Erlent

Þriðji Minnesota sexburinn látinn

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar

Þriðji sexburinn sem í Minnesota í Bandaríkjunum í síðustu viku lést í nótt. Sexburarnir fæddust einungis 10 klukkustundum áður en aðrir sexburar komu í heiminn í Phoenix í Arisona. Þeir eru allir á lífi.

Sexburarnir í Minnesota fæddust 18 vikum fyrir tímann. Ástand þeirra þriggja sem áfram lifa er alvarlegt. Foreldrunum hafði verið ráðlagt að fækka fóstrunum niður í tvö snemma á meðgöngunni, en það vildu þau ekki. Fjölburafæðingum af þessu tagi fer ört fjölgandi vegna notkunar á frjósemislyfjum, sem og tækni- og glasafrjóvgunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×