Erlent
Cheney í óvæntri heimsókn til Íraks Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, kom í óvænta heimsókn til Íraks í dag. Heimsóknin er liður í ferð hans um Miðausturlönd sem ætlað er að stemma stigu við átökum ýmissa þjóðarbrota í Írak. Erlent 9.5.2007 10:18
Dönum hent út úr Evróvisjón vegna niðurskurðar? Hugsanlegt er að Danir verði útlokaðir frá Evróvisjón frá og með næsta ári vegna niðurskurðar hjá danska ríkisútvarpinu, Danmarks Radio, á útsendingum frá íþróttaviðburðum. Þetta kemur frá vef Politiken. Erlent 9.5.2007 10:04
Banaslys og lömun á trampólínum Ellefu ára norskur strákur lést og sextán ára landi hans er lamaður eftir slys á trampólínum, í gær. Að sögn lögreglunnar var ellefu ára strákurinn einn að leika sér. Hann fannst látinn við trampólín við heimili sitt. Dánarorsök verður ekki kunn fyrr en eftir krufningu. Hinn sextán ára var í fylgd með félögum sínum. Hann var að reyna að fara heljarstökk, en lenti illa á hnakkanum. Erlent 9.5.2007 09:44
Portúgalska lögreglan sögð gera sitt besta Sendiherra Breta í Portúgal segir að portúgalska lögreglan sé að gera sitt besta í rannsókninni á hvarfi Madeleine McCann, þriggja ára telpunnar sem hvarf fyrir sex dögum síðan. Erlent 9.5.2007 08:43
Krefjast þess að Abu Omar verði sleppt Al-Jazeera fréttastöðin hefur undir höndum upptöku frá samtökum sem segjast hafa Alan Johnston, fréttamann BBC, í haldi en honum var rænt í Gaza borg í Palestínu tólfta mars síðastliðinn. Samtökin kalla sig Her Íslams og þau krefjast þess að Bretar sleppi múslimska klerknum Abu Omar sem situr í fangelsi í Bretlandi. Erlent 9.5.2007 07:59
Rætt um framseljanlegar veiðiheimildir Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hleypt af stað umræðu meðal hagsmunaaðila í sjávarútvegi í aðildarríkjunum um leiðir til að bæta fiskveiðistjórnunarkerfi þeirra, með sérstöku tilliti til kerfa með framseljanlegum veiðiheimildum. Erlent 9.5.2007 06:15
Nýir vopnahléssamningar? Stjórnarher Srí Lanka gerði á mánudag loftárás á eina bækistöð Tamíltígra og viðurkenndi í kjölfarið að semja þyrfti upp á nýtt um vopnahlé milli stríðandi fylkinga í landinu. Vopnahléð hefði reglulega verið brotið á báða bóga og öryggi þjóðarinnar væri mikilvægara en vopnahlé. Erlent 9.5.2007 06:00
Ramos-Horta sigurstranglegri Íbúar Austur-Tímor ganga að kjörborðinu í dag og kjósa sér nýjan forseta í úrslitaumferð forsetakosninga. Í framboði eru Jose Ramos-Horta, handhafi friðarverðlauna Nóbels og Francisco „Lu-Olo“ Guterres en þeir hafa báðir heitið því að hlíta niðurstöðum kosninganna. Erlent 9.5.2007 05:15
Samstjórn tekin við á Norður-Írlandi Hinn 81 árs gamli mótmælendaprestur Ian Paisley tók í gær við forystu í nýrri heimastjórn Norður-Írlands, þar sem hann og samherjar deila völdum með fyrrum fjendum sínum í Sinn Fein, sem var pólitískur armur Írska lýðveldishersins. Erlent 9.5.2007 05:15
Nikolic kjörinn þingforseti Bandamaður Slobodans Milosevic heitins var í gær kjörinn forseti serbneska þingsins, en kjörið markar endurkomu öfgaþjóðernissinna til valda og áhrifa í landinu. Erlent 9.5.2007 03:45
