Erlent

Önnur umferð frönsku þingkosninganna í dag

Kjörstaðir opnuðu í Frakklandi í morgun í annarri umferð þingkosninga. Nicolas Sarkozy forseti vonast til að hægri flokkur hans vinni meirihluta í kosningunum. Stuðningsmenn hans segja það forsendu þess að hann geti hrint umbótaáætlun sinni í framkvæmd.

Erlent

Neyðarstjórn Palestínu tekin við völdum

Neyðarstjórn tók við völdum í Palestínu í dag í andstöðu við Hamassamtökin sem eru með meirihluta á þingi. Mahmoud Abbas sniðgekk þannig ákvæði í stjórnarskrá sem takmarkar völd forsætisráðherrans. Ísraelar fagna neyðarstjórninni og segja hana boða nýtt upphaf friðarumleitana.

Erlent

Leysa Johnston úr haldi í dag

Hamasliðar tilkynntu í morgun að breski fréttamaður BBC, Alan Johnston, yrði leystur úr haldi mannræningja seinna í dag. Nú eru þrír mánuðir síðan fréttamanninum var rænt á Gasa af öfgahóp sem kallar sig Her Islams. Í byrjun mánaðarins sendu þeir út myndband þar sem Alan sagðist vera við góða heilsu og að vel væri farið með hann.

Erlent

Þriðji Minnesota sexburinn látinn

Þriðji sexburinn sem í Minnesota í Bandaríkjunum í síðustu viku lést í nótt. Sexburarnir fæddust einungis 10 klukkustundum áður en aðrir sexburar komu í heiminn í Phoenix í Arisona. Þeir eru allir á lífi. Sexburarnir í Minnesota fæddust 18 vikum fyrir tímann. Ástand þeirra þriggja sem áfram lifa er alvarlegt.

Erlent

Abbas setur nýja ríkisstjórn í dag

Mahmoud Abbas forseti Palestínu hefur gefið út tilskipun um að ákvæði í stjórnarskrá sem takmarka völd forsetans skuli sniðgengin svo hann geti komið á fót neyðarstjórn. Aðstoðarmenn forsetans sögðu að með því gæti hann útilokað Hamasliða úr ríkisstjórninni. Það myndi gera forsetanum kleyft að koma nýrri ríkisstjórn á fót án samþykkis þingsins.

Erlent

Gripinn glóðvolgur við prófsvindl

Sonur leyniþjónustumanns í Búlgaríu olli miklu uppnámi þegar hann notaði hátæknibúnað föður síns til að svindla á prófi. Á sama tíma voru einhverjar viðamestu öryggisráðstafanir í gangi í höfuðborginni vegna heimsóknar George Bush Bandaríkjaforseta til Sofiu.

Erlent

Kabúl: 35 létust í tilræði á lögreglurútu

Sprengja grandaði 35 manns og særði fjölda til viðbótar í lögreglurútu í Kabúl höfuðborg Afghanistan í morgun. Rútan var við höfuðstöðvar lögreglunnar í miðborginni á annatíma þegar sprengjan sprakk. Flestir hinnar látnu eru nýliðar eða kennarar í lögregluskólanum. Þetta er mesta mannfall í sprengju síðan Talibanar voru hraktir frá völdum árið 2001.

Erlent

Æstur múgur barði konu til dauða og kveikti í annarri

Um tvö þúsund ævareiðir íbúar í bænum Camotan í Gvatemala börðu konu til dauða og kveiktu í annarri vegna gruns um að þær hefðu drepið stúlku í þeim tilgangi að stela líffærum hennar. Íbúarnir tóku konurnar af lífi á torgi í miðjum bænum en lögreglunni tókst að bjarga tveimur öðrum sem múgurinn ætlaði að ráðast á.

Erlent

Segjast hafa sannanir fyrir því að Íranir útvegi Talibönum vopn

Bandaríkjamenn segjast hafa óyggjandi sannanir fyrir því að Íranar útvegi Talíbönum í Afganistan vopn í baráttunni við herlið Afgana og Atlantshafsbandalagsins. Viðbrögð annarra þjóða eru varfærin við þeim fréttum en Bandaríkjamenn hafa áður lagt fram óyggjandi sannanir á alþjóða vettvangi.

