Aukið samstarf við Bandaríkin verði Sarkozy forseti Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 5. maí 2007 18:49
Frakkar velja sér nýjan forseta á morgun eftir tólf ára setu Jacques Chirac í embætti. Síðustu kannanir sýna að Nicolas Sarkozy hafi forskot á keppninaut sinn Segolene Royal. Búast má við auknu samstarfi milli Frakklands og Bandaríkjanna verði Sarkozy fyrir valinu. Frakkland er stórþjóð í Evrópu og eitt af fimm fastaríkjunum í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Frakkar eru jafnframt kjarnorkuveldi og eitt öflugasta ríki Evrópusambandsins. Það skiptir því máli fyrir alþjóðasamfélagið hvaða forseta Frakkar velja sér. Ef marka má síðustu skoðanakannanir á Royal talsvert á brattann að sækja en í könnun dagblaðsins Le Monde sem birt var í gær segjast 53 prósent aðspurðra ætla að kjósa Sarkozy en 47 prósent Royal. Oft er litið á Frakkland sem ákveðið mótvægi við Bandaríkin en samskipti ríkjanna hafa verið stirð á köflum. Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, segir ljóst að það skipti máli hvort Sarkozy eða Royal verði fyrir valinu. Eiríkur telur að ef Sarkozy verði forseti þá muni samstarf milli Frakklands og Bandaríkjanna aukast en verði Royal forseti muni hún aftur á móti halla sér meira að klassísku Evrópusamstarfi.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Sjá meira