Erlent
Þrælar frelsaðir í Kína Þrátíu þrælar hafa verið frelsaðir úr prísund sinni í Kína. Mennirnir voru látnir vinna kauplaust í tuttugu tíma á dag, í múrsteinaverksmiðju í Shanxi héraði. Verksmiðjan er í eigu sonar yfirmanns kommúnistaflokksins í héraðinu. Erlent 8.6.2007 10:26
Leynifangelsi CIA í Evrópu Rannsóknari Evrópuráðsins segist hafa sannanir fyrir því að Evrópuríki hafi leyft bandarísku leyniþjónustunni CIA að reka leynifangelsi fyrir meinta hryðjuverkamenn. Svissneski þingmaðurinn Dick Marty segist hafa sannanir fyrir því að slík fangelsi hafi verið bæði í Póllandi og Rúmeníu. Hann sakar Þjóðverja og Ítali um að hafa reynt að halda leyndum upplýsingum um fangaflutningana. Erlent 8.6.2007 10:22
Ábendingar frá nágrönnum leiddu til handtöku HIV-smitaðs manns Upp komst um HIV smitaðan mann sem smitaði ungar stúlkur í Svíþjóð eftir ábendingar frá nágrönnum. Þetta kemur fram á vef sænska dagblaðsins Aftonbladet. Nágrannarnir urðu varir við kynlífsmyndir af manninum og barnungum stúlkum á heimili hans. Eins tóku þeir eftir miklu magni HIV - lyfja og lyfseðla, drógu þá ályktun að hann væri smitaður og tilkynntu lögreglu. Erlent 8.6.2007 10:12
Dani á felgunni Danskur ökumaður var handtekinn í nótt eftir að hafa keyrt á felgunni 15 kílómetra leið. Lögreglan hafði fengið tilkynningu um mann sem var að spóla á bílnum sínum, Ford Taunus, í bænum Vejle. Erlent 8.6.2007 09:47
Bush með magapínu Bush bandaríkjaforseti hefst nú við á hótelherbergi sínu í Heiligendam í Þýskalandi, þjáður af magakveisu. Búist er við því að hann snúi aftur til fundar við leiðtoga helstu iðnríkja heimsins seinna í dag. Talsmaður forsetans sagði ekki ljóst hvað amaði að forsetanum að öðru leyti en því að honum er illt í maganum og að hann hafi ekki treyst sér á fundinn í morgun. Erlent 8.6.2007 09:17
Umdeilt innflytjendafrumvarp úr sögunni Frumvarp til breytingar á innflytjendalögum Bandaríkjanna hefur verið fellt í bandarísku öldungadeildinni. Úrslitin eru talin mikið áfall fyrir Bush forseta sem studdi frumvarpið. Erlent 8.6.2007 08:46
Gonu skilur eftir sig slóð eyðileggingar Fellibylurinn Gonu hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar í Persaflóa. Að minnsta kosti 32 eru taldir hafa farist í óveðrinu það sem af er og miklar raskanir hafa orðið á olíu- og gasútflutningi á svæðinu. Erlent 8.6.2007 08:34
Napóleon í framboð Napóleon sækist eftir völdum í Frakklandi á ný. Sá Napóleon sem hér um ræðir, fjarskyldur frændi Napóleons Bónaparte Frakklandskeisara, ætlar hins vegar að ná völdum á lýðræðislegan hátt. Erlent 8.6.2007 08:27
Milljarðar í baráttuna gegn alnæmi G8 fundurinn ákvað nú fyrir stundu að setja sextíu milljarða bandaríkjadala, um 3600 milljarða íslenskra króna, í baráttuna gegn alnæmi í Afríku. Gert er ráð fyrir að formlega verði tilkynnt um ákvörðunina seinna í dag. Erlent 8.6.2007 08:17
Fimmtán létust í bílsprengjum í Írak Fimmtán féllu í tveimur bílsprengjum í suðurhluta írak í morgun. Sprengjurnar sprungu með skömmu millibili, sú fyrri í strætisvagni og sú seinni í bíl sem keyrt var inn á markaðstorg. Erlent 8.6.2007 07:35
París laus - í bili Ungstirnið París Hilton gæti verið á leið í steinninn á ný. Henni var sleppt úr fangelsi í gær af ótilgreindum heilsufarsástæðum en saksóknarinn er ekki ánægður með þau úrslit og hyggst áfrýja. Erlent 8.6.2007 07:23
