Erlent Netníðingur fékk níu ár Erlent 30.1.2007 14:15 Fá ekki undanþágu frá samkynhneigðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að kaþólska kirkjan fái enga ungaþágu frá nýjum lögum sem banna að samkynhneigðum sé mismunað í almennri þjónustu. Kirkjan fór fram á undanþágu fyrir ættleiðingarskrifstofur sínar, þar sem það samrýmist ekki trúnni að setja börn í fóstur hjá samkynhneigðum. Lögin taka gildi á þessu ári, þótt þau komi varla til framkvæmda fyrr en á því næsta. Erlent 30.1.2007 13:44 Vilja aflétta banni af Palestínumönnum Erlent 30.1.2007 13:28 Tók ekki linsurnar úr í heilt ár Fjarlægja þurfti augnlinsur úr kínverskum manni með uppskurði eftir að hann hafði þær í augunum í heilt ár. Liu sem er fertugur fékk linsur fyrir ári síðan. Hann tók þær ekki úr augunum, því honum fannst það erfitt. Þegar hann fann fyrir óþægindum notaði hann augndropa. Fyrir stuttu fannst honum sjónin vera að versna og brá þá á það ráð að kaupa nýjar linsur, sem hann setti yfir þær gömlu. Erlent 30.1.2007 13:11 Vantar helming upp á friðargæslulið í Sómalíu Fulltrúar ríkja Afríkusambandsins reyndu í dag að safna í friðargæslulið til að taka við af herliði Eþíópíumanna sem hjálpaði stjórnarher Sómalíu við að hrekja uppreisnarmenn á flótta. Markmiðið er að fá að lágmarki 8.000 hermenn til að gæta stöðugleikans í landinu en enn vantar helminginn upp á að það markmið náist. Erlent 30.1.2007 12:30 Aðalritari SÞ boðar til fundar um umhverfismál Ban ki-moon nýskipaður aðalritari Sameinuðu þjóðanna leggur nú drög að neyðarfundi í september á þessu ári. Þar mun helstu þjóðhöfðingjum heims verða stefnt saman til að ræða þau umhverfisvandmál sem steðja að heimurinn og leita leiða til að fylgja ákvæðum Kyoto-bókunnarinnar um hækkum hitastigs jarðar. Erlent 30.1.2007 12:08 "Bleika mjólkurvandamálið" leyst Bónda á Jersey í Bretlandi brá heldur betur í brún þegar kýrnar hans fóru allt í einu að framleiða bleika mjólk. Í ljós kom að eftir að bóndinn Peter Houghuez fór að gefa þeim gulrætur með heyinu, litaðist mjólkin. Peter brá þá á það ráð að gefa þeim hvítar gulrætur í staðinn sem hann keypti frá Frakklandi. Í dagblaðinu Metro sagði bóndinn að kýrnar væru "brjálaðar í gulrætur." Erlent 30.1.2007 11:50 Níu ára sjónvarpskokkur í Kína Níu ára gömul stúlka frá Shanghai í Kína er með sinn eigin matreiðsluþátt í sjónvarpi. Shi Yulan er auk þess að skrifa sína fyrstu matreiðslubók, en samkvæmt dagblaðinu Qianjiang Evening News hefur hún unnið í eldhúsinu heima hjá sér frá því hún gat staðið í lappirnar. Shi segist hafa hjálpað mömmu sinni í eldhúsinu frá því hún var tveggja ára með því að þvo leirtau. Erlent 30.1.2007 11:39 Manchester fær spilavítið Manchester hefur unnið keppnina um að fá að reisa fyrsta stóra spilavítið í Bretlandi, í anda spilaborgarinnar Las Vegas. Fréttirnar eru reiðarslag fyrir gímaldið Þúsaldarhöllina á suðurbakka Thames-árinnar í London og Blackpool-bæ sem einnig vildu hýsa spilavélar og peningaplokkara. Erlent 30.1.2007 11:27 Svíar opna sýndarsendiráð Svíþjóð verður fyrsta landið til að opna sýndarsendiráð í tölvuleiknum Second Life. Nokkur stórfyrirtæki hafa þegar opnað útibú í sýndarheimnum þar sem rúmlega þrjár milljónir spilara eyða stórum hluta af sínum frítíma, eða jafnvel öllum sínum tíma. Erlent 30.1.2007 11:08 Mannskæðar sprengjuárásir á sjíahátíð Þrátt fyrir mikla öryggisgæslu víðast hvar þar sem sjíamúslimar halda upp á asjúradaginn, þá hafa þegar orðið mannskæðar nokkrar árásir í Írak, þangað sem pílagrímar flykkjast þessa dagana, þrátt fyrir ótryggt ástand í landinu. 32 pílagrímar hafa látist í tveimur öflugum sprengjuárásum með klukkutíma millibili norðaustur af Bagdad í morgun. Erlent 30.1.2007 10:05 Svakaleg sótthreinsun Erlent 30.1.2007 10:04
