Paris Hilton á að hefja afplánum 5. júní Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 5. maí 2007 12:20
Paris Hilton var í gær dæmd til fjörutíu og fimm daga fangelsisvistar í Los Angeles fyrir að hunsa skilorðsbundinn dóm sem hún hlaut fyrir ölvunarakstur. Samkvæmt dómnum á hún að hefja afplánun eftir mánuð. Það var hálfgjört fjölmiðlafár fyrir utan dómshúsið í Los Angeles í gær þegar dómur var kveðinn upp yfir Paris Hilton. Paris er ekki óvön því að slegist sé um að taka myndir af henni en hún hefur verið áberandi í fjölmiðlum síðustu árin og þá einna helst fyrir villt skemmtanalíf sitt og það eitt að vera Paris Hilton. Hún er tuttugu og sex ára og erfingi að Hilton hótelkeðjunni. Í september í fyrra var hún handtekin fyrir ölvunarakstur en áfengismagn í blóði hennar mældist 0,8 prómill. Í janúar á þessu ári fékk hún þriggja ára skilorðsbundinn dóm fyrir brotið auk þess sem dómari skipaði henni að sækja áfengisnámskeið og greiða sekt. Hún hafði skömmu áður verið stöðvuð af lögreglunni fyrir að aka próflaus. Í lok febrúar hafði lögreglan svo aftur afskipti af henni þar sem hún ók of hratt og án þess að hafa ljósin á en þar með rauf hún skilorðið. Hilton hélt því fram fyrir rétti að hún hefði ekki gert sér grein fyrir því að hún hefði misst ökuleyfi sitt þrátt fyrir að hafa undirritað skjal þess efnis hjá lögreglunni í janúar. Hún sagðist vera miður sín út af þessu öllu og að framvegis myndi hún fylgjast betur með. Foreldrar Parisar, Rick og Kathy Hilton, voru viðstaddir dómsuppkvaðingu. Móðir hennar greip andann á lofti þegar dómarinn las upp úrskurðinn og lögmaður hennar, Howard Weitzman, sagði niðurstöðuna fáránlega og tilhæfulausa. Hér væri verið að ráðast gegn Paris Hilton persónulega, vegna þess hver hún væri. Málinu verður áfrýjað en samkvæmt dómnum á Paris að hefja afplánun 5. júní næstkomandi.
Mest lesið Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla Innlent Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Erlent Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Erlent Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Innlent „Kærkomin ró“ yfir höfuðborgarsvæðinu Innlent Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent „Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Innlent Hlupu frá Danmörku til Svíþjóðar Erlent Tala látinna eftir flugslysið komin í 270 Erlent Skutu eldflaugum á víxl í alla nótt Erlent Fleiri fréttir Trump vill að ICE spýti í lófana og handtaki fleiri ólöglega innflytjendur Tala látinna eftir flugslysið komin í 270 Skutu eldflaugum á víxl í alla nótt Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Hlupu frá Danmörku til Svíþjóðar Annar þingmaðurinn látinn og byssumannsins enn leitað Tíu drepnir í Ísrael og Írönum ráðlagt að rýma Minnst þrír latnir í Ísrael og Teheran í ljósum logum Tveir ríkisþingmenn skotnir á heimilum sínum Varnarmálaráðherra segir að Tehran muni brenna Tuttugu börn drepin í árás á íbúðablokk í Tehran Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Aukinn hraði í framsókn Rússa Minnst tveir drepnir í hefndarárásum Írana Fregnir af eldsvoða á flugvelli í Teheran Segir Íran hafa farið yfir strikið Íranir hefna sín og eldflaugar fljúga í Tel Aviv Forsætisráðherra Spánar biður þjóðina afsökunar á spillingarmáli Flugriti indversku þotunnar sagður fundinn á húsþaki Segir klerkastjórninni að semja áður en það „verður of seint“ Yfirtaka Trumps á þjóðvarðliðinu dæmd ólögleg en hann heldur stjórninni Íranir séu vikum eða mánuðum frá kjarnorkusprengju Leita vísbendinga um flugslysið og fleiri fórnarlamba Æðstiklerkurinn hótar hefndum og drónaárásir eru hafnar Ísraelar gera árásir á Íran „Hann er ástæðan fyrir því að það er ótti“ Öldungadeildarþingmaður borinn út af blaðamannafundi Staðfesta 241 andlát og einn eftirlifanda Réðust á tómstundamiðstöð fyrir útlendinga þegar óeirðir héldu áfram Telur að enginn hafi komist lífs af úr flugslysinu Sjá meira