Íbúum Los Angeles sagt stilla sturtuferðum í hóf Íbúum Los Angeles hefur verið ráðlagt að vera ekki lengi í sturtu, nota ekki garðúðara og sturta sjaldnar niður til þess að reyna að minnka notkun á vatni. Töluverður skortur er á vatni í borginni vegna mikilla þurrka sem þar hafa verið undanfarið. Þetta er þurrasta árið síðan mælingar hófust fyrir 130 árum síðan. Þetta hefur einnig haft áhrif á skógar- og kjarrelda í Kaliforníu það sem af er ári. Erlent 7.6.2007 23:30
Þrjú ár fara í að lesa óþarfa tölvupóst Tölvunotendur eyða þremur árum af lífi sínu í að lesa óþarfa tölvupóst. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem 181 yfirmenn í Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og Þýskalandi tóku þátt í. Einn af hverjum þremur tölvupóstum er óþarfi og dreifir athygli fólks frá mikilvægari verkefnum. Erlent 7.6.2007 23:28
Dómari og saksóknari mótfallnir því að Paris hafi verið send heim Dómarinn og saksóknarinn í máli Parisar Hilton mótmæltu í kvöld þeirri ákvörðun fangelsisyfirvalda að leyfa henni að afplána dóm sinn heima hjá sér. Saksóknarinn, Rocky Delgadillo, sagði að hugsanlega hefðu reglur réttlætisins verið beygðar. „Útskýringin er furðuleg. Heilbrigðisaðstaðan í fangelsinu sem hún var í eru vel í stakk búin til þess að taka á tilfellum sem þessum.“ Erlent 7.6.2007 23:05
Grunaður um að smita stúlkur viljandi af HIV Breskur HIV smitaður maður sem búsettur er í Svíþjóð er grunaður um að hafa smitað ungar stúlkur af veirunni að ásettu ráði. Hann var handtekinn í dag í bænum Solna í Svíþjóð eftir ábendingar sem bárust lögreglu. Tvö tilfelli lágu að baki handtökunni og hefur hann viðurkennt að hafa stundað óvarið kynlíf með annarri stúlkunni. Ungu stúlkurnar gætu einnig hafa fært smitið áfram. Erlent 7.6.2007 22:13
Al-Sadr ákallar Arabaríki Sjía klerkurinn Múktada al-Sadr ákallaði í kvöld Arabaríki um allan heim og bað þau um hjálp við að binda enda á þjáningar Íraka. Hann kom fram í sínu fyrsta sjónvarpsviðtali í kvöld síðan hann kom úr felum fyrir tveimur vikum síðan. Hann hafði verið í felum síðan Bandaríkjamenn hertu öryggisaðgerðir sínar í Írak í miðjum febrúar. Erlent 7.6.2007 21:54
Þingmenn í Arizona í handalögmálum Handalögmál brjótast stundum út í þingsölum um víða veröld. Óvenjulegt er að það gerist í Bandaríkjunum en það gerðist þó í dag þegar þingmenn á ríkisþingi Arizona tókust á. Erlent 7.6.2007 21:39
Vill bara 3 milljarða Dómari í Bandaríkjunum hefur samþykkt að lækka skaðabótakröfu sína vegna buxna sem týndust í hreinsun. Bótakrafan hljóðar eftir lækkun hljóðar upp á jafnvirði rúmlega þriggja milljarða íslenskra króna. Erlent 7.6.2007 19:45
Samkomulag í loftslagsmálum Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims náðu samkomulagi í loftslagsmálum á fundi sínum í Þýskalandi í dag. Kaslari Þýskalands var sigurreif þó tillaga hennar um að útblástur yrði minnkaður um helming fyrir árið 2050, hafi ekki náð fram að ganga vegna andstöðu Bandaríkjamanna. Erlent 7.6.2007 19:13
Bandaríkjaþing ögrar forsetanum Bandaríska þingið ögraði í dag Georg W. Bush, forseta Bandaríkjanna, þegar þingmenn greiddu atkvæði með frumvarpi um að auka ríkisstyrki til stofnfrumurannsókna. Erlent 7.6.2007 18:32
