Erlent

Portúgalska lögreglan sögð gera sitt besta

MYND/AP
Sendiherra Breta í Portúgal segir að portúgalska lögreglan sé að gera sitt besta í rannsókninni á hvarfi Madeleine McCann, þriggja ára telpunnar sem hvarf fyrir sex dögum síðan. Portúgalska lögeglan hefur sætt nokkurri gagnrýni fyrir frammistöðu sína við rannsókn málsins og breskir lögreglumenn eru komnir til Portúgal til þess að taka þátt í rannsókn málsins.

Leitin að stelpunni hefur engan árangur borið og þær fáu vísbendingar sem borist hafa í málinu hafa ekki leitt til neins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×