Sektir fyrir hráka og rusl Ósiðir á almannafæri eru yfirvöldum í Kína mikið áhyggjuefni nú í aðdraganda Ólympíuleikanna í Peking. Stjórnvöld hafa tekið upp á því að sekta borgarbúa fyrir að hrækja á almannafæri og voru fimmtíu manns sektaðir í síðustu viku. Erlent 9.5.2007 03:15
Eitt síðasta embættisverkið Jacques Chirac, fráfarandi forseti Frakklands, tók í gær þátt í hátíðahöldum í París í tilefni af 62 ára afmæli stríðslokanna í Evrópu. Þetta var í síðasta sinn sem franskur forseti með eigin minningar um stríðsárin fer fyrir hinni árlegu minningarathöfn. Erlent 9.5.2007 03:00
Meintar misþyrmingar Saksóknarar rússneska hersins hafa hafið rannsókn á dauða ungs hermanns, sem grunur leikur á um að hafi verið misþyrmt af félögum sínum í hernum. Frá þessu greindu talsmenn hersins í Sankti Pétursborg í gær. Erlent 9.5.2007 02:45
Önnur handtaka í Noregi Fertugur norskur ríkisborgari, sem upprunalega er frá Bosníu-Herzegovínu, var í gær handtekinn grunaður um stríðsglæpi í heimalandi sínu á árinu 1992. Norska lögreglan greindi frá þessu. Þetta er önnur handtakan á meintum stríðsglæpamanni í Noregi á hálfum mánuði. Erlent 9.5.2007 02:45
Blóm við bronshermanninn Ráðherrar í ríkisstjórn Eistlands lögðu í gær, í tilefni af 62 ára afmæli stríðsloka í Evrópu, blómsveiga við „bronshermanninn“ svonefnda, umdeilda styttu af sovéskum hermanni sem flutt var frá torgi í miðborg Tallinn inn í hermannagrafreit í borginni. Erlent 9.5.2007 01:00
Ógiltu úrskurð forseta Egypskur dómstóll ógilti í dag úrskurð forseta landsins um að rétta yfir 40 meðlimum Bræðaralags múslima í herrétti. Forsetinn, Hosni Mubarak, hafði vísað máli þeirra til herréttar vegna gruns um að þeir tengdust hryðjuverkastarfsemi. Erlent 8.5.2007 22:52
Erótíkin bjargar bókasafninu Borgaryfirvöld í Vín í Austurríki hafa tekið upp á óvenjulegri aðferð til þess að afla fjár fyrir bókasöfnin. Þau réðu stúlku til þess að hvísla. Hún hvíslast á við viðskiptavini kynlífslínu sem borgin stofnaði. Erlent 8.5.2007 22:16
Árás bandarískrar herþyrlu veldur dauða íraskra barna Árás bandarískrar herþyrlu á grunaða uppreisnarmenn varð til þess að fjöldi barna lét lífið í dag. Árásin átti sér stað í Diyala héraði norðaustur af Bagdad. Þetta fullyrtu íraskar öryggissveitir. Erlent 8.5.2007 22:02
Ætluðu að myrða bandaríska hermenn Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa ákært fimm öfgasinnaða múslima fyrir að hafa ætlað að myrða bandaríska hermenn á herstöðinni Fort Dix í New Jersey. Sjötti maðurinn var síðan ákærður fyrir að hafa aðstoðað þrjá þeirra við að verða sér úti um vopn. Erlent 8.5.2007 21:40
Kindakappreiðar slá í gegn Viðburðurinn þykir kannski ekki jafn fínn og veðreiðarnar í Kentucky og Drottningin er svo sannarlega ekki á meðal áhorfenda. Engu að síður virðast Sauðfjárkappreiðarnar hafa orðið að stórviðburði í hluta Englands. Í þeim takast hreinræktaðir gæðingar á við girðingarnar og á meðal keppenda eru Vefstóllinn, Skurður Darners og Rýjingarlækur. Erlent 8.5.2007 21:01
Fékk kóngulær í eyrað Læknar í Oregon í Bandaríkjunum segja enga furðu að níu ára drengur þar hafi þjáðst af eyrnaverk á dögunum, þar sem tvær köngulær höfðu hreiðrað um sig í eyra hans. Erlent 8.5.2007 19:15
