Erlent

Loftið lævi blandið

Sú ákvörðun Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, að boða til kosninga til að binda enda á valdabaráttuna á milli Fatah og Hamas virðist hafa verkað sem olía á þann ófriðareld sem nú brennur í Palestínu.

Erlent

Ætla ekki að gefast upp

Miðborg Kaupmannahafnar logaði í óeirðum í gærkvöld og varð lögregla að beita táragasi til að dreifa hundruðum manna sem mótmæltu lokun félagsmiðstöðvar. Íslensk kona sem var á vettvangi átakanna fylgdist með þegar bensínsprengjum var kastað í allar áttir.

Erlent

Berlusconi undir hnífinn í Bandaríkjunum

Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, er á leið til Bandaríkjanna þar sem hann mun gangast undir hjartaaðgerð. Berlusconi, sem er sjötugur, leið útaf á fundi með stuðningsmönnum sínum í síðasta mánuði og kom þá hjartakvilli í ljós.

Erlent

30 starfsmönnum Rauða hálfmánans rænt í Írak

Byssumenn rændu 30 starfsmönnum Rauða hálfmánans í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Mannræningjarnir óku í ofboði að höfuðstöðvum hjálparsamtakana, réðust inn og rændu karlkyns starfsmönnum og gestkomandi.

Erlent

Sprengingar við skrifstofu Abbas

Tvær sprengingar heyrðust nærri skrifstofum Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, á Gaza-svæðinu í dag. Reuters-fréttastofan greinir frá og segir að nokkrir hafi særst. Ekki er vitað hvort nokkur hafi týnt lífi í sprengingunum. Abbas var fjarverandi en hann er staddur á Vesturbakkanum.

Erlent

Almennur borgari féll í skotbardaga

Almennur borgari féll í skotbardaga á Gaza í dag. Til átaka kom milli stuðningmanna Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, og Hamas-liða. 19 ára stúlka varð fyrir skoti og lét lífið.

Erlent

Nágrannar styðji Íraka

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, heimsótti í dag breska hermenn í Írak. Í ræðu sem Blair flutti við það tækifæri hét hann Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, stuðningi og sagði mikilvægt að leiðtogar í nágrannalöndum Íraks styddu við bakið á honum og kæmu í veg fyrir að grafið væri undan honum.

Erlent

Fatah hefði betur

Hamas-samtökin ætla ekki að taka þátt í kosningum sem Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna og leiðtogi Fatha, hefur boðað til. Ismail Haniyeh, forsætisráðherra í heimastjórn Hamas, greindi frá þessu í dag. Hann sagði ræðu forsetans frá í gær, þar sem hann tilkynnti um kosningar, aðeins hafa helt olíu á eldinn. Ný könnun sýnir að Fatah-hreyfingin hefði betur ef kosið yrði nú.

Erlent

Dæmdir til dauða fyrir að bjarga ekki konu

Dómstóll á Srí Lanka hefur dæmt tvo menn til dauða fyrir að valda dauða konu þegar flóðbylgjan mikla skall á eynni annan dag jóla 2004. Myndbandsupptaka sýnir þegar þeir slíta af henni hálsfesti og skilja svo eftir í vatnsflaumnum.

Erlent

300 handteknir í Kaupmannahöfn

Á þriðja hundrað manns voru handtekin þegar til átaka kom á milli mótmælenda og lögreglu í Kaupmannahöfn í gærkvöld. Grjóti og flöskum var kastað að lögreglu sem svaraði með því að skjóta táragasi á mannfjöldann.

Erlent

Lögðu undir sig landbúnaðarráðuneytið

Loftið er lævi blandið á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna eftir að liðsmenn Fatah-hreyfingar Mahmoud Abbas lögðu undir sig landbúnaðarráðuneyti heimastjórnarinnar í morgun. Áhlaup Fatah kom í kjölfar árásar grímuklæddra byssumanna á æfingasvæði lífvarða Abbas í morgun en einn lét þar lífið. Abbas býr skammt frá ráðuneytinu og því segjast Fatah-menn hafa verið að tryggja öryggi hans með því að taka það yfir.

Erlent

Felldur eftir að hafa traðkað 14 til bana í ár

Indverskir fílaveiðimenn felldu í gær stóran fílstarf sem sagður er hafa traðkað 14 manns til bana síðastliðið ár. Tarfurinn, sem heimamenn kalla Osama bin Laden, var orðinn sannkallaður ógnvaldur í Assam-héraði og því þótti ekki annað fært en að drepa hann.

Erlent

Time: Internetið gjörbylt fjölmiðlun

Bandaríska tímaritið Time hefur valið "þig" sem mann ársins 2006 fyrir framlag þitt til að gerbylta allri fjölmiðlun í heiminum með hjálp internetsins. Að mati blaðsins hafa bloggsíður og vefsvæði á borð við You-tube breytt valdajafnvæginu í fjölmiðlun á kostnað stóru fyrirtækjanna.

Erlent

Eldsvoði í brúðkaupsveislu

Í það minnsta 22 konur og börn týndu lífi í eldsvoða í brúðkaupsveislu í austanverðu Pakistan í gær, brúðurin þar á meðal. Eldurinn kviknaði í tjaldi þar sem veislan var haldin en karlkyns gestirnir voru í öðru tjaldi, eins og siður er á þessum slóðum, og sakaði því ekki.