Erlent

Fleiri hundruð konur í brúðarhlaupi í Boston

Fleiri hundruð konur hlupu hið svokallaða brúðarhlaup í Boston í Bandaríkjunum í gær þegar útsala á brúðakjólum hófst þar í borg. Ár hvert heldur Filene´s basement mikla útsölu á brúðarkjólum og kjólum fyrir brúðarmeyjar. Fleiri hundruð kvenna voru í biðröðinni í morgun, en þær fyrstu byrjuðu að bíða klukkan þrjú í nótt að staðartíma.

Erlent

Lýsa yfir stuðningi við Mahmoud Abbas

Hinn svokallaði kvartett, sem samanstendur af Evrópusambandinu, Rússlandi, Sameinuðu þjóðunum og Bandaríkjunum, hefur lýst yfir stuðningi við neyðarstjórn Palestínu og Mahmoud Abbas forseta landsins. Abbas ákvað í síðustu viku að slíta stjórn Palestínumanna undir forystu Hamas samtakanna.

Erlent

Lést af völdum fuglaflensunnar

Ríkissjónvarpið í Víetnam greindi frá því í dag að karlmaður á þrítugsaldri hafi látist í þar í landi í vikunni af völdum fuglaflensunnar. Er þetta fyrsta dauðsfallið í Víetnam vegna fuglaflensunnar síðan árið 2005. Ekki er vitað hvernig maðurinn sýktist af flensunni.

Erlent

Nýtt kílógramm í smíðum

Vísindamenn í Ástralíu vinna nú hörðum höndum að því að móta nýjan alþjóðlegan staðal kílógramms. Mun hann leysa af hólmi platínustöng frá árinu 1889 sem varðveitt er í Frakklandi. Eins og títt er meðal málma tærist stöngin með tímanum og hefur því lést nokkuð.

Erlent

Þrír létu lífið í eldsvoða í Noregi

Þrír létu lífið þegar eldur kviknaði í sumarbústað við bæinn Ask um 40 kílómetra norðaustur af Osló í Noregi í nótt. Faðir og sonur náðu við illan leik að forða sér. Faðirinn brenndist hins vegar illa þegar hann fór aftur inn í brennandi bústaðinn til að reyna bjarga eiginkonu sinni, sex ára gamallri dóttur og ömmu barnanna.

Erlent

Allt að 500 prósent fjölgun hitabylgja

Ef losun gróðurhúsalofttegunda fer fram sem horfir mun mannskæðum hitabylgjum, líkum þeim sem skullu á Miðjarðarhafslönd árið 2003, fjölga um 200 til 500 prósent á þessari öld. Mest mun hitna í Frakklandi.

Erlent

Sarkozy með ólöglega innflytjendur í vinnu

Franska lögreglan rannsakar nú hvernig stendur á því að tveir ólöglegir innflytjendur fengu vinnu við að endurgera opinbert húsnæði Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands. Mennirnir voru handteknir í vikunni en þeir höfðu þá framvísað skírteinum með fölsuðu dvalarleyfi.

Erlent

Óveður veldur miklum skemmdum í Þýskalandi

Mikið óveður gekk yfir Þýskaland í nótt og olli það miklu tjóni á eignum. Víða flutu ár yfir bakka sína og hrifsaði vatnselgurinn með sér bíla og annað lauslegt. Yfirvöld í Berlín lýstu yfir neyðarástandi en þar flæddi vatn víða inn í kjallara húsa. Ekki er vitað til þess að fólk hafi slasast í óveðrinu.

Erlent

Amason toppar Níl

Brasilískir vísindamenn réðust á dögunum í nákvæmar mælingar á Amason fljótinu sem sýna að það er lengsta fljót í heimi. Níl hefur hingað til borið þann titil. Amason hefur hinsvegar verið alltaf verið talið vatnsmesta fljót í heimi.

Erlent

Kæra 28 nafnlausa notendur spjallborðs

Tvær bandarískar konur hafa höfðað mál á hendur 28 notendum spjallborðs vegna ærumeiðinga og hótana um líkamsmeiðingar. Á spjallborðinu koma einstaklingar fram undir dulnefni og hafa konurnar krafist þess að fá allar þær upplýsingar frá umsjónarmönnum borðsins og netþjónustuaðilum sem gætu afhjúpað hina nafnlausu einstaklinga. Sérfræðingar telja fordæmisgildi málsins mikið og það muni hafa mikil áhrif á framtíð nafnlausra spjallborða á Netinu.

