Erlent

Óttast annan kjarnorkuleka eftir jarðskjálfta

Níu manns létust í jarðskjálftunum í norðvesturhluta Japan í gær og um þúsund slösuðust. Japanskir embættismenn rannsaka nú annan leka úr kjarnorkuveri. Björgunaraðgerðir standa enn yfir og eyðilegging í borginni Kashiwazaki er gífurleg. Að minnsta kosti 12 þúsund manns dvöldu í neyðarskýlum

Erlent

Tveir menn kærðir fyrir morð í Suður-Afríku

Suður-afrískir saksóknarar hafa ákært tvo hæst settu starfsmenn öryggissveita stjórnvalda á aðskilnaðartímabili landsins fyrir morðtilraun. Þeir eru sakaðir um að hafa lagt á ráðin að myrða einn helsta andstæðing aðskilnaðarstefnunnar árið 1989.

Erlent

Átján létust sprengingum í Thailandi

Að minnsta kosti átján manns særðust þegar sprengja sprakk í Yala héraðinu í suðurhluta Thailands í nótt. Sprengjurnar voru faldar í bifhjóli sem lagt var fyrir framan verslun nálægt Yala lestarstöðinni. Yfir 3000 manns hafa látist í átökum í suðurhluta Yala héraðsins, sem hafa staðið yfir frá árinu 2004.

Erlent

Rússar hóta Bretum

Rússnesk stjórnvöld hóta yfirvöldum í Bretlandi alvarlegum afleiðingum eftir að fjórir rússneskir erindrekar voru reknir frá Bretlandi.

Erlent

Undirbjuggu skotárás á skóla

Tveir unglingspiltar hafa verið handteknir vegna gruns um þeir hafi ætlað að framkvæma skotárás í Connetquot High School á Long Island í New York í apríl á næsta ári. Árásin var áformuð á sama degi og fjöldamorðin í Columbine árið 1999.

Erlent

Hreina loftið gerir útslagið

Enn á ný mælast Íslendingar í hópi hamingjusömustu þjóða heims. Samkvæmt evrópska hamingjukvarðanum, svonefndum Happy Planet Index, ríkir hvergi meiri hamingja í Evrópulöndum en einmitt hér á landi. Bresk dagblöð skýrðu frá þessu í gær.

Erlent

Tveir litlir flokkar sameinast

Pólsku stjórnmálaflokkarnir Sjálfsvörn og Bandalag pólskra fjölskyldna hafa ákveðið að sameinast og nefna sameinaða flokkinn Bandalag og sjálfsvörn. Báðir flokkarnir eru í ríkisstjórn ásamt þriðja flokknum, Lög og réttlæti, sem er mun stærri og öflugri flokkur en þeir báðir til samans.

Erlent

Heilagt naut hlýtur náðun

Dómari í Wales kvað upp þann úrskurð í gær að ekki skyldi slátra nautinu Shambo, sem er heilagt dýr í hindúaklaustrinu Skanda Vale í Wales. Nautið hefur greinst með nautaberkla og átti að slátra því af öryggisástæðum svo smit bærist hvorki í menn né önnur dýr.

Erlent

Rússar bregðast hart við

Rússnesk stjórnvöld hóta því að grípa til harðra aðgerða gegn Bretlandi í kjölfar þess að bresk stjórnvöld ákváðu að reka fjóra rússneska stjórnarerindreka úr landi.

Erlent

Palestínskum föngum sleppt

Ísraelsk stjórnvöld munu sleppa 250 palestínskum föngum úr fangelsi á föstudaginn. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, greindi Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, frá þessu á fundi þeirra í Jerúsalem í gær.

Erlent

Fundu forna gullgrímu

Fornleifafræðingar fundu um helgina 2.400 ára gamla gullgrímu í fornu grafhýsi í Búlgaríu. Einnig fannst gullhringur með grískri áletrun og mynd af skeggjuðum manni auk annarra smáhluta í gröf frá tímum Þrakverja.

Erlent

Bretar létta á fangelsunum

Meira en sautján hundruð föngum var sleppt úr breskum fangelsum í fyrstu viku neyðaráætlunar um að létta álag á yfirfullum fangelsum landsins.

Erlent

Þrekhjólaði í 111 klukkutíma

Maður í Illinois setti nýtt heimsmet á föstudag þegar hann hjólaði í 111 klukkutíma stanslaust, rúmlega fjóran og hálfan sólarhring, á þrekhjóli innanhúss.

Erlent

Krefjast bóta frá Þýskalandi

Þúsundir afkomenda gyðinga, sem lifðu af dvöl í útrýmingarbúðum nasista á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar, ætla í dag að hefja mál gegn Þýskalandi, sem háð verður fyrir dómstólum í Ísrael. Þeir krefjast skaðabóta fyrir að hafa alist upp í ótta og þunglyndi og vilja að þýsk stjórnvöld borgi fyrir meðferð þeirra hjá geðlæknum.

Erlent

28 daga varðhald ekki nóg

Ekki er nóg að halda grunuðum hryðjuverkamönnum í 28 daga, sem er hámarkslengd gæsluvarðhalds án ákæru, að mati helsta ráðgjafa breskra stjórnvalda í hryðjuverkalögum, Carlile lávarðar.