Fá ekki undanþágu frá samkynhneigðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir að kaþólska kirkjan fái enga ungaþágu frá nýjum lögum sem banna að samkynhneigðum sé mismunað í almennri þjónustu. Kirkjan fór fram á undanþágu fyrir ættleiðingarskrifstofur sínar, þar sem það samrýmist ekki trúnni að setja börn í fóstur hjá samkynhneigðum. Lögin taka gildi á þessu ári, þótt þau komi varla til framkvæmda fyrr en á því næsta. Erlent 30.1.2007 13:44
Tók ekki linsurnar úr í heilt ár Fjarlægja þurfti augnlinsur úr kínverskum manni með uppskurði eftir að hann hafði þær í augunum í heilt ár. Liu sem er fertugur fékk linsur fyrir ári síðan. Hann tók þær ekki úr augunum, því honum fannst það erfitt. Þegar hann fann fyrir óþægindum notaði hann augndropa. Fyrir stuttu fannst honum sjónin vera að versna og brá þá á það ráð að kaupa nýjar linsur, sem hann setti yfir þær gömlu. Erlent 30.1.2007 13:11
Vantar helming upp á friðargæslulið í Sómalíu Fulltrúar ríkja Afríkusambandsins reyndu í dag að safna í friðargæslulið til að taka við af herliði Eþíópíumanna sem hjálpaði stjórnarher Sómalíu við að hrekja uppreisnarmenn á flótta. Markmiðið er að fá að lágmarki 8.000 hermenn til að gæta stöðugleikans í landinu en enn vantar helminginn upp á að það markmið náist. Erlent 30.1.2007 12:30
Aðalritari SÞ boðar til fundar um umhverfismál Ban ki-moon nýskipaður aðalritari Sameinuðu þjóðanna leggur nú drög að neyðarfundi í september á þessu ári. Þar mun helstu þjóðhöfðingjum heims verða stefnt saman til að ræða þau umhverfisvandmál sem steðja að heimurinn og leita leiða til að fylgja ákvæðum Kyoto-bókunnarinnar um hækkum hitastigs jarðar. Erlent 30.1.2007 12:08
"Bleika mjólkurvandamálið" leyst Bónda á Jersey í Bretlandi brá heldur betur í brún þegar kýrnar hans fóru allt í einu að framleiða bleika mjólk. Í ljós kom að eftir að bóndinn Peter Houghuez fór að gefa þeim gulrætur með heyinu, litaðist mjólkin. Peter brá þá á það ráð að gefa þeim hvítar gulrætur í staðinn sem hann keypti frá Frakklandi. Í dagblaðinu Metro sagði bóndinn að kýrnar væru "brjálaðar í gulrætur." Erlent 30.1.2007 11:50
Níu ára sjónvarpskokkur í Kína Níu ára gömul stúlka frá Shanghai í Kína er með sinn eigin matreiðsluþátt í sjónvarpi. Shi Yulan er auk þess að skrifa sína fyrstu matreiðslubók, en samkvæmt dagblaðinu Qianjiang Evening News hefur hún unnið í eldhúsinu heima hjá sér frá því hún gat staðið í lappirnar. Shi segist hafa hjálpað mömmu sinni í eldhúsinu frá því hún var tveggja ára með því að þvo leirtau. Erlent 30.1.2007 11:39
Manchester fær spilavítið Manchester hefur unnið keppnina um að fá að reisa fyrsta stóra spilavítið í Bretlandi, í anda spilaborgarinnar Las Vegas. Fréttirnar eru reiðarslag fyrir gímaldið Þúsaldarhöllina á suðurbakka Thames-árinnar í London og Blackpool-bæ sem einnig vildu hýsa spilavélar og peningaplokkara. Erlent 30.1.2007 11:27
Svíar opna sýndarsendiráð Svíþjóð verður fyrsta landið til að opna sýndarsendiráð í tölvuleiknum Second Life. Nokkur stórfyrirtæki hafa þegar opnað útibú í sýndarheimnum þar sem rúmlega þrjár milljónir spilara eyða stórum hluta af sínum frítíma, eða jafnvel öllum sínum tíma. Erlent 30.1.2007 11:08
Mannskæðar sprengjuárásir á sjíahátíð Þrátt fyrir mikla öryggisgæslu víðast hvar þar sem sjíamúslimar halda upp á asjúradaginn, þá hafa þegar orðið mannskæðar nokkrar árásir í Írak, þangað sem pílagrímar flykkjast þessa dagana, þrátt fyrir ótryggt ástand í landinu. 32 pílagrímar hafa látist í tveimur öflugum sprengjuárásum með klukkutíma millibili norðaustur af Bagdad í morgun. Erlent 30.1.2007 10:05