Erlent

Fimm ára fannst í skógi eftir þrjá daga

Fimm ára gömul stúlka sem óttast var að hefði drukknað ásamt afa sínum í bátsferð í Illinois ríki í Bandaríkjunum kom björgunarsveitarmönnum á óvart þegar hún birtist í skógi skammt frá leitarstaðnum. Stúlkan var nakin og rispuð en ekki illa haldin að öðru leiti. Hún hafði nærst á mórberjum frá því á miðvikudag en óskaði eftir súkkulaðikexi þegar hún fannst.

Erlent

Átök hafin á Vesturbakkanum

Arabaþjóðir fordæma ástandið á Gaza og Vesturbakka Palestínu og hafa lýst yfir stuðningi við Mahmoud Abbas forseta landsins. Hundruðir byssumanna réðust inn í stofnanir á Vesturbakkanum þar sem átök hófust í dag. Upplýsingastjóri alþjóða Rauða Krossins segir Genfarsáttmálann hafa verið margbrotinn síðustu daga.

Erlent

Norður Kóreumenn opna fyrir Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni

Stjórnvöld í Norður Kóreu hafa boðið fulltrúum frá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni að koma aftur landsins eftir að opnað var á ný fyrir fjármuni í eigu ríkisstjórnarinnar í banka á Macau. Bandaríkjamenn frystu féð seint árið 2005 og hafa Norður-Kóresk stjórnvöld hingað til neitað að loka kjarnorkustöð sinni án þess að fá fyrst aðgang að fénu.

Erlent

Súludans í flugi

Flugfarþegum á Gatwick flugvelli á Bretlandi er nú fagnað með risavaxinni auglýsingu um súludans, í óþökk margra þeirra. Eftir flugtak frá flugvellinum má sjá risaauglýsinguna sem máluð hefur verið á akur í Surrey. Auglýsingin er nánast ósjáanleg á jörðu niðri, en mjög skýr úr lofti. Yfirvöld segja auglýsinguna ólöglega og ekki hafi fengist tilskilin leyfi fyrir henni.

Erlent

Salman Rushdie hlýtur riddaratign drottningar

Salman Rushdie sem fór í felur árið 1989 eftir útgáfu bókar sinnar “Söngvar Satans” hefur hlotið riddaratign Elísabetar drottningar. Innihald bókarinnar móðgaði múslima um allan heim og hann var dæmdur til dauða af múslímadómstól í Íran. Eftir að Rushdie koom úr felum árið 1999 hefur hann þó ekki forðast deilur.

Erlent

Arabaþjóðir styðja Abbas forseta

Arabaþjóðir fordæma ástandið á Gaza og vesturbakka Palestínu og hafa lýst yfir stuðningi við Mahmoud Abbas forseta landsins. Fatah hreyfing forsetans hefur verið bolað frá völdum og Hamas-liðar hafa lagt undir sig Gasa svæðið eftir vikulöng blóðug átök þar sem talið er að um 100 Palestínumenn hafi fallið.

Erlent

Barak varnarmálaráðherra

Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í gær skipun Ehud Barak sem varnarmálaráðherra. Skipunin, sem fylgir í kjölfar sigurs Barak í formannskjöri Verkamannaflokksins, markar endurkomu þessa fyrrverandi forsætisráðherra í stjórnmál, sex árum eftir niðurlægjandi kosningaósigur fyrir Ariel Sharon um forsætisráðherraembættið.

Erlent

Samið um lausn Alan Johnston

Mannræningjarnir sem hafa haft Alan Johnston, fréttamann BBC, í haldi á Gaza tilkynntu í gær að þeir myndu sleppa honum innan sólarhrings eftir samningaviðræður við Hamas.

Erlent

Palestína klofin milli Hamas og Fatah

Eftir atburði síðustu fimm daga er Palestína klofin í tvennt. Gaza-ströndin og Vesturbakkinn, sem liggja sitthvoru megin við Ísrael, eru nú undir stjórn sitthvorrar palestínsku fylkingarinnar þar sem Hamas stýrir Gaza-ströndinni og Fatah fer með völd á Vesturbakkanum.

Erlent

Viðræður teknar upp að nýju

Viðræður Serbíu við Evrópusambandið, sem eru undirbúningur að hugsanlegri framtíðaraðild landsins, voru á miðvikudag teknar upp að nýju eftir árshlé. Þeim hafði verið slegið á frest vegna skorts á að stjórnvöld í Belgrad hefðu uppi á og framseldu eftirlýsta meinta stríðsglæpamenn.

Erlent

Hryðjuverkaforingi handtekinn

Leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Jemaah Islamiyah var handtekinn í síðustu viku ásamt næstráðanda sínum, að því er lögreglan á Indónesíu greindi frá í gær.

Erlent