Erlent
Málsókn gegn MySpace vísað frá Fyrirtækið News Corp. skýrði frá því í dag að fylkisréttur hefði vísað frá máli gegn MySpace vefsíðunni. Foreldrar tveggja stúlkna sem urðu fórnarlömb kynferðisafbrotamanna höfðuðu málið á þeim forsendum að MySpace hefði getað komið í veg fyrir atvikin. MySpace vefurinn á þó yfir höfði sér fleiri málsóknir af svipuðum toga. Erlent 14.2.2007 22:34
Arctic Monkeys sigursælir Arctic Monkeys voru sigurvegarar Brit verðlaunanna sem fram fóru í Lundúnum í kvöld. Þeir unnu bæði verðlaun fyrir að vera besta breska hljómsveitin og að hafa gefið út bestu bresku plötuna. Erlent 14.2.2007 22:01
Los Angeles verður þráðlaus 2009 Borgarstjórinn í Los Angeles hefur ákveðið að borgaryfirvöld muni bjóða upp á frítt, eða mjög ódýrt, þráðlaust net fyrir alla borgarbúa. Verkefnið á að vera tilbúið árið 2009 og verður eitt stærsta þráðlausa net Bandaríkjanna. Erlent 14.2.2007 21:51
11 íranskir hermenn láta lífið í sprengjuárás Ellefu íranskir hermenn létu lífið og 31 slösuðust í dag eftir að bíl með sprengiefnum var keyrt á rútu sem þeir voru í. Atvikið átti sér stað í borg í suðurhluta Íran. Erlent 14.2.2007 21:31
Lögðu hald á fjögur tonn af kókaíni Spænska lögreglan skýrði frá því í dag að hún hefði lagt hald á að minnsta kosti fjögur tonn af kókaíni í snekkju á Gíbraltarsundi. Lögreglan í Portúgal náði einu og hálfu tonni af sama efni í tengdri aðgerð nálægt eyjunni Madeira stuttu seinna. Spænska lögreglan fór um borð í snekkjuna Challenger í gær og fluttu hana til hafnar í Almeria til þess að leita að eiturlyfjum. Erlent 14.2.2007 20:49
Námuverkamenn í Mexíkó minnast fallinna félaga Mexíkóskir námuverkamenn fara í verkfall 19. febrúar til þess að minnast þeirra 65 námuverkamanna sem létust í námusprengingu í fyrra. Talsmenn stéttarfélagsins skýrði ekki frá því hversu langt verkfallið yrði. Tilgangurinn með verkfallinu er að setja þrýsting á stjórnvöld og hvetja þau til þess að beita eigendur námunnar refsiaðgerðum. Stéttarfélagið er reyndar klofið í tvennt svo ekki er vitað hversu margir eiga eftir að taka þátt í verkfallinu. Erlent 14.2.2007 20:33
Leiftrandi risasmokkur Japanskir vísindamenn birtu í dag myndir af risasmokkfiski í sínum náttúrulegum heimkynnum, þær fyrstu í sögunni, að þeirra sögn. Á myndunum sést skepnan svamla fimlega um öngul vísindamannanna og af og til bregður fyrir daufu leiftri úr örmum hennar. Erlent 14.2.2007 20:00
Tíunda hvert íslenskt barn einmana Velsæld barna í iðnríkjunum er minnst í Bretlandi og Bandaríkjunum en best líður þeim á Norðurlöndunum. Heilbrigði barna er óvíða betri en hér á landi en fjölskyldu- og vinatengslum íslenskra barna er ábótavant. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Erlent 14.2.2007 19:30
Berdymukhamedov sór embættiseiðinn Kurbanguly Berdymukhamedov sór í dag embættiseið sem forseti Mið-Asíulýðveldisins Túrkmenistans, við hátíðlega athöfn. Berdymukhamedov fær það erfiða hlutskipti að feta í fótspor Saparmurats Niyazov, sem þekktur var sem Turkmenbashi, eða faðir allra Túrkmena, en hann andaðist í desember síðastliðnum. Erlent 14.2.2007 19:00
Evrópuþingið fordæmir fangaflugið Evrópuþingið lagði í dag blessun sína yfir skýrslu þar sem ríkisstjórnir allmargra Evrópulanda eru fordæmdar fyrir að hafa veitt bandarísku leyniþjónustunni, CIA, heimildir til að taka þar grunaða hryðjuverkamenn höndum og flytja þá til staða þar sem þeir sættu illri meðferð. Erlent 14.2.2007 18:30
