Erlent
Ung stúlka stungin til bana á heimili sínu Tveggja ára stúlka fannst stungin til bana á heimili sínu í austur London í nótt. Móðir stúlkunnar á þrítugsaldri, fannst einnig á vettvangi með stungusár og liggur þungt haldin á sjúkrahúsi. Talsmaður Scotland Yard sagði að enginn hefði verið handtekinn, en málið væri í rannsókn. Erlent 14.8.2007 07:59
Hundruð farast í flóðum í Norður-Kóreu Hundruð manna eru sögð hafa látist í flóðum í Norður-Kóreu sem tengjast árlegum rigningum þar í landi. Eftir því sem ríkisútvarp Norður-Kóreu greinir frá hafa tugþúsundir hektara ræktarlands eyðilagst í flóðunum og um 30 þúsund heimili. Erlent 14.8.2007 07:30
Gul aftur tilnefndur sem forsetaefni í Tyrklandi AK flokkurinn, sem fer með stjórnartauma í Tyrklandi, hefur staðfest að flokkurinn hyggist aftur tilnefna Abdullah Gul sem forsetaefni sitt. Gul, sem er fyrrverandi islamisti, var einnig tilnefndur í vor við lítinn fögnuð veraldlega þenkjandi stjórnarandstæðinga og hers, sem tókst að koma í veg fyrir framboð hans þá. Það leiddi til þess að þingkosningum var flýtt og vann AK flokkurinn meirihluta sinn í þeim. Erlent 14.8.2007 07:07
Var skipað að skjóta þá sem flýðu land Leyniþjónustan Stasi gaf landamæravörðum í Austur-Þýskalandi skipun um að skjóta þá sem reyndu að flýja til Vestur-Þýskalands. 1.100 voru drepnir við að reyna að flýja til vesturs. Þeir sem gáfu skipunina gætu verið sóttir til saka. Erlent 14.8.2007 04:00
Ræði við róttæka íslamista Bresk stjórnvöld ættu að hefja beinar viðræður við þrjú helstu samtök róttækra íslamista í Mið-Austurlöndum: Hamas, Hisbollah og Múslímska bræðralagið. Bresk þingnefnd um utanríkismál leggur þetta til í skýrslu sem kynnt var í gær. Erlent 14.8.2007 03:45
Fjórir ráðherrar voru reknir Fjórir ráðherrar úr minni stjórnarflokkunum tveimur voru reknir úr ríkisstjórn Póllands í gær. Ríkisstjórn Póllands hefur því misst meirihluta sinn á þingi og verða haldnar kosningar í landinu í haust, tveimur árum fyrr en áætlað var. Erlent 14.8.2007 01:15
Castro varð 81 árs í gær Fidel Castro Kúbuforseti varð 81 árs í gær. Castro varði deginum í kyrrþey á óþekktum stað, annað árið í röð. Erlent 14.8.2007 00:30
Bandaríkjamenn kanna tilkall til norðurskautsins Skip á vegum bandarísku strandgæslunnar er nú á leið í rannsóknarleiðangur á norðurskautið til að kortleggja sjávarbotninn fyrir norðan Alaska. Markmið leiðangursins er að athuga hvort hluti norðurskautsins megi teljast vera bandarískt landsvæði. Bandaríkjamenn neita því hins vegar að ferðin tengist vaxandi samkeppni þjóða um yfirráð yfir Norðurpólnum. Erlent 13.8.2007 23:16
Áfram reynt að bjarga námuverkamönnunum í Utah Björgunarmenn í Utah fylki í Bandaríkjunum undirbúa nú að bora þriðju holuna í átt til námuverkamannanna sex sem enn er saknað eftir kolanámur hrundu saman síðastliðinn mánudag. Ekkert hefur til mannanna spurst frá því námurnar hrundu og því ekki vitað hvort þeir séu enn á lífi. Erlent 13.8.2007 22:54
Sextíu slasast í sprengingu í Rússlandi Að minnsta kosti 60 slösuðust þegar sprenging olli því að farþegalest fór útaf spori í Rússlandi í dag. Lestin var á leið frá Moskvu til Pétursborgar þegar atvikið átti sér stað. Ekki liggur fyrir hvað olli sprengingunni. Erlent 13.8.2007 21:16
Kalashnikov riffillinn 60 ára Kalashnikov árásarriffillinn rússneski er sextugur á þessu ári. Hönnur þessa heimsfræga drápstóls var heiðraður fyrir hönnunina í heimabæ sínum í dag. Þar bölvaði hann eftirlíkingum og sagðist gleðajst þegar sköpunarverk sitt væri notað í göfugum tilgangi. Erlent 13.8.2007 19:19
