Erlent

Neyðarástand vegna flóða í Grikklandi

Miklar rigningar hafa orsakað skyndiflóð víða í Grikklandi síðasta sólarhringinn. Gríska ríkisstjórnin hefur lýst yfir neyðarástandi, en hundruð húsa hafa eyðilagst í flóðunum. Brýr og vegir í mörgum héruðum norður og miðhluta landsins hafa eyðilagst og járnbrautarteinar skolast burt og einangrað þannig fjölda íbúa við borgina Volos.

Erlent

Frakkar æfir vegna reykingarbanns

Franskir reykingarmenn eru æfir vegna ákvörðunar franskra stjórnvalda um að banna reykingar á kaffihúsum og börum. Bannið tekur gildi árið 2008. Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, tilkynnti í fyrradag að reykingar yrðu bannaðar í Frakklandi á flestum opinberum stöðum frá febrúar á þessu ári og á börum, veitingastöðum og næturklúbbum ellefu mánuðum síðar.

Erlent

Utanríkisráðherra Qatar og forseti Palestínu hittast

Utanríkisráðherra Qatar fundaði með yfirvöldum í Palestínu í gær í von um að sætta andstæðar fylkingar í forystu stjórnarinnar. Sjeik Hamad Bin Jasseem hitti forseta Palestínu og yfirmann Fatah flokksins, Mahmoud Abbas, í þeirri von að með samvinnu verði aðstoð vesturlanda á Gaza og vesturbakkanum komið á aftur.

Erlent

Herstjórnin talin fresta stjórnarskrá

Herstjórnin í Burma fundar í dag um nýja stjórnarskrá, en stjórnin er undir auknum alþjóðlegum þrýstingi vegna vantrúar á ríkjandi stjórnarfari í landinu. Herráðið valdi þá rúmlega 1,000 manns sem taka þátt í ráðstefnunni. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Aung San Suu Kyi, er í stofufangelsi og flokkur hennar er ekki þáttakandi í samningaviðræðunum.

Erlent

Google kaupir YouTube

Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube, vefsíðu þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna. YouTube var stofnað í febrúar á síðasta ári og varð fljótlega ein vinsælasta síðan á netinu sem dreifir myndbandsefni.

Erlent

Farnir í felur vegna Múhameðs

Tveir meðlimir í ungliðahreyfingu danska þjóðarflokksins eru farnir í felur vegna morðhótana eftir að Nyhedsavisen greindi frá gysi sem gert var að Múhameð spámanni á samkomu hreyfingarinnar í sumar. Annar þeirra, sem farinn er í felur, segir að um 20 hótanir hafi borist og að lögreglunni hafi verið tilkynnt um málið, en hún vill ekki tjá sig um viðbrögð.

Erlent

Fjórir hafa fundist látnir

Nú er ljóst að fjórir fórust í flugslysinu suður af Bergen í Noregi. Þrír fundust látnir inni í vélarflakinu og fyrir stundu tilkynntu björgunarmenn að þeir hefðu fundið þann fjórða. Alls voru 16 um borð og það þykir ganga kraftaverki næst að 12 skuli hafa komist lífs af án þess að slasast lífhættulega. Vélin var fjögurra hreyfla þota af gerðinni Brithish Aerospace-146 frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways og var í leiguflugi í Noregi fyrir norkst flugfélag. Hún var að koma frá Stafanger áleliðis til Molde með starfsmenn gasvinnnslufyrirtækisins Aker Kværner.

Erlent

Öryggisráðið fordæmdi tilraun N-Kóreumanna

Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna fordæmdi kjarnorkutilraun Norður Kóreumanna harðlega á neyðarfundi í gær. Ráðið fundar seinna í dag til að ákveða til hvaða aðgerða verður gripið gegn Norður Kóreumönnum. Bandaríkjamenn sendu ráðinu ályktun í gær þar sem farið er fram á bann við öllum viðskiptum við Norður Kóreumenn með efni sem nýst gætu til framleiðslu gjöreyðingavopna.

