Erlent
Bær í Kansas rústir einar eftir hvirfilbyl Björgunarsveitir leita nú eftirlifenda í bænum Greensburg í Kansas fylki í Bandaríkjunum eftir að hvirfilbylur lagði bæinn í eyði í dag. Níu manns létu lífið í veðurhamnum, þar af átta í Greensburg. Erlent 5.5.2007 23:02
Eiginkonan til sölu fyrir fimmtíu dali Stjórnvöld í Brasilíu hafa skipað uppboðsvef þar í landi að fjarlægja auglýsingu þar sem maður að nafni Breno býður 35 ára gamla eiginkonu sína til sölu fyrir fimmtíu Bandaríkjadali, eða sem nemur um þrjúþúsund og tvöhundruð krónum. Þetta kemur fram á fréttavef CNN. Erlent 5.5.2007 20:41
Aukið samstarf við Bandaríkin verði Sarkozy forseti Frakkar velja sér nýjan forseta á morgun eftir tólf ára setu Jacques Chirac í embætti. Síðustu kannanir sýna að Nicolas Sarkozy hafi forskot á keppninaut sinn Segolene Royal. Búast má við auknu samstarfi milli Frakklands og Bandaríkjanna verði Sarkozy fyrir valinu. Erlent 5.5.2007 18:49
Kröftugur skýstrókur varð sjö manns að bana Kröftugur skýstrókur varð sjö manns að bana þegar hann gekk yfir Kansasfylki í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Skýstrókar, mikil rigning og sterkir vindar hafa gengu yfir miðvesturhluta Bandaríkjanna í gær og í dag. Erlent 5.5.2007 18:46
Aðstæður til leitar erfiðar Óttast er um afdrif rúmlega eitthundrað farþega sem voru um borð í flugvél sem hrapaði í Kamerún í morgun. Aðstæður til leitar eru erfiðar og ekki hefur enn tekist að finna flugvélina. Erlent 5.5.2007 18:24
Ekkert Hilton fyrir Paris Hótelkeðjuerfinginn Paris Hilton gæti þurft að temja sér nýjan lífsstíl, í það minnsta í þá 45 daga sem hún mun dvelja í Century héraðsfangelsinu, litlu kvennafangelsi nálægt Lynwood í Los Angeles sýslu. Erlent 5.5.2007 16:39
Rússibani lenti á öryggishliði Að minnsta kosti einn lét lífið og tuttugu einn slasaðist þegar rússibani lenti á öryggishliði í skemmtigarði í vesturhluta Japan í morgun. Talið er að rússibaninn hafi verið sjötíu og fimm kílómetra hraða þegar slysið varð. Erlent 5.5.2007 13:15
Paris Hilton á að hefja afplánum 5. júní Paris Hilton var í gær dæmd til fjörutíu og fimm daga fangelsisvistar í Los Angeles fyrir að hunsa skilorðsbundinn dóm sem hún hlaut fyrir ölvunarakstur. Samkvæmt dómnum á hún að hefja afplánun eftir mánuð. Erlent 5.5.2007 12:20
Styttist í forsetakosningarnar í Frakklandi Aðeins er tæpur sólahringur þar til að kjörstaðir verði opnaðir vegna forsetakosninganna í Frakklandi. Síðustu kannanir sýna að Nicolas Sarkozy hafi aukið forskot sitt á Segolene Royal. Erlent 5.5.2007 09:59
Óttast um afdrif eitt hundrað farþega Óttast er um afdrif rúmlega eitthundrað farþega sem voru um borð í flugvél sem brotlenti í suðurhluta Kamerún í morgun. Samband við flugvélin rofnaði skömmu eftir að hún tók á loft frá Douala í Kamerún í morgun en hún var á leið til Nairobi í Kenýa. Erlent 5.5.2007 09:56
Fylgi Sarkozys hefur vaxið Segolene Royal, forsetaframbjóðandi franskra sósíalista, varaði í gær við því að ofbeldi og uppþot gætu aukist í Frakklandi ef mótframbjóðandi hennar, hægrimaðurinn Nicolas Sarkozy, sigrar í forsetakosningunum á morgun. Erlent 5.5.2007 06:00
