Erlent

Hóta hefndum

Bretar segjast hafa verið í fullum rétti með að aðla rithöfundinum Salman Rushdie á dögunum fyrir framlag hans til bókmennta. Múslimar víða um heim hafa tekið því sem móðgun og hótar næstráðandi hjá al Kaída hefndum.

Erlent

Bandaríkin vilja sexmenningana í Líbíu úr haldi

Bandaríkin brýna það fyrir Líbíu að leyfa heilbrigðisstarfsfólkinu að halda heim á leið strax. Í dag var dauðadómur yfir fimm búlgörskum hjúkrunarfræðingum og einum lækni frá Palestínu staðfestur. Þau hafa verið í haldi síðan 1999, og er þeim gefið að sök að hafa viljandi smitað 438 börn af HIV-veirunni með sýktu blóði.

Erlent

Óvenju há tíðni dauðsfalla í vinnuslysum á Ítalíu

435 hafa látist í vinnuslysum á Ítalíu á þessu ári. Rannsóknir sýna að tíðni vinnuslysa á Ítalíu er meira en 40% hærri en í Frakklandi, tvöfalt hærri en í Þýskalandi og sjöfalt hærri en í Bretlandi. Lögreglan telur að stór hluti þeirra sem látast séu ólöglegir innflytjendur sem vinna við óviðunandi öryggisaðstæður.

Erlent

Raðmorðingi dæmdur til dauða í Los Angeles

Pítsusendillinn Chester Turner hlaut í dag dauðadóm fyrir að myrða tíu konur í Los Angeles á árunum 1987-1998. Ein konan var ófrísk og komin sex og hálfan mánuð á leið og var hann einnig dæmdur fyrir það. Konurnar sem urðu Turner að bráð voru flestar vændiskonur eða fíkniefnaneytendur.

Erlent

Dæmdir í lífstíðarfangelsi

Mennirnir fjórir sem voru sakfelldir fyrir aðild sína að sprengjutilræði í júlí 2005 voru í dag dæmdir í lífstíðarfangelsi. Þeir geta þó sótt um reynslulausn eftir 40 ár.

Erlent

Aukið verðmæti þorskútflutnings í Noregi

Verðmæti útflutnings á ferskum þorski frá Noregi jókst um 15% á fyrsta árshelmingi 2007 og nam 3,3 milljörðum íslenskra króna. Útflutningur hefur aukist til markaða í Evrópusambandslöndunum og þá einkum til Danmerkur og Portúgal. Verðmæti útflutning á frystum þorski jókst um 48% og nam 2,7 milljörðum íslenskra króna.

Erlent

Átta létust í sprengingu í Alsír

Sprenging varð átta manns að bana í herstöð alsírska hersins í morgun. Stöðin er 120 kílómetra frá höfuðborginni en enginn hefur ennþá lýst yfir ábyrgð á sprengingunni. Hópur tengdur al-Kaída hefur áður lýst yfir ábyrgð á svipuðum tilræðum í landinu.

Erlent

Tveir milljarðar músa gera innrás í Kína

Bæjarfélög í kringum stórt vatn í miðhluta Kína hafa þurft að kljást við tvo milljarða músa eftir að flóð neyddu þær til þess að yfirgefa eyjur sem þær voru á í vatninu. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndir frá músaflóðinu.

Erlent

Féll í 14 metra djúpa holu

18 ára drengur er talinn hafa látið lífið í Mexíkóborg í gær þegar risastór hola opnaðist í götunni sem hann var í og gleypti hann, bíl á götunni og framhlið á húsi. Holan er 14 metra djúp og um 15 metrar að þvermáli. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndir af holunni.

Erlent

Uppreisnarmenn í Írak sleppa þýskri konu

Annar tveggja þýskra ríkisborgara sem haldið var af uppreisnarmönnum í Írak hefur verið sleppt. Utanríkisráðherra landsins, Frank-Walter Steinmeier skýrði frá þessu í dag. Hannelore Krause hafði verið í haldi í hundrað fimmtíu og fimm daga en var sleppt seinni partinn í gær.

Erlent

Dómstólaráð Líbíu endurskoðar dauðadóm á mánudaginn

Dómstólaráð Líbíu mun funda á mánudaginn kemur um framtíð sexmenninganna sem í morgun voru dæmdir til dauða. Áður höfðu Evrópusambandið og Búlgaría lýst yfir vonbrigðum vegna dómsins. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndband af fólkinu í hæstarétt landsins.

Erlent

Bush biður um lengri tíma

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hunsaði gagnrýni repúblikana um stríðsreksturinn í Írak í gær og krafðist þess að bandaríska þingið gæfi áætlun hans um fjölgun hermanna í Írak lengri tíma til þess að virka.

Erlent

Hús á tíu milljarða

Stórhýsi í Beverly Hills í Los Angeles í Bandaríkjunum hefur verið auglýst til sölu á litlar 165 milljónir dollara eða um tíu milljarða íslenskra króna. Heimilið var byggt á þriðja áratug síðustu aldar og var í eigu fjölmiðlakóngsins Williams Randolph Hearst. Smellið á „Spila“ til þess að sjá loftmyndir af húsinu.

Erlent

Aðgerðir við Rauðu moskuna á lokastigi

Pakistanski herinn sagði í morgun að aðgerðir við Rauðu moskuna væru á lokastigi rúmum sólarhring eftir að aðgerðir hófust. Enn heyrast þaðan sprengingar og skothvellir. Herskái klerkurinn Abdul Rashid Ghazi lést í aðgerðum hersins í gær ásamt 50 stuðningsmönnum sínum. Þá var 50 konum og börnum bjargað úr moskunni.