Kínverjar nota genameðferð við krabbameini Læknar í Kína hafa notað genameðferð við krabbameini og segja árangurinn góðann. Vestræn ríki hafa hikað við að fara þá leið. Erlent 13.8.2007 19:14
2 gíslum sleppt, 18 enn í haldi Uppreisnarmenn Talíbana í Afganistan létu í dag tvær suður-kóreskar konur lausar úr gíslingu. 18 Suður-kóreumenn eru þó enn í haldi þeirra. Erlent 13.8.2007 19:10
Skákborðsmorðinginn fyrir rétt Rússneskur fjöldamorðingi hefur verið ákærður fyrir að myrða 49 manneskjur í Moskvu. Alexander Pichushkin, ætlaði sér að merkja alla 64 reitina á skákborði með nöfnum fórnarlamba sinna og er hann því kallaður „skákborðs morðinginn“ af rússneskum fjölmiðlum. Þegar hann var handtekinn játaði hann fyrir lögreglu að hafa myrt 61 mann í Bittsa garðinum í Moskvu. Erlent 13.8.2007 16:44
Allt að gerast um borð í Endeavour Geimfarar um borð í geimskutlunni Endeavour eru lagðir af stað í aðra geimgöngu sína á Alþjóðageimstöðinni. Erindi þeirra er að skipta um einn af snúðvísum stöðvarinnar. Ráðgert er að geimgangan vari í sex og hálfa klukkustund. Fjórar geimgöngur eru áætlaðar. Erlent 13.8.2007 16:44
Fuglaflensa dregur konu til dauða á Balí 29 ára indónesísk kona lést úr fuglaflensu á eyjunni Balí í gær. Þetta staðfesti heilbrigðisráðuneyti landsins í dag. Þetta er fyrsta mannslát vegna fuglaflensuveirunnar á eyjunni. Samkvæmt yfirlýsingu frá ráðuneytinu lést konan með háan hita á sjúkrahúsi. Erlent 13.8.2007 15:26
Kínverskur leikfangaframleiðandi hengir sig Forstjóri leikfangaverksmiðju í Kína hefur framið sjálfsmorð í kjölfar hneykslismáls en innkalla þurfti milljónir Fisher Price leikfanga sem framleidd voru í verksmiðjunni. Forstjórinn fannst látinn í verksmiðjunni á laugardag að því er kínverskir fjölmiðlar greina frá. Erlent 13.8.2007 15:25
Fimm ára gamall maraþonhlaupari pyntaður Biranchi Das þjálfari hins fimm ára gamla indverska maraþonhlaupara Budhia Singh hefur verið ákærður fyrir að misþyrma drengnum. Das var handtekinn eftir að móðir drengsins tilkynnti að hún hefði fundið ör á syni hennar. Þjálfarinn neitar þessum ásökunum. Erlent 13.8.2007 14:31
Verður ekki kærður fyrir þýðingu á Harry Potter Franskur táningspiltur, sem var handtekinn fyrir að þýða nýjustu Harry Potter bókina yfir á frönsku og birta á netinu, án tilskilinna leyfa, verður ekki kærður fyrir athæfið. Útgefandi bókarinnar í Frakklandi ákvað í samráði við höfundinn, JK Rowling, að falla frá kæra. Erlent 13.8.2007 14:04
Farið fram á að Marta Lovísa afsali sér titlinum Farið er fram á það í norska blaðinu Bergens Tidende í dag að norska prinsessan Marta Lovísa afsali sér titlinum. Í blaðinu er því haldið fram að hún nýti sér titilinn og frægðina til að græða peninga, en hún hefur komið á fót skóla þar sem nemendum er kennt að tala við engla. Erlent 13.8.2007 14:04
Sænsk ungmenni leika sér að dauðanum Sænsk ungmenni virðast sum hver leggja stund á það að taka hvort annað hálstaki þar til líður yfir þau. "Leikinn" taka þau upp á símana sína og setja inn á netið. Tugi slíkra myndbanda er að finna á You Tube síðunni. Erlent 13.8.2007 13:14
Ekki búist við miklum hátíðarhöldum á afmælisdegi Castro Ekki er búist við hefðbundnum hátíðarhöldum í tilefni af 81 árs afmæli Fidel Castro, forseta Cúbu. Á miðnætti var flugeldum skotið á loft í höfuðborginni Havana en ekki er von á frekari viðburðum. Á síðasta afmælisdegi forsetans hélt fólk kertavökur og fór í stuðningsgöngur. Erlent 13.8.2007 11:43