Íslendingur verður framkvæmdastjóri Norrænu félaganna Kristín Ólafsdóttir hefur verið útnefnd framkvæmdastjóri Samtaka norrænu félaganna á Norðurlöndunum. Hún tekur við starfinu í vor þegar hún lætur af störfum sem ritari hjá Norðurlandaráði. Erlent 30.1.2007 09:19
Alheimsátaki gegn holdsveiki ýtt úr vör Holdsveikisjúklingar og heilbrigðisstarfsfólk ýttu í gær úr vör alheimsátaki gegn holdsveiki og ekki hvað síst gegn fordómum gegn holdsveikum. Samkvæmt upplýsingum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar eru holdsveikisjúklingar í kringum hálf milljón í heiminum. Erlent 30.1.2007 09:15
Handteknir fyrir ruslpóstsendingar Tveir suðurkóreskir forritarar hafa verið handteknir vegna gruns um að hafa sent út 1,6 milljarða af ruslbréfum á netföng samlanda sinna. Þetta brýtur í bága við verslunarlög landsins. Þeir eru meðal annars grunaðir um að hafa selt netföng 12 þúsund Suður-Kóreumanna fyrir 7,3 milljónir íslenskra króna. Erlent 30.1.2007 09:06
Danir ósáttir við að fá ekki miða á landsleikinn í dag Stuðningsmenn danska landsliðsins í handbolta eru óhressir með það að það skyldi hafa verið orðið uppselt á leik Dana og Íslendinga í dag, áður en vitað var hvaða lið myndu takast á í þessum leik. Mun færri danskir stuðningsmenn komast á leikinn en hefðu viljað, að sögn Jótlandspóstsins. Erlent 30.1.2007 08:45
Mikil öryggisgæsla vegna asjúra-hátíðar sjíamúslima Mikil öryggisgæsla er víða í arabaheiminum í dag þar sem ein helsta hátíð sjíamúslima, asjúra-hátíðin, er að hefjast. Í pakistönsku borginni Quetta var varalið lögreglu og öryggissveita kallað út til varúðar, þar sem ofbeldi milli sjía og súnnímúslima hefur aukist í landinu undanfarið. Erlent 30.1.2007 08:45
Venesúela og Íran styrkja samstarf sitt og smíða fjarstýrðar flugvélar Varnarmálaráðherra Venesúela tilkynnti í gær að her landsins muni eiga samstarf við Íran um að hanna og smíða fjarstýrðar flugvélar. Flugher Venesúela átti frumkvæðið að samstarfinu og er þegar kominn vel á veg með smíði vélanna, að sögn dómsmálaráðherrans. Erlent 30.1.2007 08:00
Hamas og Fatah samþykktu vopnahlé í nótt Palestínsku fylkingarnar Hamas og Fatah samþykktu vopnahlé sín á milli í gærkvöldi, sem tók gildi klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma. Rétt eftir að vopnahléð tók gildi heyrðist skothríð bergmála um Gaza-borg en ekki hefur frést af neinu mannfalli eða særðum mönnum. Erlent 30.1.2007 07:45
Viðræður við N-Kóreu halda áfram 8. febrúar Viðræðum um kjarnorkuafvopnun Norður-Kóreu verður fram haldið þann 8. febrúar í Peking. Þetta tilkynnti utanríkisráðuneyti Kína í morgun. Viðræður sex landa báru engan árangur í desember síðastliðnum enda strandaði þar á peningaágreiningi milli Norður-Kóreu og Bandaríkjamanna. Erlent 30.1.2007 07:25
Hamas og Fatha semja um vopnahlé Meðlimir Hamas-samtakanna og Fatha-hreyfingarinnar í Palestínu hafa samþykkt vopnahlé. Fréttastofa Reuters hefur þetta eftir Mahmoud al-Zahar, utanríkisráðherra Palestínu, en fylkingarnar ætla að leggja niður vopn sín klukkan eitt eftir miðnætti að íslenskum tíma. Erlent 29.1.2007 22:06
Loftslagið jarðar fer stöðugt hlýnandi Útblástur gróðurhúsalofttegunda hefur valdið umtalsverðri hækkun á hitastigi andrúmsloftsins og hafsins með þeim afleiðingum að sjávarborð hefur risið og heimsskautaísinn bráðnað. Þetta er afdráttarlaus niðurstaða skýrslu sem loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna kynnir á næstu dögum. Erlent 29.1.2007 19:02