Vilja banna hjónabönd samkynhneigðra í Nígeríu Stjórnmálamenn í Nígeríu lögðu í dag fram frumvarp um að banna hjónabönd samkynhneigðra. Frumvarpið féll í góðan jarðveg þó svo fámennur hópur hefði talað fyrir réttindum samkynhneigðra. Samkynhneigð er þegar ólögleg í Nígeríu en frumvarpið myndi tryggja að þeir gætu ekki gift sig. Frumvarpið er tilkomið vegna lögleiðinga hjónabanda samkynhneigðra í vestrænum löndum undanfarið. Erlent 14.2.2007 17:57
Bush vongóður um friðsamlega lausn Íransdeilu George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði síðdegis að hann væri þeirrar skoðunnar að Bandaríkin og samherjar þeirra nálguðust friðsama lausn á deilu sinni við Íran. Deilurnar snúast um kjarnorkuáætlun Írana. Bush sagði jafnframt að hann efaði að veinar viðræður ríkjanna tveggja myndu bera árangur. Erlent 14.2.2007 17:39
Svíar að gefast upp á Kastrup Sænskur þingmaður hefur sent dönsku ríkisstjórninni formlega fyrirspurn um hvort hún ætli að gera eitthvað til þess að stytta biðraðir og leysa vandamál sem skapast við innritunarborð á Kastrup flugvelli. Miklar seinkanir hafa verið daglegt brauð á flugvellinum síðustu misserin, og algengt að fólk komist ekki út í flugvélar áður en þær leggja af stað. Erlent 14.2.2007 15:43
Verkfall vegna Monu Lisu Verðir í Louvre safninu í París ætla í verkfall. Þeir krefjast hærri launa vegna álags sem fylgir því að gæta málverksins af Monu Lisu eftir Leonardo da Vinci. Launakröfurnar vegna álagsins hljóða upp á rúmar þrettán þúsund íslenskar krónur á mánuði. Erlent 14.2.2007 13:35
Tveggja ára laumufarþegi Tveggja ára stúlku tókst að komast frá foreldrum sínum á flugvelli í Þýskalandi og um borð í flugvél á leið til Egyptalands. Foreldrarnir voru að ganga um borð í flugvél á leið til Túnis þegar þau urðu þess vör að stúlkan var horfin. Þau tilkynntu öryggisvörðum flugvallarins í Nürnberg umsvifalaust um hvarf hennar. Erlent 14.2.2007 13:15
Evrópuþingið fordæmir fangaflug Evrópuþingið í Strasbourg fordæmdi í dag fangaflug Bandaríkjanna með meinta hryðjuverkamenn og sagði það vera ólöglegt tæki í baráttunni gegn hryðjuverkum. Jafnframt voru ríkisstjórnir og leyniþjónustur Evrópuríkja fordæmdar fyrir að hafa samþykkt þetta athæfi og haldið því leyndu. Erlent 14.2.2007 13:15
Árangurslítið hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu Ekkert útlit er fyrir að árangur náist á ráðstefnu um hvalveiðar sem nú fer fram í Japan. Formaður íslensku sendinefndarinnar segir vonbrigði að fjölmörg aðildarríki Alþjóðahvalveiðiráðsins hafi ákveðið að sniðganga ráðstefnuna. Erlent 14.2.2007 13:00
Engum eldflaugum beint gegn Rússum Forseti Tékklands sagði í dag að ef Tékkar tækju þátt í eldflaugavörnum Bandaríkjanna, væri þeim flaugum ekki beint gegn Rússlandi. Rússar hafa brugðist ókvæða við beiðni Bandaríkjanna um að fá að setja upp ratsjárstöðvar og eldflaugar í Tékklandi og Póllandi. Bandaríkjamenn segja að tilgangurinn sé að verjast eldflaugaárásum frá Íran og Norður-Kóreu. Erlent 14.2.2007 11:31
Evrópuþingmenn rífast um fangaflug Evrópskir þingmenn tókust á um það, í dag, hvort þeir hefðu nægar sannanir til þess að saka ríkisstjórnir landa sinna um að hafa átt samstarf við bandarísku leyniþjónustuna CIA um fangaflug til aðildarríkja Evrópusambandsins. Leyniþjónustan er sökuð um að hafa geymt meinta hryðjuverkamenn í leynifangelsum í Evrópu, og flogið með þá til landa þar sem þeir voru pyntaðir. Erlent 14.2.2007 10:53
Bresk börn hafa það verst Lífsgæði barna í iðnvæddum ríkjum eru minnst í Bretlandi. Þetta kemur fram í skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF sem kom út í dag. Skýrslan tekur til 40 þátta er varða lífsgæði barna í 21 iðnvæddu ríki og er fyrsta rannsókn sinnar tegundar. Erlent 14.2.2007 10:24