Sigur skoskra þjóðernissinna Skoski þjóðernisflokkurinn SNP hrósaði sigri í Skotlandi og leiðtogi hans, Alex Salmond, gæti sem hægast orðið forsætisráðherra í nýrri stjórn skoska heimastjórnarþingsins. Erlent 5.5.2007 02:30
Rússar brjóta kurteisisreglur Finnski forsætisráðherrann Matti Vanhanen hefur lýst yfir stuðningi við eistnesk stjórnvöld í ágreiningnum við Rússa um styttuna í Tallinn og telur þá kröfu Rússa fráleita að eistneska ríkisstjórnin segi af sér. Erlent 5.5.2007 02:15
Jarðarbúar hafa ráð á að stöðva hlýnun Jarðarbúar þurfa að draga verulega úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda til þess að hægja á hlýnun jarðarinnar. Í þriðja hluta skýrslu Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna eru helstu leiðirnar að þessu marki sagðar vera þær að gera orkunotkun í byggingum og farartækjum hagkvæmari, nota endurnýjanlega orkugjafa í staðinn fyrir jarðefnaeldsneyti og gera verulegar umbætur á sviði skógræktar og landbúnaðs. Erlent 5.5.2007 02:00
Herská samtök boða afvopnun Ólögleg samtök herskárra sambandssinna á Norður-Írlandi, Ulster Volunteer Force (UVF), sem um áratuga skeið stóðu að árásum á kaþólska, lýstu því yfir á fimmtudag að þau væru hætt vopnaðri baráttu og myndu afvopnast. Erlent 5.5.2007 01:30
Herstöðvasamningar staðfestir Rúmenía, AP Rúmeníuþing samþykkti á miðvikudag með yfirgnæfandi meirihluta samninga um að heimila Bandaríkjaher afnot af fjórum herstöðvum í Rúmeníu til næstu tíu ára og að hafa þar allt að 3.000 hermenn. Erlent 5.5.2007 01:30
Paris Hilton dæmd í 45 daga fangelsi Paris Hilton var dæmd til 45 daga fangelsisvistar í Los Angeles í dag fyrir að hunsa refsingarskilmála í kjölfar handtöku í Hollywood fyrir ölvunarakstur í september í fyrra. Þá mældist alkóhólmagn í blóði hennar yfir leyfilegum mörkum. Henni var þá gert skylt að sækja áfengisnámskeið, sem hún mætti svo ekki á. Erlent 5.5.2007 00:00
Styður beiðni dóttur sinnar um að fá fara í fóstureyðingu Móðir sautján ára írskrar stúlku styður beiðni hennar um að fá að fara í fóstureyðingu í Bretlandi. Hæstiréttur fjallar nú um beiðni en heilbrigðisyfirvöld hafa neitað henni um leyfi til að fara. Erlent 4.5.2007 21:21
Skildi farþegaþotu eftir á akbrautinni Miklar tafir hafa verið á umferð á einni fjölförnustu götu borgarinnar Mumbai í Indlandi undanfarna daga eftir að eitt stykki farþegaþota var skilin þar eftir. Erlent 4.5.2007 19:00
Arfaslök útkoma Verkmannaflokksins Verkamannaflokkurinn tapaði miklu fylgi þegar kosið var til sveitastjórna á Bretlandi og þings í Skotlandi og Wales í gær. Tony Blair segir tækifæri engu að síður leynast í úrslitunum. Klúður einkenndi framkvæmd skosku kosninganna. Erlent 4.5.2007 18:45
Sarkozy talinn öruggur um sigur Flest bendir til að Nicolas Sarkozy muni vinna nokkuð öruggan sigur á Segolene Royal í síðari umferð frönsku forsetakosninganna sem fram fer á sunnudaginn. Síðustu skoðanakannanir kosningabaráttunnar sýna að talsvert hefur dregið í sundur með þeim á lokasprettinum. Erlent 4.5.2007 18:30