Erlent

Mikil andstaða við stjórnina í Pakistan

Um síðustu helgi létu meira en 70 manns lífið í sjálfsmorðsárásum og sprengjuárásum í norðvesturlandamærahéraði Pakistans. Stjórnvöld í Pakistan eru að kanna hvort tengsl séu milli árásanna og róttækra múslima í Rauðu moskunni í Islamabad, sem stjórnarherinn réðst á í síðustu viku.

Erlent

Ásakanir um gyðingahatur

Pólski presturinn Tadeusz Rydzyk, sem stýrir rammkaþólsku og þjóðernis-íhaldssinnuðu fjölmiðlaveldi í kring um útvarpsstöðina Radio Maryja og dagblaðið Nasz Dziennik, varðist í síðustu viku ásökunum um gyðingahatur eftir að upp á yfirborðið komu hljóðupptökur þar sem hann lætur andgyðingleg ummæli falla og kallar eiginkonu Póllandsforseta „norn“.

Erlent

Notuðu flygil fyrir kókaínsmygl

Fíkniefnasmyglarar leita ýmissa leiða til að koma eiturlyfjum framhjá tollvörðum. Í Kólumbíu þar sem framleiðsla kókaíns er mest á heimsvísu, munaði aðeins hársbreidd að smyglurum tækist að plata yfirvöld með því að koma á þriðja hundrað kílóum af kókaíni fyrir inni í flygli.

Erlent

Japan: Óttast geislavirkan leka úr kjarnorkuveri

Japanar óttast nú að geislavirk efni hafi lekið úr stærsta kjarnorkuveri heims í jarðskjálftanum í nótt sem var 6,8 á Richter. Annar jafnsterkur jafðskjálfti reið yfir sama svæði í dag. Að minnsta kosti sjö eru látnir og 800 slasaðir eftir jarðskjálftana.

Erlent

Herflugvél skreytt hakakrossum yfir Þýskalandi

Íbúum þýska smábæjarins Löpten brá heldur betur í brún í gær þegar herflugvél skreytt hakakrossum birtist skyndilega á flugi yfir bænum. Flugvélin er frá tímum seinni heimsstyrjaldar en flug hennar var í tengslum við tökur á kvikmyndinni Valkyrjur með Tom Cruise í aðalhlutverki. Málið hefur vakið nokkra athygli í Þýskalandi og birtust myndir af vélinni yfir bænum í þýska götublaðinu Bild í dag.

Erlent

Tvö stærstu fljót Kína þorna upp

Dregið hefur umtalsvert úr vatnsmagni tveggja stærstu fljóta Kína, Huang He og Yangtze. Uppsprettur fljótanna í votlendi, jöklum og fljótum hafa gengið mikið til þurrðar undanfarna fjóra áratugi. Er þetta rakið til hækkunar hitastigs jarðar.

Erlent

Bush vill friðarfund milli Ísraels og Palestínu

George Bush Bandaríkjaforseti boðaði í dag til alþjóðlegs leiðtogafundar til að finna leiðir til að hefja á ný friðarviðræður milli Ísraels og Palestínu. Gert er ráð fyrir að fundurinn verði haldinn síðar á þessu ári með fulltrúum Bandaríkjnna, Ísraels, Palestínumanna og arabaríkja. Bush tilkynnti líka í ávarpi í Hvíta húsinu í dag um 190 milljóna dollara aðstoð við bráðabirgðaríkisstjórn Mahmoud Abbas.

Erlent

Ný bók um Baug: Framgangur Baugs vandræðamál fyrir Ísland

Íslensk stjórnvöld töldu framgang Baugs á alþjóðavettvangi vandræðamál fyrir Ísland. Þetta segja höfundar bókar um Jón Ásgeir Jóhannesson og Baug, sem kemur út í Bretlandi í haust. Í bókinni, sem heitir, Sex, Lies and Supermarkets, er fjallað um Jón Ásgeir Jóhannesson og Baug.

Erlent

Fellibylir við Miðjarðarhaf

Hækkun hitastigs jarðar gæti innan fárra ára skapað fellibyli við Miðjarðarhafið. Þetta er niðurstaða rannsóknar við Háskólann í Castilla-La Mancha í Toledo á Spáni.

Erlent

Kjarnorkuver skemmdist í jarðskjálfta

Leki kom að stærsta kjarnorkuveri í heimi í miklum jarðskjálfta sem varð í Japan í dag. Bandaríkjamenn hafa boðist til að senda sérfræðinga til að hjálpa til við viðgerðir. Þremur ofnum kjarnorkuversins var lokað eftir skjálftann og er nú verið að skoða aðstæður.

Erlent

Húsleit gerð hjá Newcastle, Portsmouth og Rangers

Lögreglan í Englandi gerði húsleit hjá þremur knattspyrnuliðum í morgun, Newcastle, Portsmouth og Rangers, vegna gruns um spillingu. Lögreglan staðfestir að húsleitir hafi verið framkvæmdar í morgun, en tekur fram að málið tengist ekki skýrslu Stevens lávarðs um ensku úrvalsdeildina.

Erlent

Bretar reka rússneska diplómata úr landi

Bresk stjórnvöld hafa rekið fjóra rússneska diplomata úr landi, vegna tregðu Rússa til að framselja meintan morðingja Alexanders Litvinenkos. Litvinenko var myrtur með geislavirku eitri í Lundúnum á síðasta ári. Rússar segjast munu bregðast við þessu útspili Breta.

Erlent