Merki ekki fengið að láni Höfundur merkis Íslandshreyfingarinnar segir einskæra tilviljun að það sé sláandi líkt merki bandaríska hugbúnaðarfyrirtækisins ESS. Unnið hafi verið með grunnliti sjálfbærrar þróunar og hringinn sem frumform við gerð þess. Merki ESS hafi ekki verið fengið að láni við hönnunina. Erlent 8.5.2007 19:05
Von á Norður-Írlandi Ný heimastjórn tók við völdum á Norður-Írlandi í dag þegar svarnir andstæðingar sóru embættiseiða. Tæp fimm ár eru frá því að heimastjórn í héraðinu var leyst upp vegna njósnahneykslis. Sambandssinnar og mótmælendur eru vongóðir um að stjórnin haldi í þetta sinn. Erlent 8.5.2007 18:54
Portúgalska lögreglan setur upp vegatálma vegna Maddýar Portúgalska lögreglan hefur sett vegatálma í kringum smábæ í Portúgal, skammt þaðan sem hinni þriggja ára gömlu Madelene var rænt í síðustu viku. Portúgalska sjónvarpið segir að lögreglan hafi fengið vísbendingar um að þar sé maður sem hafi með sér barn sem líkist bresku telpunni. Erlent 8.5.2007 16:26
Konurnar hafa eyðilagt BBC Hinn heimsfrægi stjörnufræðingur Sir Patrick Moore segir að konur séu að eyðileggja BBC sjónvarpsstöðina. Þær séu þar nú í æðstu stöðum og framleiði ekkert nema drasl. Sir Patrick lét þessi orð falla í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin síðan hann byrjaði með sjónvarpsþátt sinn "The Sky at Night." Erlent 8.5.2007 16:17
Háskólanemi myrðir einn og særir tvo í Fresno Einn lést og tveir særðust eftir að háskólanemi hóf skotrhíð í íbúð á heimavist ríkisháskólans í Kaliforníu í Fresno í dag. Sérsveit lögreglunnar er komin á vettvang og reynir nú að ná tali af árásarmanninum sem mun enn vera í íbúðinni. Erlent 8.5.2007 16:15
Grafhvelfing Heródesar fundin Eftir að hafa leitað í yfir 30 ár telur ísraelski fornleifafræðingurinn, Ehud Netzer, sig hafa fundið gröf Heródesar konungs. Heródes réð yfir Júdeu þegar Jesú Kristur fæddist. Erlent 8.5.2007 15:09
Áformuðu að drepa bandaríska hermenn Sex íslamskir öfgamenn voru handteknir í gærkvöldi fyrir samsæri um að myrða bandaríska hermenn. Áform voru uppi meðal sexmenningana að drepa hermennina í Fort Dix í New Jersey, en þar eru þjálfunarbúðir fyrir hermenn. Fréttastofa CNN hefur þetta eftir dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Erlent 8.5.2007 14:43
Hefur þú heyrt þennan? Það er sjaldan létt yfir fundum milli herforingja Norður- og Suður-Kóreu. Oftast er þar skipst á ásökunum og svívirðingum. Fulltrúar Suður-Kóreu vissu því varla hvernig þeir áttu að bregðast við þegar yfirsamningamaður norðanmanna byrjaði fund í dag á því að segja brandara. Brandarinn fjallaði náttúrlega um George Bush. Erlent 8.5.2007 14:21
Eins og 150 sólir spryngju - jörðin væri horfin Stjörnufræðingar hafa náð myndum af stærstu og skærustu sprengistjörnu sem þeir hafa nokkrusinnum séð. Stjarnan sem sprakk er 150 sinnum stærri en sólin. Kraftinn er hreinlega ekki hægt að ímynda sér. Sem betur fer er stjarnan 240 milljón ljósár frá jörðinni, og hún því ekki í neinni hættu. Erlent 8.5.2007 13:28