og háskólum. Bannið var samþykkt með 34 atkvæðum gegn níu. Erlent 13.2.2021 11:46
Hefja rannsókn á áhrifum bóluefnisins frá AstraZeneca á börn Til stendur að prófa áhrif bóluefnins frá AstraZeneca á börnum í nýrri rannsókn. Þátttakendur verða 300 talsins, á aldrinum sex til sautján ára. Bólusetningar hefjast í þessum mánuði. Erlent 13.2.2021 10:39
Fjögurra metra langur krókódíll drepinn eftir að veiðimaður hverfur Yfirvöld í Queensland í Ástralíu hafa fangað og drepið fjögurra metra langan krókódíl sem er grunaður um að hafa orðið veiðimanni að bana. Mannsins hafði verið leitað síðan á fimmtudag, eftir að hann skilaði sér ekki heim. Erlent 13.2.2021 09:59
„Super Mario“ verður forsætisráðherra og Luigi áfram utanríkisráðherra Mario Draghi hefur þekkst boð um að taka að sér embætti forsætisráðherra Ítalíu og mun formlega taka við embættinu síðar í dag. Erlent 13.2.2021 08:50
Átta ungmenni höfða mál gegn stærstu súkkulaðiframleiðendum heims Átta ungmenni sem segjast vera fórnarlömb barnaþrælkunar á kakóplantekru á Fílabeinsströndinni hafa höfðað mál á hendur nokkrum af stærstu súkkulaðiframleiðendum heims. Erlent 13.2.2021 08:41
Talsmaður Biden víkur í viku fyrir hótanir í garð blaðakonu Einn talsmanna Joe Biden Bandaríkjaforseta hefur verið vikið tímabundið frá störfum vegna áreitni í garð blaðamanns. TJ Ducklo er sakaður um að hafa ógnað Töru Palmeri, blaðamanni Politico, þegar hann komst að því að hún væri að rannsaka samband Ducklo við annan blaðamann. Erlent 13.2.2021 08:13
Lögmenn Trumps saka Demókrata um hræsni Lögmenn Donalds Trumps, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem flytja mál hans fyrir öldungadeild Bandaríkjanna vegna ákæru um embættisbrot, segja Demókrata herja hatursherferð gegn fyrrverandi forsetanum. Þeir segja þá hafa snúið út úr orðum forsetans fyrrverandi sem hann lét falla fyrir árásina sem gerð var á bandaríska þinghúsið í byrjun árs. Erlent 12.2.2021 23:21
Bólusetja sjötíu prósent fyrir sumarlok Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins býst við því að sjötíu prósent fullorðinna innan sambandsins verði bólusett gegn kórónuveirunni fyrir lok sumars. Erlent 12.2.2021 20:01