Ótti við heilahimnubólgusmit í flugi til Danmerkur Grunur vaknaði um að fjórtán ára dönsk stúlka sem var á leið frá Bangkok á Kastrupflugvöll í Danmörku í morgun væri með heilahimnubólgu. Farþegar um borð í SAS-vélinni fengu ekki að yfirgefa hana við komuna til Kastrup fyrr en læknar voru búnir að rannsaka stúlkuna. Erlent 13.8.2007 10:35
Tveimur suðurkóreskum gíslum sleppt í dag Tveimur af gíslunum 21 frá Suður-Kóreu sem talibanar rændu fyrir rúmum þremur vikum í Afganistan verður sleppt úr haldi í dag. Reuters-fréttastofan hefur eftir talsmanni talibana að tvímenningarnir séu veikir og munu þeir því koma fólkinu í hendur Rauða krossins um hádegisbil að íslenskum tíma í dag. Erlent 13.8.2007 10:05
Sjónvarpsgláp á unga aldri Myndbönd fyrir ungabörn gera meira ógagn en gagn. Myndbönd sem eru til þess ætluð að örva heila ungbarna til að auka þroska þeirra gætu í raun orðið til þess að hægja á þróun orðaforða þeirra ef þau eru ofnotuð. Þetta kemur fram í nýlegri rannsókn bandarískra vísindamanna við háskólann í Washington. Erlent 13.8.2007 10:00
Rove á förum úr Hvíta húsinu Karl Rove, einn helsti póltíski ráðhgjafi George Bush Bandaríkjaforseta ætlar að segja af sér á næstu dögum ef marka má blaðaviðtal sem birtist í dag. Þar segir Rove, sem oft hefur verið sagður einn áhrifamesti maðurinn í Hvíta húsinu nú um stundir, segir að það sé tímbært að hætta, hann verði að hugsa um hag fjölskyldu sinnar. Erlent 13.8.2007 09:24
Dogster og Catster Bestu vinir mannsins eru líka með heimasíður. Á vefsíðunum dogster.com og catster.com geta hundar (eða öllu heldur eigendur þeirra) skráð veflýsingu á sjálfum sér. Til dæmis gæti hvutti sagst dýrka strendur, garða og að elta bolta, en kisa að hún uni sér best í sólinni og líki vel að tæta niður klósettpappír í frítímum. Síðan er kannski ekki ósvipuð barnalandi.is sem flestir þekkja. Erlent 13.8.2007 09:00
Prestur og kirkjugestir skotnir í messu Prestur og tveir kirkjugestir voru skotnir til bana þegar byssumaður hóf skothríð í kirkju í Missouri fylki í Bandaríkjunum í gær. Fjöldi annarra kirkjugesta særðist í árásinni. Að sögn lögreglu sendi maðurinn öll börn út úr kirkjunni, en hélt á milli 25 og fimmtíu manns í gíslingu þegar lögreglu bar að. Eftir tíu mínútna samningaviðræður við manninn læddust lögreglumenn inn um kjallara hússins, og gafst maðurinn þá upp. Byssumaðurinn hafði deginum áður lent í útistöðum við fjölskyldu í kirkjunni og er það talið eiga þátt í árásinni. Erlent 13.8.2007 08:56
Forsætisráðherra Íraks boðar til neyðarfundar Nouri Al-Maliki forsætisráðherra Íraks hefur kallað leiðtoga helstu stjórnmálaflokka til neyðarfundar, í þeirri von leysa ágreining sem hefur lamað ríkisstjórn hans. Erlent 13.8.2007 08:12
Þriðja tilraunin gerð til að ná til fastra námaverkamanna Björgunarmenn í Utah í Bandaríkjunum bora nú þriðju holuna niður í námu þar sem sex verkamenn sitja fastir. Áður höfðu þeir sent myndavélar niður í tvær holur án þess að finna nokkuð lífsmark. Ekkert hefur heyrst frá mönnunum síðan á mánudag þegar náman hrundi. Hætta þurfti leit tímabundið tvisvar í nótt vegna skjálftavirkni á svæðinu og segja björgunarmenn skilyrðin þau erfiðustu sem þeir hafi kynnst, þó þeir séu vongóðir um að mennirnir finnist á lífi. Erlent 13.8.2007 08:05