Sarkozy efast um afturhvarf til Kalda stríðsins Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, sagði við fréttamenn á leiðtogafundi G8 ríkjanna í Heiligendamm í Þýskalandi í dag, að hann hefði enga trú á því Vladimir Putin, forseti Rússlands, vildi snúa aftur til tíma Kalda stríðsins. Erlent 7.6.2007 18:30
Kosovo tilbúið að lýsa yfir sjálfstæði Stjórnvöld í Kosovo eru reiðubúin til þess að lýsa einhliða yfir sjálfstæði héraðsins. Á sama tíma hvetja þau Vesturlönd til þess að boða til atkvæðagreiðslu um málið á vettvangi Sameinuðu þjóðanna þrátt fyrir að Rússar eigi að öllum líkindum eftir beita neitunarvaldi gegn slíkri stuðningsyfirlýsingu. Erlent 7.6.2007 18:16
Vélbjörn til bjargar særðum hermönnum Bandaríski herinn er að þróa vélmenni sem getur borið særða hermenn af vígvellinum. Björninn eða "The Battlefield Extraction Assist Robot (BEAR)" getur borið særða hermenn langar vegalengdir yfir erfið landsvæði. Erlent 7.6.2007 17:20
Háhraða laxaferja Fyrirtækið Drammen havn í Noregi hefur pantað laxaflutningaferju sem er svo hraðskreið að hún er helmingi fljótari frá Noregi til Frakklands en flutningabílar. Ferjan á að flytja ferskan lax frá Drammen til Boulogne sur Mer í Frakklandi. Á heimleiðinni flytur hún ferska ávexti og grænmeti. Erlent 7.6.2007 16:40
Elgkýr eignast þrjá kálfa Í Våler í Noregi spásserar nú elgkýr um með þrjá kálfa sína. Það er alveg einstakt að elgir eignist svo mörg afkvæmi. Erlent 7.6.2007 16:29
Putin býður samstarf um eldflaugavarnir Vladimir Putin og George Bush virðast hafa náð eitthvað saman um eldflaugavarnarkerfið sem Bandaríkjamenn hyggjast setja upp í Austur-Evrópu. Eftir fund með Bush í Þýskalandi höfðu rússneskar fréttastofur eftir Putin að honum fyndist að Bandaríkin og Rússland ættu að nota ratsjárkerfi í Azerbadjan til þess að reisa eldflaugavarnaskjöld sem næði yfir alla Evrópu. Erlent 7.6.2007 15:50
Festist við vélargrind og fékk far 21 árs gamall maður í hjólastól varð fyrir heldur óskemmtilegri lífsreynslu á dögunum. Hann var staddur á bílaplani framan við bensínstöð í Michigan í Bandaríkjunum þegar stóll hans festist við vélargrind vörubíls. Áður en manninum tókst að losa sig settist bílstjórinn vörubílsins uppí og keyrði af stað, þess óaðvitandi að væri að ýta manni í hjólastól á undan sér. Erlent 7.6.2007 15:26
Dregið „áþreifanlega“ úr losun gróðurhúsa-lofttegunda Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims hafa komist að samkomulagi um að stefna að því að draga áþreifanlega úr losun gróðurhúsalofftegunda og að stefna Bandaríkjanna í loftlagsmálum verið tekin fyrir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Erlent 7.6.2007 13:03
Segist vita hvar Madeleine litla er niðurkomin Karlmaður hefur haft samband við spænsku lögregluna og segist vita hvar Madeleine McCann, breska stúlkan sem rænt var fyrir rúmum mánuði í Portúgal, er niðurkomin. Erlent 7.6.2007 12:45
Fannst eftir tæpt ár Lögreglan í Connecticut í Bandaríkjunum fann í gær 15 ára unglingsstúlku sem hvarf fyrir tæpu ári. Stúlkan var enn á lífi en töluvert þjökuð. Henni hafði verið haldið í gíslingu í litlu herbergi undir stiga á heimili pars sem foreldrar stúlkunnar þekktu. Stúlkan hafði nokkrum sinnum reynt að strjúka að heiman áður en hún hvarf sporlaust í júní í fyrra. Erlent 7.6.2007 12:45