Sjakalinn aftur fyrir rétt Hryðjuverkamaðurinn Carlos öðru nafni Sjakalinn verður aftur dreginn fyrir dóm í Frakklandi á næstunni. Í þetta skipti lúta ákærurnar að hryðjuverkum sem hann framdi í landinu á níunda áratugnum. Sjakalinn afplánar þegar lífstíðardóm í fangelsi fyrir ódæðisverk sín. Nafnið fékk hann eftir bók Fredericks Forsythe, Dagur sjakalans. Erlent 4.5.2007 14:51
Hvaða George? Bæði páfinn, Borat, og Osama bin-Laden eru á lista bandaríska vikuritsins Time yfir 100 áhrifamestu menn heimsins. Það er hinsvegar ekki George Bush, forseti Bandaríkjanna. Meðal annarra sem taldir eru áhrifameiri en Bush eru poppsöngvarinn Justin Timberlake, fyrirsætan Kate Moss og fótboltakappinn Thierry Henry. Erlent 4.5.2007 14:13
Rauði dregillinn of stuttur fyrir Elísabet II Fyrsta opinbera heimsókn Elísabetar Bretadrottningar til Bandaríkjanna í 16 ár dróst um tæpan hálftíma þar sem rauði dregillinn var fimm metrum of stuttur. Flugvél drottningarinnar lenti í Virginíu ríki á áætluðum tíma í gær. Þá kom í ljós að fimm metra vantaði upp á að dregillinn næði að langanginum. Heiðursvörðurinn og annað starfsfólk var 25 mínútur að kippa því í liðinn, á meðan fimm þúsund manns biðu eftir að bera heiðursgestinn augum. Erlent 4.5.2007 13:38
Dönsk fermingarbörn fá áfengisfræðslu Dönsk fermingarbörn fá nú fræðslu um áfengismál í fermingarfræðslunni. Danskir vínframleiðendur og innflytjendur hafa tekið höndum saman við kirkjuna um málið og eru unglingar varaðir við að þótt þeir teljist í fullorðinna manna tölu eftir fermingu, sé heili þeirra ekki fullþroskaður fyrr en um tvítugt. Áfengisdrykkja á unglingsárum geti tafið og truflað þann þroska. Erlent 4.5.2007 12:53
Forskot Sarko eykst Samkvæmt skoðanakönnunum hefur Nicolas Sarkozy aukið forskot sitt á Segolene Royal fyrir síðari umferð frönsku forsetakosninganna sem fram fer á sunnudaginn. Erlent 4.5.2007 12:30
Íhaldsflokkurinn sigraði Verkamannaflokkurinn tapaði umtalsverðu fylgi þegar kosið var til sveitarstjórna í Bretlandi og til velska og skoska þingsins í gær en íhaldsmönnum vegnaði vel. Framkvæmd kosninganna í Skotlandi virðist hafa verið mjög ábótavant. Erlent 4.5.2007 12:00
Chavez hótar að þjóðnýta banka Forseti Venesúela, Hugo Chavez, hótaði því í gær að þjóðnýta banka landsins sem og stærsta stálframleiðanda þess. Hann sakaði þau um óeðlilega viðskiptahætti. Erlent 4.5.2007 11:25
Einn af fyrstu geimförum Bandaríkjanna látinn Bandaríski geimfarinn Walter Schirra er látinn, 84 ára að aldri. Hann var einn af hinum fyrstu sjö Mercury geimförum, sem fóru í fyrstu geimferðir Bandaríkjamanna. Schirra var eini geimfarinn sem flaug bæði Mercury, Gemini og Apollo geimförum. Hann var tilraunaflugmaður hjá Bandaríska flotanum áður en hann gekk til liðs við NASA árið 1959. Erlent 4.5.2007 10:36
Hræddur við konu í rauðum kjól Utanríkisráðherra Írans gekk í gær út úr kvöldverðarboði sem haldið var við lok ráðstefnu um málefni Íraks, í Egyptalandi. Íranar segja að ástæðan hafi verið sú að rússnesk kona sem lék á fiðlu fyrir gestina hafi verið í of flegnum rauðum kjól. Bandarískir embættismenn halda því fram að rauði kjóllinn hafi ekki verið ástæðan, heldur hafi Manouchehr Mottaki fyllst skelfingu þegar hann sá að hann átti að sitja andspænis Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Erlent 4.5.2007 10:13