Erlent

Rútuslys í Guatemala

Að minnsta kosti fjörtíu og tveir eru látnir, þar af sex börn, eftir rútuslys í norðurhluta Guatemala í dag. Rútan gjöreyðilagðist þegar hún fór út af veginum og rann niður 300 metra fjallshlíð. Hún var á leið frá borginni Huehuetenango, sem er nálægt landamærunum að Mexíkó, til Barillas. Fjórtíu og sjö farþegar voru í rútunni en aðeins fimm komust lífs af.

Erlent

Google kaupir YouTube

Netleitarfyrirtækið Google hefur keypt YouTube sem er netsíða þar sem ýmsu afþreyingar myndbandsefni er dreift. Kaupverðið er um eitt hundrað milljarðar íslenskra króna.

Erlent

Vilja banna sölu vopna til Norður-Kóreu

Bandaríkin hafa lagt til að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykki refsiaðgerðir gegn Norður-Kóreu vegna kjarnorkutilrauna þeirra. Tillagan felur meðal annars í sér vopnasölubann á Norður-Kóreu. Ekki er enn ljóst hvort að Rússar og Kínverjar styðji tillöguna.

Erlent

Ekki ber á geislavirkum leka

Norður-Kóreumenn gerðu tilraun með kjarnorkusprengju í nótt. Norður-kóreska ríkisfréttastofan sagði sprenginguna hafa gengið að óskum og að ekki bæri á neinum geislavirkum leka. Sprengjan virðist ekki hafa verið mjög stór, en ýmislegt varðandi hana er enn á huldu.

Erlent

Nýtt stríð Dana og múslima

Ungliðar danska Þjóðarflokksins eru margir komnir í felur, af ótta við afleiðingarnar af sumarhátíð sinni, þar sem þeir gerðu grín að múslimum og Múhammed spámanni. Danska ríkisstjórnin hefur aftur varað þegna sína við að ferðast til Miðausturlanda, í bráð.

Erlent

Alþjóðasamfélagið mun svara

George Bush, Bandaríkjaforseti, fordæmdi kjarnorkutilraun N-Kóremanna í ávarpi fyrir stundu og sagði að alþjóðasamfélagið myndi bregðast við henni. Bush sagði Norður Kóremenn einna stórtækasta allra þjóða í að flytja út skotflaugatækni, til dæmis til Íran og Sýrlands. Hann sagði að útflutningur á kjarnorkuþekkingu til annarra ríkja eða ríkisfangslausra aðila, teldist alvarleg ógnun við öryggi Bandaríkjanna og Norður Kórea yrði gerð fyllilega ábyrg fyrir því framferði.

Erlent

Njósnarar í mýflugu mynd

Breskir hermálavísindamenn eru að þróa vélflugu sem nýta má til að njósna um staðsetningu óvina. Verkefnisstjórinn, Dr. Rafal Zbikowski, segir að fyrstu flugurnar gætu verið tilbúnar innan sjö til tíu ára. Hann hefur nú þegar hannað frumgerð ófleygrar vélflugu sem hermir eftir vængslætti venjulegrar flugu.

Erlent

Sprengingin fordæmd alls staðar

Þjóðarleiðtogar hafa fordæmt kjarnorkutilraun N-Kóreu. Sprengjan sprakk hálftíma áður en forsætisráðherra Japan lenti í Seoul , þar sem hann ræðir við forsætisráðherra Suður Kóreu um málið. Kallað hefur verið til neyðarfundar hjá þjóðaröryggisráði Suður Kóreu og herafli landsins settur á hæsta viðbúnaðarstig.

Erlent

Íranir hætta ekki auðgun úrans

Utanríkisráðuneyti Íran sagði í gær að það myndi ekki hætta við auðgun úrans þrátt fyrir hótanir um alþjóðlegar viðskiptaþvinganir. Sex landa nefnd á vegum Sameinuðu Þjóðanna sem unnið hefur að því að fá Íran til að hætta auðgun úrans höfðu hótað þvingunum, en gengu ekki svo langt að hóta refsiaðgerðum Öryggisráðsins.

Erlent