Sprengdi upp bakarí Samtökin Heilagt stríð og al-Aqsa-herdeildirnar hafa bæði lýst yfir ábyrgð á sjálfsmorðsárás sem framin var í bænum Eilat í Ísrael í dag. Fjórir létu lífið í tilræðinu, sem er það fyrsta í landinu í níu mánuði. Erlent 29.1.2007 18:27
Forseti Sudan hundsaður í formannsembætti Enn hefur verið gengið framhjá Omar al-Bashir forseta Súdan sem næsta formanns Afríkusambandsins vegna átakanna í Darfur. Komið var að Bashir að taka við embættinu, en í stað hans er það John Kufuor forseti Ghana sem hlýtur heiðurinn. Afríkuríkið Chad hafði hótað að segja sig úr samtökunum ef Bashir yrði formaður þeirra. Erlent 29.1.2007 16:56
Hillary klaufaleg á blaðamannafundi Hillary Clinton forsetaframbjóðandi demókrata í Bandaríkjunum fékk óvænt viðbrögð á fjöldafundi í Iowa í Bandaríkjunum í gær, vegna ummæla sem hún viðhafði um hæfni sína til að meðhöndla illa menn. Hillary byrjaði fundinn á alvarlegum nótum og sagðist vera í forsetaslagnum af alvöru, hún ætlaði að vinna. Hún gagnrýndi George Bush Bandaríkjaforseta harðlega fyrir stríðið í Írak. Erlent 29.1.2007 16:37
Nýtt Windows fer í sölu á morgun Sala hefst á morgun á nýrri útgáfu af Windows stýrikerfinu frá Microsoft, Windows Vista. Búist er við að um 100 milljón tölvur verði komnar með nýja stýrikerfið innan 12 mánaða. Þetta er um 15% þeirra tölva sem nú keyra á XP stýrakerfinu. Viðmót og öryggismál, eru meðal þess sem bætt hefur verið í nýju útgáfunni, sem verður markaðssett í þremur gerðum. Lágmarksbúnaður til að keyra Vista er 512 Mb af innra minni, 800 megaherza örgjörvi og 15 Gígabita pláss á harða diskinum. 128MB af skjáminni er líka nauðsynlegt til að nýta þrívíddarútlit glugganna í nýja viðmótinu. Uppfærsla í Vista úr Windows XP kostar á bilinu 15 til 20 þúsund krónur hér á landi. Erlent 29.1.2007 16:36
Fyrsta málið staðfest hjá sakamáladómsstólnum í Haag Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn í Haag ákvað í dag að næg sönnunargögn væru gegn leiðtoga og liðsmanni í Kongólska hernum til að hefja fyrsta mál dómstólsins. Ákvörðunin staðfestir ákæru gegn Thomas Lubanga um að hafa skráð börn í herinn sem hermenn. Hún markar þáttaskil fyrir dómstólinn sem var komið á fót árið 2002 og er ætlað að vera varanlegur alþjóðlegur stríðsglæpadómstóll. Erlent 29.1.2007 15:37
Fimmtán manna áhöfn bjargað Sex skipverjum var bjargað úr spænskum togara um borð í breska herþyrlu við Scilly eyjur, 45 kílómetra frá Cornwall á Suðvesturodda Bretlands í dag. Sexmenningarnir urðu eftir fyrr í dag þegar níu manns var bjargað. Flogið var með þá til Brest í Norður Frakklandi. Fyrsta tilraun þyrlunnar til aðstoðar var að koma pumpu um borð í skipið sem er spænskt og heitir Mareton, en hjálparkall barst frá skipinu eftir að það fékk á sig sjó um 160 mílur vestur af Scilly eyjum. Erlent 29.1.2007 15:24
Kína varar við víni og konum Yfirvöld í Kína hafa varað ríkisstjórnina og starfsmenn Ólympíuleikanna við því að taka þátt í spillingu eða siðlausri hegðun þegar Ólympíuleikarnir fara fram í Peking árið 2008. Kommúnistaflokkurinn í Peking varaði embættismenn og opinbera starfsmenn við því að dreifa orku sinni í vín eða konur. Haft er eftir kínverska dagblaðinu, the China Daily, að fylgst verði með embættismönnum og hvort lífstíll þeirra sé nægilega ábyrgur. Erlent 29.1.2007 14:47
Verkfalli aflýst hjá British Airways Tveggja daga verkfalli flugliða hjá breska flugfélaginu British Airways hefur verið aflýst. Samningar náðust nú eftir hádegið milli félagsins og flugliða um aðalatriði deilunnar. Verkfallið var fyrirhugað frá miðnætti í kvöld til miðnættis á miðvikudagskvöld. Sættir um laun og veikindadaga tókust loks í dag. Þrátt fyrir að verkfallinu hafi verið aflýst er gert ráð fyrir einhverjum truflunum á flugi. Erlent 29.1.2007 14:07