Erlent

Sænskir elgir í danska skóga

Náttúruverndarsamtök Danmerkur hafa nú sett sér að markmiði að auðga fánu landsins um hið tignarlega jórturdýr norðursins, elginn. Þetta einkennisdýr Skandinavíu hefur ekki haldið sig í Danmörku síðan á síðsteinöld fyrir 4.000 árum.

Erlent

Sérfræðingar SÞ til N-Kóreu

Kjarnorkueftirlit Sameinuðu þjóðanna ætlar að senda sérfræðinga til Norður-Kóreu til að hafa umsjón með lokun helsta kjarnorkukljúfs landsins, Yongbyon, segir Mohammed Elbaradei, forseti Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar.

Erlent

Tekinn af lífi fyrir mútur

Fyrrverandi yfirmaður matvæla- og lyfjastofnunar Kína var tekinn af lífi í gær. Talskona stofnunarinnar staðfesti fregnir af aftökunni á blaðamannafundi sem haldinn var til að undirstrika viðleitni til að bæta orðstír Kína varðandi öryggi matvæla og lyfja.

Erlent

Hörð átök um moskuna

Stjórnarherinn í Pakistan réðst snemma í gærmorgun inn í rauðu moskuna í Íslamabad. Eftir harða bardaga við herskáa múslima náði herinn moskunni og sambyggðum kvennaskóla á sitt vald.

Erlent

FBI auglýsir eftir njósnurum

Kínversk stjórnvöld þvertaka fyrir að vera með njósnara í Bandaríkjunum sem séu að reyna að skaða stjórnvöld. Þessi yfirlýsing kemur í kjölfar auglýsingar frá Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, sem birtist í kínverskum dagblöðum í San Francisco þar sem fólk var beðið að láta vita ef það hefði upplýsingar um njósnara sem hefðu illt í hyggju, sérstaklega frá Kína.

Erlent

Malta og Kýpur taka upp evru

Evrópusambandið gaf í gær tveimur af nýju aðildarlöndunum, Möltu og Kýpur, heimild til þess að byrja að nota evruna um næstu áramót. Evrulöndin verða þar með orðin fimmtán.

Erlent

Brúður sló brúðguma með skó

Lögregla handtók skoska brúður og lét hana dúsa yfir helgi í fangaklefa fyrir að ráðast á brúðguma sinn með háhæluðum skó á brúðkaupsdegi þeirra í vor.

Erlent

Ný hótel rísa í Moskvu á hverjum degi

Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Moskvu síðustu árin og hafa hótel verið rifin til grunna og ný byggð á rúmu ári. Uppbyggingunni stýrir borgarstjórinn með harðri hendi og fylgir framkvæmdum eftir á hverjum laugardegi.

Erlent

Skyggnst inn í árdaga alheimsins

Bandarískir stjörnufræðingar segjast hafa fundið fjarlægustu og elstu stjörnuþokur sem þekktar eru. Telja þeir að stjörnuþokur þessar hafi myndast 500 miljón árum eftir Miklahvell, þegar alheimurinn varð til. Elstu áðurþekktu stjörnuþokurnar eru taldar vera 250 miljónum árum yngri.

Erlent

Umdeildar virkjanir í Brasilíu

Brasilíska ríkisstjórnin hefur gefur vilyrði fyrir byggingu tveggja vatnsfallsvirkjana í Madeira fljótinu í Brasilíu. Fljótið er stærsta þverá Amason fljótsins. Virkjunaráformin eru harðlega gagnrýnd vegna mögulegra umhverfisáhrifa við fljótið.

Erlent

20 manns verða líflátnir á næstu vikum í Íran

Tuttugu manns verða hengdir í Íran fyrir ýmsa glæpi á næstunni. Eftir herferð í landinu í sumar gegn siðferðisglæpum, hefur lögreglan handtekið tugi fíkniefnaneytenda, smyglara og aðra glæpamenn. „Þeir tuttugu sem verða hengdir voru handteknir fyrir nauðganir, hjúskaparbrot og fleira." Þetta segir talsmaður dómarastéttar í landinu.

Erlent

Ólíklegt að ökumaður jeppans í Glasgow lifi af

Samkvæmt læknum sem annast manninn sem keyrði jeppa inn í flugstöðina í Glasgow, þykir ólíklegt að hann haldi lífi. „Maðurinn hlaut 3. stigs bruna á búk og útlimum og ólíklegt er að við náum að bjarga honum," sagði einn læknanna.

Erlent

Málverkum að verðmæti milljóna dala stolið í Moskvu

Þjófar í Moskvu stálu 13 málverkum, sem metin eru á margar milljónir dala. Rússneskur ellilífeyrisþegi hafði geymt verkin í óvarinni, tómri íbúð sem að hann á. Kamo Manukyan, fyrrverandi dómari, átti verkin. Þau eru eftir fræga listamenn á borð við Georges-Pierre Seurat, Ivan Aivazovsky og Alexej Jawlenski.

Erlent

Klerkurinn drepinn í áhlaupinu á Rauðu moskuna

Yfirvöld í Islamabad í Pakistan segjast nú hafa drepið klerkinn Abdul Rashid Ghazi í áhlaupinu á Rauðu moskuna sem hófst á miðnætti. Hann er æðsti trúarleiðtogi þeirra vígamanna sem neituðu að gefast upp. Hann hafði lokað sig inni í einu af herbergjunum í kjallara nálægs bænaskóla. Þar var líka fjöldi kvenna og barna sem vígamennirnir notuðu sem mannlega skildi.

Erlent