Skýldu sér á bak við börn Uppreisnarmenn Talibana skýldu sér á bak við börn í bardögum gegn hersveitum NATO við stíflu í suðurhluta Afganistan nú í vikunni. Talibanar hafa áður skýlt sér á bak við óbreytta borgara en ekki eru þekkt dæmi þess að þeir hafi notað börn í þeim tilgangi áður. Þetta segja Afganar sem urðu vitni að átökunum við Reuters-fréttastofuna. Erlent 14.2.2007 10:00
Sea Shepherd halda til hafnar Tvö skip Sea Shepherd sem hafa undanfarna daga truflað hvalveiðar Japana í Suður-Íshafi hafa nú snúið aftur til hafnar. Flaggskip Greenpeace tekur nú við að trufla veiðarnar. Erlent 14.2.2007 07:58
Al Sadr flúinn til Íran Talið er að Moqtada al Sadr múslimaklerkur og einn valdamesti maður Íraks hafi nú flúið yfir til Íran. Fram kemur á fréttavef ABC-sjónvarpsstöðvarinnar bandarísku að yfirmenn í bandaríska hernum staðfesti þetta. Erlent 14.2.2007 07:53
Mannskæð sprengjuárás í Íran Átján féllu í sprengjuárás á rútu í suðausturhluta Íran í morgun. Árásini var beint að rútu byltingarhermanna Íransstjórnar. Átök eru algeng á þeim slóðum sem sprengingin varð á milli öryggissveita og uppreisnarmanna. Fjórir stóðu að tilræðinu og reyndu þeir að flýja af vettvangi á mótorhjólum, þeir náðust þó áður en þeir náðu landamærum Pakistan. Einn sprengjumannana tók tilræðið upp á myndband. Erlent 14.2.2007 07:35
Indverjar deila á ameríska siði Í dag er Valentínusardagur sem er dagur blómasala, súkkulaðiframleiðenda og elskenda. Dagurinn hefur notið sívaxandi vinsælda hérlendis en siðurinn þykir með þeim amerískari. Dagurinn verður líka sífellt vinsælli hjá milljarðaþjóðinni Indverjum. Erlent 14.2.2007 07:21
Tveggja ára stúlka ætlaði ein til Egyptalands Tveggja ára stúlka sem hljóp frá foreldrum sínum á flugvelli í Þýskalandi tókst að koma sér um borð í flugvél á leið til Egyptalands. Foreldrar stúlkunnar létu vita um leið og þeir tóku eftir því að hún væri horfin en þau voru þá að fara um borð í flugvél á leið til Túnis. Erlent 13.2.2007 23:38
Dauðvona maður vann milljón dollara Wayne Schenk, 51 árs, finnst hann ekki vera mjög heppinn maður þrátt fyrir að hafa unnið milljón dollara, eða um 68 milljónir íslenskra króna, í skafmiðahappadrætti New York ríkis. Hann greindist nefnilega með banvænt krabbamein aðeins fimm vikum áður. Erlent 13.2.2007 23:13
Olíufyrirtæki borgar 13,5 milljarða í skaðabætur Hollenska olíufyrirtækið Trafigura náði í dag samkomulagi um að borga stjórnvöldum í Fílabeinsströndinni 198 milljónir dollara, eða um 13,5 milljarða íslenskra króna, vegna mengunar sem fyrirtækið varð valdur að. Þúsundir veiktust vegna mengunarinnar. Fyrirtækið sendi skip þangað til þess að losa úrgang og reyndist hann vera eitraður. Erlent 13.2.2007 22:44
Demókratar á móti fjölgun hermanna í Írak Demókratar í fulltrúadeild bandaríska þingsins hófu í dag umræður um fjölgun hermanna í Írak. Þeir segja að almenningur í Bandaríkjunum hafi misst trúna á stríðið á meðan repúblikanar vara við því að grafa undan stríðinu gegn hryðjuverkum. Umræðurnar verða í þrjá daga og snúast þær um tillögu sem gagnrýnir harðlega fjölgun hermanna í Írak. Erlent 13.2.2007 22:31
Stjórnvöld í Suður-Afríku skila landi Stjórnvöld í Suður-Afríku hafa ákveðið að herða róðurinn til þess að bæta efnahag svarta hluta þjóðarinnar. Hluti af þeim áætlunum snýst um að skila landi í eigu hvítra til svartra. Erlent 13.2.2007 21:49