Erlent

Vesturveldin styðja Abbas

Sú ákvörðun Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, að boða til kosninga á heimastjórnarsvæðunum hefur almennt mælst vel fyrir á Vesturlöndum. Abbas boðaði til kosninga í gær eftir stigvaxandi átök liðsmanna Fatah og Hamas. Leiðtogar Hamas segja ákvörðun forsetans jafngilda valdaráni.

Erlent

Átök í Kaupmannahöfn

Til óeirða kom í Kaupmannahöfn í nótt þegar mótmælaganga ungmenna fór úr böndunum. Undanfarna daga hafa ungmennin mótmælt á friðsamlegan hátt þeirri ákvörðun Eystri-Landsrétts að hópi húsatökumanna bæri að rýma hús sem kristið trúfélag hafði keypt fyrir nokkrum árum. Í gærkvöld kom hins vegar til óláta í miðborginni. Nokkrir liggja sárir og 300 manns voru færðir í fangageymslur.

Erlent

John Edwards fer í framboð

John Edwards, fyrrverandi öldungadeildarþingmaður frá Iowa, mun sækjast eftir því að verða forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í bandarísku forsetakosningunum árið 2008. Þetta mun hann tilkynna seinna í mánuðinum, samkvæmt heimildarmönnum í Demókrataflokknum.

Erlent

Kröfugerð Þjóðverja æsir Pólverja

Fámenn samtök Þjóðverja sem áttu eignir á landsvæðum sem gefin voru Póllandi eftir stríð hafa skotið kröfugerð sinni til Mannréttindadómtóls Evrópu. Kröfugerðin veldur Pólverjum miklu hugarangri.

Erlent

Danskar borga fyrir fegurðina

Fimmta hver dönsk kona eldri en sautján ára íhugar fegrunaraðgerð, kemur fram í nýrri danskri könnun sem fjallað er um á fréttavef Berlingske Tidende.

Erlent

Drepinn vegna leyniskýrslu

Yuri Shvets, fyrrverandi KGB njósnari, segir rússneska njósnarann Alexander Litvinenko, hafa verið myrtan vegna upplýsinga sem hann bjó yfir um háttsettan rússneskan stjórnmálamann.

Erlent

Halda allir fram sakleysi sínu

Sjö afganskir karlmenn sneru í gær aftur til heimalands síns eftir margra ára fangelsun í Guantanamo-fangelsinu alræmda á Kúbu. Allir hafa þeir haldið fram sakleysi sínu, en segjast ekki hafa hlotið slæma meðferð í bandarísku fangabúðunum.

Erlent

Forseti Palestínu boðar til kosninga

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur boðað til þing- og forsetakosninga, en tilraunir til myndun þjóðstjórnar hafa mistekist. Tæpt ár er liðið frá kosningum.

Erlent

Flogið í fyrsta sinn í 27 ár

Í gær fór fram fyrsta áætlunarflug milli Spánar og Gíbraltar í 27 ár. Hingað til hafa spænsk stjórnvöld lokað fyrir flugumferð milli landanna og hafa flugvélar á leið til Gíbraltar þurft að krækja fyrir spænska flughelgi.

Erlent

Ákvörðun Abbas kölluð valdarán

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefur boðað til þing- og forsetakosninga í þeirri von að þar með verði endi bundinn á valdabaráttu stríðandi fylkinga á heimastjórnarsvæðunum. Leiðtogar Hamas eru æfir yfir ákvörðuninni og kalla hana valdarán.

Erlent

Rændu hálsfesti af drukknandi konu

Dómstóll á Srí Lanka hefur dæmt tvo menn til dauða fyrir að valda dauða konu þegar flóðbylgjan mikla skall á eynni annan dag jóla 2004. Myndbandsupptaka sýnir þegar þeir slíta af henni hálsfesti og skilja svo eftir í vatnsflaumnum.

Erlent

Sleppt eftir vist í Guantanamo fangabúðunum

Sjö Afganar komu til heimalands síns í dag eftir nokkurra ára vist í Guantanamo fangabúðunum á Kúbu. Á fréttamannafundi í dag lýstu þeir yfir sakleysi sínu og reiði gagnvart bandarískum stjórnvöldum.

Erlent

Vonast til að yfirlýsing Abbas lægi öldur

Stjórnvöld í Bandaríkjunum vonast til þess að yfirlýsing Mahmoud Abbas forseta Palestínu, um boða fljótlega til kosninga, lægi öldu ofbeldis sem ríkt hefur á svæði og stuðli að friði.

Erlent

Bjó yfir leynilegum upplýsingum

Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnari hjá KGB, var myrtur vegna leynilegra upplýsinga sem hann hafði komist yfir um valdamikla stjórnendur í Rússlandi.

Erlent

Blair róaði Erdogan

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna ákváðu á fundi sínum í gær að gera hlé á aðildarviðræðum við Tyrkland en ítrekuðu þó að dyr sambandsins myndu áfram standa nýjum ríkjum opnar. Tony Blair forsætisráðherra Bretlands reyndi í morgun að sefa tyrkneska ráðamenn en þeir eru afar vonsviknir yfir ákvörðuninni.

Erlent